Þjóðviljinn - 09.01.1988, Qupperneq 9
MENNING
jBjpí *
£Ljgr3
^r,&7
Líkan að nýja tónlistarhúsinu.
Tónlist
Okkur dreymir um
tónlistarhús
innan fárra ára
segir Sveinn Einarsson leikstjóri
í kvöld gangast Samtök um
byggingu tónlistarhúss fyrir
tónleikum í Háskólabíói. Tón-
leikarnirsem hefjast klukkan
21:30 eru haldnir undir yfir-
skriftinni „Gerumdrauminn
að veruleika" og meðal þeirra
sem fram koma eru Sinfóníu-
hljómsveit (slands, Gunnar
Þórðarson, Bubbi Morthens,
Ólöf Kolbrún Harðardóttirog
hljómsveitTómasar Einars-
sonar. Alls taka á annað
hundrað þekktra tónlistar-
manna þátt í tónleikunum og
gefa allir vinnu sína, en ágóð-
inn af sölu aðgöngumiða
rennurtilTónlistarhússins. í
dag verður dregið í happ-
drættinu sem Samtökin hafa
gengistfyrirtil styrktartónlist-
arhúsinu og vinningsnúmer
verða tilkynnt á tónleikunum
sem er sjónvarpað í beinni út-
sendingu.
- Viö göngumst fyrir þessum
tónleikum til að vekja áhuga og
athygli á máiinu, segir Sveinn
Einarsson leikstjóri en hann er
meðlimur í stjóm Samtaka um
byggingu tónlistarhúss.
- Það koma þarna fram fulltrú-
ar flestra greina tónlistar á
landinu, verður spiluð klassísk
músík, popp og jass, því að við
viljum undirstrika að þetta hús er
ekki ætlað einni ákveðinni teg-
und tónlistar.
Hvencer voru þessi samtök stofn-
uð?
- Kveikjan að stofnun samtak-
anna var eiginlega grein sem Ár-
mann Örn Ármannsson skrifaði,
1983. Skömmu seinna voru tón-
leikar í Háskólabíói þar sem voru
staddir margir áhugamenn um
þetta mál og þar voru samtökin
stofnuð. Það streymdi strax
þama inn fólk sem fannst vera
kominn tími til að gera drauminn
um tónlistarhús að veruleika, og
félagar skipta hundruðum ef ekki
þúsundum í dag.
Og hvemig hefur svo gengið
með framkvœmdir?
- Það hefur mikið unnist nú
þegar, þó að það sé ennþá langt í
land. Við eram komin með stað
fyrir húsið og teikningu að því,
það var haldin alþjóðleg sam-
keppni og fyrstu verðlaun hlaut
íslenskur arkitekt, Guðmundur
Jónsson. En vegna þess að þetta
hús er ætlað öllum tónlistariðk-
endum og tónlistarunnendum á
landinu, hafa verið gerðar um-
talsverðar breytingar á teikning-
unum til að tryggja að allar teg-
undir tónlistar komist þar að.
Sinfónían verður þarna til húsa,
það verður hægt að hafa þarna
popptónleika, og eins er aðstaða
til að flytja þarna óperur. Ég vil
taka fram að þessar breytingar
sem hafa verið gerðar breyta ekki
útliti hússins og gera það ekki
dýrara svo umtalsvert sé, en
notagildi þess verður miklu
meira. Það verða í húsinu tveir
salir, annar þeirra tekur á 15.
hundrað manns í sæti og er þar
með stærsti salur á landinu sinnar
tegundar. Hinn salurinn er miklu
minni, þar verða sæti fyrir á
fjórða hundrað manns; hann er
ætlaður fyrir til dæmis kammert-
ónleika. Svo verður þarna
veitingaaðstaða, en annars verð-
ur lítið um íburð, húsið er hannað
sérstaklega með þarfir tónlistar-
starfsemi í huga.
Og er langt í að húsið verði
byggt?
- Okkur dreymir um að það
verði innan fárra ára. Það hefur
mikið unnist, þó að við eigum
ennþá langt í land. Við erum sem
sapt komin með stað fvrir hiísið
og það er verið að ljúka við
breytingar á teikningunum. Þess-
ir tónleikar eru átak til að tryggja
að við getum haldið áfram, og
Sveinn Einarsson
eins viljum við sýna að við erum
að vinna af samhug og fullum
krafti og að það er mikill hugur í
fólki. En þetta kemur í áföngum
og við ráðumst ekki í áfangana
fyrr en þeir eru nokkurnveginn
fjárhagslega tryggðir.
LG
Myndlist
Afmælissýning
á Kjarvalsstöðum
í dag klukkan 14 opnar Baltas-
ar málverkasýningu í vestursal
Kjarvalsstaða. Sýningin eraf-
mælissýning í tvennum skilningi
því Baltasar á f immtugsaf mæli í
dag og jafnframt eru liðin nák-
væmlega 25 ár síðan hann kom
til íslands. Þetta er hans tuttug-
astaog önnureinkasýning.en
auk þess hefur hann tekið þátt í
samsýningumheimaoger-
lendis.
Á sýningunni eru 35 myndir,
allt olíumyndir með blandaðri
tækni og flestar málaðar á síðast-
liðnu ári. Leikið er á sjö mismun-
andi stef og með þeim Iýst marg-
víslegri upplifun veruleikans og
tilfinningum Iistamannsins í garð
lands sem hefur verið heimkynni
hans í hálfan þriðja áratug. Stefin
eða þemun eru: Beinakerlingar,
nátttröll, lauf, memento mori
(mundu að þú ert dauðlegur),
gróður, sigurbogar og súluhöfuð.
Við þessi stef tengjast ekki beinar
lýsingar á þjóðsögum og um-
hverfi heldur er fyrst og fremst
sfefnt að tjáningu tilfinninga -
ástar, reiði, háðs.
Baltasar leitast við að spanna
vítt svið með verkum sínum.
Bera fram dæmi um andstæður
harmleiks og vonar, túlka ein-
semd og römm forlög, flétta sam-
an viðvörun og vonleysi. Þessi
myndheimur hefur dimman tón,
en í honum er leitast við að kalla
fram breytileg geðhrif, allt frá
léttlyndi til beiskju, um leið og
andmælt er mannfórnum og
grimmd. - Sýningin stendur til
24.janúar og er opin frá kl. 14 til
22 alla daga vikunnar.
-LG
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA <