Þjóðviljinn - 20.10.1987, Side 4
Þorskflökin koma úr flökunarvélinni og eru snurfusuð á Ijósaborðinu.
Pétur Jóhannsson, verkstjóri í Hróa.
Ólafsvík
Saltað í Hróa
Saltfiskverkunin Hrói hf er ein
af stærstu saltfiskverkunum í
landinu. Þegar Þjóðviljinn leit
þar við fyrr í mánuðinum var
allt á fullu við verkunina.
„Það er útlit fyrir 900 tonna
ársframleiðslu í ár, sem er svipað
og í fyrra,“ sagði Pétur Jóhanns-
son, verkstjóri. Mest hefur hins-
vegar verið framleitt um 1500
tonn í Hróa.
Hrói er eingöngu í saltfiski og
er fiskurinn saltaður á alla hefð-
bundna markaði. Hjá fyrirtækinu
vinna um 20 manns núna en yfir
hávertíðina fjölgar starfsfólki um
helming og eru þá um 40 manns
starfandi við söltunina.
„Við höfum verið mjög heppn-
ir með starfsfólk og gengið vel að
manna starfsemina. Sama fólkið
Síldarvinnslan hf.
Neskaupstað - Sími 97-7500
Starfrækjum: Gerum út eftirtalin skip:
Frystihús Birtingur NK 119
Saltfiskverkun Barði NK 120
Síldarsöltun Bjartur NK 121
Loðnuverksmiðju Börkur NK 122
Reykiðju Véismiðju Bílaverkstæði Dráttarbraut Beitir NK 123
er hjá okkur ár eftir ár þannig að
mannekla hefur ekki háð starf-
seminni.“
Pétur sagði að afkoman væri
nokkuð góð núna þar sem mark-
aðsverð hefur verið mjög hátt og
hráefni gott.
„Afkoman er fyrst og fremst
undir hráefninu komin. Undan-
farin tvö ár hefur hráefnið verið
mjög gott en árin 1983-1985 var
fiskurinn mun smærri. Þá er verð
á erlendum mörkuðum mjög
þokkalegt núna. Fiskverðið er í
hámarki núna og ég hef ekki trú á
því að það hækki meira. Þjóðim-
ar geta einfaldlega ekki borgað
hærra verð fyrir fiskinn. Fiskur er
farinn að kosta meira en kjöt í
helstu viðskiptalöndum okkar.“
Pétur taldi að ýmsar blikur
væru á lofti innanlands, þar sem
allt verðlag er á uppleið en fiskur-
inn hafi ekkert hækkað að undan-
förnu. „Það er hætt við því að
fastgengisstefnunni verði ekki
langra auðdaga lífdaga úr þessu.“
Hvað kjaramál fiskvinnslu-
fólks varðar þá telur Pétur að þeir
sem vinna að vinnslunni eigi að
sitja við sama borð og sjómenn
hvað skattafríðindi varðar. Telur
hann að yfirvinnan eigi að vera
undanskilin skatti.
„Verkafólk ætti ekki síður að
hafa þetta en sjómenn. Fisk-
vinnslufólkið vinnur iðulega
mikla yfirvinnu til þess að bjarga
verðmætum. Það er ekki rétt að
refsa fólki fyrir slíkt með háum
álögum.“ -Sáf
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN