Þjóðviljinn - 20.04.1988, Blaðsíða 3
Sjónvarpið:
Hrafninn
látinn
fljúga
Vinnur ekki uppsagn-
arfrestinn. Markús
Örn: Röð afatvikum
leiddi til brottrekstrar
Markús Örn Antonsson út-
varpsstjóri hefur sent Ingva
Hrafni Jónssyni fréttastjóra sjón-
varpsins bréf þar sem hann segir
upp ráðningarsamningi Ingva
Hrafns með venjulegum fyrir-
vara en biður hann jafnframt um
að víkja þegar úr starfi sínu.
„Vegna þeirra raða af atvikum
sem átt hafa sér stað á löngu tíma-
bili sá ég ekki annað fært, með
tilliti til hagsmuna fréttastofu
sjónvarpsins, en að segja upp
Ingva Hrafni Jónssyni frétta-
stjóra úr starfi yfirmanns frétt-
astofunnar,“ segir Markús Örn
Antonsson útvarpsstjóri um
þessa ákvörðun sína. „Þetta er
endanleg ákvörðun mín að vand-
lega athuguðu máli.“ Sem
kunnugt er af fréttum lýsti út-
varpsráð nýlega vantrausti sínu á
Ingva Hrafn og hefur sú ákvörð-
un örugglega legið til grundvallar
gerðum Markúsar. I gærkvöldi
var síðan haldinn fundur fram-
kvæmdastjórnar sjónvarpsins en
þar var ekki tekin efnisleg afstaða
til málsins af hendi stjórnarinnar,
enda valdið til að víkja Ingva
Hrafni alfarið í höndum útvarps-
stjóra.
Staða fréttastjóra verður bráð-
lega auglýst laus til umsóknar en
á meðan gegnir varafréttastjór-
inn, Helgi H. Jónsson, henni.
-FRI
Ingvi Hrafn
„Lit með
stolti yffir
farinn veg“
Óskar stofnuninni alls
góðs. Engar ástœður til-
greindar fyrir brottrekstri
Ingvi Hrafn Jónsson lét frá sér
fara eftirfarandi yfirlýsingu í
kjölfar uppsagnarbréfsins sem
honum barst frá útvarpsstjóra:
„Á þessum tímamótum lít ég hik-
Iaust með stolti yfir farinn veg og
gleðst yfir því trausti sem frétta-
stofa sjónvarpsins nýtur þrátt
fyrir að á stundum hafi gefið á
bátinn eins og verða vill.
Ég óska stofnuninni alls góðs
eins og ég hef ávallt gert í starfi
mínu sem fréttastjóri. Ég hefði
að vísu viljað að starfsferli mín-
um við stofnunina lyki með öðr-
um hætti. Nú er bara að snúa sér
af krafti að nýjum verkefnum."
Aðspurður sagði Ingvi Hrafn
einnig að engar ástæður hefðu
verið gefnar fyrir uppsögn hans í
bréfinu sem honum barst frá út-
varpsstjóra í gærmorgun. -FRI
FRÉTTIR
nn • •• •
1 jornin
Hafnargarðurinn að rísa
Vörubílar eru þegar byrjaðir að keyra grús ofan í Tjörnina. Fyrstu stálþilin
hömruð niðurífyrstueðaannarri viku maí
Verktakarnir hafa nú hafist
handa við að koma hafnar-
garðinum fyrir í Tjörninni. Upp-
fyllingin kemur til með að taka
a.m.k. viku og verður þá dælt
upp úr ráðhússlóðinni öllu því
vatni og öllum þeim leir sem þar
er nú. Að því loknu verður svo
tekið til við að koma stálþiljunum
í bergið og er áformað að fyrsta
þilið verði barið niður í fyrstu eða
annarri viku maí.
Guðjón Samúelsson hjá ístaki
stjórnar framkvæmdum við
Tjörnina og sagði hann í samtali
við Þjóðviljann að íbúarnir við
Tjarnargötuna þyrftu vonandi
ekki að missa svefn vegna barátt-
unnar við stálið því fyrirhugað
væri að fá vökvadrifinn „víbra-
sjónshamar“ en hann er að sögn
Guðjóns talsvert hljóðlátari en
loft- og díseldrifin verkfæri sömu
náttúru.
Guðjón sagði einnegin að hans
von væri að ekki þyrfti að koma
til þess að unnið yrði lengur en 10
tíma á dag því mennirnir væru
ekki par glaðir með að vinna
lengur. Það mundi þá þýða að
íbúarnir þyrftu ekki að missa
svefn vegna barsmíða fram á
rauða nótt og svefnfriður unga-
barna yrði að mestu tryggður.
Guðjón sagðist vona að þeir
þyrftu ekki að vinna lengur en
fram að kvöldmat en að auðvitað reglusamþykktar þess efnis að 22.00, ef þeir nauðsynlega
mundu þeir nýta sér ákvæði lög- leyfilegt sé að hamra frá 7.30 til þyrftu. _tt
Vörubílarnir keyra nú hvert hlassið á fætur öðru í Tjörnina en gröfumaðurinn segir að endurnar á Tjörninni
séu „sko engar mótmælendur"; þeir hafi verið óáreittir fram að þessu. Mynd E.ÓI.
Stúdentapólitíkin/SÍNE
Sjálfstæðisflokkurínn hér
Sjálfstœðisflokkurinn að tryggja sér vinnufrið í LÍN.
Breytingar á námslánum framundan
Framboði Sambands ungra
sjálfstæðismanna innan SINE
er sennilega ætlað að tryggja
Sjálfstæðisflokknum frið við
væntanlegar breytingar á reglum
Lánasjóðsins. Formaður SÍNE
sejgir listaframboð SUS í stjórn
SINE vera níðingsverk.
Frétt Þjóðviljans af listafram-
boðinu hefur kallað fram við-
brögð. í Morgunblaðinu þann
í gær var Örn Friðriksson,
aðaltrúnaðarmaður starfsmanna
í Álverinu í Straumsvík, einróma
kosinn formaður Málm- og
skipasmiðasambands íslands og
14.apríl segir Jónas Egilsson,
einn frambjóðenda listans, SÍNE
hafa brugðist í kynningu fram-
bjóðenda. Kristján Ari Arason
formaður SÍNE segir þetta fjar-
stæðu; kynning á frambjóðend-
um hafi verið send öllum náms-
mönnum erlendis. „Hins vegar
barst okkur aldrei nein ósk frá
fimmmenningunum um sérstaka
kynningu á þeim, þau hafa ekki
sýnt neinn áhuga á að starfa að
tekur hann við formennsku af
Guðjóni Jónssyni sem hefur
gegnt stöðu varaformanns og for-
manns sl. 24 ár.
undirbúningi stjórnarkjörsins en
voru kynnt eins og aðrir
í kynningu SUS-listans segir að
með framboði sínu vilji hann
koma í veg fyrir pólitíska mis-
beitingu á SÍNE. Páll Þórhalls-
son, einn þeirra einstaklinga sem
eru í framboði, sagði í Morgun-
blaðinu þann ló.apríl þessa klá-
súlu hljóma eins og öfugmæla-
vísu. Kristján Ari sagðist ekki
vita til annars en SUS væru stór-
pólitísk samtök. Afskipti þeirra
af SÍNE væru ákaflega ósmekk-
leg og í hrópandi andstöðu við þá
ópólitísku grímu sem þau bregða
upp. Þetta er sama röksemda-
færslan og Vaka, félag hægri-
manna í SHÍ hefur notað.„Sam-
kvæmt þessari skilgreiningu eru
allir í stjórnmálum nema Sjálf-
stæðisflokkurinn" sagði Kristján
Ari.
Frambjóðendur voru allir
kynntir sem einstaklingar. Á
bakvið tjöldin fer SUS svo af stað
með leynilegt listaframboð og
misnotar félagaskrá SÍNE í því
sambandi eins og sagt hefur verið
frá í Þjóðviljanum.
Framboðskynning SUS-listans
var einungis send þeim náms-
mönnum sem fimmmenningarnir
töldu til stuðningsmanna Sjálfs-
tæðisflokksins.„Þetta sýnir svo
ekki verður um villst að hér er um
stórpólitískt framboð Sjálfstæðis-
flokksins að ræða,“ sagði Krist-
ján Ari. Þetta listaframboð hefur
farið mjög leynt, svo leynt að
stjórn SÍNE vissi ekki af því. For-
maður SÍNE skorar á
fimmmenningana að sýna sóma
sinn í að draga framboð sitt til
baka.
- hmp
Nýr formaður MSÍ
Miðvikudagur 20. apríl 1988 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 3
og þar
Hallgrímur Snorrason.
Bankaráð
Útvegsbankans:
Hallgrímur
formaður
- Gísli
gekk út
Hallgrímur Snorrason hag-
sýslustjóri var kjörinn for-
maður bankaráðs Utvegsbank-
ans á fundi þess í gær.
Við þessi tíðindi gekk Gísli Ól-
afsson úr ráðinu en hann var fyrr-
verandi formaður og taldi sér
stöðuna vísa. Báðir gáfu þeir kost
á sér í embættið og mun Gísli ekki
hafa verið látinn vita af málalok-
um fyrr en rétt áður en fundur
bankaráðsins hófst. Við sæti
Gísla í ráðinu tók varamaður
hans, Baldur Guðlaugsson.
-FRI