Þjóðviljinn - 06.12.1987, Page 7
Einkennisklæddir þingmenn NSDAP árið 1930.
Nýjar rannsóknir í Vestur-Þýskalandi
Kjósendur
Hitlers
komu úr öllum stéttum
Aðsetur SA-manna í Berlín þakið fánum og slagorðum fyrir kosningarnar 1932.
MILLIONEN
stehen hinter mir
Hverjirvoru hinirraunveru-
legu kjósendur þýska Nasist-
aflokksins? Um það hafa
menn lengi deilt. Lengst af
hefur þó sú kenning notið
mestrar hylli meðal fræði-
manna, að það hafi nánast
einvörðungu verið lútersk
millistétt, sem veitti nasistum
brautargengi.
(fyrra kom út hér í Vestur-
Þýskaiandi bók eftir sagn-
fræðinginn Júrgen W. Falter,
prófessorvið Berlínarhá-
skóla, um kosningarog kjós-
endur í Weimarlýðveldinu,
1919-1933. Þessi bók hefur
vakið verulega athygli, ekki
síst vegna þess að þar er fyrri
kenningum um kjósendur
Nasistaflokksins hnekkt. Falt-
er sýnir fram á það í þessari
bók að kjósendur Nasistaflok-
ksins hafi í raun komið úrflest-
um þrepum þjóðfélagsstig-
ans. Hann gengur jafnvel svo
langt að segja að þýski Nas-
istaflokkurinn hafi líklegaver-
ið fyrsti stjórnmálaflokkurinn í
Evrópu, sem náði að höfðatil
margra ólíkra þjóðfélagshópa
í senn.
Við þingkosningarnar 31. júlí
1932 hlaut Nasistaflokkurinn
rúm 37 prósent greiddra at-
kvæða. Það var mesta atkvæða-
tala hans frá stofnun. Á aðeins
fjórum árum hafði flokkurinn
fimmtánfaldað fylgi sitt. í nóvem-
ber sama ár var á ný efnt til þing-
kosninga og þá tapaði Nasista-
flokkurinn nokkru fylgi, hlaut
aðeins rúm 33 prósent atkvæða.
Flokkurinn var greinilega á nið-
urleið. En í janúar 1933 seldi
Hindenburg, forseti landsins,
leiðtoga Nasistaflokksins Adolf
Hitler í hendur umboð til stjórn-
armyndunar. í þriðju kosningun-
um, sem haldnar voru í landinu á
einu ári, í apríl 1933, hlaut Nasist-
aflokkurinn rúm 44 prósent
gildra atkvæða. Þessar kosning-
ar, sem haldnar voru eftir raun-
verulega valdatöku nasista, er
hins vegar engan veginn hægt að
telja marktækar.
Sumarkosningarnar 1932, þeg-
ar nasistar náðu besta árangri sín-
um í lýðræðislegum kosningum,
þykja hvað athyglisverðastar í því
sambandi hvernig atkvæðatala
Nasistaflokksins dreifðist þá á
stéttir manna. Jiirgen W. Falter
hefur, með aðstoð tölvu,
rannsakað niðurstöður úr öllum
kjördæmum landsins í þessum
kosningum.
Á dögum Weimarlýðveldisins
voru engar skoðanakannanir
gerðar; og að sjálfsögðu hafa
menn heldur engar upplýsingar
um það hvernig hver og einn
kjósandi varði atkvæði sínu í
kjörklefa. Allar niðurstöður
Falters eru því reistar á líkindum.
Fyrir hendi eru upplýsingar um
þjóðfélagsstöðu íbúa í öllum
kjördæmum landsins, 831 að
tölu. Menn hafa því allnákvæma
hugmynd um hvar mótmælendur
bjuggu á þessum tíma, hvar ka-
þólikkar, hvar vinnandi menn,
hvar atvinnulausir o.s.frv. Með
því að bera atkvæðatölur úr ein-
stökum kjördæmum saman við
þessar upplýsingar, má með
nokkuð öruggum líkindum segja
til um hvaða stéttir manna hafi
kosið hvaða flokk.
Lítum nú á úrslit kosninganna,
31. júlí 1932 (kjörsókn var 84,1
prósent, hin mesta í sögu
Weimarlýðveldisins):
Nasistaflokkurinn (NSDAP)
var stærsti flokkur landsins, hlaut
37.4 prósent atkvæða.
Jafnaðarmenn (SPD) hlutu
21,6 prósent.
Miðjubandalagið (Zentrum)
og Bæverska þjóðarbandalagið
(BVP), sem fyrst og fremst nutu
stuðnings kaþólikka, hlutu sam-
tals 16,2 prósent.
Kommúnistar (KPD) hlutu
14.5 prósent.
Aðrir hlutu samtals 10,3 pró-
sent.
Atkvæðatala Nasistaflokksins
samsvarar því að hann hafi hlotið
stuðning 31 prósents allra at-
kvæðisbærra manna. Þá tölu not-
ar Falter í öllum útreikningum
sínum á skiptingu atkvæða
flokksins, enda engan veginn
hægt að segja til um hverjir það
voru, sem ekki neyttu atkvæðis-
réttar síns. Því eru þeir í útreikn-
ingum hans í rauninni taldir sem
einn flokkur með 15,9 prósent at-
kvæða.
Hið fyrsta sem vekur athygli
þegar atkvæðatölur Nasista-
flokksins eru skoðaðar, er það að
hann nýtur öllu meira fylgis á
landsbyggðinni en í borgum. Að
meðaltali hlýtur hann 34 prósent
fylgi í dreifbýli en 28 prósent í
þéttbýli. Hið næsta, sem kemur í
ljós, er að meðal mótmælenda
nýtur flokkurinn miklu meira
fylgis en meðal kaþólikka. Á
landsbyggðinni er þessi munur
svo gífurlegur að flokkurinn hef-
ur 41 prósent fylgi að meðaltali á
lúterskum svæðum en einungis 18
prósent á kaþólskum.
Trúin virðist því hafa valdið
mestu um það hvað menn kusu á
þessum tíma. Atvinna og þjóðfé-
Lúterski
smáborgarinn
ekki einn um
stuðning við
Nasistaflokkinn
eins og haldið
hefur verið fram.
lagsstaða hafa augljóslega skipt
minna máli, og kemur það eflaust
mörgum á óvart. Jurgen W. Falt-
er hefur komist að þeirri niður-
stöðu að 27 prósent allra verka-
manna hafi kosið Nasistaflokk-
inn í þessum kosningum, sem er
aðeins 4 prósentum lægra hlutfall
en meðal allra atkvæðisbærra
manna.
Sú gamla kenning að Nasista-
flokkurinn hafi verið borinn uppi
af miðstéttinni, að meðalkjós-
andi hans hafi verið lúterskur
smáborgari, er augljóslega mikil
einföldun á sannleikanum.
Vissulega naut flokkurinn mests
fylgis meðal þessa fólks, en hann
átti einnig afar styrk vígi meðal
annarra stétta. Mest kemur á
óvart að afar margir verkamenn,
einkum á landsbyggðinni, studdu
Nasistaflokkinn. Skýringar á
þessu eru ýmsar. Bent hefur ver-
ið á að í smábæjum úti á landi hafi
samstaða manna verið meiri en í
borgum. Stéttaskipting hafi ekki
verið eins skýr. Því hafi verka-
menn einfaldlega farið að dæmi
þeirra, sem stóðu næst fyrir ofan
þá í samfélaginu, og greitt nasist-
um atkvæði sitt.
Einnig er vitað að ýmsir verka-
menn, einkum í þjónustu ríkis-
ins, höfðu horn í síðu jafnaðar-
manna og töldu þá eiga sök á
launaskerðingu, sem þeir höfðu
orðið fyrir. Þessir menn, einkum
póstmenn og starfsmenn járn-
brauta, snerust hópum saman til
fylgis við nasista.
Hins vegar virðist sú útbreidda
skoðun að atvinnuleysingjar hafi
í ríkum mæli bundið vonir við
nasista vera röng. Rannsóknir
Falters sýna að þetta fólk mynd-
aði styrkasta stuðningshóp
Kommúnistaflokksins. Vissulega
Milljónlr manna standa að baki
mér... (Veggspjald eftir John He-
artfield)
voru það þó ófáir atvinnuleysing-
jar, sem tóku fegins hendi gylli-
boðum nasista um mat, vinnu og
umfram allt sjálfsvirðingu. SA-
sveitirnar fengu marga slíka
menn til liðs við sig, einkum unga
atvinnuleysingja. Þessir menn
voru flokknum afar nytsamlegir,
enda margir þeirra hneigðir til of-
beldis, og þá var hægt að nota til
að efna til götuóeirða og til að
þjarma að pólitískum andstæð-
ingum. Þeir voru því mjög áber-
andi í þjóðfélaginu, og líklega
hafa af því sprottið upp sagnir um
fjölda þeirra, og sá misskilningur
breiðst út að atvinnuleysingjar
hafi í röðum hneigst til nasisma.
Mikilvægi rannsókna eins og
þessara verður ekki dregið í efa.
Þær þjóðfélagslegu aðstæður,
sem leiddu til víðtæks stuðnings
við stefnu, sem litla eða enga dul
dró á svívirðileg markmið sín og
mannfyrirlitningu, hljóta og
verða að vera eilíft rannsóknar-
efni. í kosningaáróðri nasista var
engu leynt um kynþáttastefnu
flokksins; kjósendur hans gátu
fræðst um hana á áróðursspjöld-
um á hverju götuhorni. Niður-
stöður Jurgens W. Falters hljóta
að teljast í hópi hinna merkustu í
þýskum sagnfræðirannsóknum á
seinni árum.
Einar Helmlsson skrifar frá Vestur-
Þýskalandi.
Sunnudagur 6. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7