Þjóðviljinn - 03.10.1987, Page 7
ERLENDAR FRÉITIR
Guatemala/El Salvador
Friðaiviðræður
öndverðra fylkinga
Skœruliðar og stjórnarliðar í tveim Miðameríkuríkjum munu hefja viðrœður á
nœstunni einsog gert er ráð fyrir í friðaráœtlun forsetanna fimm
tjórnvöid og vinstrisinnaðir
skæruliðar í Guatemaia hafa
ákveðið að hefja viðræður um
frið f landinu og munu þær hefj-
ast á miðvikudag í Madríd.
Greint var frá þessu í yfirlýs-1
Bandaríkin
ingu Byltingareiningar Guate-
mala (URGN) í gær. Þar var þess
ennfremur getið að aðilar hefðu
fallist á vopnahlé sem gekk í gildi
í rauðabýtið í morgun.
Embættismenn stjórnvalda
fengust ekki til að staðfesta þess-
ar fréttir í gær en heimildamaður
sem öllum hnútum kvað vera
kunnugur sagði rétt vera að full-
trúar ráðamanna og skæruliða
myndu eiga viðræður um leiðir til
að binda enda á borgarastríðið.
í yfirlýsingu uppreisnarmanna
Öldungadeild með Satt-2
rátt fyrir að Ronald Reagan
forseti hafi hótað að beita
neitunarvaldi samþykkti öld-
ungadeild Bandaríkjaþings í gær
frumvarp um útgjöld til varnarr-
mála þar sem gert er ráð fyrir
lækkun fjárframlaga til stjörn-
ustríðsáætlunar. Ennfremur er
Reaganstjórninni gert að virða
ákvæði Salt-2 samningsins um
hámarks eldflaugaeign stórveld-
anna.
Lokagerð frumvarpsins er
afurð samkomulags demókrata
og repúblikana í öldunga-
deildinni. Liður í sáttagjörðinni
er ákvæði um að Bandaríkja-
menn virði á ný ákvæði Salt-2
samningsins frá 1979 um að þeir
takmarki kjarn- og sprengi-
flaugasafn sitt við 1,320 stykki.
í nóvember í fyrra gaf Reagan
út fyrskipun um að varnarmála-
ráðuneytið kæmi sér upp 131. B-
52 sprengjuþotunni. Þotur þessar
eru gagngert útbúnar til að flytja
stýriflaugar en samkvæmt Salt-2
samningnum mega Bandaríkja-
menn aðeins éiga 130 slíkar. Á
því ári sem liðið er frá því Reagan
gaf út þessa fyrskipun hafa
Bandaríkjamenn smíðað 14 B-52
sprengjuþotur til viðbótar.
Forseti Bandaríkjanna hefur
neitunarvald í varnarmálum hafi
frumvarp þingsins ekki verið
samþykkt með tveim þriðju hluta
atkvæða. Svo var ekki að þessu
sinni og má því fastlega búast við
því að Reagan beiti þessu valdi
sínu þar eð hann segist öndverður
því að Bandaríkjastjórn haldi
Salt-2 samninginn og ekki um-
bera neinar stjörnustríðstak-
markanir. - ks.
Berfætlingar í Guatemala. Friður innan seilingar?
kemur fram, að að á fundinum
verða ræddar og skilgreindar til-
lögur beggja um hvernig koma
megi á friði.
Forseti .Guatemala, Vinicio
Cerezo, var kjörinn almennri
kosningu árið 1986 eftir áratuga
harðstjórn herforingja. Hann
sagði fyrr í þessari viku að
stjórnvöld væru reiðubúin til að
eiga orðastað við skæruliða en
hinsvegar kæmi ekki til greina að
koma verulega til móts við kröfur
þeirra þar eð þeir væru ekki það
öflugir að ráðamönnum stafaði
mikil hætta af herbrölti þeirra.
Að sögn háttsettra embættis-
manna munu viðræður skæruliða
og ráðamanna í EI Salvador hefj-
ast í fyrramálið einsog gert hafði
verið ráð fyrir. Hann eyddi orð-
rómi um að viðræðurnar myndu '
eiga sér stað í Guatemala og sagði
ekkert því til fyrirstöðu að þær
færu fram í sendiráði Páfagarðs í
San Salvador.
Á fimmtudag hittust fulltrúar
uppreisnarmanna og ríkisstjórn-
ar að máli í Guatemalaborg þar
sem þeir komu sér saman um
áætlun um að tryggja öryggi full-
trúa skæruliða í höfuðborginni en
þar eru margir er fordæma friðar-
viðræður og hafa dauðasveitir á
sínum snærum.
Að undanfömu hafa báðir að-
ila sent frá sér yfirlýsingar sem
ekki benda til þess að hugur fylgi
friðarhjali. Báðir segjast hvergi
hvika frá þeirri stefnu er þeir
héldu fram í viðræðunum árið
1984 og leiddu til þess að þær
samningaumleitanir fóru út um
þúfur.
Ríkisstjórn Napóleons Duart-
es vill að skæruliðar leggi niður
vopn án skilyrða og hefji
stjórnmálabaráttu í núverandi
kerfí. Því vísa skæruliðar á bug.
Ósk þeirra er sú að þeir deili
völdum með Duarte ( bráða-
birgðastjóm sem undirbúi frjáls-
ar kosningar og á meðan sá undir-
búningur fari fram séu liðsmenn
þeirra undir vopnum.
-ks.
... FLEIRINÝJUNGAR inali*