Þjóðviljinn - 24.03.1988, Qupperneq 18
ALÞÝÐUBANDALAGIP
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur í bæjarmálaráði ABH verður haldinn laugardaginn 26. mars kl.
10.00 í Skálanum, Strandgötu 41.
Dagskrá: Staðan í bæjarmálunum. Útgáfumál og önnur mál. - Formaður
ABR
Konur á norrænt kvennaþing
Konur sem hafa áhuga á norræna kvennaþinginu í Osló í sumar, mætið í
morgunkaffi laugardaginn 26. mars nk. kl. 11.00, á Hallveigastöðum við
Túngötu.
Konur í Alþýðubandalaginu.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Bæjarmálaráð
Fundur í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, mánudaginn 28. mars kl. 20.30.
Dagskrá: 1) Dagskrá bæjarstjórnarfundar 29. mars. 2) Umhverfismál og
heilbrigðismál. Fulltrúar Alþýðubandalagsins í viðkomandi nefndum leiða
umræður um þessa málaflokka. 3) Önnur mál. Allir velkomnir.
- Stjórn bæjarmálaráðs.
Alþýðubandalagið Kópavogi
Morgunkaffi ABK
Heiðrún Sverrisdóttir bæjarfulltrúi og Sigurður Grétar Guðmundsson full-
trúi í stjórn Félagsheimilisins verða með heitt kaffi á könnunni í Þinghóli,
Hamraborg 11, laugardaginn 26. mars frá kl. 10-12. Allir velkomnir.
Stjórnin.
-------------------------------------------
ABR
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Reykjavík heldur félagsfund þriðjudaginn 29. mars kl.
10.30. Rætt verður um málefni Palestínumanna og kjörin kjörnefnd fyrir
aðafund félagsins.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin.
ABR
Á döfinni
Morgunverðarfundur
laugardaginn 26. mars kl. 10.30
að Hverfisgötu 105. Bríet
Héðinsdóttir og Svavar
Gestsson reifa málefni
Ríkisútvarpsins.
Stjórn ABR
Svavar
Alþýðubandalagið á Akureyri
Félagsfundur
ABA boðar til félagsfundar í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, laugardaginn
26. mars kl. 14.00
Dagskrá: 1) Lárusarhús, umræður um nýtingu. 2) Önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórn ABA
Alþýðubandalagið Kópavogi
Spilakvöld ABK
Haldið verður áfram með hin vinsælu sþilakvöld 3 kvöld í viðbót. Sþilað
verður mánudagana 11. og 25. aþríl í Þi tghóli, Hamraborg 11
og hefst spilamennskan kl. 20.30.
Veitt verða kvöldverðlaun og heildarverðlaun sem eru helgarferð til Akur-
eyrar. Gisting í 2 nætur og morgunverður á Hótel KEA.
Allir velkomnir.
Stjórn ABK
ÆSKULÝÐSF YLKIN GIN
Skrifstofan opin á miðvikudögum
Skrifstofa ÆFAB er opin á miðvikudagskvöldum á milli kl. 20-22. Allar
upplýsingar um starfsemina og stefnumál.
Hringdu, eða það sem betra er, kíktu inn. Kaffi á könnunni.
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins, Hverfisgötu 105, sími 17500.
Verzlunar-
mannafélag
Reykjavíkur
Félagsfundur
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldurfélags-
fund í veitingahúsinu Glæsibæ kl. 20.30 í kvöld.
Fundarefni: Nýgerðir kjarasamningar.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
lÖRFRÉTTTIRi
Vinnustaða-
heimsóknir
íslensku óperunnar eru nú að
hefjast til kynningar á Don Gio-
vanni og Litla sótaranum. Óper-
an býðurstarfsmannahópum, 30
manns og fleiri, afslátt af miða-
verði og einnig býður veitinga-
húsið Torfan óperugestum af-
slátt af matarverði. Þeir vinnu-
staðir sem vilja fá óperufólk í
heimsókn geta haft samband í
síma 27033.
Sementsverksmiðjan
á Akranesi framleiddi rúm 127
þús. tonn af sementi á sl. ári en til
sementsbrennslunnar voru flutt
inn tæp 20 þús. tonn af kolum.
Vegna mikillar sementssölu á sl.
ári og langs ofnastopps vegna
endurnýjunar, gekk töluvert á
birgðir fyrra árs en um áramótin
voru til um 9.600 tonn af gjalli og
tæp 13 þús. tonn af sementi hjá
verksmiðjunni.
Líffræði hrognkelsa
er efni fyrirlesturs sem breski
sjávarlíffræðingurinn John Da-
venport flytur á vegum Líffræði-
stofnunar Háskólans í dag kl.
15.15. Fyrirlesturinn sem er
öllum opinn verður fluttur í stofu
G-6 hjá Líffræðistofnun HÍ að
Grensásvegi 12.
Tommarallið
hefst á morgun föstudag en það
er fyrsta rallaksturskeppni árs-
ins. 22 bílar eru skráðir til þátt-
töku. Ekið verður um Reykjanes
og höfuðborgarsvæðið og endað
á nýrri sérleið sem liggur með-
fram Laugardalshöllinni í Reykja-
vík, en þar verður ekið síðdegis á
laugardag.
Áskorendakeppni
og keppni í opnum flokki á Skák-
þingi Islands hefst á laugardag í
skákheimili TR við Grensásveg.
Tefldar verða 9 umferðir eftir
Monradkerfi og lýkur mótinu 4.
apríl á annan í páskum.
íslenskur markaður
sem rekur ferðamannaverslun-
ina á Keflavíkurtlugvelli hefur
tekið yfir rekstur Álafossverslun-
arinnar við Vesturgötu í Reykja-
vík. Verður Álafoss-nafnið notað
áfram á versluninni en nú er unn-
ið að því að færa húsnæðið, jafnt
að utan sem innan, í því sem
næst sitt upprunalega horf.
Breytingum á að Ijúka fyrir maí-
byrjun
Neytendamála-
ráðherrar
Norðurlandanna funduðu í
Stokkhólmi í vikunni um þróun
sameiginlegs markaðs Evrópu-
bandalagsins og áhrif hans á
norrænt samstarf um neytenda-
mál. Voru ráðherrarnir sammála
um að aðlögun að reglum um
EB-markaðinn megi ekki leiða til
þess að dregið verði úr neytend-
avernd á Norðurlöndunum.
Hið íslenska
náttúrufræöifélag hélt aðalfund
sinn á dögunum en nú eru skráðir
félagar tæplega 1840. Félagið
var stofnað árið 1889 og er með
elstu starfandi félögum landsins.
í stjórn félagsins eiga sæti: Þóra
Ellen Þórhallsdóttir formaður,
Hreggviður Norðdahl varafor-
maður, Björg Þorleifsdóttir ritari,
Ingólfur Einarsson gjaldkeri og
Ingibjörg Kaldal meðstjórnandi. I
varastjórn eiga sæti þau Gyða
Helgadóttir og Einar Egilsson.
Samtök gegn asma
og ofnæmi halda aðalfund sinn
að Norðurbrún 1, laugardaginn
26. mars kl. 14.00. Venjuleg að-
alfundarstörf og kaffiveitingar.
n
IÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSLANDS.
Eftirtalin námskeið
verða haldin á næstunni
hjá Iðntæknistofnun:
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ IÐNAÐARINS:
14. apríl Fræðsludagur um grundvallaratriði viðhalds og
viðgerða á husum. Timburhús og steypt hús. Bygg-
ingahlutar: þök, veggir, gluggar. Lagnir. Fyrirbyg-
gjandi viðhald og áhrif þess á rekstrarkostnað.
MÁLMTÆKNIDEILD:
25.-26. apríl Málmsuða - námskeið fyrir verkstjóra. Efnisfræði.
Val og meðferð suðuvíra. Gæðakröfur á suðu. Gerð
suðuferla. Eingöngu fræðileg kennsla. Námskeiðið er
ætlað verkstjórum. 16 stundir.
18.-20. apríl Suða með duftfylltum vír. Notkunarsvið, kostir og
gallar. Afköst, fjárhagsleg atriði. Flokkun suðuvíra og
helstu eiginleikar. Verklegar æfingar og sýnikennsla.
24 stundir.
11.-15. apríl Rafsuða/stúfsuða á rörum. - Útfærsla og frágangur
suðu. Gallar og orsakir þeirra. Flokkun og meðferð
rafsuðuvíra. 40 stundir.
apríl og maí CAD/CAM tækni. Farin verður hringferð um landið
með námskeið í lok apríl og byrjun maí. Nánar auglýst
síðar.
REKSTRARTÆKNIDEILD:
25.-30. apríl Stofnun og rekstur fyrirtækja. Ætlað konum. Haldið
á kvöldin og fyrir hádegi á laugardegi. Námskeiðinu er
ætlað að auka skilning þátttakenda á því, hvað
atvinnurekstur útheimtir, hvað þarf að athuga og hvað
þarf að varast. 15 stundir.
25.-27. apríl Vöruþróun. Vöruþróun, markaðssókn, leið til Petri
afkomu. Gerð framkvæmdaáætlunar, frá hugmynd til
framleiðslu. Leiðir til að fjármagna vöruþróun o.fl. 15
kennslustundir.
VERKSTJÓRN ARFRÆÐSLAN:
25.-26. apríl Samstarf og samvinna. Hvað er stjórnun og hvert er
hlutverk verkstjóra, skipulag samstarfs og samvinnu.
27.-28. apríl Stjórnunaraðferðir og starfshvatning. Farið er yfir
helstu kenningar í stjórnun og stjórnunarstíl, hvað
hvetur menn til vinnu og hvernig eiga góð verkfyrir-
mæli að vera.
29.-30. apríl Sala og markaðsmál. Farið er yfir helstu atriði í mark-
aðsmálum og markaðsfærslu, skipulagningu sölu og
dreifileiða, auglýsingar og kynningar o.fl.
25.-26. apríl Verktilsögn og vinnutækni. Haidið á Akureyri. Farið
er yfir skipulagða verktilsögn, móttöku nýliða og
starfsmannafræðslu, vinnuvistfræði, líkamsbeitingu
við vinnu.
18.-19. apríl Stjórnun breytinga. Haldið á Akureyri. Farið er yfir
stjórnun breytinga, hvernig er unnið að breytingum.
Starfsmannaviðtöl, hvernig virkja má starfsmenn til
að leysa vandamál o.fl.
11.-12. apríl Verkefnastjórnun. Haldið á Akureyri. Undirstaða
verkefnastjórnunar. Hlutverk verkefnisstjóra, myndun
verkefnishópa, vöruþróunarverkefni o.fl.
8.-9. apríl Tíðniathuganir og bónus. Tíðnirannsóknir og
hvernig meta má afköst hópa, verkstæðisskipulag,
hagræðing vinnustaða, afkastahvetjandi launakerfi.
6. -7. apríl Verkáætlanir og tímastjórnun. Farið er yfir undi-
stöðu í áætlanagerð og verkskipulagningu, CPM-
framkvæmdaáætlun, Gantt-áætlun á mannafla og
aðföngum.
15. -16. apríl PROJECT-forrit og verkáætlanir. Farið er yfir undir-
stöðu verkskipulagningar með aðstoð PC-tölvu,
kynning á tölvuforritinu PROJECT o.fl.
11.-12. apríl MULTIPLAN-forrit og greiðsluáætlanir. Farið er
yfir undirstöður áætlanagerðar með PC-tölvu, kennd
notkun á töflureikniforritinu MULTIPLAN.
13.-14. apríl Fyrirbyggjandi viðhald. Farið er meðal annars yfir
kerfisbundið viðhald véla, tækja og mannvirkja, o.fl.
18.-19. apríl Innkaupa- og lagerstjórn. Farið er meðal annars yfir
helstu atriði við skipulag innkaupa og lagerstjórn o.fl.
29.-30. apríl Undirstaða vinnuhagræðingar. Farið er yfir undir-
stöðu vinnuhagræðingar á vinnustöðum og helstu
hjálpartæki við hagræðingu og mat á árangri, o.fl.
7. -8. apríl Framleiðslustjórnun. Farið er meðal annars yfir
undirstöðuatriði í framleiðslustjórnun, innkaup o.fl.
VINNUVÉLANÁMSKEIÐ:
11 .-20. apríl Námskeið fyrir stjórnendur vinnuvéla. - Haldið (
Reykjavík.
22.-30. apríl Námskeið fyrir stjórnendur vinnuvéla. - Haldið á
Selfossi.
4.-12. maí Námskeið fyrir stjórnendur vinnuvéla. - Haldið á
Siglufirði.
Námskeið í Reykjavík eru haldin í húsakynnum Iðntækni-
stofnunar, nema annað sé tekið fram.
Nánari upplýsingar og innritun hjá stofnuninni í síma 91-
687000, Fræðslumiðstöð iðnaðarins í síma 91-687440 og
Verkstjórnarfræðslunni í síma 91-687009.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA!
ÁugWs^Ip)óövil^um
Sími681333