Þjóðviljinn - 16.12.1987, Qupperneq 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVIUINN
Mlðvikudagur 16. desember 1987 282. tölublað 52. drgangur
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
ísafjörður
Miklir
vanskilamenn
Bjarni Sólbergsson,
fjármálastjóri
bœjarsjóðs: 700
einstaklingar ogfyrirtœki
skulda bœjarsjóði 40
milljónir króna. 18% af
heildartekjum bœjarins
Það er sitthvað að afla tekna
eða standa í skilum með það sem
keisarans er. ísfirðingar sem
voru með hæsta meðaltalsútsvar
á landinu í ár virðast vera miklir
vanskilamenn við sinn bæjarsjóð.
í dag skulda 700 einstaklingar og
fyrirtæki 40 milljónir króna í van-
goldin gjöld og eru það 18% af
heildartekjum bæjarsjóðs sem
eru tæpar 220 milljónir króna.
Að sögn Bjarna Sólbergssonar,
fjármálastjóra bæjarsjóðs ísa-
fjarðar, eru þessi vanskil með lík-
um hætti og verið hefur á undan-
förnum árum. f fyrra um ára-
mótin voru 35 milljónir króna í
vanskilum við bæjarsjóð ísa-
fjarðar.
Aðspurður um það hvort ekki
komi til greina að birta nöfn
þeirra sem skuldseigastir eru,
sagði Bjarni að menn hefðu hug-
leitt það en hann bjóst þó ekki við
að það yrði gert að svo stöddu.
„Það verður örugglega erfitt
mjög mörgum eftir áramótin þeg-
ar staðgreiðslukerfið kemur til
framkvæmda þegar þessi vanskil
bætast síðan ofan á við inn-
heimtuna," sagði Bjarni Sól-
bergsson, fjármálastjóri bæjar-
sjóðs ísafjarðar. grh
Kaþólskir
Nýr biskup
útnefndur
Jóhannes Páll páfl II hefur út-
nefnt dr. Alfred Jolson, S. J. bisk-
up kaþólsku kirkjunnar á íslandi.
Þetta var tilkynnt í Páfagarði í
gær.
Dr. Alfred Jolson er fæddur
18. júní í Bandaríkjunum. Afi dr.
Jolson var íslendingur, sem flutt-
ist til Noregs og kvæntist þar
norskri konu. Faðir hans flutti til
Bandaríkjanna og settist þar að.
Hann gekk í reglu Jesúíta árið
1946 og var vígður til prests 14.
júní 1958. Hann lauk licenciats-
prófi í guðfræði, doktorsprófi í
heimspeki og félagsfræði við
Gregoriana háskólann í Róm og
M. A. prófi í viðskiptafræðum við
Harward háskóla í Bandríkjun-
um.
Hann hefur síðan starfað sem
háskólakennari í Bagdad, Salis-
bury í Ródesíu, en þó lengstaf í
Bandaríkjunum við University of
St. Josef, Philadelphia, Boston
College of Business og starfar nú
sem framkvæmdastjóri Wheeling
College í Vestur-Virginíu.
Rit þetta er saga þjóðhátíðarinnar sem haldin var í tilefni af
ellefu hundruð ára afmæli íslandsbyggðar.
'W-yffií
ISLENSK BOKAMENNING ER
, þJÓOVILIINN
Happdrætti Þjóðviljans
Enn er hægt að greida gíróseðlana.
Drætti hefur verið frestað til 15. janúar.
Styrkjum blaðið okkar.