Þjóðviljinn - 03.02.1988, Qupperneq 9
Laufey Sigurðardóttir, fiðluleikari
Háskólatónleikar í dag
Gítar og fiðla
Fjórðu Háskólatónleikarnirá
vormisseri verða haldnir í
Norræna Húsinu í dag kl. 12:30-
13:00.
Á tónleikunum munu Páll
Eyjólfsson gítarleikari og Laufey
Sigurðardóttir fiðluleikari flytja
verk eftir Vivaldi, Paganini, Ibert
og Takacs.
Páll Eyjólfsson Iærði gítarleik
hjá Eyþóri Þorlákssyni og á Spáni
hjá Jose Luis Gonzales. Hann
kennir nú gítarleik í Reykjavík.
Laufey Sigurðardóttir er
Reykvíkingur. Þetta eru fyrstu
tónleikamir sem þau halda sam-
an.
Tónleikanefnd Háskólans
Konur,
karlar,
fuglar
og fiskar
Harpa Björnsdótti sýnir í
Gallerí Borg
Á morgun kl. 17:00 opnar Harpa
Björnsdóttirsýningu í Gallerí
Borg Pósthússtræti 9.
Harpa Björnsdóttir er fædd
1955 og lauk námi frá Nýlista-
deild Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1981. Hún málar og vinn-
ur í grafík myndir af konum og
körlum, fuglum og fiskum, sem
stundum renna saman við mann-
skepnuna.
Harpa hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga og einnig haldið
einkasýningar bæði hérlendis og
erlendis, síðast hér í Gallerí Borg
í september 1966
Sýning Hörpu nú er 5. einka-
sýning hennar. Á sýningunni eru
að mestum hluta einþrykk og
önnur verk, unnin með blandaðri
tækni á pappír.
Síðastliðið sumar dvaldist
Harpa í Kjarvalsstofu í París,
listamannaíbúð í eigu Reykjavík-
urborgar og íslenska ríkisins.
Hluti myndanna cr frá þeirri
dvöl.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 10:00-18.00 og um helgar fra
kl. 14:00-18:00. Henni lýkur 16.
febrúar.
Myndlist
Hvað er sjálfsmynd?
Sjálfsmyndir hafa verið meðal
algengari viðfangsefnum
myndlistarmanna allt frá lok-
um miðalda. En eryfirleitt
hægt að lýsa sjálfum sér,
hvort sem er í orðum eða í
myndum? Og ef ekki, hvað er
þásjálfsmynd? Þessadag-
ana er opin á Kjarvalsstöðum
sýning þar sem fólki með til-
hneigingu til að spyrja sjálft
sig heimspekiiegra spurninga
af þessu tagi gefst færi á að
njótasín, ásamtöllum hinum
sem bara vilja láta sér nægja
að skoða sýnishorn af þeim
sjálfsmyndum sem íslenskir
myndlistarmenn hafa málað,
allt frá nítjándu öld fram á okk-
ar dag. Flestir listamenn í
listasögu íslands hafa ein-
hvern tímann málað eða
dregið eigið andlit á blað, og
hér er um að ræða úrdrátt úr
þeim hluta íslenskrarlista-
sögu. Sýningin erhvorki
hugsuð sem fræðileg úttekt
eðasögulegtyfirlit, heldur
hefur við val myndanna verið
lögð áhersla á að velja
margbreytilegar og góðar
myndir, fólki til skemmtunar
og yndisauka.
Saga sjálfsmyndanna hefst
fyrir alvöru í lok miðalda, og er
útbreiðsla spegla talin vera ein af
mikilvægustu forsendum þeirrar
þróunar. í byrjun 20. aldar, fékk
sjálfsmyndin endurnýjað gildi
með útbreiðslu kenninga Freuds
um undirmeðvitundina og hinn
falda innri mann. Þar með var
tilgangur listamannanna ekki
lengur eingöngu að gera mynd
sem líkasta sjálfum sér, heldur að
túlka og myndgera þær kenndir
sem bærðust innra með þeim.
Menn máluðu nú ekki lengur það
sem þeir sáu eða virtust sjá, held-
ur máluðu þeir á dýptina og buðu
áhorfendum þar með upp á raun-
verulegan myndlestur. Þegar ab-
straktmálverkið og formalisminn
varð ríkjandi um miðbik aldar-
innar, minnkaði áhuginn á sjálfs-
myndinni nokkuð, en með
endurkomu manneskjunnar inn í
málverkið á síðastliðnum
tveimur áratugum er aftur farið
að bera á sjálfsmyndum lista-
manna og þá sérstaklega í con-
ceptlistinni.og performance þar
sem listamaðurinn er oft í senn
formræn stoð og megin mynd-
efni.
En hvort sem listamaðurinn
hugsar sjálfsmynd sína sem túlk-
Sýning sjálfs-
mynda Islenskra
listamanna á
Kjarvalsstöðum
Jón Stefánsson 1962 Mynd - E.ÓI.
Guðrún Arndís Tryggvadóttir 1987 My.nd - E.ÓI.
un á sínu innra eða ytra sjálfi, þá
hlýtur hún að vera hans hug-
arsmíð sem hann færir yfir á tví-
víða flötinn. Og ef til vill sleppur
raunveruleikinn alltaf úr greipum
þess sem málar, það er að segja ef
það er yfirleitt mögulegt að
benda á einhverja ákveðna
skoðun eða umsögn um mann-
eskju sem raunverulega lýsingu á
viðkomandi - eða segja að ein
ákveðin mynd af henni sé sannari
en önnur. Eða er yfirleitt til
nokkuð sem heitir sannleikur í
listum? Það má kannski segja að
sú mynd sem listamaðurinn dreg-
ur upp af sjálfum sér sé sönn á
þeim tíma sem hann gerir hana,
þannig kýs hann að Iýsa sjálfum
sér og hlýtur að lýsingu á þeirri
þekkingu og þeirri skoðun sem
hann hefur á eigin persónu.
Byggt á texta Gunnars B. Kvaran / LG
Mokka
James
Francis
Kwiecinski
opnar
sýningu
Á morgun opnar James Fran-
cis Kwiecinski málverkasýn-
ingu á Mokka. Kwiecinski er
Bandaríkjamaður, og lærði
við Ball State University í Indi-
ana. Hann er nú búsettur í
Ein af myndunum á Mokka er „Skíðaóhapp" máluð 1985.
Reykjavík. Hann hefurhaldið
sýningar bæði í Bandaríkjun-
um og Evrópu, og verk eftir
hann eru nú á sýningum bæði
íNew York ogMílanó.
Verkin sem Kwiecinski sýnir á
Mokka eru meðal annars unnin í
olíu, guass, vatnsliti og
steinprent. Sýningin stendur í
þrjár vikur.
LG
James Francis Kwiecinski.
Sinfónían
Jón Leifs, Brahms og Rachmaninoff
Tónleikar helgaðir byggingu tónlistarhúss
Annað kvöld klukkan 20:30
verða fyrstu tónleikar Sinfón-
íuhljómsveitar íslands á
síðara misseri. Á efnisskránni
eru þrjú verk, Landsýn eftir
Jón Leifs (var síðast flutt
1962), Rapsódía eftir Rac-
hmaninoff um stef eftir Pag-
anini, og að lokum Sinfónía
nr. 1 eftirBrahms.
Stjórnandi Sinfóníunnar að
þessu sinni er Bandaríkjamaður-
inn George Cleve. Hann á að
baki litríkan feril, hefur um ára-
tuga skeið stjórnað öllum helstu
sinfóníuhljómsveitum heims.
Hann er snillingur í tónlist Moz-
arts og hefur í mörg ár stjórnað
flestum Mozart hátíðum í New
York og San Fransisco. Hann
stjórnaði hér á tónleikum vetur-
inn 1971 - 1972.
Einleikari á tónleikunum er
Bandaríski píanóleikarinn Rand-
all Hodgkinson. Hann vakti fyrst
alþjóðaathygli 1981, þegar hann
vann fyrstu verðlaun í tónlistar-
keppni fyrir píanista, sem Rocke-
feller stofnunin og Carnegie Hall
gengust fyrir. Síðan hefur hann
hlotið margháttaðar viðurkenn-
ingar og leikið einleik austan hafs
og vestan.
Það er amma Hodgkinsons,
Leedice Kissane sem hefur
gengist fyrir komu hans til ís-
lands. Hún var sendikennari
George Cleve stjórnar Sinfóníunni á
tónleikunum annað kvöld.
Einleikari á tónleikunum verður
Randall Hodgkinson píanóleikari.
Fullbright stofnunarinnar við
Háskóla íslands um tveggja vetra
skeið, tók miklu ástfóstri við
landið, og sýndi fslensku tón-
listarlífi mikinn áhuga. Með því
að bjóða fram dótturson sinn til
tónleikahalds hér á landi vill hún
leggja sitt að mörkum til bygging-
ar tónlistarhússins.
Auk þess að leika með Sinfón-
íuhljómsveitinni á tónleikunum
annað kvöld, mun Hodgkinson
leika á einleikstónleikum í Lista-
safni íslands á föstudagskvöldið
kl. 20:30, og verða það fyrstu tón-
leikamir sem haldnir verða í
húsakynnum Listasafnsins.
LG