Þjóðviljinn - 15.03.1988, Qupperneq 3
FRETTIR
✓
Aburðarverksmiðjan
Urgur í mannskapnum
Störf 150 manna íhættu verði verksmiðjan lögð niður. Önnur
störf vandfundin vegna aldurs þeirra. Yfirtrúnaðarmaður:
Umfjöllun um verksmiðjuna ekki gerð af heilindum
Það læðist að manni sá grunur
að ekki sé haldið á þessum
málum af heilindum. Annarsveg-
ar er talað um að mannslíf séu í
hættu og hinsvegar um hvað
verksmiðjan sé ljót. Út af þessu er
mikill urgur í mannskapnum sem
telur með réttu að hallað sé gróf-
lega á sinn vinnustað, sagði
Leifur Guðjónsson, yfirtrúnað-
armaður í Áburðarverksmiðj-
unni í Gufunesi við Þjóðviljann.
I dag má vænta þess að borg-
arráð taki ákvörðun um hvort
leyfa eigi að geyma ammoníak í
þeim geymi sem fyrir er á meðan
nýr sé byggður, en ákvörðun þar
að lútandi var frestað á fundi
borgarráðs sl. föstudag.
Trúnaðarmannaráð starfs-
manna í Áburðarverksmiðjunni
hefur sent frá sér bréf til borgar-
stjóra þar sem þeim hugmyndum
er harðlega mótmælt að leggja
beri verksmiðjuna niður og hafa
bent á að það sé ekki í verkahring
borgarstjórnar að ákveða það
Valdimar Jónsson mundar hér rafsuðutækið af stökustu fimi meðan starfsmað-
ur Istækni hf. skýrir leyndardóma vélanna fyrir gesti.
Skrúfudagurinn
haldinn hátíðlegur
héldu Skrúfudaginn hátíð-
legan á laugardaginn. Þeir sýndu
vélarnar sem þeir dags daglega
notast við í sínu námi og kynntu
fyrir gestum sínum allt það sem
þeir dedúa.
Þegar gestirnir kornu gátu þeir
sest inn í matsal og fengið sér
kaffisopa hjá Kvenfélaginu Keðj-
unni áður en þeir gengu um
deildirnar. Nemendurnir sýndu
þeim svo öll sín kennslutæki og
gerðu grein fyrir störfunum sem
þeir vinna í verklegu deildunum.
Auk þess héldu þeir sýningu á
kennslubókum og öðrum
kennslugögnum.
Þegar við litum inn til þeirra
var allt á fullu alls staðar og
spennan að aukast smám saman
því um kvöldið var árshátíð nem-
endafélagsins Forskrúfunnar og
hún var víst ekki af verri enda-
num! - tt
heldur landbúnaðarráðherra.
Einnig benti trúnaðarmanna-
ráðið á að störf 150 manna væri í
hættu ef verksmiðjan yrði lögð
niður og vandfundin önnur störf
fyrir 60-70% þeirra vegna aldurs.
Að sögn Leifs Guðjónssonar,
aðaltrúnaðarmanns hefði verið
nær fyrir borgarstjóra að koma
inn fyrir verksmiðjuhliðið og
kynna sér ástand verksmiðjunnar
sjálfur í stað þess að vera með
skítkast í hennar garð og starfs-
manna. Leifur sagði að með þess-
um árásum væri verið að ráðast
gegn launaöryggi starfsmanna
verksmiðjunnar og það hleypti
bara illu blóði í mannskapinn.
Hingað til hefði Vinnueftirlit
ríkisins haft þann starfa ma. með
höndum að kanna öryggisþátt
hennar og sagðist hann treysta
því áfram fyrir því eftirliti, í stað
þess að heyra blendnar yfirlýsing-
ar ráðamanna sem virtust vita
minna um málið en þeir vildu láta
í veðri vaka.
-grh
Almannavarnarnefnd
Gegn geymslu
ammoníaks
Rúnar Bjarnason: lnnflutningur einnig ó-
heimill. Oryggi borgarbúa ekki tryggtþrátt
fyrir nýjan ammoníaksgeymi
Almannavarnanefnd Reykja-
víkur samþykkti á fundi sín-
um í gær að leggja það til við
borgarráð að ammoníak verði
ekki geymt í gamla geyminum í
Gufunesi á meðan nýr sé byggð-
ur.
Að sögn Rúnars Bjarnasonar,
slökkviliðsstjóra í Reykjavík og
framkvæmdastjóra almanna-
varnanefndar borgarinnar, lagði
nefndin einnig til að Áburðar-
verksmiðjan í Gufunesi haldi
ekki áfram innflutningi á amm-
oníaki á meðan á byggingu nýja
geymisins standi. Aðeins að
verksmiðjan fái að framleiða
ammoníak til daglegra nota og
ekkert umfram það.
Jafnframt bendir almanna-
varnanefndin á það til umhugs-
unar að þrátt fyrir byggingu nýs
geymis sé öryggi borgarbúa ekki
tryggt ef ammoníak sleppur út í
andrúmsloftið við dælingu og
löndun. Þá getur nefndin þess í
sinni umsögn til borgarráðs að
notkun ammoníaks í áburðar-
framleiðslu hljóti að dragast sam-
an með öðrum samdrætti í land-
búnaði og svo kynni að fara eftir
jafnvel þrjú ár að allur innflutn-
ingur á ammoníaki verði með
öllu þarflaus og ónauðsynlegur af
sömu orsökum.
-grh
HIKIKI
Baráttufundur í dag
Þáttur K.I. á Útvarpi Rót
fallsheimild. Verði slíkar hetm-
ildir samþykktar skella verkföll
kennara á um miðjan næsta mán-
uð.
K.í. er með þátt í Útvarpi Rót
kl. 17:30 í dag og mun þar vænt-
anlega verða fjallað um kjarabar-
áttu kennara.
Kennarasamband íslands og
Hið íslenskra kennarafélag
hafa boðað til sameinginlegs bar-
áttufundar í veitingahúsinu
Broadway kl. 16.00 í dag.
Félögin hafa bæði samþykkt að
efna til atkvæðagreiðslu um verk-
iÖRFRÉTTTIR
Yogameistarinn
Sri Chinmoy heldurfriðartónleika
I Háskólabíói á morgun, miðviku-
dag kl. 20.30. Aðgangur að tón-
leikunum er ókeypis. Chinmoy
leikur á fjölda hljóðfæra á tónleik-
unum. Meginatriðið í friðarboð-
skap Chinmoy er að innri friöur
einstaklingsins sé nauðsynleg
forsenda fyrir heimsfriði.
Sovéskir þingmenn
sækja ísland heim í vikunni og
dvelja hér fram að næstu helgi.
Þingmennirnir sem koma eru þrír
og meðal þeirra er V.S. Shevts-
jenko, varaforseti Forsætis-
nefndar Æðsta ráðs Sovétríkj-
anna og forseti Forsætisnefndar
Æðsta ráðs Úkraníska Sovétlýð-
veldisins.
Bifreiðasalar
hafa fagnað frumvarpi sem ný-
lega var lagt fram á Alþingi um
löggildingu starfsgreinarinnar.
Hins vegar harma bílasalar að
ekki skuli hafa verið haft samráð
við þá þegar frumvarpið var
smíðað.
Bæjarstjórn
Kópavogs
hefur mótmælt harðlega þeirri
skerðingu á tekjum Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga sem ríkis-
stjórnin hefur ákveðið með lag-
asetningu. Tekjur bæjarins
minnka um 16 miljónir á árinu
vegna þessarar skerðingar og
Ijóst aö endurskoða veröur ný-
samþykkta fjárhagsáæltun bæj-
arins vegna þessa. Bæjarstjórnin
segir vinnubrögð ríkisstjórnarinn-
ar með öllu óþolandi og sveitarfé-
lögin verði að geta treyst því að
samþykkt fjárlög standi lengur en
I tvo mánuði.
Framsóknarkonur
hafa lýst yfir eindregnum stuðn-
ingi við launabaráttu kvenna. Er
það skoðun framkvæmdastjórn-
ar Landssambands Framsóknar-
kvenna að kominn sé tími til að
meta framlag kvenna á vinnu-
markaði og atvinnurekendur
hvattir til að endurskoða afstöðu
sína til launafólks með raunhæf-
ar kjarabætur að markmiði, eins
og segir í samþykkt sambands-
ins.
Kvennalistinn
á Vesturlandi og á Reykjanesi
hafa fordæmt kjarasamninga
VMSÍ og hvatt konur í verkalýðs-
hreyfingunni til að láta heyra í sér
og hafna samningum sem fela
ekki í sér neinar raunhæfar kjara-
bætur.
Palestína
Raðstefna á Islandi
Félagið Island-Palestína villað stjórnvöld bjóði aðstöðu hérlendis
fyrir aþjóðaráðstefnu allra deiluaðila um málefni Mið-Austurlanda
Framferði ísraelsstjórnar
gagnvart Palestínumönnum á
hernumdu svæðunum verði þeg-
ar mótmælt, tekið verði upp
stjórnmálasamband við PLO,
réttmætan fulltrúa Palestínu-
þjóðarinnar og boðin verði að-
staða hérlendis til að halda al-
þjóðaráðstefnu með þátttöku
allra deiluaðila um málefni Mið-
Austurlanda, eru skilaboð félags-
ins Ísland-Palestína við íslensk
stjórnvöld.
í yfirlýsingu frá stjórn félagsins
segir að dögum, vikum og mán-
uðum saman hafi heimsbyggðin
mátt horfa upp á grimmdarverk
ísraelsstjórnar á hendur varnar-
lausu fólki á hernumdu svæðun-
um í Ghaza og vesturbakka Jór-
danár. Heimurinn hafi fordæmt
þessi hryðjuverk en ekkert lát
orðið á þeim.
„Hlutur íslands í þessu máli
hefur verið sá að viðurkenna ein-
ungis annan deiluaðilann með
stjórnmálasambandi við ísrael en
viðurkenna ekki PLO, Frelsis-
samtök Palestínumanna, sem á
alþjóðavettvangi njóta viður-
kenningar sem óumdeilanlegur
fulltrúi Palestínuþjóðarinnar,"
segir í yfirlýsingu félagsins. Ljóst
sé að þessi staða mála stuðli ekki
að friðsamlegri lausn í Palestínu.
-lg-
Þriðjudagur 15. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3