Þjóðviljinn - 22.10.1987, Side 1
Fimmtudagur 22. október 1987 235. tölublað 52. árgangur
Húsnœðismálin
Ríkisstjómin lögð að veði
Jóhanna Sigurðardóttir: Standi ríkisstjórnin ekki öll að baki húsnœðisfrumvarpinu eru
komnir alvarlegir þverbrestir ístjórnarsamstarfið. Nýtt húsnœðisfrumvarp lagtfram ígœr.
Framsóknar- og Sjálfstœðisflokkur með fyrirvara
Ríkisstjórnin stendur öil að
baki þessu frumvarpi. Komi
annað í ljós eru komnir alvarlegir
þverbrestir í stjórnarsamstarfið,
sagði Jóhanna Sigurðardóttir,
þegar hún kynnti frumvarp sitt
um breytingu á húsnæðislána-
kerfinu, sem lagt var fram á Al-
þingi í gær.
Ljóst er að ýmsir af þing-
mönnum Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks eru andvígir
þessu frumvarpi og hefur Páll
Pétursson sagt frumvarpið illa
unnið og að greinargerðin væri
rugl. Þá er Alexander Stefánsson
lítt hrifinn af frumvarpinu.
í ofanálag sendi þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins Alþýðu-
flokknum bréf í gær, þar sem
gerðar eru ítarlegar athuga-
semdir við frumvarpið. Tilkynnt
var að fulltrúar flokksins í fél-
agsmálanefnd muni beita sér fyrir
veigamiklum breytingum á frum-
varpinu.
Að sögn Jóhönnu er verið að
stíga á bremsurnar því ef ekkert
verði aðhafst þá stefni í að loka
þurfi húsnæðislánakerfínu á nýj-
an leik á miðju næsta ári, þar sem
öllu fjármagni Byggingarsjóðs
ríkisins, sem um hefur verið sam-
ið við lífeyrissjóðina, verði þá
ráðstafað. Þeim ráðstöfunum
Matarskatturinn
Framsókn
skrifar Jóni
Ragna Bergmann:
Mótmælum skattinum.
Tek ekki undir orð
varaformanns
Verkamanna-
sambandsins í
Þjóðviljanum í gœr
Matarskatturinn var tekinn
fyrir á fundi stjórnar verka-
kvennaféiagsins Framsóknar og
kom þar fram einhuga andstaða
við söluskatt á matvæli. Var
ákveðið í framhaldi af því að
skrifa fjármálaráðherra bréf þar
sem skattinum yrði mótmælt.
„Ég tel mjög miður að matar-
skattar séu settir á, þar sem þeir
koma verst niður á láglaunafólki
og félagar í verkakvennafélaginu
eru með lág laun,“ sagði Ragna
Bergmann, formaður verka-
kvennafélagsins Framsóknar.
Ragna sagði að félagið myndi
beita sér gegn þessari skattlagn-
ingu og að þegar hefði verið
ákveðið að mótmæla þessu við
fj ármálaráðherra.
Karl Steinar Guðnason, vara-
formaður Verkamannasam-
bandsins, lýsti því yfir í Þjóðvilj-
anum í gær að hann styddi matar-
skattinn og var Ragna spurð
hvort hún væri þá á öndverðum
meiði við varaformann VMSÍ.
„Ég get ekki skrifað upp á orð
Karls Steinars þar sem ég er afar
óhress með þessa skattlagningu."
-Sáf
sem nú er gripið til er ætlað að
koma í veg fyrir að húsnæðislána-
kerfið lendi í algjörum ógöngum.
Samkvæmt frumvarpi Jóhönnu
skulu þeir sem eru að byggja eða
kaupa í fyrsta skipti hafa forgang
um lán. Sé umsækjandi að stækka
við sig getur fjölskyldustærð og
skuldlaus eignarhluti í fyrri íbúð
haft áhrif á hversu lengi hann þarf
að bíða eftir láni.
Húsnæðismálastjórn verður
heimilt að skerða eða synja um
lán ef umsækjandi á fyrir fleiri en
eina íbúð. Einnig ef fyrri íbúð
umsækjanda er skuldlítil eða
skuldlaus og stærri en 180 fer-
metrar.
Þess má geta að fjárveitingar til
þess hóps sem nú verður hafnað
eða fær skert lán vegna þess að
lánaumsækjendur eiga miklar
skuldlausar eignir fyrir, numu frá
1. september 1986 til október
1987 um 1,2 milljarði króna, eða
jafn miklu og allt ráðstöfunarfé
Byggingarsjóðs verkamanna til
félagslegra íbúða er á þessu ári.
Þá er ríkisstjórninni heimilað
að ákvarða mismunandi vexti
innan hvers lánaflokks eða að
endurgreiða vexti.
Víkingasveitin hræddi líftóruna úr íbúum Vesturbæjar í gær með skothríð í miðju íbúðahverfi. (Mynd: Sig).
Víkingasveitin
Skothríð í Vesturbænum
Skotœfingar innímiðju íbúðahverfi um miðjan dag. íbúar vissu ekki
hvaðan áþá stóð veðrið. Böðvar Bragason lögreglustjóri: Petta var
æfingadagur, veit ekki meira
Ibúar í Vesturbænum í Reykja-
vík, við Hringbraut og Meistar-
avelli, hrukku illilega við í gær
þegar rúmlega tugur Víkinga-
sveitarmanna í skæruliðabúning-
um hljóp um hverfið með alvæpni
og skaut lausum skotum. Skýr-
ingin sem íbúar fengu á lögregl-
ustöðinni var sú að víkingasveitin
væri á æfingu.
- Ég vissi ekki hvaðan á mig
stóð veðrið þegar þeir birtust
hérna í götunni og fóru að skjóta,
sagði einn íbúinn í hverfinu í sam-
tali við Þjóðviljann í gær. Petta
stóð yfir í nær tvær klukkustundir
og börn sem voru að leik hér í
hverfinu fylgdust með í forund-
ran eins og við hin sem héldum
okkur innandyra.
Engin leið var að fá upplýsing-
ar um hvað væri að gerast fyrr en
búið var að skjóta í nokkum tíma
en þá fékkst upplýst á lögreglu-
stöðinni að þetta væri „bara“ æf-
ing. - Mér finnst fyrir neðan allar
hellur að það sé verið að hlaupa
hér um hverfið með alvæpni á
víkingaæfingum án þess að íbúar
fái að vita hvað um er að vera,
sagði einn íbúinn í gær.
Böðvar Bragason lögreglu-
stjóri í Reykjavík sagði í samtali
við Pjóðviljann í gær að hann
vissi ekki um þessa æfingu í Vest-
urbænum. - Ég veit bara að það
er æfingadagur sveitarinnar í dag,
en hvar þeir eru að æfa veit ég
ekki. Ég skil vel að fólki hafi orð-
ið hverft við og ætla að láta kanna
þetta betur, sagði Böðvar.
-Ig-
Útvegsbankinn
Ræddur á þingi í dag
Salan á Útvegsbankanum verð- um hvernig þau mál stæðu, t.d.
ur tU umræðu utan dagskrár á hvort fleiri aðilar væru inni í
Alþíngi í dag, að ósk Svavars myndinni en Sambandið og KR-
Gestssonar. ingarnir og hvenær búast mætti
Svavar sagði við Þjóðviljann við að þessi bankasölumál
að brýnt væri að fá upplýsingar leystust. -Sáf