Þjóðviljinn - 03.02.1988, Side 6
MINNING
Utboð
Theódór Grímur Guðmundsson
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd
Vatnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í
ducktile iron pípur. Útboðsgögn eru afhent á
skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Til-
boðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 8.
mars kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKÚRBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 2580Ó
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd
Vatnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í
ducktile iron fittings. Útboðsgögn eru afhent á
skrifstofu vorri, að Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Til-
boðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 8.
mars kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Takið eftir
Vanur sölumaður óskast til afleysinga á auglýs-
ingadeild Þjóðviljans í ca. 3 mánuði. Þarf að geta
hafið störf sem fyrst.
Einnig vantar Þjóðviljann starfsmann/konu við
mötuneyti blaðsins. Um er að ræða V2 starf.
Nánari upplýsingar hjá framkvæmdastjóra
blaðsins.
þlÓÐVILIINN
Lausar dósentstöður við raunvísinda-
í deild Háskóla íslands
Við raunvísindadeild Háskóla íslands eru eftirtaldar stöður dósenta
í matvælafræði lausar til umsóknar.
Staða dósents í matvælafræði. Dósentinum er ætlað að stunda
rannsóknir og sjá um kennslu í matvælaefnafræði og matvælaefn-
agreiningu.
Staða dósents í matvælafræði. Dósentinum er ætlað að stunda
rannsóknir og sjá um kennslu í matvælavinnslu og matvælatækni.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og fyrri störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 1. apríl
1988.
Menntamálaráðuneytið,
29. janúar 1988.
Þökkum hlýhug við andlát móður okkar og tengdamóður
Guðrúnar H. Steingrímsdóttur
frá Nýlendu
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hrafnistu í Hafnar-
firði fyrir góða umönnun henni veitta.
Steinunn G. Magnúsdóttir
Hákon Magnússon
Einar M. Magnússon
Gunnar R. Magnússon
Bára Magnúsdóttir
Sólveig Magnúsdóttir
Skúli Halldórsson
Svala Sigurðardóttir
Helga Aðalsteinsd.
Sigurlaug Zophoníasd.
Brynjar Pétursson
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi
Halldór Kr. Kristjánsson
Kársnesbraut 74, Kópavogi
sem lést í Borgarspítalanum 25. janúar verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. febrúar, kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Vinafélag Borgar-
spítalans.
Inga Gísladóttlr
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn
Fœddur 9. 3. 1966 - Dáinn 12. 1. 1988
Kveðja til vinar
Með skólatöskur á bakinu
komum við með haustinu lítil
börn. Og saman eltumst við og
stækkuðum, lærðum og kannski
vitkuðumst, þóttumst fullorðin.
Saman áttum við vonir og
drauma, kannski hugsjónir. Sam-
an áttum við vonbrigði og sorgir.
Og þó stundum hafi eitthvað
komið upp á, náðum við saman
aftur, og héldum saman.
En nú er einn okkar horfinn,
farinn. Alltof ung erum við, til að
þurfa að sjá á eftir félaga okkar.
En við vitum að vini okkar líður
vel og að því kemur að við hitt-
umst aftur.
Lilli og Ella, systur, ættingjar
og vinir. Teddi er mitt á meðal
okkar og mun alltaf verða.
Bekkjafélagar af Blönduósi
VIÐHORF
framhald af síðu 5
þéttar saman á vinstra kanti
stjórnmálanna.
í reynd virðist þessu þó þver-
öfugt farið. Sá flokkur sem áður
hafði á orði að sameina alþýð-
una, og jafnvel færa henni völd
og hlutdeild í þjóðarauðnum, Al-
þýðubandalagið, er nú genginn
uppað hnjám, meinlítill andstæð-
ingur fyrir sigursæla auðstétt. Al-
þýðuflokkurinn, sem á tímabili
virtist vera að rísa upp úr löngum
dvala sem málsvari alþýðunnar,
er nú að því er best verður séð
aftur fallinn í fyrri farveg, í þjón-
ustu þeirra sem meira mega sín.
Kratar hafa nú setið góða
stund í ráðuneytum fjármála,
viðskipta og húsnæðismála, en
hvorki bólar á skattlagningu á
vaxtatekjur né stuðningi við
byggingu kaupleiguíbúða. Ég
kann ekki að útskýra þennan
afturkipp á vinstri vængnum. Ef
til vill er skýringin sú, að hug-
myndafræði frjálshyggjunnar
hafi nú slegið í gegn jaftit hjá
skuldugum barnafjölskyldum
sem þeim betur settu: Hver og
einn bjargi eigin skinni, skítt með
náungann.
Einar Eyþórsson er búsettur í
Alta í Finnmörku, Noregi.
Þórhallur
Filippusson
sýnir í
bókasafni
Kópavogs
Þessa dagana er Þórhallur Fil-
ippusson með málverkasýningu í
bókasafni Kópavongs, Fannborg
3-5. Þórhallur er fæddur í
Reykjavík, 1930 og stundaði nám
við Myndlista- og handíðaskóla
íslands árið 1949-1950. Hann
hefur haldið fjölda einkasýninga,
ásamt einni samsýningu með
dóttur sinni Kristínu. Fyrr á árum
var Þórhallur þekktur svifflug-
maður en stundar nú eingöngu
myndlist, málar fyrir sýningar
eða eftir pöntunum. Sýningin
stendur til 16. febrúar, og er opin
kl. 9:00-21:00 virka daga og
kl. 11:00-14:00 á laugardögum.
LG
ÖKUM EINS OG MENN!
Drögum úr hraða
-ökum af skynsemi!
g UMFEROAR
ALPVÐUBANDAIAGIÐ
Alþýðubandalagid Hafnarfirði
Bæjarmálaráð
Fundur í bæjarmálaráði, laugardaginn 6. febrúar kl. 10-12 í Skálanum,
Strandgötu 41.
1) Umræða um stöðu bæjarmála og helstu verkefni framundan.
2) Undirbúningur fyrir afmælishátíð, blaðaútgáfa og fleira.
Félagar eru hvattir til að mæta stundvíslega.
Formaður
Alþýðubandalagið
Byggðamenn Alþýðubandalagsins
Boðað er til þings sveitarstjórnarmanna í Þinghóli í Kópavogi 6. og 7.
febrúar nk. Fundurinn hefst kl. 13.00 þann 6. febrúar og er takmarkið að
honum Ijúki síðdegis á sunnudeginum.
Eftirtaldir málaflokkar verða teknir til umræðu:
1) Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga.
2) Hugmyndir Alþýðubandalagsins um breytingar í stjórnkerfinu.
3) Starf Byggðamanna næstu misseri.
Sveitarstjórnarmenn og aðrir áhugamenn innan Alþýðubandalagsins um
sveitarstjórnarmál eru beðnir að láta vita sem fyrst um þátttöku á skrifstofu
AB, Hverfisgötu 105.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Kjósarsýslu
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 4. febrúar kl. 20.30 í Hlégarði. Á
dagskrá fundarins verða húsnæðismál félagsins og er áríðandi að allir
félagar mæti. - Stjómln
Alþýðubandalagið Kópavogi
Spilakvöld í Kópavogi
Efnt verður til þriggja kvölda spilakeppni í Þinghóli, Hamraborg 11.
Spilað verður annan hvern mánudag, 8. og 22. febrúar og 7. mars.
Byrjað verður að spila öll kvöldin kl. 20.30. Góð kvöld- og heildarverðlaun í
boði.
Mætið tímanlega. Allir velkomnir. Stjórn ABK
Lausar stöður
Við Kennaraháskóla íslands eru eftirtaldar lektorsstöður lausar til
.aí85s> umsóknar:
1. Lektorsstaða í uppeldis- og kennslufræðum.
Störf lektorsins verða m.a. á sviði hagnýtingar tæknimiðla við
nám og kennslu, námsgagna- og námsefnisgerð. Forstaða
gagnasmiðju KHl er jafnframt hluti af lektorsstöðunni.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í uppeldisgreinum frá viður-
kenndum háskóla. Þeir skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um vísindastörf, rannsóknir og ritsmíðar, svo og námsfer-
il sinn og störf.
2. Lektorsstaða í myndmennt.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá viðurkenndum háskóla
eða sambærilegri menntastofnun. Þeir skulu auk þess hafa lokið
prófi í uppeldis- og kennslufræðum.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um
vinnu við listgrein sína, fræðistörf, rannsóknir og ritsmíðar, svo
og námsferil og kennslustörf.
Gert er ráð fyrir, að stöðurnar verði veittar frá 1. ágúst 1988. Laun
samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
150 Reykjavík, fyrir 5. mars n.k.
Menntamálaráðuneytlð,
29. janúar 1988