Þjóðviljinn - 16.03.1988, Qupperneq 3
FRETflR
Yfirmenn í FFSÍ
Uppsögn
kjarasamninga
„Það er miklu handhægara og
skynsamlegra fyrir stjórnvöld að
ákveða fiskverð í Þjóðhagsstofn-
un fremur en að vera með allt
niðrum sig í Verðlagsráði sjávar-
útvegsins, eins og berlega kom í
Ijós á dögunum þegar ákveðið var
að frysta fiskverðið,“ sagði Gísli
Skarphéðinsson, formaður
Bylgjunnar á Isafirði við Þjóð-
viljann.
Að sögn Gísla verður trúlega
boðað til fundar hjá yfirmönnum
á ísafirði um næstu helgi hvort
segja skuli upp kjarasamningum
félagsins við útvegsmenn á
grundvelli uppsagnarákvæðis
varðandi breytingar á gengis-
skráningu krónunnar. Þó fer það
allt eftir því hvort togararnir
verða inni eður ei. Ef ekki, verð-
ur boðað til fundar um páskana.
Farmanna- og fiskimanna-
sambandið hefur farið þess á leit
við aðildarfélög sín að þau ákveði
hvort þau vilji segja upp kjara-
samningum félaga yfirmanna
innan FFSÍ við Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna á grund-
velli uppsagnarákvæðis varðandi
breytingu á lögskráðu gengi
krónunnar. Samkvæmt því er
kjarasamningurinn uppsegjan-
legur með eins mánaðar upp-
sagnarfresti innan tveggja mán-
aða frá því gengisbreyting tekur
gildi.
Að sögn Haraldar Holsvik,
framkvæmdastjóra FFSÍ eru yfir-
menn mjög óhressir yfir vinnu-
brögðum og ákvörðun Verð-
lagsráðsins á dögunum. -grh
Borgarráð
Krókur á
móti bragði
Á aukafundi borgarráðs í gær
lagði Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, fram tillögur um lóðaút-
hlutanir á lóðum á svokölluðu
Sogamýrasvæði. Meðal þeirra
sem sótt hafa um byggingarlóð er
Framsóknarflokkurinn, en um-
sókn hans var ekki í tillögum
borgarstjóra.
í borgarkerfinu er getum að
því leitt að með þessum leik sín-
um hafi borgarstjóri verið að
hegna Framsóknarflokknum og
þá sérílagi formanni hans,
Steingrími Hermannssyni, fyrir
þau ummæli sem hann hefur oft á
tíðum viðhaft að borgin fari með
offorsi í framkvæmdum og stuðli
að aukinni þenslu í stað þess að
draga saman seglin. Borgarstjóra
mun hafa fundist vel við hæfi að
koma til móts við óskir formanns
Framsóknarflokksins með þeim
hætti að gera ekki tillögu um að
þeir sjálfir stuðli að aukinni þen-
slu í borginni með því að mæla
ekki með umsókn flokksins um
byggingarlóð. -grh
sís
Stjómarfundur
nálgast
„Stjórnarfundur hefur ekki
enn verið boðaður, en ég býst við
að hann verði haldinn á svipuð-
um tíma og venjulega, eða seinni-
hlutann í mars,“ sagði Hörður
Zophaníasson, ritari stjórnar
Sambandsins, við Þjóðviljann í
gær.
Geir Geirsson, endurskoðandi
Sambandsins, hefur lokið könn-
un á launamálum Guðjóns B. Ól-
afssonar, að þeim tíma sem
Guðjón var forstjóri Iceland Se-
afood í Bandaríkjunum.
Þegar Þjóðviljinn ræddi við
Hörð hafði hann ekki enn fengið
hana í hendurnar, auk þess sem
hann bjóst við að skýrslan yrði
trúnaðarmál. -Sáf
Vestmannaeyjar
Markaðurinn f isklaus
Enginn kaupir né selur. Saltfiskstöðvar draga saman seglin og bátar
landa ígáma. Alltað 15-20 kílóaþorskar í aflanum
að var engin sala á fiskmark-
aðinum í gær né í fyrradag
þar sem við fáum engan fisk til
sölu. En við höldum öllu opnu hér
og tökum á móti öllum sem vilja
selja með bros á vör, sagði Björg-
vin Arnaldsson, hjá Fiskmarkaði
Vestmannaeyja við Þjóðviljann.
Að sögn Björgvins er aðalá-
stæðan fyrir þessu sú að
saltfiskstöðvarnar hafa minnkað
við sig vegna yfirvonandi yfir-
vinnubanns verkalýðsfélagsins
og þá hafa útgerðarmenn tekið á
það ráð að skipa aflanum um
borð í gáma til útflutnings þrátt
fyrir verðfall á Englandsmarkaði.
„Þeir verða einhvern veginn að
losna við fiskinn. Ekki geta þeir
farið með hann á fiskmarkaðina í
Reykjavík né Hafnarfirði vegna
löndunarbanns og þessvegna
selja þeir hann út í gámum,“
sagði Björgvin.
Aflabrögð hafa upp á síðkastið
batnað að mun hjá Eyjabátum og
hafa litlu trollararnir verið að fá
risaþorska í vörpuna, allt frá 15
og upp í 20 kíló að þyngd sem er
kjörið hráefni í saltfiskvinnsluna.
Meðal annarra fékk einn elsti
vertíðarbátur Eyjamanna og alls
flotans, Erlingur VE sem er 23
tonna bátur, fimm tonn í hali þar
sem eingöngu voru svona risa-
þorskar. -grh
í aær heimsóttu nokkrir grænlenskir bændur fyrirtækið Vélar og þjónustu að leiðsögumaður grænlensku bændanna en hann starfar sem búnaðarráðu-
Járnhöfða 2. Voru þeir að kynna sér vélar þær og tæki, sem þeir Járnhöfða- nautur „á Grænlands grund". Mynd: EOI
menn hafa á boðstólum, - og voru hrifnir af. Þór Þorbergsson er fylgdar- og
Ríkisstjórnin
Lýst eftir þingmálum
Eitthundrað stjórnarfrumvörp boðuðíhaust, einungis 48 komin fram. Síðustuforvöð að
leggjaframfrumvörp daginn eftirpáskahlé. Iðnaðarráðherra hyggst beita sérfyrirþví að
ríkisstjórnin endurskoði áform sín
Tæplega helmingur þeirra
frumvarpa sem Þorsteinn
Pálsson, forsætisráðherra, boð-
aði að ríkisstjórnin myndi leggja
fram í vetur, hefur þegar verið
lagður fram. Af 100 frumvörpum
sem boðuð voru hafa ráðherrarn-
ir lagt fram 48 frumvörp.
Það var Hjörleifur Guttorms-
son sem vakti athygli á þessu í
umræðu um þingsköp á Alþingi í
gær.
Fjármálaráðherra hefur lagt
fram 14 af 18 boðuðum frum-
vörpum, dómsmálaráðherra 11
af 20, viðskiptaráðherra 3 af 10,
félagsmálaráðherra 4 af 7,
menntamálaráðherra 4 af 13,
sjávarútvegsráðherra 3 af 5,
heilbrigðisráðherra 3 af 10, utan-
ríkisráðherra 1 af 1, iðnaðarráð-
herra 1 af 5, landbúnaðarráð-
herra 2 af 8 og samgönguráðherra
2 af 3 boðuðum frumvörpum.
Af þeim 48 ríkisstjórnarfrum-
vörpum sem lögð hafa verið fram
hafa 26 verið afgreidd sem lög, en
önnur eru komin mislangt í með-
förum þingsins.
Það kom fram hjá Jóni Krist-
jánssyni, forseta neðri deildar, að
nú er eftir rúm vika fram að
páskahlé, sem standa mun í tvær
vikur. Fyrsta daginn eftir páska-
hlé eru síðustu forvöð að leggja
fram mál, sem samþykkja á á
þessu þingi, samkvæmt þing-
sköpum. Óvíst er enn hvenær
þingi ljúki í vor.
Friðrik Sophusson, iðnaðar-
ráðherra sagði að hann myndi
beita sér fyrir því innan ríkis-
stjórnarinnar að áætlun um fram-
lagningu ríkisstjórnarfrumvarpa
yrði endurskoðuð og niðurstaða
þeirrar endurskoðunar yrði
kynnt formönnum þingflokk-
anna. Hann sagði að ljóst væri að
sum þeirra frumvarpa sem boðuð
voru í haust, verða ekki lögð fram
á þessu þingi og tók sem dæmi
frumvörp um einkaleyfi, vöru-
merkingu og mynsturgerð, sem
hann hafði sjálfur boðað í haust.
-Sáf
Kennarasambandið
Launatölur rangfærðar
KÍ: Villandi upplýsingarfjármálaráðuneytisins um launakjör kennara bœta ekki
samstarfið við samningagerðina
Kennarasamband íslands segir
að upplýsingar fjármálaráðu-
neytisins um launamál kennara
séu afar villandi og harmar sam-
bandið að ráðuneytið skuli birta
launatölur án þess að gerð sé
grein fyrir á hvaða forsendum
þær eru byggðar. Slík vinnu-
brögð gefi tilefni til rangtúlkana
og misskilnings sem síst verði til
þess að bæta samstarf þessara að-
ila í yfirstandandi samningagerð,
segir í yfirlýsingu frá KÍ.
Byrjunarlaun grunnskóla-
kennara eftir þriggja ára háskóla-
nám eru í dag 48.205 kr. á mán-
uði. Eftir 18 ára starf fær grunn-
skólakennari 62.771 kr. í mánað-
arlaun. Framhaldsskólakennari
með meistararéttindi í iðngrein
fær 51.140 kr. í byrjunarlaun og
nær mest 66.593 kr. á mánuði
eftir 18 ár.
Hvað varðar grunnskólalaun
má til dæmis nefna að þar er ekki
einungis um að ræða laun grunns-
kólakennara og leiðbeinenda
heldur einnig laun skóiastjórn-
enda, en þeir eru að sjálfsögðu
hærra launaðir en almennir kenn-
arar. Þá eru einnig taldir með
ýmsir hópar sem raðast ofar í
launaflokka en almennir kennar-
ar. Þegar reiknuð eru meðaltals
dagvinnulaun almennra grunn-
skólakennara/leiðbeinenda kem-
ur í ljós, að í desember 1987 eru
þau um 55.000,- krónur, eða tæp-
iega 6% lægri en fram kemur í
upplýsingum fjármálaráðuneyt-
isins eru um 69.000 krónur að
meðaltali í desember 1987 - það
er um 8% lægra en upplýsingar
fjármálaráðuneytisins gefa til
kynna.
í þessu sambandi er rétt að
benda á að fjöldi kennara hefur
litla sem enga yfirvinnu á sama
tíma og aðrir hafa neyðst til þess
að taka að sér meiri yfirvinnu en
þeir kæra sig um til þess að bjarga
þeim vanda sem skólar landsins
standa frammi fyrir vegna kenn-
araskorts, segir m.a. í yfirlýsingu
KÍ.
~lg-
ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 3