Þjóðviljinn - 10.04.1988, Page 17
VILHU rrtlB t>16
Nýja tekiuöfku3arkerfið
er einfaldara,
skilviikara
og réttlátara
BntoMsHs________________ RÓMlWwtj
AC
fcárwafcjiiiw.....
suakn«»»» r.fv.« m , trtrUim
TxOltoÍtiMfírtÍ wytUx <<t< »>Km : '«ío <*:■> <•«>>»») tpamt.mutHtiilM :
«6:d« >»«•« «»:<'>* »tdwr »
tlpjl V«l«>:..V.n,*t*V» ««:
>•>' - bti:<.«íl>lntf).lírt>,<kMt.»t(>«»rtSíVil*M<l
»:•: « « bií.toS t»f 4f; >ú>«»í ktbo;.>» <0.
Uf«!MÍ«Mso-»wd b»t>;o l»ro: tiWíía : :
' ‘ •>«. kt.»»10'.««k> oW.
>UNEYTIÐ:
Pólitísk spilling í
fjármálaráðuneytinu
Fyrir nokkrum árum var Al-
þýðuflokkurinn boðberi sið-
væðingar í íslenskum
stjórnmálum. Hann setti fram
kröfur um heiðarlega meðferð
á opinberum fjármunum,
barðist gegn misnotkun á al-
mannafé og ítrekaði að
strangt aðhald væri nauðsyn-
legt til að koma í veg fyrir pólit-
íska spillingu ístjórnkerfinu.
Nú er Alþýðuflokkurinn með
húsbóndavald í Stjórnarráðinu
og formaður flokksins stýrir fjár-
málaráðuneytinu. Hefur hafist
nýr tími siðferðislegrar endur-
reisnar? Hefur „flórinn verið
mokaður" svo að notuð séu fleyg
orð formannsins? Nei, því miður
ekki. Þvert á móti hefur Alþýðu-
flokkurinn nú hafist handa um að
innleiða á íslandi nýja tegund pó-
litískrar misnotkunar á opinberri
aðstöðu og fjármunum ríkisins.
Þessi nýjung er vísbending um
pólitíska spillingu sem óvandaðir
valdastreitumenn hafa beitt sums
staðar erlendis en ísland hefur
hingað til verið blessunarlega án.
Ráðherrar Alþýðuflokksins í
fjármálaráðuneytinu og við-
skiptaráðuneytinu hafa gerst
brautryðjendur þessarar pólit-
ísku spillingar hér á landi. Jó-
hanna Sigurðardóttir hefur hins
vegar ekki tekið þátt í þessari
misnotkun á aðstöðu. Sýnir sú af-
staða hennar mikinn siðferðis-
styrk.
Pólitískar auglýsingar
Fyrir nokkru fóru að birtast í
dagbiöðum heilsíðu auglýsingar
frá fjármálaráðuneytinu. Þetta
voru glæsilegar auglýsingar í
öllum regnbogans litum. Ekkert
til sparað enda auglýsingastofa
fengin til að vinna verkið.
Heildarkostnaður við hverja
auglýsingu nam mörg hundruð
þúsundum króna. Útgjöldin
vegna auglýsingaherferðarinnar í
heild eru örugglega talin í
milljónum.
Efni auglýsinganna var hins
vegar ekkert tengt sérstökum
verkefnum ráðuneytisins. Hér
var á ferðinni hreinn flokkspólit-
ískur áróður sem eingöngu átti að
þjóna hagsmunum Alþýðu-
flokksins enda auglýsingastofan
sú sama og hannaði áróður Al-
þýðuflokksins í síðustu alþingisk-
osningum.
Texti auglýsinganna var af
ýmsu tagi. Lofsöngur um nýju
skattana og áróðursfrasar fjár-
málaráðherrans í fyrirsögnum:
„Einfaldara, skilvirkara og rétt-
látara“. Litprentaðurdýrðaróður
um breytingarnar sem almenn-
ingur kallar matarskattinn og
einnig hinar sem færa forstjóran-
um með hálfu milljónina á mán-
uði sömu skattprósentu og fisk-
vinnslukonunni. Þetta heitir í
auglýsingu fjármálaráðuneytinu
„Velferð fyrir þig“ og íslensku
fánalitirnir eru settir fyrir ofan
slagorðið til að setja þjóðlegt dul-
argervi á þetta nýja áróðurstrikk.
Síðan er nafn fjármálaráðuneyt-
isins feitletrað fimm dálka.
í næstu auglýsingalotu voru
svo breiðsíður með fyrirsögninni
„Hvar er bruðlað í ríkisrekstrin-
um?“ Og aftur slagorðið „Vel-
ferð fyrir þig“, fánalitirnir og
fjármálaráðuneytið fimm dálka.
Textinn var hins vegar rýr. Hug-
myndir um sparnað í ríkisrekstr-
inum á að senda til Jóns Baldvins.
Sniðugt trikk. Rándýrar auglý-
singar sem Kátamaskínan hannar
til að gera úr formanni Alþýðufl-
okksins riddara gegn bruðlinu í
ríkisrekstrinum - fjármálaráð-
herranum sem er sjálfur fors-
prakkinn í nýjasta bruðlinu!!
Sömu dagana eru svo endur-
peningum úr ríkiskassanum til
Kátumaskínunnar.
Auglýsingastofan hefur gert
birtar í sífellu heilsíðurnar með
auglýsingum frá ráðuneyti hins
Jónsins. Vörumerki áróðursins
frá viðskiptaráðuneytinu er hins
vegar ekki fólgið í fánalitunum og
„Velferð fyrir þig“ heldur nær-
mynd af alsjáandi auga til að
koma inn hjá lesendum þeirri
fullvissu að Alþýðuflokkurinn í
viðskiptaráðuneytinu vaki eins
og Stóri bróðir yfir verðlaginu.
Hingað til hefur Verðlagsskrif-
stofan annast þetta verkefni en
pólitískir hagsmunir Alþýðu-
flokksins krefjast þess að Jón Sig-
urðsson fái líka sína auglýsinga-
herferð. Og hvað munar fjármál-
aráðuneytið um að borga hærri
og hærri reikninga frá auglýsing-
astofunni Kátamaskínan?
Kótamaskfnan
Já. Kátamaskínan. Erþað ekki
í stíl að verktaki Alþýðuflokks-
ráðherranna í auglýsingabrans-
anum skuli heita þessu skemmti-
lega nafni? Enda eru eigendur
auglýsingastofunnar ánægðir
með viðskiptin. Ráðherrar Al-
þýðuflokksins treysta okkur og
þekkja okkar vinnubrögð, sagði
forstjóri Kátumaskínunnar í
blaðaviðtali aðspurður um her-
ferðina. Hvaðan koma þau
kynni? Jú, úr kosningabaráttu
Alþýðuflokksins. Þá annaðist
Kátamaskínan Alþýðuflokkinn.
Nú heldur hún því áfram. Munur-
inn er bara sá að þá átti Alþýðufl-
okkurinn að borga áróðurinn
sj álfur. Nú borgar hins vegar fj ár-
málaráðuneytið - ríkið og þar
með skattgreiðendur - þennan
áróðursbrúsa Alþýðuflokksins.
Fjármálaráðherrann sem spyr í
heilsíðuauglýsingum „Hvar er
bruðlað í ríkisrekstrinum?" hefur
komið sér upp sérstakri maskínu
- Kátumaskínunni - til að geta
látið ríkið borga flokkspólitískan
áróður Alþýðuflokksins.
Það vita allir að kosningabar-
átta Alþýðuflokksins var dýr.
Skuldir flokksins eru miklar.
Reikningarnir frá Kátumaskín-
unni vegna kosningaáróðursins
voru háir. Kannski eru þeir
greiddir - kannski ekki. Það er
hins vegar staðreynd að fjármál-
aráðuneytið mokar nú drjúgt
„góðan deal“ við ríkið. Hún fær í
sínar hendur dýrustu auglýsinga-
herferð sem um þessar mundir
setur svip á fjölmiðlana. Dágóð-
an hagnað. Alþýðuflokkurinn
fær líka „góðan deal“ við auglýs-
ingastofuna. Innstæður vegna
næstu kosningabaráttu hækka
vegna viðskiptalegrar góðvildar
flokksins hjá Kátumaskínunni.
Og allt er þetta flokknum að
kostnaðarlausu. Ríkið borgar.
Fordœmið
Þessi auglýsingaherferð Al-
þýðuflokksins á kostnað fjár-
málaráðuneytisins skapar hættu-
legt fordæmi: nýja tegund af pó-
litískri spillingu í íslenskum
stjórnmálum. Ef þessi misnotkun
á opinberum fjármunum verður
látin viðgangast þá er verið að
opna flóðgáttir fyrir siðlausu
samspili auglýsingastofa og
stjórnmálaflokka.
Hið nýja spillingarkerfi yrði al-
ger eftirmynd af þessum nýju
vinnubrögðum Alþýðuflokksins.
Það gæti orðið þannig í stórum
dráttum:
1. Kosningabarátta verður sí-
fellt dýrari. Auglýsingar í blöðum
og sjónvarpi kosta milljónir.
Flokkarnir eru févana. Foringjar
flokks gera samning við auglýs-
ingastofu um áróðursherferð
fyrir kosningar. Auglýsingastof-
an veit að flokkurinn á ekki fyrir
kostnaðinum en eftir kosningar
kemur að myndun ríkisstjórnar.
Takist auglýsingastofunni að afla
fylgis fyrir flokkinn aukast lík-
urnar á að hann fari í ríkisstjórn
og fái aðstöðu til að úthluta
auglýsingaherferðum ráðuneyt-
anna til auglýsingastofunnar.
2. Auglýsingastofan tekur
áhættu en það er algengt í við-
skiptum. Ef allt gengur vel þá
launar flokkurinn með því að
greiða til auglýsingastofunnar
vænar fúlgur úr ríkissjóði vegna
auglýsinga sem yrðu af sama tagi
og fjármálaráðuneytið og við-
skiptaráðuneytið hafa birt und-
anfarið. Hreinn pólitískur
áróður. Þessi nýja misnotkun
festist í sessi. Ráðherrar annarra
flokka vilja gera það sama. Þeir
hafa líka sínar auglýsingastofur.
Innan tíðar yrðu auglýsingastof-
urnar sem önnuðust kosningaá-
róður Framsóknarflokksins og
Sjálfstæðisflokksins líka komnar
með væn viðskipti við ríkið.
3. Fjölmiðlarnir myndu fyllast
af afurðum þessara nýju við-
skipta auglýsingastofanna og rík-
isstjórnarflokkanna. Heilsíður
um árangur hins glæsilega iðnað-
arráðherra með sæstrenginn í
hendi. Menningin í blóma og
menntamálaráðherrann sífellt að
efla listir og fræðslu. Utanríkis-
ráðherrann á alþjóðavettvangi að
halda á lofti merki sjálfstæðrar
utanríkisstefnu. Myndir af
Steingrími, Gorbatsjov og
Arafat. Jón Helgason að rækta
landið milli fjalls og fjöru. Guð-
mundur Bjarnason að lækna
sjúka. Og þannig áfram. Viku
eftir viku eftir viku. Slíkar auglýs-
ingabreiðsíður væru í reynd ekk-
ert fáránlegri en sá áróður sem
Jónar Alþýðuflokksins hafa látið
ráðuneyti sín birta undanfarnar
vikur.
4. Svo lokast hringurinn með
nýjum kosningum í lok kjörtfma-
bilsins. Auglýsingastofurnar hafa
grætt stórfé á þeim viðskiptum
sem ráðherrarnir hafa tryggt
þeim á kostnað ríkisins. Er þá
ekki eðlilegt - svona frá við-
skiptalegu sjónarmiði - að flokk-
ur ráðherrans fái vænan afslátt af
reikningnum vegna hinnar nýju
kosningabaráttu? „Hann hefur
nú reynst okkur svo vel hann Jón
okkar,“ kynnu þeir að segja hver
við annan hjá Kátumaskínunni í
kringum 1991. „Hvað eru það
annars margir tugir milljóna sem
Alþýðuflokkurinn hefur útvegað
okkur í ríkisviðskiptum síðan við
sáum um kosningaáróður flokks-
ins síðast? Eigum við ekki að láta
krata fá þetta ódýrt í ár? Það
verður kannski jafnað með nýj-
um ríkisauglýsingum eftir kosn-
16 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN
ÞAÐ GEFUR AUGALEIÐ
...að þú gctur haft áhrif á verðlagningu vöru og þjónustu
Hvar
erbruðlað
íríkisrekstrinum?
Fjármálaráðmteylið og cinstök
fagráðuneyti vttmn nú að tillögum sem
miða að því að það fé scm rlkts.sjóður
innhcimlir. uýtíst scm bcst til sant-
eiginlegra jw’rfa okkar
Jslenditiga.
þar scm rtkissjóður er
sameiginlegur sjóður
allra landsmanna. víJJ
ráðuneyiið f.1 scm flest.1
tíl liðs víð t-tg tfl nð
bcnda á hvað beiur
nuetti fara í tfkts-
rekstrtnum.
Ef þú hefur liugmyndtt um hvcmig
nv-ta ntegi bctur skattana þlna, hvctur
Fjármálaráöuncytið þíg til að scnda
tillðgur þínat bréfletðis scm fyrst.
Utanáskriftin er:
§gi$| nAtÍMÁLARÁDONfcynó
\ JlAf.lt.VHÍsU I StKISXr KSTRI-
AKXAtujvAi J • Iflt ttRVKtAVÍK
Rtkissjóður
SÚY á kröftt Ul að þú grtiðlr
■|Í11 sanuittarna skatta -
fí|£§|; þ" átt krufu tU að þcim
« 1ív''' sé skynsamlcga sarið.
ingar. Við tökum bara þá
áhættu!“
Kaliforníu-stíllinn
Þessi lýsing kann að virka ótrú-
leg á íslenska lesendur. En hún er
hins vegar raunhæf lýsing á þró-
unarmöguleikum þeirrar mis-
notkunar á opinberri aðstöðu
sem Jón Baldvin Hannibalsson
og Jón Sigurðsson hafa nú inn-
leitt í íslenska stjórnkerfið.
Þetta er afsprengi þeirrar teg-
undar spilltra stjórnmála sem
stundum hafa verið nefnd
„Kaliforníu-stíllinn“ og felast í
því að auglýsingastofur fara að
gera út stjórnmálamenn og
flokka í hreinum viðskiptatil-
gangi. Góður árangur fyrir
stjórnmálamann auglýsingastof-
unnar hefur einfaldlega í för með
sér aukin og ný viðskipti fyrir
auglýsingastofuna.
Alþýðuflokkurinn hefur hins
vegar fundið upp nýtt afbrigði
þessa Kaliforníustíls. í Banda-
ríkjunum eru það peningamenn
og fyrirtæki á bak við frambjóð-
endurna sem greiða kostnaðinn.
Hér láta kratarnir ríkið og skatt-
greiðendur borga brúsann. Slíkt
atferli yrði í Ameríku talið tilefni
afsagnar og málshöfðunar vegna
misnotkunar á opinberu fé. Mál-
ið yrði sett í hendur dómstóla til
umfjöllunar. Hér fær Kátamask-
ínan hins vegar að vera áfram á
fullu svingi með peningana úr
ríkiskassanum.
Verður spillingin
stöðvuð?
Fyrir nokkrum árum átti Al-
þýðuflokkurinn vaska talsmenn
sem börðust gegn spillingu í með-
ferð opinberra fjármuna. Hvar
eru þeir nú? Vonandi eru enn
innan Alþýðuflokksins áhrifa-
menn sem hafa siðferðislegan
styrk til að knýja ráðherrana tvo
til að nema staðar á þessari
hættulegu braut. Fordæmi Jó-
hönnu Sigurðardóttur ætti að
vera slíkum öflum innan Alþýð-
uflokksins hvatning til að grípa í
taumana. Hún hefur neitað að
láta draga félagsmálaráðuneytið
út í Kaliforníustíl Kátumaskín-
unnar.
Næstu vikur munu skera úr um
það hvort auglýsingaherferð fjár-
málaráðuneytisins hefur aðeins
verið tímabundin afglöp eða for-
leikur að nýrri tegund pólitískrar
spillingar á fslandi. Þá mun koma
í ljós hvort Kátamaskínan hefur
náð heljartökum á sálarheill Al-
þýðuflokksins.
Olafur Ragnar Grímsson
Fjármálaráðherrann er sjálfur
forsprakkinn í nýjasta bruðlinu.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
A
Frá Grunnskólum
Kópavogs
Innritun 6 ára barna (börn fædd 1982) fer fram í
skólum bæjarins mánudaginn 11. apríl og þriðju-
daginn 12. apríl ki. 13.00 til 16.00.
Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem
flytjast milli skólahvería, flytja í Kópavog eða
koma úr einkaskólum fer fram á skólaskrifstofu
Kópavogs, Hamraborg 12, 3. hæð, kl. 10.00 til
12.00 og 13.00 til 15.00. Sími 41988.
Skólafulltrúi.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Droplaugarstaðir
heimili aldraðra, Snorrabraut 56
Starfsfólk óskast til sumarafleysinga:
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar á hjúkrun-
ardeild heimilisins.
Starfsfólk á vistdeild og í eldhús, ræstingu,
þvottahús og fl.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 25811
miili kl. 9-12 f.h. virka daga.
Ifl REYKJMJÍKURBORG l||
MT Aau&vi Stöcávi 'lr
Þjónustuíbúðir aldraðra
Dalbraut 27
Starfsfólk vantar í vaktavinnu við umönnun -
hlutastarf.
Sjúkraliða vantar til sumarafleysinga í júlí og ág-
úst.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 685377.
■ mí Féla9smálastofnun
>|F Reykjavíkurborgar
Unglingaathvarf
Flúðaseli 61
Auglýst er eftir starfskrafti í 46% kvöldstarf.
Hér er um að ræða mjög fjölbreytt og gefandi
starf með unglingum á aldrinum 13-16 ára.
í athvarfinu eru 6-8 unglingar á hverjum tíma og
eru ástæður þess að þau leita stuðnings okkar
mjög mismunandi.
Starfshópurinn er lítill og samheldinn, og sam-
starfsandi er góður.
Æskilegt er að umsækjendur hafi háskóla-
menntun á sviði uppeldis-, félags-, kennslu- og/
eða sálarfræði, eða sambærilega menntun.
Umsóknareyðublöð fást á staðnum eða hjá
Starfsmannahaldi Reykjavíkurborgar, Pósthús-
stræti 9.
Umsóknarfrestur er til 30. 04.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
75595 eftir hádegi virka daga.
Auglýsið í Pjóðviljanum