Þjóðviljinn - 20.10.1987, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 20.10.1987, Qupperneq 10
H| REYKJMJÍKURBORG Rfl Mr Aautein, Stödun Ðókasafnsfræðingar Hjá skólasafnamiöstöö skólaskrifstofu Reykja- víkur eru lausar til umsóknar nú þegar, tvær stöð- ur bókasafnsfræðinga: 1. Skólasafnafulltrúi Skólasafnafulltrúi er forstööumaöur skólasafna- miöstöövar. Hann hefur m.a. eftirlit og umsjón með skólasöfnum í Reykjavík og leiðbeinir skóla- safnvöröum í starfi. 2. Bókasafnsfræðingur Bókasafnsfræöingur annast m.a. flokkun, skrán- ingu og önnur sérfræöistörf. Hlutastarf kemur til greina. Skólasafnamiöstöö skólaskrifstofu Reykjavíkur er þjónustumiðstöð fyrir skólasöfn grunnskóla Reykjavíkur, tvo framhaldsskóla og nokkrar sér- deildir. Hún er til húsa í Miðbæjarskólanum viö Fríkirkjuveg. Nánari upplýsingar eru veittar hjá skólasafna- miðstöð, í síma 28544. (Auðbjörg) kl. 9.00-13.00 virka daga. Umsóknarfrestur er til 30. október 1987. Umóknum ber aö skila til Starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæö á eyðublöðum sem þar fást. firTÝA Félagsfundur Vörubílstjórafélagsins Þróttar verður haldinn fimmtudaginn 22.10. 1987 kl. 20.30 að Borgartúni 33. Dagskrá: 1. Atvinnumál 2. Húsnæðismál L.V. 3. Önnur mál. Stfómin Aðstoðarmann vantar viö gerð námsgagna í Blindrabókasafni íslands. Kennaramenntun æskileg. Upplýsingar gefur forstööumaöur í síma 686922. Blindrabókasafn íslands LÖGTÖK Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og aö undan- gengnum úrskuröi veröa lögtök látin fram fara án frekari fyrirvara á kostnaö gjaldenda, en ábyrgö ríkissjóös, að átta dögum liðnum frá birtingu auglýsingar þessarar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Söluskatti fyrir apríl, maí, júní, júlí, ágúst og sept. 1987;svoog söluskattshækkunum, álögðum 12. júní 1987; til 12. okt. 1987 vörugjaldi af innlendri framleiðslu fyrir apríl, maí, júní, júlí, ágúst og sept. 1987; mælagjaldi af dísilbifreiöum, gjaldföllnum 11. sept. 1987; skemmtanaskatti fyrir maí, júní, júlí, ágúst og sept. 1987; svo og launaskatti, gjaldföllnum 1986. Reykjavík 13. okt. 1987 Borgarfógetaembættið í Reykjavík Móðir okkar og systir Jóna Sveinsdóttir Marargötu 4 lést 17. október í Landspítalanum. Sveinn Þorkelsson Dóra Diego Þorkelsdóttir Hjálmar Diego Þorkelsson Þorkell Diego Þorkelsson Jón Þorkelsson Arnheiður Sveinsdóttir Þórunn Sveinsdóttir ERLENDAR FRÉTTIR Ladies‘ Home Journal Thatcher áhrifamest Könnun meðal blaðaritstjóra um áhrifamestu konurheims: Thatcher, Aquino, Móðir Teresa, Winnie Mandela, Elísabetdrottning Margrét Thatcher er áhrifa- mesta kona heims sam- kvæmt könnun bandaríska kvennatímaritsins Ladies‘ Home Journal. Svarendur í könnuninni voru ritstjórar 250 dagblaða víða um heim, - meðal annars Þjóð- viljans. Önnur á eftir breska forsætis- ráðherranum í könnuninni var Corazon Aquino forseti Filipps- eyja, þriðja Móðir Teresa nunna og handhafi friðarverðlauna Nóbels. í fjórða sæti er Winnie Mandela, eiginkona Nelsons og einn af helstu forystumönnum blökkumanna í Suður-Afríku. Elísabet Englandsdrottning er í fimmta sæti, og í sjötta banda- ríska blaðadrottningin Katharine Graham, sem meðal annars stjórnar Washington Post og Newsweek. Næst koma Nancy Reagan forsetafrú í Hvíta húsinu, Melina Mercouri leikari og menntamálaráðherra í Aþenu, Raísa Gorbatsjova aðalritarafrú í Kreml og franski stjórnmálamað- urinn Simone Veil, fyrrverandi heilbrigðisráðherra og fyrsti forseti þings Evrópubandalags- ins. Blaðið sendi út 100 nafna lista til ritstjóranna til að velja úr og bæta á. Á þeim lista var meðal annars nafn Vigdísar Finnboga- dóttr forseta íslands. í könnuninni lenti norski forsætisráðherrann Gro Harlem Brundtland i 15. sæti, þýski Græninginn Petra Kelly í 16., norska leikkonan Liv Ullman í 22. sæti, Díana prinsessa Breta í 23. sæti og breski rithöfundurinn Doris Lessing í 25. sæti. -m Sovétríkin Efnahagsáætlun næsta árs Stórátak í vélaiðnaði og betri nýting náttúruauðlinda efst á baugi. Útgjöld til varnarmála standa í stað Sovéskir ráðamenn lögðu í gær fram efnahagsáætlun fyrir árið 1988. I henni er áhersla lögð á betri nýtingu náttúruauðlinda og mikla endurnýjun í vélaiðnaði. Áætlanastjórinn Nikolai Tal- yzin tjáði Æðsta ráðinu að gert væri ráð fyrir að iðnframleiðsla ykist um 4,5 af hundraði á næsta ári en reiknað er með að aukning- in verði 4,4 af hundraði í ár. Iðn- framleiðsla hefur aukist um 3,6 af hundraði það sem af er þessu ári. Ennfremur kvað hann stefnt að því að þjóðartekjur ykjust um 4,3 af hundraði á næsta ári á móti 4,1 prósent hækkun í ár. Talyzin sagði stjórn sína hafa í hyggju að uppskera um 235 milj- ónir smálesta af korni á næsta ári sem væri 3 miljónum meira en framleiða ætti í ár. Heildarupp- skeran í fyrra var hinsvegar að- eins 210 miljónir smálesta og reiknað er með að mikil vætutíð, sem verið hefur eystra í sumar og haust, setji strik í uppskeru- reikning ársins í ár. Megináhersla verður lögð á vélaiðnaðinn á næsta ári enda í samræmi við yfirlýsingar Míkaels Gorbatsjofs aðalritara um að gagnger og skjót endurnýjun hans sé forsenda þess að Sovét- menn geri strandhögg á heimsmarkaði. „Vissir örðugleikar hafa komið upp í sambandi við vélafram- leiðslu," sagði Talyzin í gær, „ýmsan búnað skortir sárlega í efnahagslífinu og illa gengur að ráða bót á því.“ Samkvæmt sovéskum hagtöl- um jókst framleiðsla á allskyns búnaði til verkframkvæmda um 3.3 af hundraði fyrstu níu mánuði þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Áætlað er að framleiðslu- aukning á þessu sviði verði um 7.3 prósent á næsta ári. Talyzin kvað pólitíska fram- kvæmdanefnd Kommúnista- flokksins nýskeð hafa ályktað á þá lund að betri nýting og varð- veisla náttúruauðlinda væri ein aðalforsenda efnahagsframfara í landinu. „Miklar aðgerðir eru fyrirhugaðar til að koma þessum málum í viðunandi horf,“ sagði hann í gær. Talyzin sagði að endingu að út- gjöld yrðu stóraukin til heilbrigð- is, mennta, ellilífeyris og trygg- ingamála á næsta ári. 171 miljón rúblna yrði brúkuð til þessara mála sem væri 3,5 miljón rúblna aukning frá því sem upphaflega var kveðið á um í fimm ára áætl- uninni (1986-1990). Boris Gustev fjármálaráðherra tjáði Æðsta ráðinu í gær að 20,2 miljörðum rúblna (1280 miljörð- um íslenskra króna) yrði varið til vamarmála á næsta ári sem er sama upphæð og eytt var í hermál á þessu ári. Sérfræðingar á Vesturlöndum gjalda varhuga við þessum tölum, segja þær of lágar, en full- yrða að mjög erfitt sé að henda reiður á raunverulegum varnar- útgjöldum Sovétmanna þar eð hergagnaiðnaður þeirra fléttist á margvíslegan hátt öðrum iðnaði. - ks. 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 20. október 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.