Þjóðviljinn - 03.02.1988, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 03.02.1988, Blaðsíða 2
n SPURNINGIN Komu niöurstöður kann- ana um fylgi flokkanna þér á óvart? Kristófer Bjarnason, Neonþjónustunni. Nei, Kvennalistakonur hafa staðið við flest af því sem þær segja. Konur verða búnar að taka völdin eftir 20 ár. Karl Gunnlaugsson, rafvirki. Mér finnst fylgisaukning Fram- sóknarflokks skrýtin. Þeir segja eitt og gera annað, sveiflast bara eftir vindi. Ogot Emils, húsmóðir. Nei, fólk er orðið þreytt á karla- durgunum. Konurnar hugsa og starfa öðruvísi. Aðalheiður Ásgeirsdóttlr, læknaritari. Nei. Kvennalistinn stendur sig vel og mun gera það áfram. Sigurður Vilhjálmsson, ör- yrki. Þær voru eins og ég bjóst við. Gaman að sjá fylgisaukningu Kvennalistans. Ég held að Jón Baldvin dragi frekar niður fylgi Al- þýðuflokks, en auki. SKÁK Vesturland Fiskmarkaður í burðarlið Viðar Magnússon: Stofnfundur íBorgarnesi 14. febrúar nk. Húsnœði til boða uppi á Skaga. Fjarskiptamarkaður fyrst um sinn Fyrir dyrum stendur að koma á fót fiskmarkaði fyrir Vestur- land í þessum mánuði og er hon- Asgeir Friðjónsson,dómari hjá ávana- og fikniefnadómstóln- Snjóskriða Nafn piltsins Ungi pilturinn sem fórst í snjó- flóði undir Skarðatindi milli Morsárjökuls og Skaftafells- jökuls sl. sunnudag, hét Þor- steinn ívarsson, til heimilis að Hryggjarseli 3 í Reykjavík. Hann var 16 ára gamall. -grh um hugsaður staður á Akranesi. Fyrst um sinn verður um fjar- skiptamarkað að ræða en það um, dæmdi um helgina brasilíska kókaínsmyglarann í fjögurra ára fangelsi. Til frádráttar fangelsis- vistinni kemur 106 daga gæslu- varðhald. Hinn dæmdi mun trú- lega taka út sína refsingu á Litla- Hrauni, en síðan verður honum vísað úr landi. Að sögn Ásgeirs Friðjónssonar dómara er hér um að ræða þyngs- ta dóm sem kveðinn hefur verið upp hjá dómstólnum og ekki hef- ur verið áfrýjað. Brasilíumaðurinn var handtek- inn í Hveragerði sl. október mun ráðast af undirtektum hvort fiskur verður einnig seldur á gól- fmarkaði. Þann 14. febrúar nk. ásamt vinkonu sinni og voru þau með 444 gr af 91.% hreinu kóka- íni, sem er mesta magn sem gert hefur verið upptækt af lögreglu hingað til. Mannfæð hrjáir ávana- og fíkniefnadómstólinn um þessar mundir og er Ásgeir eini starf- andi dómarinn við hann í dag. Til skamms tfma voru dómararnir þrír. Ásgeir sagði við Þjóðviljann að þessu fylgdi auðvitað meira álag en góðu hófi gegndi, en þrátt fyrir það kæmi það ekki enn nið- ur á starfsemi dómsins. -grh verður haldinn stofnfundur markaðarins í Borgarnesi. Að sögn Viðars Magnússonar, eins af forsvarsmönnum fyrir stofnun fiskmarkaðarins, stendur þeim húsnæði til boða undir starf- semina og ekkert er því til fyrir- stöðu að fá nauðsynleg tæki fyrir fjarskiptamarkaðinn. Viðar sagði við Þjóðviljann að undir- tektir Vestlendinga væru góðar og mikill hugur í mönnum að koma markaðnum á fót á miðri vertíðinni. Aðspurður sagðist Viðars ekki óttast tregðu útgerðarmanna við að selja físk á markaðnum, þó svo að vel flestir útgerðarmenn á Vesturlandi væru með fisk- vinnslu samhliða útgejrð. Hann sagði að þetta væri fyrst og fremst spurning um þróun fískmarkaða almennt og hann hefði ekki mikla trú á því að menn þar vestra héldu að sér höndum eftir að markaðurinn væri kominn á fót. Nú þegar væri mikið selt af fiski frá Vesturlandi suður á bóginn og ætti það að vera úr sögunni þegar markaður væri kominn heim í hérað. -grh Kornrœktin Festir sig í sessi 200 ha undir korni sl. sumar- Uppskeran góð Góðar vonir standa nú til að kornræktin sé að ná varanlegri fótfestu hér á landi. Síðastliðið sumar var korn skorið upp af 200 hekturum lands en árið áður af um 180 hekturum. Klemens heitinn á Sámsstöð- um hafði tröllatrú á því að unnt væri að rækta korn hér á landi og sýndi þá trú í verki. Við fráfall Klemensar mun nokkuð hafa slegið í baksegl fyrir kornrækt- inni en á allra síðustu árum hefur hún færst í aukana á ný. Rangæingar eru atkvæðamest- ir við kornræktina. Síðastliðið sumar ræktuðu þeir korn á 143 hekturum. Þá komu Vestur- Skaftfellingar með 36,5 ha, síðan Héraðsbúar með 19 ha og loks Eyfirðingar með um 0.8 ha. Ann- ars staðar á landinu mun komrækt lítil sem engin, enn sem komið er. Uppskeran mátti kallast góð eða 2,2 lestir til jafnaðar ha og komst, þar sem best lét, yfir 3 lestir. - mhg Mikil bátaútgerð er frá Akranesi enda aðstaða þar mjög góð. Allar líkur benda til að fiskmarkaður taki til starfa á Skaganum, jafnvel síðar t þessum mánuði. Fíkniefnadómstóllinn Brasilíumaðurinn fékk 4 ár Ásgeir Friðjónsson dómari: Þyngsti dómursem ekki hefur verið áfrýjað. Kókaínið var 91 % hreint og alls 444 gr 2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvlkudagur 3. febrúar 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.