Þjóðviljinn - 24.03.1988, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 24.03.1988, Blaðsíða 4
LEIÐARI KLIPPT OG SKORIÐ Er fjármála- ráðherra flautaþyrill? „Menn þurfa ekki aö óttast þaö aö þetta þjóðfélag fari á hvolf vegna verðbólgu þó aö ríkisvaldið settist niður í alvöru og reyndi að móta sér stefnu um það hvernig það ætlar að brúa bilið milli hins opinbera geira og markaðskerfisins, og hvað það vill á sig leggja, og hvað það vill greiða til þess að skólunum haldist á hæfum kennurum." „Þegar svo er komið að ríkisvaldið er svo nánasarlegur atvinnurekandi að því helst ekki á góðu fólki og hefur ekki skilning á nauðsyn þess að manna skólana með góðu fólki, þá er ekki von á góðu.“ „Höfum við efni á að greiða góðum kennurum góð laun? Við gætum eins orðað þessa spurningu á annan veg: Höfum við efni á að greiða þeim ekki almennileg laun?“ „Það á að gera strangar kröfur til skóla en það á líka að borga markaðslaun fyrir störf hæfra kennara. Við höfum ekki efni á öðru.“ Þessartilvitnanireru ekki úrdreifibréfi kennarasamtakanna. Þær eru úr þingræðu sem Jón Baldvin Hannibalsson flutti fyrir næstum nákvæmlega þremur árum. Útaf þessari ræðu er lagt í opnu bréfi í gær frá Bjarna Ólafssyni kennara til Jóns Baldvins Hannibalssonar, sem fyrir þremur árum var þingmaður í stjórnarandstöðu en er nú fjár- málaráðherra. Sá Jón Baldvin, sem fyrir þremur árum sté í ræðustól alþing- is til að styðja kjarabaráttu kennara, heldur nú sérstaka blaða- mannafundi þarsem hann les úrskýrslum Indriða H. Þorsteins- sonar yfirmanns launadeildar fjármálaráðuneytisins í þeim til- gangi að halda aftur af kennurum og kveða þá í kútinn. Þetta eru merkilegar breytingar á einum manni á ekki lengri tíma, og geta hér átt við tvær skýringar, einsog Bjarni bendir á í bréfi sínu. Önnur er sú að Jón Baldvin Hannibalsson sé pólitískur flautaþyrill og lýðskrumari sem utan stjórnar lofar því sem hverjum þykir Ijúfast en gleymir síðan að standa við stóru orðin í hægindunum bakvið ráðherraskrifborðið. Hin er sú að á þessum þremur árum hafi kjör kennara batnað svo stórkostlega að ræðan frá 1985 eigi ekki lengur við. Kenn- arar í grunnskólum og framhaldsskólum fái svipuð laun og þeim byðust annarsstaðar og geti einbeitt sér að traustu skóla- starfi. Fróðlegt verður að sjá svarbréf Jóns Baldvins Hannibals- sonar. Styður Þorsteinn hryðjuverkamenn? Stjórnarsamstarfið er svo máttlaust og aðilar þess svo ósamstæðir að tveir af oddvitum þess eru komnir í hár saman útaf átökunum í landinu helga og opinberri afstöðu til Jassírs Arafats. Utanríkisráðherra gaf þá yfirlýsingu í Rótarútvarpinu að hann væri reiðubúinn til fundar við forystumenn Frelsissam- taka Palestínu, sem væru ekki tíðindi nema vegna þess að yfirlýsingin er ekki samhljóða opinberri stefnu í Washington. Þorsteinn Pálsson ræðst með látum að utanríkisráðherra sínum vegna þessara orða, og lætur um leið falla þau orð að PLO séu samtök hryðjuverkamanna. Þetta er athyglisvert vegna þess að Þorsteinn segist sam- mála viljayfirlýsingu utanríkisráðherrans um alþjóðlega friðar- ráðstefnu, þar sem PLO taki þátt. Slík þátttaka væri auðvitað jafngildi viðurkenningar PLO sem útlagastjórnar Palestínu- manna, og að mæla með slíkri þátttöku er í sjálfu sér stuðning- ur. Meðan menn gegna störfum forsætisráðherra verður að gera þá kröfu að þeir gæti samræmis í yfirlýsingum sínum og gái að afleiðingum orða sinna, sérstaklega um alþjóðamálefni. Jafnvel þótt Þorsteinn sé pirraður yfir fylgisstöðu Sjálfstæð- isflokksins og óvinsældum stjórnar sinnar. -m Erfiðleikar krata Það er ugglaust ekkert spaug að vera Alþýðu- flokksmaðurum þessar mundir. Hvað sem líður þeirri óheillavænlegu þróun íslenskra krata að hafa á undanförnum áratugum stöðugt færst hægt og bít- andi til hægri, þá eru í mörg- um þeirra enn til einhverjar slitrur af þeim taugum sem bundið hafa sósfaldemó- krata vítt og breitt um heim- inn við vinstri vænginn. Það eru ekki allir Alþýðuflokks- menn orðnir það forhertir að þeim þyki sjálfsagt að taka alltaf að sér hlutverk hins forstokkaða íhalds- manns í samskiptum við sós- íaldemókrata annarra landa. Satt að segja finnst mörgum alþýðuflokks- manninum formaðurinn oft fara fram á ystu nöf í þeim efnum. Aðgerðir ríkisstjórnar- innar - og þá ekki síður að- gerðaleysið á sumum svið- um - hefur farið fyrir brjóst- ið á því fólki sem telur eðli- legt að vandamál líðandi stundar séu leyst í anda sam- vinnu og samhjálpar en hafnar öllum hugmyndum um að hver b j argi sér og andskotinn hirði þann aft- asta. Sú undarlega árátta kratahöfðingj anna að þurfa alltaf að vera í sviðsljósinu hefur undirstrikað að krata- ráðherrarnir eiga sinn drjúga þátt í óvinsælum ráð- stöfunum á borð við álagn- ingu matarskattsins en hann er ein meginorsök þess að framfærslukostnaður hefur hækkað um allt að 12% frá því í haust þótt laun hafi staðiðístað. Ógirnilegir samstarfsmenn Alþýðublaðið reynir eftir mætti að sigla milli skers og báru í því tvíátta gjörninga- veðri sem dynur nú á kröt- um. Einn daginn leggur það kapp á boðun þess fagnaðar- erindis að nýju skattarnir hans Jóns Baldvins séu nauðsynlegir til að koma hér á velferðarkerfi og má þá helst skilja að fjármálaráð- herrann sé að plata íhalds- og framsóknarráðherrana til fylgis við sósíaldemókratí- una. Hinn daginn reynir blaðið að róa þá alþýðu- flokksmenn sem farnir eru að hrista hlekkina í langvar- andi íhaldsherleiðingu og jafnvel farnir að hafa í hót- unum um að slíta sig lausa. Og ugglaust er það rétt hjá Alþýðublaðinu að kratar, sem nú er ómótt, þurfa kraftmeiri mixtúru en finna má í þeirri kenningu fjár- málaráðherra að 25% hækk- un á matvælum sé horn- steinn nýs velferðarríkis. í gær birtist t.d. í Alþýðu- blaðinu viðtal við formann Sambands ungra jafnaðar- manna og undir fyrirsögn- inni „EKKIGIRNILEGT AÐ VERA í SAMSTARFI MEÐ FRAMSÓKN OG ÍHALDI“. Þegar rætt um fyrra dálæti Erlings Kristenssonar ung- krataformanns á íhalds- mönnum, berhannafsér spjótalögin og segir að það hafi kannski frekar byggst „á persónudýrkun heldur en stefnu. Maðurleitupptil BjarnaBen. Eftiraðhann féll fráfór maður kannski fyrst að hugsa um pólitík. “ „Það sem helst hann varast vann Alþýðublaðamaðurinn þorir að nefna snöru í hengds manns húsi og spyr hvort þarna sé á ferðinni draumsýnin um viðreisn „eins og sagt er um suma krata.“ „Nei, hún erþað ekki í dag, “ segir formaður ung- kratanna, „þóþettafari vissulega mikið eftir þeim mönnutn sem starfa innan flokkanna. Eins og íhaldið hefur hagað sér á undan- förnutn árum, þáfinnstmér alls ekkigirnilegt að vera í samstarfi með þeim né Framsókn. “ Alþýðublaðamaðurinn er grimmur og síðar í viðtalinu spyr hann hvort ekki hljóti eitthvað að vera að hjá Al- þýðuflokknum. „Mérfinnst reyndar að merki þess sjáist ekki beint innanflokksinssjálfs. Við höfum verið lengi með Sjálf- stæðisflokknum ístjórn, sem þýðir að togast hefur á til hægri á meðan slíkt samstarf hefurstaðið. Ég held að það hafi verið verstfyrirflokkinn sem jafnaðarmannaflokk, en við megum heldur ekki gleyma að stærsti flokkur landsins er hœgriflokkur og reynst hefur erfitt að halda honum utan stjórnar. Við tnegum heldur ekki horfa fram hjá þeirri einkennilegu staðreynd að Sjálfstæðis- flokkurinn hefur áttfylgi á meðal verkafólks og í sam- tökutn þeirra. Það má hins vegardeila um hvortþetta ágætafólksé á réttum stað í pólitík. “ ....varð þóað koma yfir hann“ Hvað er nú hér á ferðinni? Klassískur harmleikur? Þaö er auðséð að formaður ungkrata er óánægður með núverandi stjórnarsamstarf. En hvers vegna segir hann þá ekki skýrt og greinilega að hreinlegast sé að slíta því? Þar koma til hin dýpri rök harmleiksins: hvað sem líð- ur eigin vilja krata, þá verða þeir að lúta forlögunum. Enginn má sköpum renna og nornir hafa spunnið ís- lenskum krötum þau örlög- símu að þeim ber að vera sem oftast og lengst í stjórn- arsamstarfi meðlhaldinu. Hetjuskapur þeirra er fólg- inn í því að gera sér grein fyrir þessum ósköpum en reyna samt að malda í móinn eins og sjá má á umræddu viðtali við formann ungk- rata. Þetta er í stíl við hið klass- íska efni harmleiksins hvort heldur það birtist okkur í forngrískum leikritum eða bestu íslendingasögunum. Líkt og Gísli Súrsson barðist til hinstu stundar gegn þeim örlögum er hann vissi að voru óumflýjanleg, þannig munu íslenskir kratar annað veifið æmta þótt þeir viti í hjarta sér að forlögin hafa ekki ætlað þeim að eiga afturkvæmt úr hinu kæfandi faðmlagi íhaldsins. ÓP þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis- og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, MörðurÁrnason, ÓttarProppó. Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson. Blaðamenn: Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Ingibjörg Hinriksdóttir (íþr.), Hjörleifur Sveinbjörnsson, KristóferSvavarsson, Magnfríður Júlíusdóttir, Magnús H. Gíslason, Lilja Gunnarsdóttir, ÓlafurGíslason, RagnarKarlsson, SigurðurÁ. Friðþjófsson, Stefán Stefánsson(íþr.), SævarGuðbjörnsson, TómasTómasson. Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir. Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlitsteiknarar: GarðarSigvaldason, MargrétMagnúsdóttir. Framkvæmdastjóri:HallurPállJónsson. Skrifstofustjóri:Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Olga Clausen, UnnurÁ- gústsdóttir. Símavarsla: Hanna Ólafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Útbreiðslu-ogafgreiðslustjóri: Björn Ingi Rafnsson. Afgreiösla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafurBjörnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310. Umbrotogsetning: Prentsmiðja Þjóðviljanshf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 60 kr. Helgarblöð: 70 kr. Áskriftarverð á mánuði: 700 kr. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. mars 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.