Þjóðviljinn - 16.03.1988, Síða 1
Miðvikudagur 16. mars 1988 62. tölublað 53. árgangur
Samningarnir
Verkföll um páska
Átta verkalýðsfélög á Norðurlandi ákveða yfirvinnu-
bann og bónusverkfall. Þóra Hjaltadóttir, Alþýðu-
sambandi Norðurlands: Atvinnurekendur þverskall -
ast við. Verkalýðsfélag Vestmannaeyja boðar verkfall
að stefnir í almcnn verkföll
um páska hafi samningar ekki
tekist fyrir þann tíma, sagði Þóra
Hjaltadóttir, formaður Alþýðu-
sambands Norðurlands, en átta
verkalýðsfélög á Norðurlandi
boðuðu yfirvinnu- og bónus-
vinnubann frá og með þriðjudegi
í næstu viku.
Þóra sagði að engu líkara væri
en að atvinnurekendur gerðu
viljandi í því að tefja fyrir samn-
ingaviðræðum. - Þeir verða að
gera sér grein fyrir því að samn-
ingsrétturinn er hjá hverju ein-
stöku félagi, sagði Þóra.
Ljóst er að fátt getur komið í
veg fyrir hörð átök á vinnumark-
aði. Verkalýðsfélag Vestmanna-
eyja boðaði í gær yfirvinnubann
frá og með næsta miðvikudegi, í
stað yfirvinnubanns sem átti að
hefjast í gær, en var aflýst vegna
þess að það láðist að tilkynna
sáttasemjara um verkfallsboðun-
ina.
Almennt eru litlar líkur taldar
á því að samningar takist fyrir
páska. í gær voru haldnir tíðind-
alitlir samningafundir með þrem-
ur fylkingum verkalýðsfélaga í
húsakynnum ríkissáttasemjara.
Alþýðusamband Suðurlands og
verkakvennafélögin Framtíðin
og Framsókn og verkalýðsfélögin
af Vesturlandi skipuðu eina fylk-
inguna og Verkalýðsfélag Vest-
mannaeyja og Snót sína hvora.
Ekki er fullráðið hvort félögin úr
Eyjum hafi með sér samflot í
samningaviðræðunum.
Verkalýðsfélag Akraness er
einskipa og hefur félagið óskað
eftir að viðræður þess fari annað-
hvort fram í Reykjavík eða Akra-
nesi.
Samninganefndir Landssam-
bands verslunarmanna og iðn-
verkafólks áttu í gær samninga-
fund með atvinnurekendum. Að
sögn Björns Þórhallssonar, for-
manns Landssambands verslun-
armanna, er lítið haldfast í samn-
ingaviðræðum verslunarmanna.
Samningafundur er boðaður aft-
ur á föstudag.
Björn sagði að samninga-
nefndir verslunarmanna og iðn-
verkafólks myndu nota tímann
vel fyrir næsta fund og ræða um
samstarf. - Það er fullmikið sagt
að menn ætli að reifa sameigin-
lega kröfugerð, en það er margt
sem við eigum sameiginlegt og
ættum að geta orðið samstíga
með, sagði Björn.
-rk
Áburðarverksmiðjan
Úttektina
fyrst
Borgarráð ályktaði einróma í
gær að ammoníak verði ekki flutt
inn til Aburðarverksmiðju ríkis-
ins í Gufunesi við núverandi að-
stæður og að ekki verði hafin
bygging á nýjum tvöföldum kæld-
um ammoníaksgeymi fyrr en út-
tekt hafi verið gerð á hagkvæmni
verksmiðjunnar.
Að sögn Sigurjóns Péturssonar
borgarfulltrúa var höfð til hlið-
sjónar þessari ályktun samþykkt
almannavarnarnefndar borgar-
innar um málið. Þá gat Sigurjón
þess að það tæki ekki meira en
einn mánuð að framkvæma fyrr-
nefnda hagkvæmnisathugun.
Forstjóri Áburðarverksmiðj-
unnar, Hákon Björnsson, sagði í
gær að þessi ályktun borgarráðs
um að ekki megi flytja inn am-
moníak á meðan byggingu nýs
geymis standi ýfir, þýddi 60
milljóna króna tekjutap fyrir
verksmiðjuna í þá 18 mánuði sem
tæki að byggja nýjan geymi.
-grh
Flugleiðir
ao
miljóna
tap
Afkoma Flugleiða versnaði um
544 miljónir króna á árinu 1987
miðað við afkomuna árið 1986.
Þrátt fyrir það var hagnaður upp
á 14,5 miljónir hjá félaginu í
fyrra, en hann stafar af sölu eigna
upp á 239 miljónir króna.
Stjórn Flugleiða og forstjóri
komu saman til fundar í gær og
samþykktu ársreikninga félagsins
fyrir árið 1987. Afkoman í fyrra
var um 420 miljónum verri en á
árinu á undan og rekstrartap án
fjármunatekna og gjalda var 194
miljónir króna, en árið 1986 var
hagnaður upp á 350 miljónir
króna. Breytingin milli ára er því
neikvæð um 544 miljónir króna. í
árslok var bókfært eigið fé Flug-
leiða 1.184 miljónir króna.
Aðalfundur Flugleiða verður
haldinn 22. mars og verður þá
lagt til að hlutafé verði aukið um
50% með útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa, þannig að hlutafé félagsins
hækki úr 315 miljónum króna í
472,5 miljónir króna. -Sáf
Skák
Gurevitsj
orðinn efstur
Eftir 6. umferð á Alþjóðlega
skákmótinu á Akureyri er Gure-
vitsj búinn að ná forystu með 41/2
vinning. Jóhann Hjartarson fylg-
ir fast á eftir með 4 vinninga og á
eftir óteflda skák við Helga Ólafs-
son, úr fyrstu umferð.
Margeir Pétursson er í 3. sæti
með 31/2 vinning og biðskák, frá
því í gær á móti Helga. í gær vann
Gurevitsj Adorjan og Tisdal
vann Jón Garðar. í skákum Jó-
hanns og Jóns L., Ólafs og Karls
og Dolmatovs og Polugajevskijs
var jafntefli.
Forystumenn kennarasambandanna, KÍ og HÍK taka undir samþykkt fjölmenns fundar kennara á Broadway í gær þar sem lýst er fullri ábyrgð á hendur
stjórnvöldum ef til verkfalla kennara kemur. Mynd-E.ÓI.
Kennarar
Abyrgðin er stjómvalda
Troðfullt á baráttufundi kennarasamtakanna í Broadway í
gœr. Stefnir í verkfallsátök í nœsta mánuði
Þetta var afskaplega vel heppn-
aður fundur og sýnir hver
hugurinn er í kennurum. Húsið
var yfirfullt og við flnnum að það
er sami baráttuandinn í félögum
okkar út um allt land, sagði Svan-
hildur Kaaber formaður Kennar-
asambands íslands í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Á fjölsóttum fundi kennarafé-
laganna, KÍ og HÍK á veitinga-
húsinu Broadway í gær var sam-
þykkt ályktun þar sem kennarar
vísa allri ábyrgð á hendur
stjórnvöldum ef til verkfalla hjá
kennarastéttinni kemur strax
eftir páska, eins og allar horfur
eru nú á.
Félagar í Kennarasambandinu
ákveða í dag og á morgun í alls-
herjaratkvæðagreiðslu hvort
veita eigi fultrúaráði félagsins
umboð til verkfallsboðunar og fé-
lagar í HÍK ákveða slíkt hið sama
á föstudag og mánudag. Að sögn
Svanhildar verða atkvæði talin
hjá KÍ á mánudagskvöld. Verði
verkfallsheimild til félaganna
samþykkt koma verkföll allra
grunn- og framhaldsskólakenn-
ara til framkvæmda um miðjan
næsta mánuð, takist ekki samn-
ingar við stjórnvöld fyrir þann Sjá bls. 6
tíma. -Ig.
Aflabrögð
Minni þorskafli
orskaflinn í febrúar var rúm-
ar 33 þús. lestir eða nær 7 þús.
lestum minni en í sama mánuði í
fyrra. Heildarþorskaflinn á árinu
er nú tæpar 57 þús. lestir en var
rúmar 62 þús. lestir tvo fyrstu
mánuðina í fyrra.
Heildaraflinn í febrúar var
tæpar 285 þús. lestir þar af
veiddust um 218 þús. lestir af
loðnu. Heildaraflinn það sem af
er árinu er nú orðinn rúmar 552
þús. lestir en var um 450 þús. lest-
ir í fyrra. Þarna munar mestu um
mikla loðnuveiði sem af er árinu
en alls hafa komið á land rúmar
450 þús. lestir af loðnu.
_____________________________-Ig-