Þjóðviljinn - 03.02.1988, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 03.02.1988, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR og þetta líka... „Viljum sannanir“ Forystumenn íþróttamála í Bretlandi heimta að gullhafinn frá Olympíuleik- unum, Carl Lewis, rökstyðji þær yfir- lýsingar sem hann hefur verið með um mikla lyfjamisnotkun hjá frjáls- íþróttafólki beggja vegan Atlanshafs- ins. Hann segir að þetta hafi jafnvel leitt til dauða nokkurra íþróttamanna en forystumennirnir neita og segja að hann eyðileggi orðstír íþróttarinnar. Lést í ieik Tuttugu og níu ára markvörður, Steve King, í utandeildarliðinu Chalfont St. Peter Side lést eftir að hafa skollið með höfuðið á annan leikmann í kappleik á laugardaginn. Zoia Budd Fjórir mótmaelendur stigu ( veg fyrir langhlauparann Zolu Budd í mara- þonhlaupi í Englandi á laugardaginn. Voru þeir að mótmæla aðskilnaðar- stefnu stjórnvalda í Suður-Afríku en Budd mun vera þaðan. Hún sveigði framhjá þeim og trufluðu þeir hana ekki frekar en fyrir þremur árum var hún neydd útaf braut í maraþonhlaupi af mótmælendum. Á laugardaginn lenti hún í 4. sæti sem tryggir henni sæti í landsliði Breta sem keppir í maraþonhlaupi í Nýja-Sjálandi í mars. „Hundur líkur mús“ Búið er að hann merki sumarólymp- íuleikanna í Barcelona sem verða haldnir 1992. Það mun vera „hundur sem líkist örlítið mús“ en merkið verð- ur ekki gert opinbert fyrr en einkaleyfi hefur verið fengið fyrir teikningunni. Blankir Svo getur farið að Júgóslavar komist ekki á Ólympíuleikana í Calgary vegna blankheita. „Ólympíuráðið hefur ekki séð liðinu fyrir nægu fjár- magni. Það eraðeins komin 1/3 hluti, við eigum bókað far 7 febrúar og ef afgangurinn verður ekki kominn þá, verðum við að hætta við“ sagði yfir- maður landliðsins Tone Vogrinec. „Svo virðist sem Ólympíuráðið hafi aldrei heyrt um leikana þar til fyrir tveimur mánuðum en samt höfum við rekið á eftir þeim í 3 ár“ sagði hann að lokum. Schalke sem er á botni Bundesligunar þýsku hefur kallað á 43 ára gamlan kappa, Klaus Fichtel, til hjálpar liðinu. Klaus setti skóna á hilluna í ágúst 1986 og hafði þá spilað 541 leik í Bundeslig- unni auk nokkurra landsleikja. „Hann er í toppformi, er mjög sterkur and- lega og líkamlega og hefur meira að segja ekki bragðað alkóhól" sagði þjálfari liðsins Horst Franz. Klaus hef- ur verið á launaskrá Schalke síðan hann hætti að spila og þá sem þjálf- ari. „Allt sem ég á er liðinu að þakka og því er skylda mín að hjálpa til“ sagði Klaus Fichtel. Frá vinstri: Jón Tryggvi, Jón E. Sigurðsson, Árni Þór Árnasson og Vildís K. Guðmundsdóttir. Badminton Fyrirtækjakeppni BSI Sólargluggatjöld og Samsölubrauð unnu Um helgin hélt Badminton- sambandið fyrirtækjakeppni í TBR húsinu. Voru 57 fyrirtæki skráð til keppni, sem er mjög fjölmennt. Sigurvegarar urðu Sólargluggatjöld, sem Árni Þór Árnasson og Vildís K. Guð- mundsdóttir spiluðu fyrir. í auka- flokki, en þangað fara þeir sem tapa fyrsta leik, unnu þeir Jón Tryggvi og Jón E. Sigurðsson sem spiluðu fyrir Samsölubrauð. -ste Frjálsar istandsmót í fimmtai|nut Gísli og Bryndís unnu örugglega íslandsmótið í fimmtarþraut urðsson, sem nú þjálfar UMSS, innanhúss var haldið á Laugar- mætti með mikið iið og hreppti vatni og í Baldurshaga um helg- sjálfur fyrsta sætið. Þorsteinn jna Þórsson IR var í 2. sæti þegar að- Bryndís Hólm ÍR sigraði ör- eins langstökkið var eftir en ugglega í kvennaflokki og hafði treysti sér ekki í það og varð að forystu frá fyrstu grein. Ingibjörg hætta keppni. Gunnlaugur ívarsdóttir HSK vann 50 metra Grettisson IR og Gunnar Gunn- grindahlaup og náði þar með að arsson HSK hættu einnig keppni komast í 2. sætið. vegna meiðsla. íslandsmeistarinn Gísli Sig- Úrslit: Konur.....................hást kúluv 50m grhl 50m hl langst I.BryndísHólmÍR...............3594stig (1.64 10.41 7.8 6.7 5.74) 2.IngibjörgívarsdóttirHSK.......3267stig (1.55 9.53 7.7 6.8 5.2) 3. BerglindBjarnadóttirUMSS.....3129stig (1.58 9.64 8.4 6.9 5.26) 4. Birgitta Guðjónsdóttir HSK....3021 stig (1.46 10.31 8.1 7.1 5.18) 5. Kristjana Hrafnkelsdóttir HSH.2949 stig (1.58 10.56 8.8 7.1 4.91) 6.SúsannaHelgadóttirFH..........2904 stig (1.34 6.71 8.6 6.5 5.72) 7. Sigurlaug Gunnarsdóttir UMSS.2156stig (1.46 6.54 9.5 7.3 4.06) 8. Rósa Vésteinsdóttir UMSS......2140 stig (1.31 7.3 9.2 7.6 4.57) 9. Bryndís Guðnadóttir ÍR.......1995 stig (1.34 9.41 9.9 8.0 4.18) Karlar.................hást kúluv stangarst 50mgrhl 50mhl 1. Gísli Sigurðsson UMSS......3672 stig (1.87 12.77 4.60 6.9 6.2) 2. Auðunn Guðjónsson HSK.......3140stig (1.81 11.68 4.00 7.3 6.5) 3. HelgiSigurðssonUMSS..........2684stig (1.75 9.46 2.70 8.0 5.9) 4. Sigfús Jónsson UMSS............1984stig (1.90 7.80 0 8.9 6.5) -ste Knattspyrna Þjálfar Cruyff Barcelona? Neitar að hafa samið við félagið þrátt fyrir sögusagnir um hið gagnstæða Johan Cruyff varð spænskur deildarmeistari með Barcelona 1974 en þá hafði liðið ekki unnið þann titil í 14 ár. Hann leiddi einnig Ajax þegar þeir urðu Evr- ópubikarhafar í fyrra. Hann sagðist vilja ræða málin ef þeir hefðu samband við hann og þegar hann var í viðskiptaferð á Spáni ræddi hann við vara- forseta Barcelona Joan Gaspart en hvorugur segir að ráðning Cruyff hafi komið til tals. Barcelona, sem er eitt ríkasta lið Spánar, erfiðar nú um miðja deild og hafa áhangendur liðsins heimtað að forseti félagsins segi af sér. Áður var Terry Venables þjálfari hjá félaginu en var rek- inn. Þá tók við Luis Aragones en hann fékk taugaáfall fyrir skömmu en er nú komin á kreik en þykir ekki líklegur til afreka. -ste Borðtennis Ovænt úrslit í 1. flokki Mikil spenna áfjölmennasta borð- tennismóti tímabilsins Víkingsmótið í borðtennis var haldið í aðalsal Laugardalshallar á sunnudaginn. Voru keppendur rúmlega níutíu talsins og er þetta stærsta punktamót sem haldið hefur verið á þessu keppnistíma- bili. Lítil spenna var í meistara- flokki en í 1. flokki sigraði Trausti Kristjánsson Víking. í NBA-karfa Boston vann Lakers tapaði Tvær umferðir voru leiknar í NBA-deildinni um helgina. Á laugardag léku Boston Celtics við Detroit Pistons og töpuðu en möguleiki er á að einmitt þeir síðarnefndu komi hingað í sumar og leiki nokkra leiki. A sunnudag töpuðu þeir aftur á móti gegn New Jersey Nets. Laugardagur Philadelphia 76ers-lndiana Pacers 94-89 Detroit Pistons-Boston Celtics 125-108 Dallas Mavericks-Seattle Superson- ics....................117-109 Chicago Bulls-New Jersey Nets 120-93 Milwaukee Bucks-Los Angeles Clippers................97-88 Los Angeles Lakers-Atlanta Hawks 117-107 PortlandTrail Blazers-Phoenix Suns 128-119 Golden State Warriors-Utah Jazz 102-100 Sunnudagur Cleveland Cavaliers-Washington Bullets..................128-126 New Jersey Nets-Detroit Pistons 116-104 Chicago Bulls-New York Knicks 97-95 Houston Rockets-Dallas Mavericks 108-92 San Antonio Spurs-Seattle Supers- onics....................112-102 Denver Nuggets-Los Angeles Clipp- ers......................124-106 Sacramento Kings-Phoenix Suns 126-120 Atlanta Hawks-Utah Jazz.... 115-109 -ste kvennaflokki máttu stúlkurnar spila í tveimur flokkum það er að segja í sínum flokki og upp fyrir sig. Það gaf góða raun því tvær þeirra unnu til verðlauna í báðum flokkum. Úrslit Meistaraflokkur karla 1. Albrekt Ekkmann Stjörnunni 2. Tómas Guðjónsson KR 3-4. Kristinn Már Emilsson KR 3-4. Jóhannes Hauksson KR 1. flokkur karla 1. Trausti Kristjánsson Víking 2. Halldór Björnsson Víking 3-4. Davíð Pálsson Eminum 3-4. Sigurður Bollason KR 2. flokkur karla 1. Haraldur Kristinsson Erninum 2. Pétur Blöndal KR 3-4. Tryggvi Valsson Víking 3-4. Arnór Gauti Helgason Víking Meistaraflokkur kvenna 1. Berglind Sigurjónssdóttir KR 2. Auður Þorláksdóttir KR 3. Hjördís Þorkelsdóttir Víking 1. flokkur kvenna 1. Auður Þorláksdóttir KR 2. Hjördís Þorkelsdóttir Víking 3. Anna Þórðardóttir KR 4. Sigurborg Ólafsdóttir UMSB -ste Næring íþróttafólks m.-, BeUbrigðis og rannsóknarráð ÍSÍ Höfundur Laufey Steiugrímsdóttir, næringarfræðmgur. Reykjavík 1988. íþróttasamband íslands ÍSÍ-bæklingur „Næring íþróttafólks“ Ný og endurbœtt útgáfa komin út Heilbrigðis- og rannsóknarráð ÍSÍ gaf nýlega út nýja og endur- bætta útgáfu af bækling sínum, Næring íþróttafólks. Ráðið telur brýnt að þjálfarar og leiðbeinendur fái bæklinginn. Meðal greina í honum eru kaflar um fjörefni, vökva og máltíða- skipan. Verð á bæklingnum er aðeins 100 kr. og hægt er að fá magn- afslátt. Hægt er að kaupa hann á skrifstofu ISÍ eða fá sendan póstkröfu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.