Þjóðviljinn - 01.11.1987, Blaðsíða 3
Guðlaugur
vældi
Ríkissjóöur auglýsir um þessar
mundir eftir kaupendum aö spari-
skírteinum svo hægt veröi að
fylla upp í gatið hans Jóns Bald-
vins. Einhverra hluta vegna var
ákveðið að kaupendur væri helst
að finna meðal lesenda DV og-
Moggans. Þannig hefur ekki tjó-
að fyrir önnur blöð að seilast eftir
skerf af auglýsingakökunni sem
Gott fólk sér um.
Þó brá svo við um daginn að
Alþýðublaðið birti heilsíðu-
auglysinu um sþariskírteinin og
kom það spánskt fyrir sjónir
þeirra Tíma-, Dags- og Þjóðvilja-
manna sem ötullega safna
auglýsingum. Þegar skýringa var
leitað hjá Góðu fólki komu ein-
hverjar vöflur á það fyrst. Það var
víst ekki meiningin að birta neitt
nema í Mogga og DV - en aug-
lýsingastjóri Alþýðublaðsins,
Guðlaugur Tryggvi Karlsson
hafði „vælt þetta út úr þeim” eftir
mikinn barning ... Guðlaugurhef-
ur sem sagt gefið tóninn um
hvernig á að safna auglýsingum
- en annars vill náttúrlega svo til
að Alþýðublaðið er málgagn fjár-
málaráðherra. Tilviljun?B
Sú vinstri
er ónotuð
Frægt varð í vor kjaftshögg for-
manns Borgaraflokksins og
geymist líklega í sögunni eins og
kollumál Hermanns Jónas-
sonar og Stóra-bomba Hriflu-
Jónasar. Tannmissir Einars
Ólasonar Ijósmyndara okkar
kostaði hann mikil útgjöld og
vinnutap en hann sættist að lok-
um á bótagreiðslur frá Albert.
Svo bar við um daginn að Einar
var að gegna störfum sínum og
taka myndir af hæstvirtum al-
þingismanni, Hann stóð í dyrum
þingsalar og myndaði í gríð og
erg þegar formann Borgara-
flokksins bar að.
Einar var fyrir Alberti sem þá
kom með þessa smekklegu yfir-
lýsingu í heyranda hljóði: „Pass-
aðu þig! Ég á vinstri höndina eftir
ónotaða!” Og þetta fannst Albert
náttúrlega afar sniðugt hjá sér og
glotti glaðlega.
En einhverjum nærstöddum
blöskruðu víst flimtingar
stjórnmálaforingjans - enda
kjaftshöggið fræga ekki til að
stæra sig af. Eða hvað?B
Akureyri
Glugginn-
gallerí
opnar
um
helgina
Nú um helgina opnar nýtt gall-
erí að Glerárgötu 34 á Akureyri.
Að því standa 13 einstaklingar,
bæði myndlistarmenn og áhuga-
fólk.
Nýja galleríið heitir Glugginn
og á fyrstu sýningunni eru verk
eftir átta myndlistarmenn: Guð-
mund Ármann, Helga Vilberg,
Margréti Jónsdóttur, Rósu Júlí-
usdóttur, Harald Inga, Jónas
Viðar, Kristin G. Jóhannsson og
Jón Laxdal.
Gallerí Glugginn verður opið
alla daga nema mánudaga frá kl.
14-20. Sýning áttmenninganna
stendur til 8. nóvember
næstkomandi.
Þjóðviljinn óskar Akureyring-
um til hamingju með þennan
menningarauka í menningarlíf-
inu og óskar eigendum Gluggans
velfarnaðar.
-ki-
Afturhvarf til
kreppuáranna
Ein af þeim tískusveiflum sem varpstækjum frá 4. áratugnum
orðið hefur vart við í hönnun á eins og því sem sýnt er hér að
síðustu árum er afturhvarf til neðan. Ekki er langt síðan menn
kreppuáranna og næstu ára þar á fleygðu slíkum tækjum á haugana
eftir. Dæmi um slíkt má sjá í út- hér á landi ef þeirra varð vart á
varpstækinu sem hér er sýnt, en geymsluloftum. Nú eru þessir
þetta er nýtt tansistortæki, fram- munir semsagt orðnir eftirsóttir
leitt af Philips í umgjörð, sem er sem „antík“.
nokkuð nákvæm eftirlíking á út-
„Hér er til dæmis saffran. Það er víst dýrara en gull..." (Mynd.Sig.)
Mallað upp á
austurlensku
Örspjall við Sigríði Porvarðardóttur sem fyrir skemmstu opnaði
búðina Pipar og salt
„Jú, þessi búð stendur
undir nafni og gott betur. Við
erum ekki bara með piparog
salt heldur alla vega krydd-
tegundir, sem notaðar eru í
austurlenskan mat,” sagði
Sigríður Þorvarðardóttir í ör-
spjalli við Sunnudagsblaðið,
en fyrir nokkrum vikum opn-
aði hún búðina Pipar og salt
að Klapparstíg 44. Og þarer
raunar margt fleira á boðstól-
um en krydd; pottar og pönnur
sem hentatil matreiðslu á
framandlegum réttum, svunt-
ur og eldhúsglófar, sjaldgæft
te og hágæðakex frá Eng-
landi, auk matreiðslubóka um
fjarlægar deildirjarðarog
margs annars.
- En þýðir eitthvað að bjóða
íslendingum upp á austurlenskar
FEF
Helgarfló
Ósviknirpelsar, nýhreinsuð
herraföt, húsgögn, skrautmunir
og tískuvarningur frá ýmsum tím-
um er meðal þess sem á boðstól-
um verður á flóamarkaði Félags
einstæðra foreldra að Skeljanesi
6núumhelgina.
Flóamarkaði FEF hafa fyrir
löngu skipað sér sess í bæjarlífinu
enda er hægt að gera þar ævin-
týraleg kaup á öllu milli himins og
jarðar. Verðið er síðan ævintýri
útaf fyrir sig - enda munu margir
geta byrgt sig upp af vetrarfatn-
aði fyrir spottprís.
Flóamarkaðurinn er bæði á
laugardag og sunnudag, frá
klukkan 14. Bílleysingjum skal
bent á að leið 5 hefur endastöð
hjá húsi félagsins.
-hj.
matarformúlur; una þeir ekki
glaðir við sitt súpukjöt og soðinn
fisk?
„Ónei, því fer fjarri,” segir Sig-
ríður, „áhugi á indverskum og
kínverskum mat fer stöðugt vax-
andi, einkum og sér í lagi meðal
ungs fólks sem langar að prófa
eitthvað nýtt. Ert þú t.a.m. ekk-
ert farinn að reyna þetta sjálfur?”
- Það er langt síðan. En er ekki
dýrt sport að malla upp á austur-
lenska vísu? Þarf fólk ekki að
birgja sig upp af tœkjum og tól-
um?
„Þetta er alls ekki dýrt. Við
leggjum áherslu á að vera með
gæðavörur, en ég held að verðið
sé fyllilega samkeppnisfært. Allt
krydd sem við höfum er unnið úr
náttúrulegum efnum og alveg
laust við hvers kyns aukaefni.
Það þarf ekki mikið umstang til
að byrja: Og við höfum það sem
til þarf.”
-hj.
Gallerí Svart á hvítu
Sýningu Georgs Guðna lýkur um helgina
Á sunnudaainn lýkur sýningu
Georgs Guðna í Gallerí Svart á
hvítu viðóðinstorg. Ásýningunni
eru átta olíumálverk og sex blý-
antsteikningar og eru verkin flest
unnin á þessu ári. Allarmyndirn-
ar eru af landslagi - og munu
margir aldrei sjá fjöll sömu
augum eftir þessa sýningu.
Sýningin hefur verið vel sótt af
almenningi og hlotið góða dóma
gagnrýnenda. Það er því full
ástæða til að hvetja fólk til að
nýta sér þessa síðustu sýningar-
helgi og kynnast fjallaheim Ge-
orgs Guðna.
-Áj-