Þjóðviljinn - 24.03.1988, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 24.03.1988, Blaðsíða 2
Engir listar hjá Shell og í Kringlunni Það er ekki nóg með að íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur hafi synjað samtökunum Tjörnin lifi um að fá að hafa undirskriftarlista gegn fyrirhugaðri ráðhúsbyggingu frammi í sundlaugum borgarinnar, heldur hafa stjórnendur Kringlunnar og Skeljungs einnig meinað þeim um það. Að sögn Önnu Rögnvaldsdóttur, hjá samtökunum Tjörnin lifi hafa verslunarstjórar margra stórmarkaða einnig lagst gegn undirskrif- tarlistunum og sagt þá vera pólitíska og þar með óæskilega. Rússarnir byrjaðir að kaupa Álafoss hf. hefur samið um sölu á 30 þúsund peysum og 500 þúsund treflum til sovéska ríkisfyrirtækisins Raznov. Söluverðmætið er 80 miljónir íslenskra króna eða tæplega 2 miljónir dollara en í ramma- samningi þjóðanna er gert ráð fyrir viðskiptum fyrir 5-6,5 miljónir dollara. Aðalsteinn Helgason aðstoðarforstjóri Álafoss hf. segist bú- ast við enn frekari viðræðum milli fyrirtækjanna en hvenær eða hvort þær verða er nú óvíst. Ráðstefna um hafbeit Dagana 7.-9. apríl veröur hald- in á Hótel Loftleiðuin ráðstefna um hafbeit. Veiðimálastofnun hefur að mestu skipulagt ráð- stefnuna en á henni hafa fram- sögu margir af fremstu vísinda- mönnum þjóðarinnar. Auk þess að rætt verður um líffræðilega þætti hafbeitar verður rætt um markaðsstöðu fiskeldisstöðv- anna hér á landi og framtfð ís- lensks fiskeldis. Tekist á um verkaskiptinguna Aðalumfjöllunarefni á fulltrúaráðsfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem hefst í dag, verða verkaskipting ríkis og sveitarfélaga og Jöfnunarsjóður sveitarfélaganna. Jóhanna Sigurðardóttir fél- agsmálaráðherra flytur ávarp í upphafi fundarins en hún hefur boðað nýjar reglur um áhrif sveitarfélaga á ákvörðun um útsvarsprósentu fyrir næsta ár en staðgreiðsla útsvara verður einnig til umfjöllunar á fundinum. BHMR átelur vinnubrögð Jóns Baldvins Stjórn Bandalags háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna hefur sent Jóni Baldvin Hannibalssyní fjármálaráðherra harðort bréf þar sem ráðuneytið er átalið fyrir að senda frá sér tölur um heildarlaun ríkis- starfsmanna sem byggðar eru á getgátum. Lýsir stjórnin jafnframt furðu sinni á því hversu utanaðkomandi aðilar eiga greiðan aðgang að upplýsingum um launakjör ríkisstarfsmanna á sama tíma og samtök starfsmanna ríkisins hafa oft orðið að bíða lengi eftir sömu gögnum frá ráðuneytinu. Segir stjórnin að launatölur ráðuneytisins hafi verið settar fram í vafasömu áróðursstríði fjármálaráðuneytisins við félags- menn í HÍK. Tveir söngnemar fá námsstyrk Söngvarasjóður Óperudeildar Félags íslenskra leikara úthlutaði í gær þeim Ingibjörgu Guðjónsdóttur og Sverri Guðjónssyni 70 þús. kr. námsstyrk hvoru til framhaldsmenntunar í sönglist. Álls bárust 10 umsóknir um styrki. Ingibjörg stundar nú söngnám í Bandaríkjunum og Sverrir er á förum til Bretlands í framhaldsnám. Skólaskylda sex ára Guðrún Agnarsdóttir hefur mælt fyrir frumvarpi um grunnskóla í efri deild Alþingis, þar sem lagt er til að lögbundin verði fræðsluskylda 6 ára barna á næsta skólaári en skólaskylda 6 ára barna síðan lögbundin á skólaárinu 1989-1990. Þá er í frumvarpinu lagt til að kennslutími yngstu barnanna verði lengdur, fyrst í 22 stundir á viku og síðan í 25 stundir haustið 1989. Einnig er gert ráð fyrir að í yngstu bekkjunum verði einungis 14 nemendur en í eldri bekkjum ekki fleiri en 18. FRÉTTIR Landakot Starfsfólk uggandi 150-180 milljón króna halli á rekstri spítalans. Hugmyndir uppi um að taka 50 sjúkrarúm úr notkun og hætta bráðavakt. Pýðir uppsagnir 120-150 starfsmanna Ef það gengur eftir sem maður hefur heyrt og séð í fjölmiðl- um að stjórn Landakotsspítala hyggist taka 50 sjúkrarúm úr notkun og hætta bráðavakt um næstu mánaðamót, þýðir það að 120-150 manns verði sagt upp störfum, sagði Níels Chr. Níelsen, læknir og formaður starfsmann- aráðs Landakotsspítala við Þjóð- viljann. Fjárhagsvandræði Landak- otsspítala nema nú um 150-180 milljónum króna og er ástæðan sú að framlög ríkisins til hans eru í engu samræmi við starfsemina sem þar fer fram. Þrátt fyrir það hefur ekkert verið dregið úr henni og er nú svo komið að stjórn spítalans sér sig tilneydda til að draga verulega úr starfse- minni fáist ekki viðbótarfjár- veiting frá ríkisjóði umfram fjár- lög. Að sögn Níelsar eru starfs- menn þegar farnir að leita fyrir sér með aðra vinnu vegna þessa óvissuástands sem skapast hefur á spítalanum og ríkir megn óá- nægja meðal þeirra vegna þess hvernig stjórn spítalans hefur haldið á þessum málum gagnvart þeim. Aðspurður sagðist Níels ekki vita á hvern hátt yrði staðið að fyrirhuguðum samdrætti í starf- semi spítalns, en benti á að innan veggja hans væri m.a. starfrækt augnsjúkdómadeild, sem væri sú eina hér á landi, auk ýmissa ann- arra deilda sem erfitt væri að sjá í fljótu bragði hvernig hægt væri að loka. Á launaskrá Landakotsspítala eru um 660 manns en stöðugildi eru fyrir 500 störf. 70-80% af rek- strarkostnaði spítalans er vegna launakostnaðar. f dag klukkan 11 verður vænt- anlega fundur með starfsmönn- unum og framkvæmdastjóra spítalans, þar sem spilin verða lögð á borðið í fyrsta sinn, og þá fá starfsmennirnir trúlega að vita hvort og hvernig skorið verður niður í starfsmannahaldi og rekstri að öðru leyti. -gfh Forystumenn bæjarmála í Neskaupstað funda með ráðuneytismönnum og þinqmönnum kjördæmisins í gær. Mynd: Sig. Norðfirðingar Ráðherrar mættu ekki Lurða í ráðherrum samgöngu- ogfélagsmála ígœr kom í veg fyrirfundþeirra með bæjarstjórn Neskaupstaðar. Asgeir Magnússon: Misréttiþað sem landsbyggðin býr við verður að leiðrétta Okkur þykir auðvitað leiðinlegt að félagsmála- og samgöngu- ráðherra hafi verið of lasnir til að hitta okkur að máli í gærmorgun, en við eigum það þá inni hjá þeim að þeir heimsæki okkur og ræði málin á okkar heimavelli, sagði Asgeir Magnússon, bæjarstjóri í Neskaupstað, en fimm manna sendinefnd bæjarstjórnarinnar er nú stödd hér syðra til að sækja valdið, í samræmi við yfirskrift Ijölmenns fundar á Norðfirði um síðustu helgi. Ásgeir sagði að samgöngumál- in væru þungamiðja allra um- ræðna um byggðamál, og í gær hittu Norðfirðingar meðal ann- arra að máli fulltrúa samgöngu- ráðuneytisins, vegamálastjóra og þingmenn kjördæmisins. Að sögn Ásgeirs eru jarðgöng til að tengja saman þéttbýliskjarnana á Austurlandi besti kosturinn þar sem samgöngubætur eru annars vegar, en sá næstbesti betri snjó- ruðningur og uppbyggðir vegir. „Það er sjálfsögð krafa í nútíma- þjóðfélagi að rutt sé þegar ófært er; það er tímaskekkja að Vega- gerðin gefi út kort með snjóruðn- ingsreglum," sagði Kristinn V. Jóhannsson, forseti bæjarstjórn- ar Neskaupstaðar, en bæjar- stjórnin krefst breyttra snjóruðn- ingsreglna, þannig að sömu regl- ur gildi á Norðfjarðarvegi öllum. Nú er rutt milli Egilsstaða og Eskifjarðar alla virka daga, en Oddsskarð aðeins tvisvar í viku. Á þriðja hundrað manns úr Enn sem komið er hafa um það bil 1500 sæti af 2000 selst í ferðirnar sem félögin höfðu pant- að hjá Lion Air. Sala stendur enn yfir hjá félögunum og fer nú hver að verða síðastur að ná sér í miða í orlofsferðirnar. Hjá BSRB eru öll sæti uppseld og langir biðlistar liggja fyrir. Hin félögin hafa ekki selt eins mikið þó það sé að sjálfsögðu mismun- andi. VR hefur selt tæplega 400 miða af sínum 600 og Samband öllum fjórðungnum sótti fund- inn, og sögðu þeir Ásgeir og Kristinn að óánægja og gremja meðal landsbyggðarfólks vegna þess misréttis sem það byggi við væri orðin mjög almenn og færi dagvaxandi. íslenskra bankamanna hefur selt um það bil 200 af sínum 240. Hjá Sókn eru eftir 60 miðar og eitthvað svipað hjá Framsókn. Ekki fengust nákvæmar upplýs- ingar hjá járniðnaðarmönnum, bifélavirkjum, verslunarmanna- félagi Hafnarfjarðar og vers- lunarmannafélagi Árnessýslu en samtals höfðu þessi félög 320 miða til ráðstöfunar. Þó er talið að salan gangi þokkalega hjá þeim. -tt Lion Air Enn óseldir miðar BSRB eina félagið sem seldi sína miða upp. Hin eiga mismikið eftir af sínum kvóta I 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. mars 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.