Þjóðviljinn - 07.11.1987, Page 12
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjómnuiN
Laugardaour 7. nóvember 1987 249. tölublað 52. órganour
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Krókaveiðar
Tiiraun með
gervibeitu
Guðjón Ormsson: Spar-
ar kostnað við beitningu
„Tilgangurinn með þessum til-
raunum mínum með gervibeitu er
að spara kostnað við beitningu og
beitukaup. Einnig hef ég hannað
og smfðað sjálfvirka beitningar-
vél sem séralfarið um sjálfa
beitninguna,“ sagði Guðjón
Ormsson rafvirkjameistari í
Njarðvíkum í samtaii við Þjóð-
viljann.
I nýjasta tölublaði Fiskifrétta
er sagt frá því að tilraun hafi verið
gerð með gervibeituna um borð í
línubátnum Freyju GK 364 í
tveimur bjóðum, en sá guli hafi
ekki viljað líta við henni, en aftur
á móti tekið vel á móti hefðbund-
inni beitu og með henni hafi skip-
verjar fiskað ágætlega í Kolluáln-
um.
Að sögn Gunnars var í þessari
tilraun með vélbátnum Freyju
GK aðeins verið að prófa hvort
beitan tyldi á króknum og hafi sú
tilraun gefist vel. Aftur á móti
þyrfti frekari rannsókna við um
bragðefnið sem smurt væri á
gúmmítúttuna til þess að þorsk-
urinn biti á agnið. Sagði Gunnar
að tilraunir um bragðefni stæðu
yfir í Hirtshals í Danmörku þar
sem öll aðstaða til slíkrar prófun-
ar væri mjög góð og vonaðist
hann til þess að niðurstöður af
þeim tilraunum gætu legið fyrir
eftir þrjár vikur eða svo.
Að sögn Guðna Þorsteinssonar
fiskifræðings sem fór með þegar
tiiraunaveiðarnar með gervi-
beituna fóru fram í umræddum
róðri Freyju GK, hefur þessi að-
ferð við að reyna að veiða fisk
með gervibeitu veriðreynd víðs
vegar úti í hinum stóra heimi en
árangurinn hingað til ekki verið
umtalsverður. „Vandamálið er
að finna réttu bragðefnin sem
smurð eru á gúmmítútturnar og
hversu lengi lyktin heldur sér
þegar í djúpið er komið,“ sagði
Guðni Þorsteinsson fiskifræðing-
ur í samtali við Þjóðviljann
Gugnað á frelsinu
Aaðalfundi Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna í fyrra-
dag var felld tillaga þess efnis að
lýsa yfír áframhaldandi stuðningi
við frjálst fiskverð. Við atkvæða-
greiðslu um tillöguna, sem borin
var upp af Hornfirðingum, voru
þriðjungi fleiri á móti henni en
með. Fulltrúi L.Í.Ú. mun því
leggja til í Verðlagsráði sjávarút-
vegsins að ráðið ákveði nýtt lág-
marksverð á helstu botnfiskteg-
undum, eftir 15. nóvember
næstkomandi, en þá rennur út
samþykkt Verðlagsráðs um
frjálst fiskverð.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans mætti tillaga Hornfirðinga
mestri andstöðu frá útgerðar-
mönnum frá Austfjörðum, en
einnig frá útgerðum á Norður-
landi, Vestfjörðum og frá Suður-
nesjum.
Þjóðviljinn leitaði álits
Hólmgeirs Jónssonar fram-
kvæmdastjóra Sjómannasam-
bands íslands á þessari kúvend-
ingu útgerðarmanna í afstöðu
þeirra til frjáls fiskverðs, en sem
kunnugt er hafa útgerðarmenn
oft á tíðum verið manna hávær-
astir um aukið frelsi sér til handa í
málefnum sjávarútvegsins.
Hólmgeir sagði að eftir þessa at-
kvæðagreiðslu á aðalfundi út-
vegsmanna hlyti sú spurning að
vakna hvort fiskvinnslan væri
ekki farin að ráða afstöðu útgerð-
armanna til frjáls fiskverðs, en
eins og kunnugt er hefur fisk-
vinnslan verið mjög aridsnúin
frjálsu fiskverði frá því það var
tekið upp í fyrsta skipti í sumar,
og kvartað mjög yfir því hvað sjó-
menn væru heimtufrekir og
ósanngjarnir varðandi fiskverðs-
samninga við vinnsluna.
„Afstaða sjómanna hefur ekk-
ert breyst varðandi frjáls fiskverð
og við munum halda þeirri af-
stöðu til streitu í Verðlagsráði
sjávarútvegsins þegar ráðið kem-
ur saman til fundar til að ákveða
framhaldið um frjáls fiskverð
eður ei eftir 15. nóvember," sagði
Hólmgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri.
grh
Manneldi
Forvamastofnun
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið hefur nú hafíst
handa við undirbúning að gerð
frumvarpsdraga um Forvarna-
stofnun ríkisins, en slíkri stofnun
er m.a. ætlað að annast fræðslu
um tengsl mataræðis og heilsu. Þá
hyggst ráðuneytið jafnframt
skipa nefnd til að móta manneld-
isstefnu hér á landi.
í ályktun sem Manneldisfélag-
ið hefur sent frá sér er verkefnum
ráðuneytisins fagnað.
Gjörið svo vel!
Enjoy it!
Bitte schön!
Wir verpacken
Við pökkum - tryggjum og sendum um heim allan.
We wrap - insure and send around the world.
versichern - versenden rund um die Welt.
Alofossbúöin &
Vesturgata 2, Reykjavík, sími 13404
LENGI BYR AÐ FYRSTU GERÐ.
Dagvist barna í Reykjavík rekur 61 dagvistarheimili
víðs vegar um borgina fyrir um 4000 börn á aldrinum
6 mán — 10 ára.
Megin viðfangsefni Dagvista er að búa hinum ungu
Reykvíkingum þroskavænleg uppeldisskilyrði í öruggu
og ástríku umhverfi í leik og starfi með jafnokum.
Við erum nú þegar um 600 manns sem önnumst þessa
yngstu borgara, en til að ná ofangreindum markmiðum
þurfum við liðstyrk áhugasamra einstaklinga.
Við óskum eftir: Fóstrum, þroskaþjálfum, uppeldis
fræðingum (BA — próf eða sambærilegt), einstaklingum
sem hafa öðlast reynslu við uppeldi eigin barna,
einstaklingum sem vilja öðlast reynslu í dagvistaruppeldi
fyrir væntanlegt nám.
Allar nánari upplýsingar um störfin gefur Fanny Jónsdóttir, deildarstjóri í síma 2 72 77 alla virka daga
frá kl. 9.00 — 16.00 og í síma 2 14 96 laugardag og sunnudag frá kl. 11.00 — 15.00