Þjóðviljinn - 10.04.1988, Blaðsíða 6
„Martin Berkofsky
spilar ungverska rapsódíu nr. 10
eftir Franz Liszt...“
... heitir málverkasýning Guðmundar Björgvinssonar sem nú stendur yfir í
vestursal Kjarvalsstaða. Hugurinn staldrar við þessa sérkennilegu yfirskrift
meðan listamaðurinn stormar inn í salinn á nýjum vaðstígvélum, regnkápan
flaksast og úfið hárið líka. Hann glottir gegnum skeggið. Einhver kallaði hann
„Jesús á hjólinu”. Ég held ég viti ástœðuna.
Kaos og kosmos
- Veit Berkofsky af þessu?
„Nei, hann hefur ekkert frétt
af þessu.“
- Hvaö á þetta að þýða? Ertu
að mála músík?
„Ég varð fyrir sterkum áhrifum
á tónleikum hjá Martin Berkof-
sky sem hann hélt 18. febrúar
1985. Hugurinn fór í ferðalag og
þessi sýning mín er tilraun til þess
að endurspegla það. Tónlistin er
kveikjan að því sem þessi sýning
snýst um. - Eða ég get sagt að
málverkin séu formbreyting á
þessari upplifun.
Þarna er um að ræða mynd-
ræna úrvinnslu af þessari reynslu
minni - að hlusta á Berkofsky
spila rapsódíu eftir Liszt.
Reynslan er liðin en eftir standa
myndirnar. Fyrir neðan þær
hanga nóturnar að rapsódíu nr.
10 eftir Franz Liszt: myndræn
skjalfesting tónlistarinnar. En al-
veg eins og nóturnar gefa ófull-
komna endurspeglun af sjálfu
tónverkinu þá eru myndirnar að-
eins veikur endurómur af þeirri
lífsreynslu sem þær eru sprottnar
af.
Ég hef undanfarið verið uppt-
ekinn af þeim öflum sem skapa
og tortíma og ég held að það sjá-
ist augijóslega af sýningunni
minni. Þarna koma við sögu ýmis
tákn: svartur litur, myrkur, hell-
ir, brunnur - allt eru þetta hugtök
sem tengjast óskapnaði, glund-
roða og óvissu. Svarti liturinn
einn og sér er í mínum huga ekki
eingöngu ígildi tómsins, einfald-
lega vegna þess að hann hefur
fólgna í sér alla Iiti - henn getur
orðið að hverju sem er, umbreyst
fyrirvaralaust í blátt eða gult. Á
sama hátt er hægt að líta með vel-
þóknun á kaosið því það hefur
fólgna í sér möguleikana til að
geta umbreyst í hvað sem er. í
þríröðinni af Franz Liszt er áhorf-
andinn á leið inn í myrkviði hug-
ans þar sem allt getur gerst. Eftir
því sem nær dregur verða allar
viðmiðanir afstæðari, öll hlutföll
og form skekkjast og við tekur
einhver afstrakt furðuveröld. í
mínum huga er kaosið ekki bara
óreiða, það felst í því lykillinn að
jafnvæginu - líkt og í genunum
leynist lykillinn að heilli
mannveru. Kosmosið er enda-
laus viðleitni til að ná jafnvægi
sem kannski næst aldrei. Þessi
sýning er ferðalag frá kaosi til
kosmosar - og í þessu ferðalagi er
fólgin áhætta: Við getum aldrei
verið viss um hvert förinni er
heitið.“
- Þetta hljómar nú allt svolítið
háfleygt.
„Nú? Það var ekki meiningin."
Og Guðmundur kímir gegnum
skeggið.
- Þú nefnir svarthol. Ertu í
aðra röndina að endurspegia
svartholið í sjálfum þér?
rýnendur vissu naumast hvaðan
hann blés. Þarna eru mörg fræg-
ustu verk listasögunnar tekin og
sett í nýtt samhengi, snúið út úr
þeim og þau skrumskæld að geð-
þótta listamannsins. Mörgum
fannst að þarna hefði verið farið
fram á ystu nöf (og jafnvel fram
af) og skiptust dómar eftir því í
tvö horn.“
- A hvaða róli ertu núna?
„Ég hef enga þörf fyrir að festa
mig í einhverjum ákveðnum stíl.
Ég geri það sem heillar mig mest í
hvert sinn. Oft er talað af mikilli
virðingu um listamenn sem hafa
markað sér ákveðinn persónu-
legan stíl - og ég samgleðst þeim
sem finna sig á einhverju tiltölu-
lega þröngu sviði og eru ánægðir
þar. Á hinn bóginn vona ég að
þetta komi seint fyrir mig. Ég
held nefnilega að of oft verði
listamenn þrælar þessa persónu-
lega stíls sem er nánast troðið upp
á þá. Þetta getur gerst þannig að
listamaðurinn fái hól og aðdáun
gagnrýnenda og annarra, sem
hann tekur mark á, fyrir einhvern
tiltekinn stfl. Tilhneigingin verð-
ur síðan sú að gera svipaða hluti,
að keyra sömu brautina enda-
laust.
Ég hef málað háraunsæislegar
myndir og algerlega óhlutbund-
nar myndir, ég sé enga þversögn í
því. í þessari sýningu er ég meðal
annars að benda í samhengið í
ýmsum liststílum, til dæmis reyni
ég að draga það fram að aukin
nálægð leiðir til afstraktsjónar.
Annars á það ekki að skipta
neinu máli hvaða leið listamenn
kjósa. Hitt finnst mér skipta
miklu máli að þeir séu sjálfum sér
samkvæmir og hafi nautn af
sköpuninni. Þeir eru hvort sem er
hlutar af stærri heild, eins konar
hryggjarliðir í ógnarlöngum
ormi.“
U.S.A.
- Hvaða menntun hefurðu
hlotið í myndlist?
„Eftir menntaskólann fór ég til
Bandaríkjanna, til Kalíforníu.
Þar var ég í háskóla 1974—1976.
Þessi skóli var skilgetið afkvæmi
’68 umrótsins, hann var stofnað-
ur 1969 og sótti allt sitt til menn-
ingarstrauma þessara ára. Hann
hét Johnston College og var hluti
af University of Redlands. Mér
skilst að það sé núna búið að
leggja hann niður.
Þarna kenndi m.a. Frakki sem
hafði verið fangelsaður í stúd-
entaóeirðunum í París og hafði
frá ýmsu að segja. Þarna var
frelsið dýrkað og sjálfstæð hugs-
un sett í öndvegi. Það voru gerðar
tilraunir með þessa heilögu kú
sem nefnd er iýðræði: Stúdentar
höfðu t.d. jafnan atkvæðisrétt í
stjórn skólans á við kennara.
Hugsjónir voru gerðar að veru-
leika og afleiðingarnar eftir því,
„Vissulega. En svarti liturinn
er ekki endilega neikvæður, hann
þarf ekki að tengjast þunglyndi
eða drunga. OU listsköpun
sprettur úr einhvers konar svart-
holi.
Sköpun myndar og sköpun
heims er fyrir mér mjög sambæri-
legt ferli, þarna er um að ræða
mýtu sem er kunnug öllum
mönnum á öllum tímum. Þetta er
ekkert sem ég er að finna upp (-
því miður!) heldur eitthvað sem
ég hef sterka tilfinningu fyrir.“
Myndbreytingar
Það er liðinn meira en áratugur
síðan Guðmundur hélt sína fyrstu
einkasýningu, þá nýkominn úr
námi frá Bandaríkjunum. Á
þessum tíma hafði hann þá þegar
markað sér persónulegan stfl
með mjúkum og draumkenndum
mjúkum og draumkenndum krít-
hvítum og raunsæislegum.
Skömmu eftir 1980 söðlaði Guð-
mundur um og sýndi myndir
byggðar á blandaðir tækni. Þetta
eru fremur litlar myndir í öllum
regnbogans litum með áherslu á
rautt ogsvart. Mótívin eru hálflíf-
ræn: einstakir líkamshlutar í tor-
kennilegu landslagi. Mjúkar lín-
ur hafa hér horfið fyrir ögrandi
krafti, beinum strikum og öfga-
kenndri birtu. Árið 1983 hélt
Guðmundur síðan sýningu í ey-
stri sal Kjarvalsstaða og nefndi
hana „Rennt í gegnum Iistasögu-
na“. Aftur hafði hann haft ham-
skipti, nú var málverkið í önd-
vegi. Þarna var rótgrónum við-
horfum ógnað og gikkfastir gagn-
Guðmundur að vinna við Þórslíkneski við höggmyndadeild Redlandsháskóla.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Sunnudagur 10. apríl 1988