Þjóðviljinn - 20.10.1987, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 20.10.1987, Blaðsíða 7
Spurt um... ...umhverfismál Hjörleifur Guttormsson spyr forsætisráðherra hvernig rikis- stjórnin hyggist undirbúa fram- kvæmd á þeirri stefnu sinni „að sett verði almenn lög um um- hverfismál og samræming þeirra falin einu ráðuneyti'1. Hann spyr einnig hvenær sé gert ráð fyrir frumvarpi um umhverfismál og hvaða ráðuneyti muni fá það hlutverk að samræma stjórn um- hverfismála innan stjórnkerfis- ins. ...framkvæmdir við Egilsstaðaflugvöll Hjörleifur Guttormsson spyr samgönguráðherra hvers vegna ekki hafi verið gengið til samn- inga við heimamenn um fram- kvæmdir við fyrsta áfanga nýs flugvallar á Egilsstöðum. Hann spyr einnig hvernig eigi að haga framkvæmdum við þennan áfanga, ma. við verkbyrjun og verklok. Einnig hvenær ríkis- stjórnin geri ráð fyrir að lokið verði framkvæmdum við flugvöll- inn. ...leiðbeinendur við kennslustörf Hjörleifur Guttormsson spyr menntamálaráðherra hversu margir leiðbeinendur séu nú samtals við kennslu á grunnskóla- og framhaldsskóla- stigi og fer fram á það sundurlið- að eftir fræðsluumdæmum. Hann spyr einnig hversu margir leiðbeinendur voru ráðnir í fyrsta skipti á nýbyrjuðu skólaári. Einn- ig hversu margir leiðbeinendur kenna samræmdar námsgreinar til grunnskólaprófs. Þá spyr hann hvort það hafi í einhverjum tilfell- um þurft að fella niður lögboðna kennslu í grunnskólum og fram- haldsskólum, draga úr náms- framboði eða breyta námstil- högun vegna skorts á starfs- möonum og þá hvar og í hva mikkjm mæti. ...viðskipti vié Suður-Afríku Steingrímur J. Sigfússon spyr utanríkisráðherra um við- skipti við S-Afríku, hvernig það samrýmist yfirlýstri stefnu ís- lenskra stjórnvalda að draga úr samskiptum við S-Afríku og taka þátt í samnorrænum aðgerðum af því tagi, að verslun með vörur frá landinu hefur stóraukist á fyrri hluta þessa árs. Hann sþyr einn- ig hvort ríkisstjórnin hyggist grípa til sérstakra aðgerða, svo sem innflutningsbanns á s-afrískar vörur. ...erlend nöfn á íslenskum fyrirtækjum Guðrún Helgadóttir og Steigrímur J. Sigfússon spyrja viðskiptaráðherra hvort hann telji það samrýmast lögum um versl- unarskrár, firmu og prókúruum- boð að æ fleiri íslensk fyrirtæki beri erlend heiti. Þau spyrja einn- ig hvort ráðherra hafi gert gangs- kör að því að farið sé að þeim lögum, telji hann svo ekki vera. Einnig hvort ráðherra hyggist sþorna við þeirri þróun að íslensk fyrirtæki beri erlend nöfn og þá til hvaða ráða hann hyggist grípa. ...vexti Svavar Gestsson spyr við- skiptaráðherra um hverjir raun- vextir útlána séu að jafnaði að mati ráherra. Einnig hverjir raun- vextir útlána séu að jafnaði í helstu viðskiptalöndum Islend- inga, hver sé óhæfilegur vaxta- munur milli inn- og útlána að mati ráðuneytisins. Hann spyr einnig hvort ríkisstjórnin hafi í hyggju að nota ákvæði 9. gr. laga um Seðlabanka Islands til að hafa áhrif á vaxtastigið. Að lokum spyr hann hver sé almenn túlkun ráð- herra á því ákvæði seðlabanka- laga, að raunvextir útlána og inn- lánsstofnana verði eigi hærri en þeir eru að jafnaði í helstu við- skiptalöndum íslands. Umsión SigurðurÁ. Friðþjófsson —. Framhaldsskólarnir Ahrif landshluta aukin Ragnar Arnalds leggur fram frumvarp um framhaldsskóla Ragnar Arnalds hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um heildarlöggjöf um framhalds- skóla þar sem bryddað er upp á ýmsum nýjungum og dregið mjög úr einhliða ákvörðunarvaldi menntamálaráðuneytisins en áhrif fræðsluumdæmanna á stefnumótun og stjórnun fram- haldsmenntunar aukin að sama skapi. í greinargerð með frumvarp- inu segir að það hafi dregist úr hömlu að setja heildarlöggjöf um framhaldsskóla, en slíkt hafi tafið æskilega þróun framhalds- menntunar og jafnframt valdið margs konar vandræðum og óvissu varðandi starfsemi og rekstur framhaldsskólanna. Frumvarpið byggir á þeirri al- mennu stefnu að framhalds- menntun sé samfélagslegt úr- lausnarefni, menntunin þurfi að þjóna því markmiði að skapa skilyrði til að fullnægja náms- og þroskaþörf allra að skyldunámi loknu. f frumvarpinu er ákvæði um skiptingu landsins í fræðsluum- dæmi og um kostnaðarskiptingu milli ríkis og fræðsluráða, en þau eru að efni til þau sömu og fram komu í tillögum sem hópur sveitarstjórnarmanna sendi menntamálaráðherra í septemb- er 1985. „í frumvarpinu er leitað jafnvægis milli miðstýringar og valddreifingar," segir í greinar- gerðinni. í lok greinargerðarinn- ar segir orðrétt: „Urn leið og vinna ber að hagkvæmni í rekstri framhaldsskóla þarf að bægja þeirri hættu frá að markaðshyg- gja og einsýni ráði ferðinni varð- andi hlutverk skóla og þróun menntamála. Aðeins vakandi al- menningsálit og samstaða þeirra, sem vilja efla skólann sem vett- vang fyrir þekkingarleit og skap- andi uppeldisstarf, getur hindrað slíka öfugþróun og veitt brautar- gengi hugmyndum og tillögum sem miða að betri skóla." Meðflutningsmenn Ragnars Arnalds eru þingmenn Alþýðu- bandalagsins í neðri deild, þau Hjörleifur Guttormsson, Guð- rún Helgadóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ólafur Ragnar Grímsson. -Sáf Ferðamál Ferðamálafulltnia á landsbyggðina Þingmenn Framsóknarflytja tillögu sem gerir ráðfyrir útgjaldaauka á fjárlögum. Stjórnarandstaðan styður tillöguna en telur hana hálfgerða sýndarmennsku Töluverðar umræður spunnust um þingsályktunartillögu sem Pétur Bjarnason flutti ásamt fleiri þingmönnum Framsóknarflokks- ins, á fundi sameinaðs Alþingis sl. fimmtudag. Tillagan gerir ráð fyrir því að stofnað verði embætti ferðamálafulltrúa í landsbyggð- arkjördæmunum, tvö stöðugildi 1988, tvö til viðbótar 1989 og tvö að lokum 1999. Laun ferðamálafulltrúanna skulu greidd úr ríkissjóði en rekstrarkostnaöur af viðkomandi ferðamálasamtökum. Þá gerir til- lagan ráð fyrir að 10% gjaldi á vörusölu Fríhafnarinnar í Kefla- vík verði ráðstafað óskertu til ferðamála og að endurskoðun á lögum um skipulag ferðamála verði hraðað. Hjörleifur Guttormsson sagði brýnt að Alþingi marki afstöðu til þess hvernig að uppbyggingu ferðamála sé staðið. Sagðist hann taka undir með flutningsmanni tillögunnar en að hann teldi nauðsynlegt að taka upp stefnuna í víðara samhengi. Fleiri þingmenn stjórnarand- stöðunnar tóku til máls og sögðust styðja tillöguna. Gagnrýndu þeir þó að ekki væri gert ráð fyrir þessum stöðugild- um í fjárlögum. Albert Guð- mundsson sagðist styðja þá stjórnarþingmenn sem viidu gera bragarbót á fjárlögum. Óli Þ. Guðbjartsson sagðist styðja til- löguna og ræddi sérstaklega um aðstæður við Gullfoss sem þyldu enga frið. Kristín Halldórsdóttir sagðist einnig styðja tillöguna og Pótur Bjarnason þingmaður Framsóknarflokks flutti þingsályktunartillögu um ferðamálafulltrúa á landsbyggðina. Við hlið hans er Málmfríður Sigurðardóttir, Kvennalista, en fulltrúar hans sem og annarra stjórnarandstöðuflokka lýstu stuðningi við þingsályktunartillöguna. (Mynd: E.ÓI.) Steingrímur J. Sigfússon tók í sama streng en benti á að fjárlög væru ekki í samræmi við til- löguna. „Ég sé ekki hvernig þingmenn Framsóknar geta staðið að þessu nema þeir séu með fyrirvara um fleira en landbúnaðarmál í fjár- lagafrumvarpinu," sagði Stein- grímur. Eiður Guðnason benti Óla Þ. á að hann hefði flutt tillögu um Gullfoss á síðasta þingi þannig að ýmislegt hefði gerst fyrir stofnun Borgaraflokksins. Karvel Pálmason kvað þetta hálfgerða sýndarmennskutillögu, þar sem fjárlög gerðu ekki ráð fyrir að styðja hana með fram- lögum. Jón Kristjánsson, einn af flutn- ingsmönnum tillögunnar, taldi það enga nýlundu að stjórnarlið- ar eða stjórnarandstaða fengju samþykkta tillögu sem leiddi til útgjaldaauka. -Sáf Nefndakjör Nefndir sameinaðs Alþingis Fyrsta verk þingmanna á 110. löggjafaþingi Islendinga var að kjósa menn í nefndir. Undir sam- einað Alþingi heyra fimm nefndir og birtum við hér hverjir voru kosnir í þær nefndir. Formaður fjárveitinganefndar er Sighvatur Björgvinsson (Af.Vf), varaformaður er Alex- ander Stefánsson (F.Vl.), aðrir í fjárveitinganefnd eru Egill Jóns- son (S.Au.), Friðjón Þórðarson (S.VÍ.), Málmfríður Sigurðar- dóttir (K.N.e), Margrét Frím- annsdóttir (Ab.S.), Ólafur Þ. Þórðarson (F.Vf.), Óli Þ. Guð- bjartsson (B.Su.) og Pálmi Jóns- son (S.N.v.). Eyjólfur Konráð Jónsson (S.Rv.) er formaður utanríkis- málanefndar og Kjartan Jó- hannsson (Af.Rn.) varaformað- ur. Aðrir í utanríkismálanefnd eru Guðmundur G. Þórarinsson (F.Rv.), Hjörleifur Guttormsson (Ab.Au.), Hreggviður Jónsson (B.Rn.), Páll Pétursson (F.N.v.) og Ragnhildur Helgadóttir (S.Rv.). Salóme Þorkelsdóttir (S.Rn.) er formaður félagsmálanefndar og Guðni Ágústsson (F.Su.) varaformaður. Aðrir í félags- málanefnd eru Alexander Stef- ánsson (F.Vl.), Eiður Guðnason (Af.Vl.), Guðmundur Ágústsson (B.Rv.), Ólafur G. Einarsson (S.Rn.) og Þórhildur Þorleifs- dóttir (K.Rv.). Atvinnumálanefnd og allsherj- arnefnd hafa ekki enn valið sér formenn og varaformenn. í atvinnumálanefnd sitja Aðal- heiður Bjarnfreðsdóttir (B.Rv.), Eggert Haukdal (S.Su.), Geir Gunnarsson (Ab.Rn.), Guð- mundur H. Garðarsson (S.Rv.), Jón Sæmundur Sigurjónsson (Af.N.v.), Ólafur Þ. Þórðarson (F.Vf.) og Valgerður Sverris- dóttir (F.N.e.) í allsherjarnefnd sitja Árni Gunnarsson (Af.N.e.), Guðni Ágústsson (F.Su.), Guðrún Helgadóttir (Áb.Rv.), Jón Krist- jánsson (F.Au.), Kristín Hall- dórsdóttir (K.Rn.), Pálmi Jóns- son (S.N.v.) og Sverrir Her- mannsson (S.Au.). -Sáf Þriðjudagur 20. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.