Þjóðviljinn - 07.11.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 07.11.1987, Blaðsíða 1
Laugardagur 7. nóvember 1987 249. tölublað 52. órgangur Landsfundur AB Ný forysta kjörin í dag Mikilspenna vegna kosningar formanns og varaformanns í dag. Tillögum umfjölgun varaformanna vísað til laganefndar. Arnór hættir við framboð Landsfundi Alþýðubandalags- ins, verður framhaldið í dag í gömlu rúgbrauðsgerðinni. Á dag- skrá fundarins ber hæst for- mannskjör, sem hefst kl. 10 og kjör stjórnar og framkvæmda- stjórnar, sem hefst kl. 14. Fast- lega er búist við að niðurstöður úr formannskjörinu liggi fyrir skömmu eftir hádegi. Jafnframt verða fjölmargar tillögur og ályktanir afgreiddar á fundinum í dag. I gær lágu fyrir fundinum fjöl- margar tillögur að lagabreyting- um og bar þar einna hæst tillögu um að varaformönnum yrði fjölg- að úr einum í þrjá og sérstakar stöður ritara og gjaldkera yrðu aflagðar. Tillögunni, sem og öðr- um tillögum til lagabreytinga, var vísað frá til laganefndar og verða því ekki afgreiddar fyrr en á næsta landsfundi. Á fundinum í gær voru fulltrú- arnir mjög uppteknir af for- mannskjörinu. Þóttust stuðn- ingshópar Sigríðar Stefánsdóttur og Ólafs Ragnars Grímssonar, hvor um sig nokkuð öruggir um að þeirra frambjóðandi muni bera sigur úr býtum. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Þjóðviljans, nýtur þó Ólafur Ragnar óskoraðs stuðn- ings í meðal landsfundarfulltrúa úr sínu kjördæmi, Reykjanesi, en Sigríður Stefánsdóttir meðal full- trúa úr Norðurlandskjördæmi eystra. Vitað er að Ólafur á sér vísan stuðning fjölmargra full- trúa að norðan, en stuðningur við Sigríði á Reykjanesi er næsta lít- ill. Telja sumir að þetta kunni að Bankasalan Beðið átekta Við bíðum og sjáum hvort úr þessu verður frumvarp hjá ráðherra, sagði KjartanP. Kjart- ansson, forstjóri fjármálasviðs Sambandsins þegar Þjóðviljinn spurði hann hvernig Sambandinu litist á nýjustu hugmyndir við- skiptaráðherra í bankasölumál- unum. Kjartan sagði að ráðherra væri fyrst og fremst að leita að út- gönguleið fyrir sjálfan sig úr þessu máli en hugsaði minna um þjóðarhag. „Við förum ekki ofan af því að við keyptum hlut í Útvegsbank- anum, sem var til sölu og per- sónulega vildi ég að það yrði kannað hvort sölusynjun ráð- herra standist lög. Eg vil ekki sleppa málinu fyrr en ég hef kannað lagalegan rétt okkar. Enn sem komið er hefur hinsveg- ar ekki sungið í atgeirnum hjá okkur. Við munum skoða málið. Það er ekki gleymt.“ „Ég hef ekkert um málið að segja á þessari stundu,“ sagði Krístján Ragnarsson, formaður LÍÚ. „Það er best að láta stjórnmálamennina um þetta, enda eru þeir til þess kjörnir.“ -Sáf/grh r....................... skipta sköpum um hvort þeirra verði hlutskarpara í formanns- kjörinu. - Eftir vandlega íhugun sýnist mér það bera takmarkaðan ár- angur að bjóða mig fram til for- mennsku í flokknum. Fulltrúarn- ir eru þegar almennt orðnir eyrnamerktir og það þýðir því lítið að koma með þriðja val- kostinn, sagði Arnór Pétursson, í samtali við blaðið seint í gær- kvöldi, en í DV í gær, var haft eftir honum að hann hugsaði al- varlega um að gefa kost á sér til formennsku. Arnór sagði að hann hefði um- þóttunartíma til morguns, hvort hann gæfi þess í stað kost á sér til varaformennsku, en Helgi Seljan og Svanfríður Jónasdóttir, hafa sterklega verið orðuð við vara- formennskuna. Þá hefur borið á góma, meðal stuðningsmanna Sigríðar og Ólafs Ragnars, að skora á þann frambjóðandann sem nær ekki formannskjöri að gefa kost á sér til varaformennsku. Að loknum ströngum þing- degi, gera landsfundarfulltrúar sér glaðan dag á sérstökum lands- fundarfagnaði að Hverfisgötu 105 í kvöld, en fundinum lýkur á sunnudagskvöld. -K.Ól./rk Ha, ha, ha... Skúli Alexandersson telur sig hafa skotið Ossuri Skarphéðinssyni ref fyrir rass. En hver skyldi hlæja síðast og best? Mynd E.ÓI. Samtök launafólks Hlutur kvenna lýr Könnun Jafnréttisráðs sýnir að munfœrri konur eru ístjórnum, nefndum og ráðum á vegum ASÍog BSRB enfjöldi kvenna í samböndunum segir til um Það sama verður hinsvegar ekki sagt um nefndir, stjórnir og ráð Alþýðusambandsins. í sam- bandsstjórn eru 26% fulltrúa konur, í miðstjórn 33% og í samninganefnd árið 1986 aðeins 27%. Svipað er upp á teningnum hjá BSRB. Þar eru 64% félagsmanna konur og í stjórnum aðildarfélaga eru nokkurnveginn hlutfallslegt samræmi. Konur í stjórnum, nefndum og ráðum BSRB eru hinsvegar færri en hlutfallslegur fjöldi þeirra. 36% stjórnarmanna eru konur, 29% stjórnarmanna í verkfallssjóði og 26% stjórnar- manna í stjórn verkamannabúst- aða. Hjá BHM er hinsvegar hlut- fallið nokkuð rétt ef undanskilin eru þau tvö félög sem áður var getið um. 27% félagsmanna í BHM eru konur. -Sáf liúnaflói Rækjustofniim á uppleið Hlutur kvenna í stjórnum, nefndum og ráðum Alþýðu- sambandsins, BSRB og Banda- lags háskólamanna, er mun minni en fjöldi þeirra í þessum sam- tökum segir til um. Jafnréttisráð hefur nýlokið at- hugun á hlut kvenna í stjórnum nokkurra samtaka launafólks og hjá Vinnuveitendasambandinu. Athugun þessi leiddi margt at- hyglisvert í ljós, t.d. sat engin kona í sambandsstjórn né fram- kvæmdastjórn VSI frá miðju ári 1985-1986. Þá sitja engar konur í stjórnum Félags tölvunarfræð- inga og Sálfræðingafélags ís- lands, þó konur í þessum félögum séu yfir 20% félagsmanna. Kcnur í ASÍ eru 46% félags- manna og er hlutur kvenna í stjórnum Iandssambanda og fé- laga nokkurn veginn í samræmi við hlutfallslegan fjölda þeirra. Rækjuveiðar í Húnaflóa byrj- uðu í vikunni eftir að niður- stöður úr rannsókn flskifræðinga á rannsóknaskipinu Dröfn höfðu leitt það í Ijós að í flóanum sé rækjustofninn á upplcið úr mikil- li lægð sem hann hefur verið í undanfarin ár. Að sögn Unnar Skúladóttur fiskifræðings er leyfilegur veiði- kvóti á rækjuvertíðinni í vetur 600 tonn en var í fyrra 500 tonn. Skiptist hann í tvennt á milli vestur- og austursvæðis, það er Hólmavík og Drangsnes annars vegar og hins vegar Skagaströnd, Blönduós og Hvammstangi. Sagði Unnur að uppistaðan í rækjustofninum á Húnaflóa væri eins árs rækja sem er að vaxa upp og allt útlit er fyrir að hér sé á ferðinni sterkur árgangur, sem trúlega gefur enn meira af sér á næsta og þarnæsta ári. grh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.