Þjóðviljinn - 01.11.1987, Blaðsíða 22
KROSSGATA
Nr. 591
BRIDGE
1 £ 3 5 S' Z~ 7- 2 3 <j 2 )D )l 12 13
>z )5- )5 2 Ib )5 y 17 (í> 8 13 2 1°i 3 18
7- 5" n )3 SP 20 21 3 s? 10 23 2Ý 25 2 20
y 3 >s 20 2V S 23 22 13 27 )S SP )5 25
)3 2 n 3 2+ (p 28 27 5 2 2D 2<j 20 3v 2
)Z ib )£ 2 2 )<j n (p )sr 2 )S 7- )S
IZ n 2 )7 5 ;<? 2S /S 2 12- 20 b 30 )3 9
>3 9 2^ s? 3/ 9 JS V >eM )S /3 2 )3 21 U>
9 )(p 2 <2 W S? 20 i2l T~ )(> )5 2 0 )2
rv 22 3,0 3 9 y )Z é SÐ 2 )S 3 18 2 9
)(p 2Ð (s> S? K> 18 s? (p 7- )sr 5
2b n> 2D /3' & © (? )S 2 22 b n )S 3 2 25
7- )5 2D 3 2 )5 f lo 5 2 )3 lo )5 5- 2
AÁBDÐEÉFGHlfJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Stafirnir mynda ísienskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og qaldurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á qða öfugt.
9 Jí 2á )? a 7 3 )5
Setjið rétta stafi í reitina hérfyrir neöan. Þeir mynda þá alþekkt örnefni.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla
6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 591“. Skilafrestur er þrjár vikur.
Verðlaunin verða send til vinningshafa.
Mólfriííur Fiimrsdútfir
Náttfríður Jósafatsdóttir, Höfða-
braut 21, Hvammstanga, fékk
verðlaun fyrir krossgátu númer
588. Lykilorðið var Stjörnugróf.
Hún fær senda bókina Blaðið
okkar eftir Árna Bergmann.
Verðlaunin fyrir krossgátuna að
þessu sinni er bókin Auðnuleys-
ingi og Tötrughypja eftir Málfríði
Einarsdóttur. Ljóðhús gaf bókina
út.
Sambands-
þing í dag
Ársþing Bridgesambands fslands
1987 verður haldið í Sigtúni 9 í dag,
laugardag og hefst kl. 10. Tæplega 50
félög innan BSÍ eiga rétt á að senda
fulltrúa til þingsins. Meðal helstu
starfa á þinginu verður stjórnarkjör,
en einsog alþjóð veit hefur Morgun-
blaðið þegar útnefnt næsta forseta
sambandsins, og þarmeð stolið
„glæpnum" frá lýðnum sem lætur sjá
sig á þinginu. Eitt prik fyrir Mogga.
Dregið hefur verið í 1. umferð
Reykjavíkurbikarkeppninnar í
sveitakeppni (þátttaka 16 sveitir).
Eftirtaldar sveitir eigast við: Bragi
Hauksson gegn Fatalandi, Jón Páll
Sigurjónsson gegn Jóni Þorvarðar-
syni, Delta gegn Flugleiðum, Sam-
vinnuferðir gegn Sveini Eiríkssyni,
Guðmundur Baldursson gegn Pólar-
is, Esther Jakobsdóttir gegn Guð-
mundi Sveinssyni, Sverrir Kristinsson
gegn Verðbréfamarkaði Iðnaðar-
bankans og Atlantik gegn Hallgrími
Hallgrímssyni.
Leikjum skal lokið fyrir aðra helgi,
þ.e. 7.-8. nóvember).
Skráning í Stofnanakeppni Bridge-
sambands íslands og Bridgefélags
Reykjavíkur, sem spiluð verður dag-
ana 21., 22. og 24. nóvember, er haf-
in. Skráð verður á skrifstofu BSÍ.
Öllum heimil þátttaka.
Einar Jónsson og Ragnar Her-
mannsson urðu sigurvegarar í Opna
minningarmótinu um Einar Þorfinns-
son, sem Bridgcfélag Selfoss gekkst
fyrir sl. laugardag. Alls tóku 36 pör
þátt í mótinu.
Austurlandsmótið í tvímenning
verður spilað á Egilsstöðum um
næstu helgi. 36 pör munu taka þátt í
mótinu. Á Hvammstanga munu
heimamenn gangast fyrir Guðmund-
armóti, til heiðurs Guðmundi Kr.
Sigurðssyni, næsta laugardag. Áætlað
er að 32 pör taki þátt í mótinu.
Bandaríkjamenn urðu heimsmeist-
arar í sveitakeppni, eftir úrslitaleik
við Breta. í liðinu voru: Hamman og
Heldur hefur lifnað yfir þátttökuni
í íslandsmóti kvenna og yngri spilara,
sem spiluð verður 7.-8. nóvember í
Sigtúni. Enn er þó hægt að bæta við
pörum og geta væntanlegir keppend-
ur haft samband við skrifstofu BSÍ í
dag eða Ólaf Lárusson heima á morg-
un (16538) til skráningar.
Fullbókað er í Opna Sangerðis-
mótið, sem spilað verður laugardag-
inn 14. nóvember. 32 pör munu taka
þátt í mótinu, sem hefst kl. 10 ár-
degis. Keppnisstjóri verður Ólafur
Lárusson.
Nýjar bækur eru til sölu þessa dag-
ana hjá skrifstofu BSÍ og von á enn
fleirum í næstu viku. Einnig má
minna á nýju sagnakortin í spilabox-
ið. Ómissandi fyrir hvert félag. Sent í
póstkröfu.
Reykjavíkurmótið í tvímenning,
undanrásir, verða spilaðar helgina
28.-29. nóvember í Sigtúni. Skráning
er hafin hjá öllum aðildarfélögum
BSÍ í Reykjavík og á skrifstofu BSÍ.
Skráningu lýkur mánudaginn 23.
nóvember. Þátttökugjald (úrslit inni-
falin einnig) kr. 3000 pr. par. Silfur-
stig.
ÓLAFUR
LÁRUSSON
Wolff, Martell og Stansby, og Pender
og Lawrence, en síðasttaldi kom inn
fyrir Hugh Ross, sem varð af þessum
sigri vegna veikinda.
Bridgesambandið mun beita sér
fyrir því að meistararnir komi á
Bridgehátíð, sem haldin verður 12.-
15. febrúar á Loftleiðum.
Landsbikarkeppni Bridgesam-
bandsins í tvímenning, sömu spil um
land allt, hefur gengið mjög vel. Um
250 pör voru komin inn til skráningar
á föstudag. Ljóst er að þátttaka verð-
ur síst lakari í heild en á síðasta ári,
þrátt fyrir dapurlega frammistöðu
„stóru" félaganna í Reykjavík. Úrslit
ættu að liggja fyrir fljótlega í næsta
mánuði.
„Hvað þýðir þetta átta plús?“
spurði varnarspilarinn. „Jú, sjáðu
til,“ svaraði Hjalti Elíasson. „Þcgar
ég á að spila spilið, er það plús....“
(Heimild: Guðmundur Pétursson).
SKÝRT OG SKORINORT
hundraðmilljarða-
maðurinn OG SNATI
i
þegar snati var lítill og veröldin í
föstum skorðum - þá var gaman
að vera til. tilveran gekk alltaf upp
að lokum þó vissulega væru sum
mál býsna snúin: einsog tilað-
mynda hvernig jörðin getur verið
hnattlaga ánþessað fólkið fjúki
útí buskann; af hverju ekki er
hægt að fara á stóru deildina
fyrren maður (eða snati) er
þriggja ára; afhverju lítið fólk þarf
að fara fyrr að sofa en annað fólk.
II
og svo leið tími litla snata og með
árunum hrönnuðust álitamálin
upp: guð, pólitík, ást, brennivín
og viðskiptaf ræði tóku við sem
reikningsdæmi sem engin leið
virtist að fá botn í. að lokum varð
snati - lítill eða stór eftir atvikum -
að játa sig sigraðan: svo margt
væri skrítiö í veraldarinnar kýr-
haus að engin leið væri nokk-
urntíma að fá botn í það allt-
saman. jafnvel virtist ákjósanlegt
að gera sér enga rellu útaf hlut-
unum: svissa yfir í lögfræði,
gleyma guði og láta svo ástamál-
in slampast einhvernveginn
áfram.
III
undirritaöur snati er þessvegna
hreint ekki vel að sér í hinni æöri
ökónómíu. snati veit að ef hann á
peninga getur hann eytt þeim í
vitleysu en annars ekki. þess-
vegna voru það nokkurtíðindi
þegarfréttastjóri sjónvarpsins
boðaði heimsendi og harmag-
eddon af þvi hlutabréf í einhverj-
um firmum útí heimi féllu í verði.
snati hefur að vísu spurnir af að
fréttastjórinn sésjálfurbissness-
maður en fjandakornið ekki svo
umfangsmikill að talnaleikir í
wall-street eða alla leið austrí
japan varði hann nokkru.
en smáttogsmátt kom á daginn
að fréttastjórinn hafði rétt fyrir
sér. þetta verðfall - sem enginn
veit að vísu útá hvað gengur- er
hið versta mál. þannig las snati í
blaði að einn maður vestur í
guðseiginlandi hefði tapað
hundrað milljörðum á einum
degi. að vísu kom fram að hann
er ekki á vonarvöl - á svosem
einsog fimmhundruð milljarða
eftir—en engu að síður var á
þessum manni að skilja að hon-
umleiddustverðföll.
IV
hversu marga sleikipinna mætti
ekki kaupa fyrir hundrað milljarða
króna? fjárlög ríkisins státa víst
ekki af svona bústnum tölum,
einsog tap þessa eina manns á
einum degi í talnaleik í
kauphöllum. en allt þetta um-
stang færirsnata heim sanninn
um það að hann gerði rétt með
því að hætta í viðskiptafræðinni
hór um árið - og raunar lögfræð-
inni líka, en það er önnur saga-
þótt hann hafi kannski hangið á
horriminni fyrir bragðið. því undir-
ritaður snati veit að hann getur
aldrei í lífinu tapað hundrað
milljörðum á einu bretti - á sama
hátt er víst að sólin kemur upp
fyrr eða síðar og bæði snati og
hundraðmilljarðamaðurinn safn-
ast til feðra sinna einn góðan
veðurdag.
22 SfDA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. nóvember 1987