Þjóðviljinn - 16.12.1987, Page 2
rSPURNINGIN—
Hvað kosta jólin hjá
þér í ár?
Árni Zophaníasson
starfsmaður hjá Miðlun:
Ætli það fari ekki svona 100 þús-
und í allt. Þá er meðtalinn matur
og gjafir. Mér finnst þetta skapleg
upphæð.
Sigríður Hallgrímsdóttir
skrifstofumaður:
Það hef ég ekki hugmynd um. Ég
hef ekki tekið það saman. Ég læt
bara hverjum degi nægja sína
þjáningu og ef endar ná saman
er allt í lagi.
Auður Guðmundsdóttir
húsmóðir:
Ég hef bara ekki hugmynd um
það. Ég vona þó að þau verði
ekki mjög dýr, svona skikkanleg.
Elín Vilhelmsdóttir
kennari:
Ekki hugmynd, ég er ekki búin að
gera kostnaðaráætlun. Ég er rétt
að byrja að athuga verð á hlutum.
Páll Sigurðsson
starfsmaður á Keldum:
Þau verða nú ekki mjög dýr. Við
erum nú frekar sparsöm og
eigum margt.
FRÉTTIR
Rafhitun
Hækkar um
40 prósent
Rafhitunarkostnaður mun
hækka um 40% á næsta ári vegna
þess að niðurgreiðslur ríkissjóðs
eru minnkaðar um 50 milijónir á
fjárlögum fyrir 1988.
Hjörleifur Guttormsson var
með breytingatillögu við þennan
lið fjárlaganna og lagði til að
niðurgreiðslurnar yrðu hækkaðar
um 50 milljónir. Benti hann á að
þetta kæmi einkum niður á lands-
byggðinni. Studdist Hjörleifur
við greinargerð frá Rafmagns-
veitum ríkisins.
Tillaga Hjörleifs var felld við
nafnakall. -Sáf
Stjórnarliðar láta í Ijós vilja sinn á Alþingi í gær. (Mynd: Sig.)
Stjórnarliðar
Móðganir og afsakanir
Jón Baldvin móðgaði Ragnhildi og baðst velvirðingar á orðum sínum eftir að Hall-
dór Blöndalogfleirihöfðubent honum á að ekki vœri búið að afgreiða fjárlögin
Jón Baldvin Hannibalsson varð
að biðja Ragnhildi Helgadótt-
ur afsökunar á þeim orðum sín-
um við atkvæðagreiðslu um fjár-
lögin í gær, að viðbrögð hennar
við frétt í Alþýðublaðinu í gær
væru taugaveiklunarviðbrögð.
Ragnhildur hafði farið fram á
nafnakall þegar greidd voru at-
kvæði um breytingatillögu vegna
D-álmunnar á sjúkrahúsinu í
Keflavík. Gerði hún grein fyrir
atkvæði sínu og notaði tækifærið
til að benda fjármálaráðherra á
að það væri veist ósæmilega að
henni í málgagni ráðherrans, þar
væri sagt að hún hefði gefið lof-
orð um lánsheimild, sem væri
rangt.
Jón Baldvin sagði að forveri
hans í fjármálaráðherraembætti
hefði hafnað lánsheimildinni og
bætti því við að viðbrögð Ragn-
hildar væru taugaveiklunarvið-
brögð.
Eftir atkvæðagreiðsluna fór
Ragnhildur fram á umræðu um
þingsköp og mótmælti því að
fjármálaráðherra veittist á þenn-
an hátt að stuðningsmönnum við
ríkisstjórnina. Sagði hún þetta
virðingarleysi. Halldór Blöndal
benti Jóni Baldvin á að enn væru
fjárlögin óafgreidd og satt að
segja væri þingheimur haldinn
taugaveiklunarviðbrögðum
gagnvart fjárlögunum og þegar
kæmi að atkvæðagreiðslu um þau
gætu þau viðbrögð haft sitt að
segja.
Svavar Gestsson benti Jóni
Baldvin á að honum bæri að biðja
Ragnhildi afsökunar á orðum sín-
um og Albert Guðmundsson tók í
sama streng. Guðrún Helgadóttir
bætti um betur og sagði allan
karlpening þingsins eiga að biðja
kvenþjóðina afsökunar og tiltók
sérstaklega Albert sem hafði sagt
Jóhönnu Sigurðardóttur að fara
heim og prjóna í umræðum sl.
mánudagskvöld. Guðrún Agn-
arsdóttir benti fjármálaráðherra
á að best væri að hafa aðgát í
nærveru fjárlagafrumvarpsins.
Albert kvaddi sér aftur hljóðs
og bað Jóhönnu að afsaka orð sín
og Jón Baldvin bað Ragnhildi
velvirðingar á orðum sínum.
-Sáf
Fjárlögin
Sextánfalt nafnakall
Allar tillögur stjórnarandstöðufelldar ífjárlagaumræðu ígær.
Framsókn boðar að íþrótta- og æskulýðsmál verði endurskoðuð fyrir
þriðju umræðu
að tók þrjár og hálfa klukku-
stund að greiða atkvæði við
aðra umræðu um fjárlögin í gær
og fór svo að allar breytingatil-
lögur sem stjórnarandstaðan
lagði til voru felldar. Samtals
voru breytingatillögur stjórnar-
andstöðunnar 76 talsins en 32
voru dregnar til baka og bíða
flestar þriðju umræðu um fjár-
lögin.
Alls var 16 sinnum farið fram á
nafnakall, var það einkum stjórn-
arandstaðan sem fór fram á
nafnakall. Það var Ragnar Arn-
alds sem reið á vaðið þegar greiða
átti atkvæði um breytingatillögu
hans um tónlistarfræðslu. Einn
stjórnarsinni, Friðjón Þórðar-
son, sveikst undan merkjum við
þá atkvæðagreiðslu, en fram-
sóknarmennirnir Guðmundur G.
Þórarinsson og Alexander Stef-
ánsson greiddu atkvæði gegn til-
lögunni, þótt þeir hefðu verið
búnir að boða fyrirvara við þenn-
an lið fjárlaganna.
Ekki er þó öll von úti enn um
að þessi liður eigi eftir að taka
breytingum við þriðju umræðu
því þegar kom að nafnakalli um
íþróttasjóð, sem Ingi Björn Al-
bertsson fór fram á, sögðu fram-
sóknarmennirnir Ólafur Þ. Þórð-
arson, Alexander Stefánsson og
Níels Árni Lund, að íþrótta- og
æskulýðsmál yrðu athuguð milli
annarrar og þriðju umræðu og
Egill Jónsson tók í sama streng.
Nafnakall var um tillögu Stein-
gríms J. Sigfússonar og fleiri
þingmanna Alþýðubandalags um
að auka framlög til þróunarsam-
vinnustofnunar og sátu kratarnir
Árni Gunnarsson og Karl Steinar
Guðnason hjá við þá atkvæða-
greiðslu.
Þá fór Halldór Blöndal í tví-
gang fram á nafnakall við at-
kvæðagreiðslu um styrk til blaða-
útgáfu, annarsvegar um blaða-
styrkinn svokallaða og hinsvegar
um að ríkið kaupi 250 eintök af
dagblöðunum. í atkvæðagreiðslu
um blaðastyrkinn reyndust níu
þingmenn andvígir, þar af 6 sjálf-
stæðismenn og 3 kvennalistakon-
ur.
í lok atkvæðagreiðslunnar
kvaddi Sighvatur Björgvinsson
sér hljóðs um þingsköp og ávítti
stjórnarliða fyrir að hafa tafið at-
kvæðagreiðsluna með nafnak-
öllum. Sagði hann að stjórnarlið-
ar yrðu að kunna að sitja á strák
sínum, en einsog fram kemur í
annarri frétt sló nokkrum sinnum
í brýnu milli stjórnarliða við at-
kvæðagreiðsluna.
Halldór Blöndal tók þessi orð
til sín og benti Sighvati á að mað-
ur eftir mann hefði við atkvæða-
greiðsluna staðið upp til að boða
að eftir væri að afgreiða marga
liði frumvarpsins.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 16. desember 1987