Þjóðviljinn - 10.04.1988, Page 4
SUNNUDAGSPISTILL
Tveir Palestínumenn voru
skotnirtil bana í átökum á
Gazasvæðinu í gær.Sex Pal-
estínumennvoruskotnirtil
bana í átökum við ísraelska
hermenn á Vesturbakkanum í
fyrradag... Svona halda
dagsfréttirnar áfram að síast
inn um sljóar hlustir okkarog
sjónvarpsaugu og kannski
yppta menn öxlum eins og
svo oft áður og hugsa sem
svo: Þaðeru alltafeinhver
djöfuls læti þarnafyrirbotni
Miðjarðarhafs. Sæll er sá sem
erlausviðþau. Þóerlíklegtað
margir reyni að draga ein-
hverjar lágmarksályktanir af
fréttunum og þær yrðu vænt-
anlega á þessa leið: Ekkert
verður eins og áður. Ráða-
menn í ísrael verða að gefa
upp á bátinn gömul og ný
áform sín um að innlima her-
numdu svæðin í ísrael, ræða
við PLO og semja um stofnun
Palestínuríkis við hlið ísraels.
Á þann veg hugsa margir í ísra-
el sjálfu þótt þeir séu í minnihluta
þar, í einhverjum slíkum ályktun-
um sameinast utanríkisráðherrar
á Norðurlöndum, obbinn af
Þriðja heiminum, talsmenn So-
vétríkjanna og furðu margir
bandarískir Gyðingar og mætti
svo lengi bæta við listann ólík-
legum sessunautum. Þetta er
merkilegt, en náttúrlega er alls
ekki víst að þetta dugi til.
Vitundarvakning
En hvað sem því líður: það er
meira en ómaksins vert að skoða
hvaða þýðingu uppreisn Palest-
ínumanna hefur nú þegar haft
bæði fyrir Palestínumenn og ísra-
ela.
Að því er varðar Palestínu-
menn hefur þetta hér helst gerst:
Vitundarvakning hefur átt sér
stað meðal þeirra, þeir hafa öðl-
ast sjálfstraust sem þeim er mikill
akkur að í framtíðinni. Upp-
reisnin hefur eins og sópað burt
lamandi ömurleika hins óbreytta
ástands, sem hernámasveldið ís-
rael hafði vonast til að yrði sér í
hag þegar til lengdar lætur.
Uppreisnin hefur fært Palest-
ínumönnum fyrsta sigurinn sem
um munar í áróðursstríðinu við
ísrael og breytt verulega almenn-
ingsálitinu í heiminum.
Engin
„jórdönsk" lausn
Uppreisnin hefur styrkt kröf-
Palestínumenn í uppreisnarhug: Óbreytt ástand kemur ekki aftur.
una um ríki Palestínumanna á
Vesturbakkanum og Gazaströnd
sem lágmarkskröfu. M.ö.o. -
hún hefur skotið í kaf viðleitni til
að finna einskonar „jórdanska"
lausn, sem væri í því fólgin að
afhenda Jórdaníu aftur forræði
yfir mestöllum Vesturbakkan-
um. Menn hafa reyndar tekið
eftir því, að í Jórdaníu er strang-
ari ritskoðun á sjónvarpsfréttum
sem sýna átökin á hernumdu
svæðunum en í ísrael sjálfu:
Ástæðan er sú að þótt Hússein
konungur gjaldi varaþjónustu
samstöðunni með Palestínu-
mönnum, hræðist hann eins og
aðrir einræðisherrar það fordæmi
sem uppreisn þeirra gefur í hans
eigin landi meira en flest annað.
Hann mundi ekki kæra sig um að
fá undir sína stjórn mikinn fjölda
manna sem hefðu fengið þjálfun í
virku andófi gegn yfirvöídum.
Aðrar óherslur
Uppreisnin hefur skipt ísra-
elsku samfélagi í andstæðar fylk-
ingar. Þeir sem hafa ráðið ferð-
inni í ísrael hafa til þessa reynt að
viðhalda þjóðareiningu hjá sér
með því að hamra mjög á „al-
gjörum fjandskap" Palestínu-
manna í garð ísraels: Arabar vilja
leggja ísrael niður, segja þeir,
þeir kalia okkur fasista sem hefðu
aldrei átt að vera til - þess vegna
er ekki hægt að semja við þessa
menn. En eins og palestínsku
háskólakennari, Azmi Bishara,
segir í nýlegu viðtali, þá hafa upp-
reisnarmenn nú ekki haft uppi
nein vígorð gegn gyðingum sem
slikum eða kröfur um „Palestínu
alla“ heldur haldið sig fast við
kröfuna um Palestínuríki við hlið
Israels, hina svokölluðú „tvegeja
ríkja lausn“.
I fjórða lagi telja margir (um
það eru menn vitanlega ekki sam-
mála) að uppreisnin hafi sýnt
framá það að eina leiðin til að fá
einhverju framgengt á hernumdu
svæðunum séu fjöldaaðgerðir án
vopnavalds. Þær hafi að minnsta
kosti reynst miklu hættulegri
Israelsher en skæruhernaður sá
sem PLO hefur reynt að halda
uppi.
Klofningur í ísrael
Meðal ísraela hefur sú þróun
orðið síðustu vikurnar, að æ fleiri
gera sér grein fyrir því að
„óbreytt ástand" verður ekki
framlengt á hernumdu svæðun-
um. Um leið er það augljóst, að
ísraelskt samfélag er í vaxandi
mæli klofið um það hvað taka
skuli við af óbreyttu ástandi.
Þeim fjölgar sem hafa allt frá því
á dögum innrásarinnar í Libanon
andæft þeirri herskáu landvinn-
ingastefnu sem hefur átt sér
öfluga forystu í Líkúd, hægri-
blökk þeirra Begins og Shamirs.
Ýmsir þeirra taka undir við friða-
rsinnann Ury Avnery, sem hefur
lengi boðað þá kenningu að ekki
þurfi aðeins að frelsa hernumdu
svæðin undan ísrael heldur fsra-
elsmenn undan hernumdu
svæðnunum (á þeirri forsendu að
hernámið tryggi alls ekki öryggi
ríkisins eins og margir hafa haldið
fram, heldur veiki stöðu þess inn
áviðsem útáviðjafnt ogþétt). Á
hinn bóginn er enginn skortur á
þeim heldur sem taka undir við
Shamir forsætisráðherra sem
telja fsraela „eiga“ Vesturbakk-
ann og veifa m.a. Biblíunni tali
sínu til stuðnings.
Réttlœtingum slátrað
Hvað sem því líður: það er ljóst
4 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 10. apríl 1988