Þjóðviljinn - 24.03.1988, Qupperneq 13
AKv#eyei
Hringvegalengdin milli
Reykjavíkur og Egilsstaða er
710 km, en ef hálendisvegurinn
norðan Vatnajökuls verður að
veruleika styttist hún um 250 km.
Leiðin milli Reykjavíkur og
Akureyrar styttist um 70 km
með vegi yfir Sprengisand.
Fríhendisuppdráttur af veginum yfir Sprengisand til Akureyrar og austur á Hérað noröan Vatnajökuls.
Landið skreppur saman
Með vegi yfir hálendið styttist vegalengdin milli ýmissa staða til mikilla muna
í greinargerð með þingsálykt-
unartillögu þeirri um hálendi-
svegi sem hér er til umræðu er
birt eftirfarandi tafla, en hún
sýnir mismunandi vegalengdir
milli staða eftir hringveginum og
eftir hálendisveginum.
„Vafasamt er að nokkur einstök
framkvæmd í samgöngumálun-
um geti haft eins víðtækar afleið-
á Stórhöfða, tæplega 80 á Hvera-
völlum og um 40 í Reykjavík.
Hvassviðrið skiptir að sjálfsögðu
sköpum þar sem skafrenningur er
annars vegar, en töflu þar að lút-
andi er að finna á þessari opnu.
Það er ekki nóg með að mun
hvassara sé í Sandbúðum en á
Hveravöllum, heldur er skyggnið
einnig mun minna. Hveravellir
eru í 641 metra hæð yfir sjávar-
máli en Sandbúðir 821 metra, og
hefur þessi hæðarmunur upp á
tæpa 200 metra heilmikið að
segja. Á íslandi eru svokölluð
lágský algengust, en þau eru í 700
til 800 metra hæð. f Sandbúðum
liggja skýin því gjarnan niðri, og
þá er eins og keyrt sé í þoku, en
vegna hæðarmunarins getur ver-
Þóranna Pálsdóttir,
veðurfræðingur: Meiri munurá
Hveravöllum og Sandbúðum en
k/ið höfðum fyrirfram gert ráð fyrir.
Um hring- Stytting á
Ákvörðunarstaöur veginn Um hálendið akstursleið
Fteykjavík-Akureyri ...432 km Um 360 km Um 70 km
Reykjavík-Egilsstaðir ...710 km Um 460 km Um 250 km
Selfoss-Akureyri ...487 km Um 300 km Um 190 km
Þjórsárv.-Akureyri ...556 km Um 235 km Um 320 km
Kirkjubæjarkl.-Akureyri. ...704 km Um 335 km* Um 380 km
'Fjallabaksleið.
ingar til þess að draga úr áhrifa-
mætti höfuðborgarsvæðisins á
byggðaþróun sem þessi,“ segir í
greinargerðinni, enda telja flutn-
ingsmenn að hálendisvegirnir
tengdu saman þau landsvæði sem
hafa frá náttúrunnar hendi mesta
þróunarmöguleika til þess að
mynda mótvægi gegn höfuðborg-
arsvæðinu. ,,,,
ið gott skyggni á Hveravöllum
undir slíkum lágskýjum, sagði
Þóranna.
Rigning í byggö,
slydda á fjöllum
Almenn umferð yfir Sprengi-
sand á að geta verið nokkuð trygg
fjóra til fimm mánuði á ári, mið-
að við niðurstöður veðurathug-
ananna í Sandbúðum, en það er
rétt og skylt að hafa það í huga að
Sprengisandsleiðin hefur ekki
verið könnuð að öðru leyti með
tilliti til veðurfars. Á Veðurstof-
unni hefur ekki farið fram nein
úttekt á þessari leið enda ekki
verið beðið um slíkt, en ef marka
má reynsluna frá Sandbúðum þá
virðist þurfa að leggja í mikinn
kostnað til að halda þarna opnum
vegi.
Þegar rignir í byggð er slydda
eða snjókoma á fjöllum; þess er
skemmst að minnast að snjó-
sleðamenn héldu mót í Nýjadal
og lentu í glórulausum byl þótt
komið væri fram undir vor. Eins
geta gangnamenn hreppt illviðri í
september og byrjun október, en
í báðum þessum dæmum eru
menn hreint ekki í námunda við
háveturinn.
HS
Hálendisvegurinn
Ráðstefna
í maí
í byrjun maí mun Verkfræð-
ingafélag Islands gangast fyrir
ráðstefnu um mögulega vegagerð
um hálcndið.
Að sögn nýkjörins formanns
félagsins, Jóns lngimarssonar,
verður skipulags- og þróunar-
þættinum sinnt til jafns við veg-
amálin, og hefur Trausti Valsson,
skipulagsfræðingur og arkítekt,
veg og vanda af undirbúningi
þess hluta viðfangsefnis ráðstefn-
unnar. Trausti hefur skrifað
mikið um hálendisvegakerfi og
áhrif þess á byggðaþróun, síðast
bókina Hugmynd að fyrsta
heildarskipulagi íslands, en hún
kom út í fyrra.
Að sögn Jóns er ráðstefnunni
ætlað að fjalla um fyrirliggjandi
þekkingu á hálendinu, bæði
veðurfarslega og eins hvað við-
kemur kortlagningu af landinu,
en þar leggja orkurannsóknir til
mikinn fróðleik.
Jón sagði að varla yrði um ann-
að að ræða en varanlegt slitlag ef
af gerð hálendisvegarins yrði;
ráðstefnan myndi reyna að gera
sér grein fyrir kostnaðinum sem
af hlytist og liti til Vegagerðar-
innar um þá útreikninga.
Þá sagði hann að landsbyggð-
armenn yrðu fengnir til að skoða
þessi mál út frá sínum aðstæðum,
til dæmis með tilliti til hvers kon-
ar flutninga, og eins yrði hugað
að ferðamanna- og náttúruvernd-
armálum.
HS
Fimmtudagur 24. mars 1988 FJÓÐVILJINN — SlÐA 13