Þjóðviljinn - 22.10.1987, Side 2
p—SPURNINGIN-^
FRÉTTIR
Telurðu að bjórfrum-
varpið verði samþykkt á
Alþingi í vetur?
Steinunn Kolbeinsdóttir
húsmóöir:
Nei, það tel ég ekki. Ég held að
það sé ekki nægjanlegur stuðn-
ingurfyrir því á þingi; það þykir of
frjálslegt.
Jón Jónsson
sendill:
Miðað við óskhyggju, já, en
miðað við reynslu fyrri ára er ég
svartsýnn á að það nái fram að
ganga. Bind þó vonir við nýju
þingmennina að þeir greiði frum-
varpinu sitt jáatkvæði.
Kristján Kristjánsson
bílstjóri:
Já, án efa. Ég vona það alla vega
að þingmennirnir samþykki það
fyrir mína hönd og annarra bjór-
vina.
Sif Gunnlaugsdóttir
nemi í matreiðslu:
Nei, ég stórefast um það. Þó
má vera að þingmenn séu skyn-
samari en maður heldur og það
nái í gegnum þingið, loksins.
Eyþór Gunnarsson
leigubílstjóri:
Já, ég vona það svo sannarlega
að það nái fram að ganga í þetta
sinn. A.m.k. er miklu meiri hljóm-
grunnur fyrir bjórnum í dag en
áður.
Sveitarstjórnir
Skárra en ekki nóg
Athugun Jafnréttisráðs: Konum hefur fjölgað verulega í sveitarstjórnum en sitja
eftir íyfirstjórn ognefndum. Neskaupstaður sker sig úr í jafnréttismálum
Athugunin leiðir í Ijós að konur
eru nú um 30% borgar/
bæjarfulltrúa en voru eftir kosn-
ingarnar 1982 rúm 19%. Hlutur
kvenna í borgar/bæjarráðum hef-
ur einnig aukist nokkuð eða úr
10% árið 1982 í 13% árið 1986.
Þessi aukning er þó engan veginn í
samræmi við hlut kvenna í
borgar- og bæjarstjórnum. Engin
kona er borgar/bæjarstjóri en
tæp 22% kvenna eru forsetar bæ-
jarstjórna og tæp 39% eru vara-
forsetar.
Þetta er niðurstaða athugunar
sem Jafnréttisráð hefur gert á
hlutfalli kynja í borgar/
bæjarstjórnum og í nefndum,
stjórnum og ráðum á vegum
borgar og kaupstaða eftir síðustu
svei tarstj órnarkosningar.
Á tímabilinu 1974 til kjörtíma-
bilsins 1982-1986 fjölgaði konum
í nefndum, stjórnum og ráðum á
vegum borgar/kaupstaða úr rúm-
um 14% í tæp 27%. Á yfirstand-
andi kjörtímabili er hlutur
kvenna rúm 27% og er aukningin
frá síðasta kjörtímabili innan við
1%. Þegar einstök bæjarfélög eru
skoðuð nánar er ekki hægt að
merkja nein stærri frávik frá
þeirri meðaltalstölu, með einni
undantekningu þó, þ.e. í Nes-
kaupstað. Konur eru í meirihluta
kjörinna bæjarfulltrúa í Nes-
kaupstað og tæp 42% þeirra sem
kjörnir hafa verið í hinar ýmsu
nefndir á vegum bæjarfélagsins
eru konur.
Þegar litið er til stærstu bæjar-
félaganna kemur í ljós að fylgni
er ekki milli fjölda þeirra kvenna
sem kjörnar eru borgar/
bæjarfulltrúar og fjölda þeirra
kvenna sem sitja í hinum ýmsu
nefndum, stjórnum og ráðum í
sama bæjarfélagi.
í Reykjavík eru 40% borgar-
fulltrúa konur og 28% nefndar-
fulltrúa. f Kópavogi eru 37%
bæjarfulltrúa konur og 24%
nefndarfulltrúa. Á Akureyri eru
konur 37% bæjarfulltrúa og 26%
nefndarmanna bæjarins og í
Hafnarfirði eru einnig 37%
bæjarfulltrúa konur og þær eru í
31% nefndarsæta.
Af þessu má draga þá ályktun
að það sé konum auðveldara að
komast í borgar/bæjarstjórn í
gegnum „örugg“ sæti á listum
stjórnmálaflokkanna en að kom-
ast í ráð, stjórnir og nefndir fyrir
þessa sömu flokka.
Á vegum þeirra 23 bæjarfélaga
sem athugunin nær til eru starf-
andi 727 nefndir, stjórnir og ráð,
borgar- og bæjarstjórnir með-
taldar. f tæplega helmingi þeirra,
eða 48% nefnda, sitja engar kon-
ur.
Konur eru í meirihluta í 17 af
23 félagsmálaráðum og í 18 af 23
grunnskólanefndum. Þær hafa
oft meirihluta í ýmsum nefndum
sem tengjast heilbrigðismálum,
menningarmálum, umhverfis- og
náttúruverndarmálum og nefnd-
um sem tengjast málefnum barna
og ungmenna.
Konum hefur verulega fjölgað í borgarstjórn og sveitarstjórnum á síðasta hálfum öðrum áratug, eða úr 14% fulltrúa í
27%.
Kennarastóll
Regnboginn
Endurmenntun ráðunauta
Fyrirheit landbúnaðarráðherra á 40 ára afmæli
Búvísindadeildarinnar á Hvanneyri. 123 hafa verið
útskrifaðir
Afundum sínum hafa bændur
og starfsmenn þeirra oft rætt
um nauðsyn þess að búnaðar-
ráðunautar ættu kost á endur-
menntun. Nú má ætla að úr því
rætist. Á samkomu á Hvanneyri
sl. mánudag, þar sem minnst var
40 ára afmælis Búvísindadeildar,
tilkynnti Jón Helgason landbún-
aðarráðherra að ætlunin væri að
koma á fót kennarastóli til endur-
menntunar ráuðunautum.
Heiðursgestur afmælishófsins
var Folke Rasmussen, fyrrum
rektor danska landbúnaðarhá-
skólans. Einnig var boðið fyrstu
nemendum frá Búvísinda-
deildinni (sem þá hét raunar
framhaldsdeild) og gátu 4 þeirra
mætt: Aðalbjörn Benediktsson,
Bjarni Arason, Egill Bjarnason
og Skafti Benediktsson. Voru
þeim afhentir pennahnífar að
gjöf, svo og fyrstu kennurum við
deildina, Guðmundi Jónssyni og
Gunnari Bjarnasyni.
Á þessum 40 árum hafa 123
nemendur útskrifast frá Búvís-
indadeild. Aðeins 16 þeirra hafa
horfið að óskyldum störfum.
Hinir eru bændur eða vinna að
störfum sem tengjast landbún-
aði.
Landbúnaðarráðherra afhjúp-
aði við þetta tækifæri myndir af
tveimur forystumönnum rann-
sóknarstarfa á Hvanneyri, þeim
Þóri Guðmundssyni og Stefáni
Jónssyni.
Þrjú erindi voru flutt í afmælis-
hófinu. Guðmundur Jónsson
fyrrum skólastjóri rakfi aðdrag-
andanna að stofnun Búvísinda-
deildarinnar, Folke Rasmussen
talaði um kennslu og rannsóknir
og þriðja erindið flutti Rikard
Brynjólfsson deildarstjóri við
Búvísindadeild.
Tekið var nú í notkun og vígt
nýtt og mjög fullkomið
rannsóknahús, sem undanfarið
hefur verið í byggingu á Hvann-
eyri. Forstöðumaður þess er dr.
Þorsteinn Guðmundsson. -mhg
Frönsk
gæðamynd
Síðasta ár í Marienbad
hjá Allíansinum
Alliance Francaise heldur
áfram kvikmyndasýningum sín-
um á fimmtudagskvöldum í
Regnboganum og í kvöld verður
sýnd myndin „Síðasta ár í Mari-
enbad“ eftir Alain Resnais frá
1961.
„Marienbad" er ein frægustu
mynda nýbylgjunnar frönsku, án
hefðbundins söguþráðar og líkir í
staðinn eftir draumnum með
samblandi minninga og tíða.
Þetta er önnur mynd Resnais,
eins fremsta kvikmyndahöfundar
Frakka (sú fyrsta var „Hiroshima
mon amour“), og handritið skrif-
aði Alain Robbe-Grillet, sem
sótti okkur heim fyrir nokkru á
bókmenntahátíð.
Myndin er með frönsku tali og
enskum texta og er sýnd í B-sal
Regnbogans klukkan 7, 9 og 11.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. október 1987