Þjóðviljinn - 07.11.1987, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 07.11.1987, Qupperneq 7
Nicaragua Ortega fellst á viöræöur Nú er talið nœr útilokað að Bandaríkjaþing samþykki auknar fjárveitingar til Kontraliða Svíþjóð Happa- fundur Fyrir skömmu uppgötvaðist að sænska Þjóðarsafnið á í fórum sínum fleiri dýrgripi en áður var talið. Þá kom í ljós að í skjalasafn- inu leyndist lítil frummynd eftir ítalska endurreisnarsnillinginn Rafael. Myndin er frumriss meistarans af hluta hinnar frægu fresku „Drottinn birtist Nóa“ er hann málaði í Páfagarði árið 1508. Það var austurríski listfræðing- urinn Sylvia Fering Pagden er fann verkið er hún var að róta í gömlum og lélegum Rafael eftir- líkingum frá því á átjándu öld. Hún er sérfræðingur í verkum Rafaels og sá því strax hverskyns var. Myndin sýnir Nóa krjúpa frammi fyrir drottni allsherjar sem tjáir honum að flóð sé í bí- gerð. -ks. Forseti Nicaragua, Daníel Or- tega, þykir hafa sýnt mikla undanlátssemi með því að fallast á að eiga beinar viðræður við Kontraliða um vopnahlé. Fram að þessu hefur hann harðneitað að eiga orðastað við þá en viljað ræða beint við Bandaríkjastjórn sem stendur straum af kostnaði við spellvirki uppreisnarmann- anna. Tilboð Ortegas hleypir nýju lífi í umræðuna um frið í Mið- Ameríku um það bil sem friðará- ætlun forsetanna fimm gengur úr gildi. Sú afstaða stjórnarinnar í Managua að harðneita viðræðum við Kontraliða var af ýmsum talin helsta ástæða þess að tvísýnt var um örlög friðaráætlunarinnar. En nú er staðan breytt. Ónefndur erlendur stjórnmála- maður sem nú er gestur ríkis- stjórnar Nicaragua og talinn öllum hnútum kunnur í landinu hefur eftirfarandi til málanna að leggja: „Þetta var mjög erfið ákvörðun fyrir Ortega. En þetta er mjög jákvætt skref framávið Indland Þingdeilur um Sri Lanka Tamílskir fulltrúar áindverska þinginufordœma hernað stjórnarinnar á Sri Lanka Rajiv Gandhi, forsætisráð- herra Indlands, sætti harðri gagnrýni stjórnarandstöðunnar á þingi í gær vegna umsvifa ind- verska hersins á Sri Lanka. Andstæðingar hans ruku út af fundum beggja þingdeilda með brauki og bramli er stjórnin neitaði að taka sókn hers síns á hendur tamflskum skæruliðum á Jaffnaskaga eyríkisins til um- ræðu. Juníus Jayewardene, forseti Sri Lanka, er nú staddur í Nýju- Delhi og hafa þeir Gandhi rætt um ákvæði friðarsamnings síns fyrir eyríkið. Einkum hafa við- ræðurnar snúist um heimastjórn í norður og austurhlutum landsins þar sem tamflar eru í meirihluta íbúa. Tveir tamflskir þingmenn í Lok Sabha (neðri deild indverska þingsins) voru sérlega harðorðir í garð stjórnarinnar vegna hernað- arumsvifanna á Sri Lanka. Sök- uðu þeir indverska dáta um „grimmdarverk“ á Jafnaskaga og staðhæfðu að mikill fjöldi al- mennra borgara úr röðum tamfla hefði látið lífið í átökunum þar undanfarnar vikur. Það er kunn- ara en frá þurfi að segja að á Suður-Indlandi búa um 50 milj- ónir tamfla og hafa þeir náin sam- skipti við frændur sína handan sundsins. Fjöldi þingmanna stjórnarand- stöðunnar krafðist þess að Ind- verjar lýstu yfir vopnahléi þegar í stað án þess að gera það að skil- yrði að Tígrarnir afhentu þeim vopn sín. Um 20 þúsund indverskir her- menn eru nú á Sri Lanka og á þorri þeirra í útistöðum við Tam- fltígra. Indverska herstjórnin kveður 220 dáta sinna hafa fallið frá því bardagar hófust þann 10. október. Ennfremur segir hún 773 skæruliða liggja í valnum. Talsmaður Tígranna sjálfra segir þetta alrangt, fáir liðsmanna sinna hafi fallið en þeim mun fleiri óbreyttir borgarar. -ks. Leiðtogar Nicaragua hafa fallist á að eiga orðastað við Kontraliða. Frá vinstri: Humberto Ortega varnarmálaráðherra, Tómas Borge innanríkisráðherra og Daníel Ortega forseti. og hlýtur að auka mönnum bjartsýni á framgang friðaráætl- unarinnar." Um leið og Ortega gerði Kontraliðunum tilboð um við- ræður lýsti hann því yfir að um þúsund fangar yrðu leystir úr haldi. En hann bætti því við að frekari uppgjöf saka sem og afl- étting neyðarástandslaga væri undir því komið hvort Banda- ríkjamenn létu af fjárstuðningi við Kontraliðana. Stjórn Reagans forseta í Was- hington hefur hamrað á því við leiðtoga Bandaríkjaþings að þeim væri ekki stætt á öðru en að samþykkja auknar fjárveitingar til Kontraliðanna þar eð Sandin- istastjórnin vilji ekkert við þá tala. Á síðasta fjárlagaári fengu uppreisnarmenn 100 miljónir dala af bandarísku almannafé og nú vill Reagan óður og uppvægur afhenda þeim enn hærri upphæð. Heimildamenn í Washington segja tilboð Ortegas setja stórt strik í þennan reikning Banda- ríkjaforseta. Vitað var að þing- menn eru tregir til að ausa gegnd- arlaust í Kontrahítina en nú er talið nær útilokað að þeir fallist á að fjármagna vopnakaup þessara skjólstæðinga Reagans. -ks. Skipulagsstjórn Kvosin rædd Guðrún Jónsdóttir arkitekt hefur beðið Þjóðviljann um að koma eftirfarandi leiðréttingu á framfæri. „í grein íÞjóðviljanum 6. nóv., þar sem fjallað er um setu Vil- hjálms Þ. Vilhjálmssonar í skipu- lagsstjórn ríkisins og bókun mína í því sambandi gætir vissrar óná- kvæmni. Vilhjálmur er nýskipað- ur varamaður í skipulagsstjórn, en á fyrsta og eina fundi stjórnar eftir að gengið var frá skipun hans var deiliskipulag Kvosar- innar til umræðu og meðferðar í skipulagsstjórn. Þar sem Vilhjálmur hefur greitt atkvæði um það mál í skipulagsnefnd, borgarráði og borgarstjórn áleit ég rétt að fá úrskurð félagsmálaráðuneytisins á því, hvort þátttaka hans í um- ræðum og atvkæðagreiðslu um þetta í skipulagsstjórn, gæti orðið til þess að afgreiðsla skipulags- stjórnar á málinu yrði véfengd eða úrskurðuð markleysa. Tillaga að Aðalskipulagi Reykjavíkur sem í greininni er nefnt heildarskipulag borgarinn- ar, var ekki á dagskrá fyrrnefnds fundar, þótt hún að vísu sé um þessar mundir til meðferðar hjá skipulagsstjórn. Annað og meira hef ég ekki um þetta mál að segja að svo stöddu.“ Guðrún Jónsdóttir I VIÐHORF A.m.k. jafngóö -ef ekki betri Niðurlag greinar eftir Guðrúnu Agústs- dóttur Þau mistök urðu við birtingu viðhorfsgreinar eftir Guðrúnu Ágústsdóttur borgarfulltrúa í blaðinu í gær að niður féll síðasti hlutinn. Við biðjum Guðrúnu og lescndur alla afsökunar á þessum mistökum og birtum hér ioka- kafla greinarinnar. Það hefur því valdið veru- legum vonbrigðum að heyra fá- einar konur i flokknum segja nú að þær treysti þeim karli sem einnig er í framboði mun betur til formennskunnar, þar sem hann hafi mun meiri reynslu. Hvers konar reynslu mér er spurn. Hver er tilbúinn til að meta hvort reynsla Ólafs Ragn- ars, sem vissulega er annars kon- ar reynsla en Sigríðar dugi betur í því starfi innan flokks sem utan sem formaður flokksins gegnir? Þetta er þó ekki það versta sem nú heyrist. Það versta er að heyra konur sem talið hafa sig verulega kvenfrelsaðar fullyrða að karl- arnir í flokknum hafi fundið Sig- ríði og bjóði hana nú fram til að stjórna í gegnum hana. Hún verði viljalausF verkfæri í höndum þeirra, langt í burtu, fjarri öllum fjölmiðlum og völdum. Auðvitað koma svona kvenfyrirlitningar-. raddir ævinlega upp þegar kona gerist svo djörf að telja sig geta gegnt hefðbundnu karlastarfi. Við þekkjum mýmörg dæmi slíks, en að heyra slíkar raddir innan okkar flokks gengur gjör- samlega fram af manni. Það er jafnframt alveg augljóst að þetta fólk þekkir ekki Sigríði og hennar störf, og skal ég fúslega viður- kenna, að það er hennar stærsti veikleiki í þessu innanflokks- kjöri. Því ég fullyrði, að ef fólk sem nú lætur kvenfyrirlitningu ná á sér tökum hefði kynnst Sigríði og hennar störfum, t.d. hvernig hún hefur leitt bæjarmálapólitík- ina á Akureyri og hlut hennar í landsmálapólitík flokksins, þá myndi það ekki láta sér detta í hug að tala á þennan hátt. Konur á landsfundi, sem styðja Ólaf Ragnar, hafa auðvitað fullt leyfi til að láta aðdáun sína á hon- um í ljós og draga fram rök um hæfni hans umfram Sigríði, en það liggur við að þær hafi ekki leyfí til að beita rökum kvenfyrir- litningarinnar á þennan hátt. Þar með er verið að grafa undan öllu því starfi sem unnið hefur verið í flokknum í þágu kvennabaráttu. |S! Hundahreinsun l|| í Reykjavík Samkvæmt 5. gr. reglugeröar nr. 201/1957 um varnir gegn sullaveiki skulu allir hundar eldri en 6 mánaöa hreinsaöir af bandormum í október eða nóvembermánuði. Eigendum hundanna er bent á að snúa sér til starfandi dýralækna í Reykjavík með hreinsun. Við greiðslu árlegra leyfisgjalda (gjalddagi 1. mars) þarf að framvísa gildu hundahreinsunar- vottorði. Eldri vottorð en frá 1. september verða ekki tekin gild. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Lausar stöður Lausar eru til umsóknar ettirtaldar stöður við læknadeild Háskóla (slands: Hlutastaða lekotrs (37%) í geðsjúkdómafræði, hlutastaða dósents (37%) í þvagfæraskurðlækningum og hlustastaða dósents (37%) í háls-, nef og eymasjúkdómafræði. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf, rannsóknir og ritsmíðar, svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15. desember n.k. Menntamálaráðuneytið, 4. nóvember 1987 Laugardagur 7. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.