Þjóðviljinn - 15.03.1988, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þlÓÐVIUINN
Þriðjudagur 15. mars 1988. 61. tölublað 53. örgangur
SparisjóÖsvextir
á téKKardKninga
hávaxtaKjörum
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDSHF
Orkubú Vestfjarða
500 milljóna skuld
Fjármálastjóri: 80 milljóna króna tap ífyrra. Afnám
verðjöfnunargjaldsins hefur ekki verið bœtt. Niður-
greiðslur óbreyttar í krónutölu síðan 1985
Langtímaskuldir Orkubús
Vestfjarða við ríkið voru rúm-
ar 500 mil|jónir króna á síðasta
ári og rekstrartap 1987 var uppá
80 milljónir króna. Ekki bætir
það stöðu fyrirtækisins frá því
sem nú er þegar sifellt fleiri not-
endur skipta yflr í olíukyndingu
og fullyrða að með því spari þeir
allt að helming í kyndingark-
ostnaði.
Að sögn Guðmundar Hall-
dórssonar, fjármálastjóra Orku-
búsins er aðalskýringin á háu ork-
uverði fyrirtækisins til notenda
að eftir kjarasamningana 1986
var verðjöfnunargjald á raforku
lagt niður en í staðinn átti ríkið að
yfirtaka skuldir fyrirtækisins sem
næmi tekjumissinum við afnámi
verðjöfnunargjaldsins, en við
það hefur ríkið ekki staðið. Þá
hafa niðurgreiðslurnar verið hin-
ar sömu í krónutölu frá 1985 þrátt
fyrir hækkanir á gjaldskrá. Á
sama tíma hefur verð á olíu lækk-
að geysimikið samfara lækkun á
dollar.
Guðmundur sagði að iðnaðar-
ráðherra hefði það sem af er sýnt
sáralítil viðbrögð við beiðnum
Orkubúsins um að ríkið kæmi á
móts við óskir þess um aðstoð í
formi yfirtöku lána. Von er á ráð-
herra á fund í Bolungarvík um
þessa helgi og er fastlega búist við
því að hann verði þá tekinn á
beinið og krafinn skýringa á að-
gerðarleysi ráðuneytisins og
stjórnarinnar á vanda Orkubús-
ins og því háa orkuverði sem
neytendur verða aö borga.
Meðalreikningur fyrir húsahitun
er allt frá 10 og uppí 20 þúsund
krónur í nýjum einbýlishúsum á
ísafirði.
Þrátt fyrir þennan óheyrilega
háa húsahitunarkostnað sagði
Guðmundur að vanskil einstak-
linga við Orkubúið væru ekki
meiri nú en oftast áður og að
miklu leyti væru það sömu ein-
staklingarnir sem skulduðu. Aft-
ur á móti væri því ekki að leyna að
slæm staða fiskvinnslufyrirtækja í
fjórðungnum kæmi fram auknum
vanskilum við Orkubúið, en þó
væru skil fyrirtækja á ísafirði þó
skömminni skárri en margra ann-
arra.
„Því er ekki að neita að aukinn
flótti notenda frá okkur og yfir í
Háskólinn
Kosið
í dag
„Þetta er góður dagur,“ segja
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Arnar
Guðmundsson og Jóna
Hrafnkelsdóttir því í dag verður
kosið í Háskólanum milli lista
Röskvu og lista Vöku til Stúdenta-
og Háskólaráðs. Opið verður í 14
kjördeildum víðsvegar um borg-
ina en það er mesti fjöldi kjör-
deilda frá upphafl svo allar líkur
eru á mikilli þátttöku í dag.
Kosningabaráttan hefur snúist
talsvert mikið um yfirlýsingar á
báða bóga en minna borið á því
að frambjóðendur hittist og geri
út um kosningamálin í annarra
áheyrn. Kaffistofufundir hafa að
vísu verið haldnir en lítið sést af
kjósendum á þeim. í gær tók bar-
áttan þó á sig ferskari blæ þegar
iistarnir leiddu saman hesta sína í
umræðuþáttum á útvarpsstöðv-
unum. Þá kom berlega fram hver
afstaða þeirra er til málaflokk-
anna sem í dag er kosið um.
Kjördeildir verða opnar frá kl.
9.00-18.00 í dag á 14 stöðum víð-
svegar um borgina. Tvær í Árna-
garði, ein í Lögbergi, tvær í VR
II, tvær í Odda, ein í Tjarnarbæ,
ein í Háskólabíói, ein í Áðalbygg-
ingu, tvær í Eirbergi, ein í
Tanngarði, ein á Vitastíg, ein á
Grensási og ein t' Árrnúla 30. í
Háskólabíói verður opið kl.
12.30 -18.00 og í kjördeild
Tannlæknadeildar í Eirbergi
verður opið frá kl. 13.00-18.00.
Sjá Viðhorf bls. 5
olíukyndingu kemur sem afar illa sagði Guðmundur Halldórsson
við fyrirtækið og leiðir til meiri fjármálastjóri.
tekjutaps en orðið er og jafn- -grh
framt leiðinlegt til afspurnar,"
Ingibjörg Þorsteinsdóttir á 2. ári í lögfræði, Arnar Guðmundsson á 2. ári í
almennri bókmenntafræði og Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir á 3. ári í læknisfræði
eru hór kampakát fyrir framan vígi Vöku, Lögberg. Þau ætla sér að vinna
Waterloo-sigur.
Skák
Vertíðin
Knarrarnes KE
Þrír
menn
fórust
Báturinn sökk 8 sjómílur
norðvestur af Garðskaga
sl. laugardag. Lausa-
munir hafafundist sem
tilheyra bátnum.
Gúmmíbáturinn óf-
undinn
Þriggja manna áhöfn á Knarr-
arnesinu KE 399 er talin af eftir
að báturinn sökk átta sjómflur
norðvestur af Garðskaga um há-
degisbilið sl. laugardag. Fimm tii
sex vindstig voru á þessum slóð-
um þegar slysið varð. Knarrar-
nesið var 11 tonn að stærð smíðað
í Hafnarfirði 1972.
Mennirnir þrír hétu Gunn-
laugur Þorgilsson, skipstjóri til
heimilis að Hjallavegi 1 í Ytri
Njarðvík. Hann var fæddur 25.
september 1946 og lætur eftir sig
þrjú börn. Sonur hans Árni Krist-
inn Gunnlaugsson til heimilis að
Hólagötu 5 í Ytri Njarðvík, fædd-
ur 24. október 1967, ókvæntur og
barnlaus. Birkir Friðbjörnsson til
heimilis að Garðavegi 2 í Kefla-
vík, fæddur 15 maí 1970.
Knarrarnesið KE fór í róður
frá Sandgerði á laugardagsmorg-
unin og síðast heyrðist til hans um
hálf tólf leytið. Rúmum klukkut-
íma síðar tilkynntu skipverjar á
Gunnari Hámundarsyni um brak
í sjónum og var þá strax farið að
svipast eftir bátnum. Auk fjölda
báta sem leituðu á sjó, leituðu
einnig þyrla og tlugvél Landhelg-
isgæslunnar. Þá voru fjörur
gengnar.
Þrátt fyrir mikla og ítarlega leit
hefur gúmmíbátur Knarrarness-
ins ekki fundist og bendir allt til
þess að hann hafi farið niður með
bátnum. Á þeim slóðum sem
Knarrarnesið er talið hafa farist
hafa fundist ýmsir lausamunir úr
bátnum.
í gær leituðu fjölmargir bátar á
þessum slóðum og bjögunar-
menn hafa gengið fjörur allt frá
Stafnnesvita að Vogastapa.
Haldið verður áfram að ganga
fjörur í þeirri von að eitthvað
finnist en þegar síðast fréttist
hafði ekkert fundist fyrir utan þá
lausamuni sem fundust á sjónum.
-grh
Sjómenn orðnir órólegir
Porlákshöfn: 34 bátar lönduðu 1300 tonnum. Besta vikan á vertíðinni.
Rýrt í Grindavík og Ólafsvík. Lítið um œti í Breiðafirði
Jóhann hefur
forystu
Skák Helga ogJó-
hanns enn ótefld
Þótt Jóhann Hjartarson eigi
enn eftir að tefla skák sína við
Helga Ólafsson frá því í fyrstu
umferð hefur hann forystu á al-
þjóðlega skákmótinu á Akureyri
ásamt þeim Margeiri Péturssyni
og Mikhael Gurevitsj. Hafa þeir
allir hreppt þrjá og hálfan vinn-
ing, Jóhann úr fjórum skákum en
félagar hans úr fimm.
í gær áttu skákmennirnir frí en
í dag verður tefld sjötta umferð.
Jóhann og Helgi áttu að leiða
viðureign sína til lykta í gær en af
því varð ekki sökum einhverrar
slæmsku þess síðarnefnda.
að er ekki laust við að sjó-
menn séu orðnir órólegir
vegna aflaleysis það sem af er
vertíðinni enda lítið aflast þrátt
fyrir mikla sókn. Hingað til hafa
sjómenn reynt að vera bjartsýnir
og margir haldið í vonina um að
sá guli fari að gefa sig í netin en
eftir því sem líður á vertíðina fer
sú von að minnka.
í Þorlákshöfn var síðasta vika
þó með þeim skárstu það sem af
er og komu þá á land rúm 1300
tonn af 34 bátum. Þorskur fer
vaxandi í aflanum en ekki fer
mikið fyrir stærðinni á honum.
Aflinn er frystur og saltaður.
Aflabrögð voru frekar léleg í
Grindavík í síðustu viku en þó var
einn bátur sem bar af öðrum og
var það Hafbergið GK sem fékk
104 tonn af ufsa í vikunni.
Heildaraflinn varð um 948 tonn
af 40 bátum í 164 róðrum sem
þykir frekar rýrt. Menn bíða þar
enn eftir að sá guli fari að láta sjá
sig enda kominn sá árstími að nú
er að duga eða drepast.
Afli Ólafsvíkurbáta var rýr í
vikunni sem leið og komu þar á
land aðeins rúm 690 tonn. Þar af
landaði togarinn Jökull SH 27 70
tonnum og Freyja RE 15 tonn-
um. Átta trillur komu með 51,5
tonn og fengsælust í einum róðri
var Harpa SH sem fékk hvorki
meira né minna en 5 tonn sl.
föstudag, en vertíðarbátar eru
tæplega 30 og meðal þeirra eru
fjórir bátar að norðan. Þeir koma
árlega vestur yfir hávertíðina.
Sjómönnum fyrir vestan þykir
með eindæmum hvað virðist vera
lítið um æti í sjónum og til sann-
indamerkis um það hefur neta-
þorskurinn verið kjaftfullur af
smáufsa sem ekki er dagleg sjón
þar á bæ. Þá hafa trillur sem gera
út á línu fengið boltaþorsk á
krókinn.
-grh