Þjóðviljinn - 20.10.1987, Page 15
Byggðastofnun
Útgerðarstaðir á Islandi
Safnaö saman upplýsingum til aö auövelda samanburð þegar meta á hvort
einhverjir staöir hafi fariö halloka. Reynt að meta áhrif kvótakerfisins á byggðaþróun.
í síöasta mánuði sendi
Byggðastofnun frá sér skýrslu
sem ber heitið Útgerðarstaðir
áíslandi. Þarmáfinnayfirlit
um atvinnulíf, fólksfjölda og
útgerð í byggðarlögum þar
sem sjávarútvegur er aðalat-
vinnuvegur eða þar sem hann
er mjög mikill á landsmæli-
kvarða. Skoðaðar eru
breytingar á fólksfjölda og
þróun atvinnulífs einkum með
tilliti til útgerðar síðustu 6 til 8
árin. Sérstaklegabeinistat-
hyglin að því hvort ástandið á
ákveðnum stöðum hafi breyst
til hins verra með tilkomu
kvóta á fiskveiðiskip. Eitt af
markmiðum skýrslunnar er að
gefa mynd af þróun á einstök-
um stöðum í samhengi við
heildarþróun á öllu landinu.
Bent er á að upplýsingar um
þróun og stöðu einstakra þátta í
sjávarútvegi hafi gjarnan verið
notaðar sem rökstuðningur með
tilmælum um fyrirgreiðslu
stjórnvalda, svo sem um útvegun
leyfis til skipakaupa. Skýrslan
ætti að auðvelda mönnum að
skoða þessa þætti í heildarsam-
hengi.
í formála að skýrslunni er þess
getið að ríkisstjórnin hafi falið
stofnuninni að gera úttekt á ást-
andi atvinnumála á þeim útgerð-
arstöðum sem höllustum fæti
virtust standa. Það sé aftur á móti
ekki einfalt mál að meta hvaða
byggðarlög eigi við meiri vanda
að etja en önnur, svipuð vanda-
mál fái oft mismunandi athygli
fjölmiðla og stjórnvalda. Þess
vegna hafi orðið úr að leggja mat
á stöðuna á öllum útgerðarstöð-
um á landinu.
Höfundar skýrslunnar benda á
að tilhneiging til stöðnunar og
jafnvel íbúafækkunar er mest á
stöðum með hátt hlutfall starfa í
sjávarútvegi. Aftur á móti aukist
íbúafjöldi þeirra staða, sem hafa
stórt þjónustusvæði, jafnvel þótt
hlutfallslegt vægi sjávarútvegs í
atvinnulífinu fari minnkandi.
ÓP
ísafjörður
Lítil verðlagsráð
úti um allt land
Rúnar Grímsson varaformaöur Sjómannafélags
ísfiröinga: Frjálst f iskverö í einu tilviki
„Ég veit aðeins um eitt tilvik
þar sem hægt er að tala um
að frjálst fiskverð hafi verið í
framkvæmd hér á Vestfjörð-
um. Það var í sumar þegar
íshúsfélag ísfirðinga hringdi í
Guðbjörgu ÍS 46 út á miðin og
bauð þeim 35 krónur fyrir kíló-
ið af þorskinum ef þeir kæmu
inntil löndunar," segir fíunar
Grímsson, varaformaður Sjó-
mannafélags ísfirðinga.
í nýgerðum samningum milli
sjómanna á Vestfjörðum og fisk-
kaupenda er verðið fyrir 2 kílóa
þorsk, sem er uppistaðan í
veiðum Vestfirðinga, með kassa-
uppbót 31 króna.
Að sögn Rúnars hefur þróunin
verið sú, eftir að fiskverð var gef-
ið frjálst 15. júní síðastliðinn, út
um alla strönd, að þar hafa mynd-
ast lítil Verðlagsráð, sem hafa í
samningum milli sjómanna og
fiskkaupenda komið sér saman
um lágmarksverð á fiskinum.
Aðspurður um aflabrögð í
sumar og haust, sagði Rúnar að
þau hefðu verið þokkaleg, en á
síðustu dögum hefði verið lítið
um gæftir vegna brælu og ótíðar.
„Það er nóg af fiski hér fyrir
utan Vestfirðina og við á Guð-
bjarti ÍS gætum fiskað mun meira
en við gerum vegna kvótans,“
sagði Rúnar Grímsson.
-grh
★ Við búum yfir áratuga reynslu
í smiðum, viðgerðum og breytingum á skipum.
+ Við höfum á að skipa hæfum iðnaðarmönnum
og öflugu tækniliði.
★ Við starfrækjum: Dráttarbraut
Plötusmiðju
Vélsmiðju
Trésmiðaverkstæði
★ Við framleiðum rækjudælur
★ Við hönnum og smiðum skrúfuhringi
★ Við höfum ávallt á lager ýmsan skipsbúnað,
og efni og vöru til skipaviðgerða.
26,00 m
6,40 m
5,45 m
Lengd 12,00 m Nýsmíði nr. 55
Breidd 3,80 m jan. 1988.
9,9 brl.
SKIPASMÍÐASTÖÐ MARSELLÍUSAR hf.
Suðurtangi 6 — 400 (safjörður — lceland
P. O. Box 371 — Tel 354-4-3575
Telex: Sandis 2061 IS —Telefax (4) 4471
Lengd
Breidd
Dýpt
Fjöltækni sf.
Eyjarslóð9-121 R.vík.
yJ Sími 27580
Fittings fyrir Ö hringi
Subunipplfjr
Einstefnulokar-
Háþrýsti og lágþrýsti
Kúlulokar
Rörabaulur
Flangsatengi
Stál- kopar og rústfrír
fittings
Svart- og galvaníserað
og rústfrítt
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15