Þjóðviljinn - 20.10.1987, Blaðsíða 6
Útflutningsiðnaður
Sífellt
vakandi fyrir
tækninýjungum
Kristján Guðmundsson hjá Landssambandi
iðnaðarmanna: Sjávarútvegssýningin skilaði
ómældum arði. Lyftistöng fyrir innlendan iðnað.
Skipasmíðastöðvar hafa ekki nægileg verkefni.
Sjávarútvegssýningin sem
haldin var í Laugardalshöll í
síðasta mánuði vakti gífurlega
athygli jafnt meðal lands-
manna og þeirra útlendinga
sem hingað komu. Aldrei hef-
uráðurveriðhaldinönnur
eins sýning, bæði hvaðvarð-
ar stærð og fjölda sýnenda,
sem voru frá 460 fyrirtækjum
frá 22 löndum víðs vegar í
heiminum.
Sýningin sannaði, svo ekki
varð um villst, að íslenskur iðn-
aður stendur vel að vígi í fram-
leiðslu á vélum og tækjum til sjá-
varútvegs og erlendum keppi-
nautum fyllilega á sporði. Sér-
staklega var um að ræða fisk-
vinnsluvélar ýmiss konar, raf-
eindavogir, bobbinga og tog-
hlera. En minna fór fyrir inn-
lendri nýsmíði frá skipasmíða-
stöðvum, nema ef vera skyldi
smíði smábáta ýmiss konar.
Til að forvitnast nánar um
hvað svona sýning getur haft
mikið gildi fyrir innlendan iðnað
og hver staða skipasmíðastöðva
væri í dag, heimsótti tíðindamað-
ur Þóðviljans Krístján Guð-
mundsson, viðskiptafræðing hjá
Landssambandi iðnaðarmanna.
Ódýrasta og
besta kynningin
Kristján var fyrst spurður um
gildi sjávarútvegssýninga fyrir inn-
lendan iðnað?
„Það er alveg óhætt að fullyrða
að sjávarútvegssýningin var
ódýrasta og besta kynningin sem
hægt var að fá fyrir öll innlend
fyrirtæki sem framleiða vélar og
tæki fyrir sjávarútveginn, bæði
fyrir innlendan og erlendan
markað. Hingað komu fjölmarg-
ir erlendir gestir til að kaupa og
skoða það sem á boðstólum var.
Því það er grundvallaratriði fyrir
sérhvern framleiðanda sem vill
koma sinni vöru á framfæri að
taka þátt í kynningarstarfi, eins
og fram fer á sýningum sem þess-
um. Fyrir þá sem voru að byrja
var sýningin kærkomið tækifæri
til að spreyta sig í fyrsta sinn.
sex ára þá hefur undantekningar-
lítið verið um mikla aukningu að
ræða. Árið 1981 voru flutt út 18.4
tonn af vélum og tækjum fyrir
sjávarútveg. 1982 kemur mikið
stökk og eru þá flutt út hvorki
meira né minnaen 281tonn. 1983
217 tonn, 1984 292 tonn, 1985 368
tonn og í fyrra voru flutt út 688.9
tonn að verðmæti 194.6 milljónir
króna. í þessum útflutningi er
fyrst og fremst um að ræða fisk-
vinnsluvélar, rafeindavogir,
bobbinga og toghlera."
Eru það einhverjir markaðir
'óðrum fremur sem íslensk fyrir-
tœki hafa náð fótfestu á erlendis?
„Það eru fyrst og fremst Norð-
urlöndin og þar fremst í flokki
eru Noregur, Grænland og Fær-
eyjar. Sem dæmi má nefna að við
fluttum út til Grænlands fyrir að-
eins 3 milljónir króna árið 1983
en í fyrra var útflutningsverð-
mætið komið uppí 43 milljónir
króna. Skýringin á þessari miklu
aukningu er aðallega fólgin í því
að íslendingar hafa ekki haft
mikil afskipti af markaðinum á
Grænlandi fyrr en á allra síðustu
árurn. Þar kemur líka til að áhugi
Grænlendinga á viðskiptum við
okkur hefur stóraukist. Sem
dæmi má nefna að á sjávarútvegs-
sýninguna hér kom 30 manna
sendinefnd frá Grænlandi þar
sem í voru iðnráðgjafar, sjómenn
og aðilar tengdir fiskvinnslu. Við
hjá Landssambandi iðnaðar-
manna héldum fund með þeim og
í dag er Útflutningsráð íslands að
vinna að skýrslu um útflutning
okkar þangað."
Aö ota
sínum tota
Má ekki gera ráð fyrirþví ífram-
tíðinni að um aukningu verði að
rœða í sýningarhaldi innlendra
framleiðenda á fagsýningum á
borð við sjávarútvegssýninguna.
„Jú,það er alvegöruggt. Menn
eru ennþá skýjum ofar yfir vel-
gengninni eftir síðustu sýningu og
margir sem ég veit um, hafa pant-
að sýningarpláss á næstu sýningu
sem verður haldin hér á landi
eftir þrjú ár.
Þeir sem aldrei áður hafa tekið
þátt í svona sýningum, hafa
sannfærst um að ef þeir ætla sér
að vera með í slagnum um að
koma sinni vöru á framfæri, þá
verða þeir að taka þátt í svona
sýningum. Enda held ég að það
fyrirfinnist varla sá framleiðandi í
dág sem ekki hefur þessa staðr-
eynd á hreinu. Frá árinu 1984,
þegar sjávarútvegssýning var
næstsíðast haldin hér á landi, hef-
ur fyrirtækjum farið mjög fram í
vöruþróun og markaðskynning-
um. Enda fór það svo að pantanir
og sala á sjávarútvegssýningunni
fór fram úr öllum áætlunum og
. varð meiri en bjartsýnustu menn
þorðu að vona í byrjun, en tölur
um það liggja þó ekki fyrir enn
sem komið er.“
Nýsmíðin
hornreka
Snúum okkur að öðru. Nýsmíði
skipa hér innanlands hefur átt örð-
ugt uppdráttar á undanförnum
árum. Hvernig er staðan í þeim
málum í dag og hvert stefnir?
„Eins og staðan er í dag hjá
skipasmiðjum er nær að spyrja
hvenær verður bannað að gera
við skip hér á landi? Sú staða er
komin upp að þrátt fyrir það að
nýsmíði stálskipa sé aðeins um
tuttugu ára gömul, erum við þeg-
ar farin að missa kunnáttumenn
úr stöðvunum og nýsmíði hefur
nánast engin verið á undanförn-
um árum ef undanskilin er ný-
smíði báta undir 10 tonnum. Sú
nýsmíði hefur haldið líftórunni í
skipasmíðastöðvunum hingað til,
en hve lengi í óbreyttu ástandi er
erfitt að segja.“
Meðalaldur báta
og skipa hár
„Nauðsynleg endurnýjun á
okkar skipastól er brýn og þarf
ekki annað en að sjá meðalaldur
skipanna til að komast að raun
um það. Árið 1986 var meðalald-
ur báta frá 50 brúttótonnum til 90
tonna hvorki meiri né minni en
28.5 ár. Meðalaldurinn á bátum
og skipum frá 100 tonnum til 150
tonna var 23-24 ár, frá 150 tonn-
um til 199 tonna skipa var meðal-
aldurinn 21.8 ár, 200-299 tonna
skipum 17.6 ár, 300-499 tonnum
14.4 ár og yfir 500 tonna brúttó-
rúmlestum var meðalaldurinn
16.8. Það sér hver maður að hjá
þjóð sem á allt sitt undir fisk-
veiðum gengur svona lagað ekki
til lengdar og ærið mikil skamm-
sýni stjórnvalda að standa ekki
betur að þessum málum en nú er
gert. Hér ríkir algert stefnuleysi í
þessum málum, og svo virðist
sem við höfum ekkert lært af sög-
unni.
Það þarf ekki annað en að líta á
hvernig við höfum fjárfest í
skipum og bátum á liðnum ára-
Aukning í
útflutningi
Hvernig hefur þróunin verið á
undanfómum árum í útflutningi
véla og tœkja fyrir sjávarútveg?
„Hún hefur að mörgu leyti ver-
ið mjög góð. Ef litið er til síðustu
Þessi mynd þarfnast varla skýringa. Á henni sést vel hvernig viö
höfum fjárfest í fiskiskipum frá því 1938 og fram á síðasta ár. Svarta
línan neðst á myndinni sýnir hlut innlendrar skipasmíði á tímabilinu.
Annað er erlend smíði. Sveiflurnar í fjárfestingunum sjást vel og
stærstu topparnir eru á tíma nýsköpunar og þegar skuttogaraöldin
gekk í garð.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN