Þjóðviljinn - 15.03.1988, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 15.03.1988, Qupperneq 5
1 Nú má enginn sitja heima í dag veröur gengiö til kosn- inga í Háskóla íslands og valdir fulltrúar nemenda í Háskólaráð og Stúdentaráðsliðar. Á undan- förnum árum hefur það verið lenska í Háskólanum að líta held- ur niður á þá ágætu stofnun Stúd- entaráð. Þetta hefur m.a. leitt til áhugaleysis um málefni þess og ákaflega lélegrar kjörsóknar. Sumt af þeirri gagnrýni sem sett hefur verið fram á Stúdentaráð á við rök að styðjast, en allt er það afar ýkt og orðum aukið. Þannig er í allflestum málum unnið gott starf í Stúdentaráði. Stúdentaráð getur haft allmikil völd og verið mjög mikilvægur vettvangur fyrir stúdenta í hagsmunabaráttunni. Á þessum vetri sem nú er að líða hafa vinstrimenn og umbóta- sinnar myndað saman meirihluta í Stúdentaráði. Það samstarf hef- ur gengið mjög vel og mörgum góðum málum hefur verið þokað áleiðis. Þó eru mikil takmörk fyrir því hvað hægt er að gera á aðeins einu ári. Til að uppskera það sem til hefur verið sáð þetta ár, þurfum við a.m.k. annað kjörtímabil undir stjórn félags- hyggjuaflanna. Þess vegna er Ástráður Haraldsson skrifar mikilvægt að þú látir þig ekki vanta í dag. Verjum Lánasjóðinn Undanfarin ár hefur hags- munabarátta stúdenta verið varnarbarátta, þar sem stúdentar hafa barist gegn hugmyndum íhaldsaflanna sem hafa viljað ganga af Lánasjóði íslenskra námsmanna dauðum, sem félags- legum framfærslulánasjóði. Eg tel að enn sé eftir að verjast stærsta ólaginu, sem verði nýtt lánasjóðsfrumvarp á komandi haustdögum. Ef það frumvarp líkist eitthvað því sem íhaldið guggnaði á að leggja fram fyrir kosningarnar í fyrra, þá má búast við hugmyndum um vexti og lán- tökugjöld og styrki handa „af- burðanemendum í þjóðhagslega hagkvæmu námi“. Með þessu væri í raun varpað fyrir róða meginmarkmiðinu um jafnrétti til náms og tekið upp kerfi sem væri andstætt grundvallar- hugmyndum félagshyggjunnar. Til að kveða þessar hugmyndir niður dugir ekki „kurteislegur til- löguflutningur“ eða vönduð möppudýramennska. Því miður „Pví miður eru engar alþingiskosningar á nœstu grösum til að fœla íhaldið frá að koma hugmyndum sínum í framkvæmd. Þess vegna ríður nú á að órofa samstaða myndist meðal náms- manna ... Það er það eina sem getur kveðið niður þessar hug- myndir. “ eru engar Alþingiskosningar á næstu grösum til að fæla íhaldið frá að koma hugmyndum sínum í framkvæmd. Þess vegna ríður nú á að órofa samstaða myndist meðal námsmanna, og á milli námsmannahreyfinganna í nánu samráði við verkalýðshreyfing- una. Það er það eina sem getur kveðið niður þessar hugmyndir. íhaldinu má ekki takast að reka fleyg milli námsmanna og verka- fólks frekar en orðið er, því með því auðveldar það sér aðför að kjörum beggja. Kosningarnar í dag eru afar mikilvægar ef málið er skoðað í þessu ljósi. Ný sóknarfæri í ár býðs félagshyggjufólki í H.J. nýr valkostur, nýtt afl er orðið til, Röskva. Með tilkomu Röskvu eru línurnar skýrari og stjórnun Stúdentaráðs ræðst í kosningunum sjálfum en ekki af pólitískum aðstæðum eftir þær. Stofnun Röskvu er vonarneisti sem ekki skyldi vanmeta fyrir allt fslenskt félagshyggjufólk. í Röskvu felum við vonir okkar um samstöðu í stað sundurþykkju á vinstra kanti íslenskra stjórn- mála. Einnig í þessu ljósi eru kosningarnar í dag mikilvægar. Með sigri í dag verður Röskva sá vegvísir sem íslenskt félags- hyggjufólk getur litið til í barátt- unni fyrir hugsjónum félags- hyggjunnar gegn misrétti markaðshyggjunnar. Það er því ekki einungis æskilegt heldur beinlínis nauðsynlegt að þú, stú- dent góður, komir með í dag, og saman getum við kveikt þann vonarneista sem gæti orðið að stóru sameiningarbáli á vinstri kanti íslenskra stjórnmála. Ástráftur Haraldsson er laganeml ( H( og hefur starfað með Fólagl vlnstrlmanna. I u nn t it m t m m 'fu i Ti u tJ H II RosRva - okkar vegna * Þórunn Sveinbjarnardóttir skrifar í dag verða árvissar kosningar til Stúdenta- og Háskólaráðs Há- skóla íslands. Kosið er um 15 fulltrúa, 13 í Stúdentaráð og 2 í Háskólaráð. Einfaldar og skýrar staðreyndir sem ekki vefjast fyrir nokkru mannsbarni. En er málið eins einfalt og það virðist við fyrstu sýn? Margt bendir til þess að svo sé ekki. Tvö félög bjóða fram, Röskva, samtök félags- hyggjufólks í Háskóla íslands, og Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta. Valið stendur ekki ein- ungis á milli tveggja félaga. Valið stendur á milli tveggja ólíkra lífs- skoðana - félagshyggju og sér- hyggju. Almennt sinnuleysi Undanfarin ár hefur það verið mjög í tísku meðal ungra íslend- inga að taka ekki afstöðu í stjórnmálum. Pólitík þykir púka- leg og helst er af fólki á skilja að algjört skoðanaleysi sé meðal helstu dyggða nútímamannsins. í þessu ljósi er fróðlegt að athuga hvað kemur í ljós þegar djúpt er kafað í málinu. Þótt á yfirborðinu bóli ekki á neinu sem líkja má við afstöðu eða skoðanir, kraumar oftar en ekki undir niðri. Sannleikurinn er nefnilega sá að flestir hafa einhverja lífsskoðun, hitt er svo annað mál hvort fólk tekur afstöðu til allra mála sem verða á vegi þess. í Háskóla íslands ber nokkuð á því sem ég vil kalla sinnuleysi stúdenta. Margir hafa gengið hart fram í því að telja stúdentum trú um að hagsmunir þeirra og öll barátta í þeirra þágu sé bara fé- lagsmálastúss og því séu „félags- málafríkin" best fallin til að standa í slíku starfi. (Ekki þykir verra að menn dragi á eftir sér langan metorðahala.) Með því að bregða ópólitískri dulu á hvað- einaer vitsmunalegri umræðu um hagsmunabaráttu stúdenta drep- ið á dreif og árangurinn verður í samræmi við það. Menntun - til hvers? Starf að félagsmálum á heima í sterkum og vel stjórnuðum deildarfélögum innan Há- skólans. Gott dæmi um öflugt starf deildarfélags er undirbún- ingur íþróttahátíðar 1988, en Or- ator, félagi laganema, hefur farist framkvæmdastjórn hennar ein- staklega vel úr hendi. í stuttu máli sagt þá mega stúdentar ekki kaffærast í félagsmálaöldu félags lýðræðissinnaðrastúdenta. Brýnt er að við einbeitum okkur að hagsmunamálum stúdenta og innviðum Háskóla fslands. Við megum ekki missa sjónar á grundvallaratriðum heilbrigðrar menntastefnu. Við verðum að tryggja fullt jafnrétti til náms og er þá ekki átt við jafnrétti sumra heldur allra. Menntun er einskis virði ef hún er einungis forrétt- indi nokkurra útvalinna. Skref í átt til fulls jafnréttis er að allir sem náð hafa 26 ára aldri fái inngöngu í Háskóla íslands, burtséð frá því hvort þeir hafi lokið stúdentsprófi. Háskóla- „Með öflugri breiðfylkingu félagshyggjufólks íHáskóla íslands snúum við vörn ísókn. Baráttafyrir hagsmunum stúdenta kemur öllum stúdentum við. Úrslit kosninganna í dag munu leiða það í Ijós hvortstúdentar íHÍ vilja takaþátt íþvíað mótaframtíð sína af fullri ábyrgð eða ekki. “ samfélaginu væri mikill akkur í þeirri reynslu og þekkingu sem slíkir nemendur myndu færa með sér. Annað atriði í þessu sam- bandi er aðstaða fatlaðra í Há- skóla íslands. Það þarf engan sérfræðing til að benda á að flest- ar, ef ekki allar, byggingar H.í. eru þannig úr garði gerðar að þær eru fötluðum illfærar. Fögur fyrirheit á hátíðarstundu duga skammt til úrbóta. Menntun er sá þjóðarauður sem seint verður metinn í krónu- tölu. En okkur má vera ljóst að það sem við, stúdentar í H.Í., gerum í dag getur haft áhrif um ókomna tíð. Störf okkar að hagsmunamálum eru ekki eitthvert stundarfyrirbrigði sem fljótt fyrnist. Komandi kynslóðir njóta ávaxtanna ef vel er til sáð. í samfélagi manna... Á stundum virðist sem há- skólaborgarar séu ekki þegnar þessa lands á sama hátt og aðrir landsmenn. Málflutningur hægri aflanna einkennist af viðsjár- verðri sérhyggju. Hver skal skara eld að sinni köku og á meðan manni sjálfum er borgið tekur því ekki að hafa áhyggjur af öðrum. Ekki nokkur furða að slíkur mál- flutningur ali af sér deyfð og doða í röðum stúdenta. Við þessu verður að sporna og nú er lag. Með öflugri breiðfylkingu félags- hyggjufólks í Háskóla íslands snúum við vörn í sókn. Barátta fyrir hagsmunum stúdenta kemur öllum stúdentum við. Úrslit kosninganna í dag munu leiða það í ljós hvort stúdentar í H.í. vilja taka þátt í að móta framtíð sína af fullri ábyrgð, eða ekki. Veljum Röskvu, okkar vegna! Þórunn Svelnbjarnardóttlr er for- maður Röskvu, samtaka félags- hyggjufólks (Háskóla fslands. Þrlðjudagur 15. mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.