Þjóðviljinn - 03.02.1988, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 03.02.1988, Blaðsíða 11
ÖRFRÉTTIR Bandaríkjamönnum blöskrar almennt framferði fsra- elskra dáta á hernumdu svæðun- um og virðast gyðingar engu síður hneykslaðir en aðrir. Al- kunna er að 45 palestínsk ung- menni hið minnsta hafa verið skotin til bana af hermönnum herraþjóðarinnar frá því óeirðir hófust á vesturbakka Jórdanár og Gazasvæöinu í desember í fyrra. Samkvæmt skoðanakönn- un bandaríska vikuritsins „Time“ kváðust 57 af hundraði banda- rískra gyðinga og 72 hundraðs- hlutar „annarskonar" Banda- ríkjamanna eindregið á móti hverskyns valdníðslu og ofbeldi (sraelsmanna á hernumdu svæðunum. 77 af hundraði gyð- inga og 65 hundraðshlutar ann- arra kana voru þeirrar skoðunar að (sraelsríki setti ofan í augum umheimsins sökum hrottaskapar stjórnendanna. Mörg hundruð hjúkrunar- fræðingar og sjómenn á ferjum og kaup- skipum lögðu niður vinnu á Bret- landi í gær. Hjúkrunarfræðing- arnir starfa allir við Maudesley geðsjúkrahúsið í Lundúnum og sinntu þeir aðeins neyðarþjón- ustu í gær. Stéttarfélag þeirra hefur lýst því yfir að þetta sé að- eins hið fyrsta í röð fjölmargra eins dags vinnustöðvana sem efnt verður til á næstunni til að knýja fram kauphækkanir og hækkun fjárframlaga til heilbrigð- isþjónustunnar. Sjómennirnir fóru í verkfall í gær þótt breskir dómstólar hefðu sagt vinnu- stöðvun þeirra öldungis ólög- lega. Þeir krefjast endurráðning- ar 161 kollega síns er reknir voru frá störfum fyrir skömmu og endurskoðunar áætlunar ríkis- valdsins um fækkun kaupskipa hins opinbera. Varnarmála- ráðherrar Sovétríkjanna og Bandaríkjanna, þeir Dmitri Yazov og Frank Carl- ucci, munu hittast að máli í Bern í Sviss einhverntíma fyrir lok marsmánaðar. Umræðuefnið verður afvopnun og fleira er snertir störf þeirra félaga. Þessar fréttir bárust frá heimildamanni í Hvíta húsinu í Washington í gær og lét sá þess ennfremur getið að fundur þessi væri í hæsta máta óvenjulegur en til marks um bætt samskipti risaveldanna. Vítamín eykur ekki gáfur fólks og sé það tekið í of miklu mæli getur það verið banvænt. Fyrir skömmu voru birtar í breskum blöðum nið- urstöður rannsókna tveggja efnafræðinga sem stóðu á því fastar en fótunum að vítamín ylli gáfum og drægi úr árásarhneigð. Allir foreldrar vilja eiga klár og klók afkvæmi sem þar að auki eru prúð og pen. Því stórjókst sala á vítamíntöflum. En sérfróðir læknar og hámenntaðir prófess- orar í næringarfræði gjalda var- huga við þessum kenningum. Staðhæfa þeir að ofneysla b, c og d vítamína geti verið banvæn, orsakað nýrnaskemmdir, gall- steinamyndun og lömun tauga í höndum og fótum. Doktor And- rew Tomkin hefur orðið: „Fólk virðist hafa ályktað sem svo að þar sem ein vítamíntafla geri gagn geri tvær tvöfalt gagn og síðan koll af kolli. Fólk vill vita- skuld auka hugarhæfni barna sinna en hættan er sú að þau éti of mikið vítamín og þá er svo sannarlega betur heima setið en af stað haldið." ERLENDAR FRÉTTIR Járnfrúin og kanslarinn eru höfuðandstæðingar innan Evrópubandalagsins og snýst ágreiningur þeirra fyrst og fremst um landbúnaðarmál. Evrópubandalagið Fundað fyrir leiðtogafund Thatcher og Kohl rœddu landbúnaðarmál í Lundúnum ígær en ínœstu viku hefst fundur leiðtoga ríkja Evrópubanda- lagsins í Brussel Þau Margrét Thatcher, forsæt- isráðherra Bretlands, og Hel- mut Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands, áttu með sér fund í Lundúnum í gær í því augnamiði að reyna að eyða ágreiningi sín- um í landbúnaðarmálum Evr- ópubandalagsins og fyrirbyggja með því að ieiðtogafundur þess fari út um þúfur. Fundurinn hefst í næstu viku í Brussel. Skötuhjúin ræddust við í tvær klukkustundir í gær og efndu því- næst til sameiginlegs frétta- mannafundar. Á honum voru þau svo hreinskilin að játa að þau væru enn ósammála þótt nokkur árangur hefði nást varðandi framleiðslumagn. Járnfrúin kvað fundinn hafa farið fram í jákvæðu andrúms- lofti og ennfremur hafa verið uppbyggilegan og skapandi. Kanslarinn sagði þau bæði vinna heilshugar að því að fundurinn í Brussel yrði árangursríkur. Ákvörðunin um að halda aukafund leiðtoga Evrópubanda- lagsins var tekin á ieiðtogafundi í Kaupmannahöfn skömmu fyrir áramót þegar ljóst var orðið að ekkert samkomulag myndi takast um landbúnaðar-og fjármál bandalagsins. Á Brusselfundin- um hyggjast valdsmenn ríkjanna tólf freista þess að eyða ágrein- ingi sínum en hann er hatramm- astur miili Vestur-Þjóðverja og Breta og snýst fyrst og fremst um framleiðslumagn landbúnaðara- furða og niðurgreiðslur til bænda. Kohl er um þessar mundir fyr- irliði Evrópubandalagsins og verður gestgjafi leiðtogafundar þess næsta sumar. Hann segist hafa lagt fyrir Thatcher drög að málamiðlunarsamkomulagi sem kveður á um mikinn samdrátt í framleiðslu hverskyns korn- metis. En breski forsætisráðherr- ann blés á tillögur hans og kvaðst ekki samþykkja nein aukin út- gjöld bandalagsins fyrr en tekið hefði verið á landbúnaðarmálun- um af festu, meðal annars með því að ákveða fast verð. í tillögu Kohls er kveðið á um að ræktanlegt land verði látið í órækt og sagði Thatcher það útaf fyrir sig gott og blessað. Ef sam- komulag tækist um landbúnað- armál fæli það vitaskuld í sér að býli legðust í eyði. En grundvall- aratriði væri að niðurgreiðslur landbúnaðarvara yrðu dregnar saman og að settir yrðu hámarks- framleiðslukvótar. Utanríkisráðherrar Evrópu- bandalagsríkja hafa fundað stíft í Brussel síðustu tvo daga og freistað þess að finna samkomu- lagsleiðir í ágreiningsmálum. Þeir kváðu ekki hafa haft erindi sem erfiði utan hvað ýmsum „tæknilegum vandamálum" mun hafa verið komið fyrir kattarnef. Kohl lagði á það ríka áherslu í gær að leiðtogarnir yrðu að höggva á alla ágreiningshnúta á Brusselfundi sínum, ekki mætti fresta lausn neinna deilumála fram að júnífundinum er haldinn verður í Hannover. Breska ríkisstjómin rær nánast ein á báti innan bandalagsins í afstöðu sinni til landbúnaðar- mála. Einungis Hollendingar hafa samúð með sjónarmiðum hennar. í Frakklandi standa for- setakosningar fyrir dyrum og ótt- ast þarlendir pólitíkusar heift kjósenda í strjálbýli beiti þeir sér fyrir samdrætti í framleiðslu mat- væla. Sama er uppi á teningnum í V estur-Þýskalandi. Þar eru tvennar fylkisþingkosningar yfir- vofandi og koma búkarlar all- mjög við sögu í hvorri tveggju þeirra. Auk landbúnaðarmála er Ijóst að leiðtogamir munu þurfa að eyða miklu púðri í umræður um fjármögnun starfs bandalagsins og stuðning stöndugri aðildar- rikja við þau blankari. Reuter/-ks. EFTA/EB Stefnt að autdimi samvinnu í aðildarríkjum Evrópubandalagsins og Fríverslunarsam- taka Evrópu eru 44 af hundraði heimsmarkaðarins Viðskiptaráðherrar aðildar- ríkja Evrópubandalagsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu, ís- land er í síðarnefnda hópnum, ákváðu í gær að stórauka sam- vinnu þessara hagsmunasamtaka í því augnamiði að efla verslun og hagsæld á heimsins stærsta mark- aði, Vestur-Evrópu. Evrópubandalagið myndar hópur tólf ríkja en EFTA ríkin eru se\. Fréttaritari Reuters greindi frá því að fulltrúar ríkj- anna hefðu þrátt fyrir yfirlýsingu þessa viðurkennt að mikið verk væri óunnið við samræmingu ólíkra sjónarmiða og hagsmuna þar eð náið samstarf myndi snerta fjölda flókinna þátta efna- hagslífsins! Fulltrúar Evrópubandalagsins munu á fundi þessum hafa brýnt fyrir fulltrúum EFTA að ríki þeirra gætu ekki vænst þess að fá í framtíðinni notið sömu mark- aðsfríðinda og EB ríkin. Það er kunnara en frá þurfi að segja að Evrópubandalagið hyggst gera markaði aðildarríkja sinna að einu samfelldu sölutorgi fyrir árs- lok 1992. „Við gerum okkur fyllilega grein fyrir því að það verður ekki ætíð auðvelt fyrir okkur að vinna saman en við erum engu að síður staðráðin í að gera allt sem i okk- ar valdi stendur til þess að efla samvinnu og samskipti í framtíð- inni,“ sagði Pertti Salolainen, utanríkisviðskiptaráðherra Finn- lands, í gær. Auk íslands eiga Sviss, Austurríki, Noregur, Svíþjóð og Finnland aðild að EFTA. Nú er svo komið að hagsmunafélögin tvö eru mikilvægustu kúnnar hvors annars. Þau hafa afnumið alla tolla og innflutnings- skammtakerfi í iðnvarakaup- skiptum sínum. Aðildarríkin spanna um 44 af hundraði mark- aðar heimsins. Reuter/-ks. Bandaríkin Reagan Ronald Reagan Bandaríkjafor- setí gerði í gær örvæntingarfullar úrslitatilraunir til þess að vinna fulltrúadeildarþingmenn á sitt band í baráttunni fyrir fjáraustri í Kontraskæruliða. Mun hann prívat og persónulega hafa fund- að með tólf þingmönnum og auk þess gert George Shulz utanríkis- ráðherra sinn út af örkinni til at- kvæðaveiða. rembist I dag munu fulltrúardeildar- þingmenn greiða atkvæði um það hvort verða eigi við beiðni Reag- ans um 36 miljóna dala fjárhags- aðstoð við Kontraliðana. Á föstudaginn kemur síðan til kasta öldungardeildarþingmanna. Leiðtogi demókrata í fulltrúa- deildinni, Tom Foley að nafni, kvaðst í gær fullviss um að mála- leitan forsetans yrði hafnað. Reuter/-ks. Mlðvlkudagur 3. fobrúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.