Þjóðviljinn - 20.04.1988, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 20.04.1988, Blaðsíða 10
„Buldi við brestur" Yfirstjórn Framsóknarflokksins hefur ákveðið að kveðja miðstjórn flokksins saman til fundar á næst- unni. Það er mun fyrr en til stóð og sætir því nokkrum tíðindum. Hið opin- bera tilefni fundarins er talið það að miðstjórnin sé ætlað að móta ákveðnar tillögur í efna- hagsmálunum, sem ráðherrar flokks- ins leggi svo fram í ríkisstjórninni. Er mál til komið því mánuðir eru nú liðnir síðan Steingrímur flutti sína frægu Rómarbrunaræðu og lýsti því yfir, að nú mættu raunhæfar aðgerðir ekki dragaststundinni lengur. En ekkert bólar á slökkviliðinu. Ráðherrar Framsóknarflokksins halda áfram að leika í gítarhljómsveitinni á meðan logarnir leika þjóðfélagið. Og nú hef- ur Framsókn loksins komist að þeirri niðurstöðu að slökkvitækin séu ónýt. Þá er miðstjórnarfundur kallaður saman til að smíða ný og ekkert hægt að gera fyrr en því „anstálti" er lokið. Á meðan verður bara að fara sem fara vill. Ráðherrar Framsóknarflokksins hafa aldrei flutt neinar tillögur í efna- hagsmálunum, segjasamráðherrar þeirra í hinum flokkunum. - Jú, víst, segir Steingrímur, - þetta er ósatt. Þjóðin er hinsvegar engu nær um það hver segir satt og hver ósatt. Steingrímur gæti sannað sitt mál með því að birta tillögurnar, ef þær eru til. Það hefur hann ekki gert. Þessvegna læðist að manni sá grunur, að Steingrímur sé með svartan blett á tungunni. Yfirlýsingar Framsóknar- manna um það, að þeir fái litlu ráðið um framvindu efnahagsmálanna af því að þeir hafi ekki „fengið" forsætis- , fjármála-, eða viðskiþtamálastó- lana, (er ekki Steingrímur með utan- ríkisviðskiptin?), styðja einnig þenn- an grun. Svo gegnsæar híalínsafsak- anir getur hinsvegar enginn tekið al- varlega. Auðvitað ber ríkisstjórnin í heild ábyrgð á gerðum sínum eða að- gerðaleysi. Að halda öðru fram er bara ómerkilegur kattarþvottur. Loks styður áformið um miðstjórnarfund- inn eindregið þá skoðun að ráðherrar Framsóknarflokksins hafi engar efnahagsmálatillögur lagt fram í ríkis- stjórninni, þrátt fyrir yfirlýsingar Stein- gríms fyrir mörgum mánuðum um að allt væri þá komið á ystu nöf. Eða því skyldu samráðherrar Framsóknar- flokksins gera meira með tillögur miðstjórnarfundarins en þærtillögur, sem ráðherrar flokksins segjast sjálfir hafa gert? Ætli það sé ekki sönnu næst að miðstjórnarfundurinn sé fyrst og fremst kallaður saman til þes að segja ráðherrum flokksins að for- ða sér úr ríkisstjórninni áður en þakið fellur? - mhg í dag er 20. apríl, miðvikudagur, síðasti dagur vetrarog þar með Einmánaðarlok. Sólin kemur upp í Reykjavík kl. 5.37 en sólsetur er kl. 21.18. Atburðir: Þjóðleikhúsið vígt 1950. Einokun- arverslun innleidd á íslandi 1602. Ell- efu stúdentar hertaka sendiráðið í Stokkhólmi 1970 og halda því um það bil eina klst. Þjóðviljinn fyrir 50 árum Framfarirnar í Sovétríkjunum hafa verið svo stórstígar síðustu fimm árin að það er eins og maður komi í annað land, (viðtal við Halldór Laxness). - Fulltrúarfrá Sovétríkjunum á þing norska verkamannasambandsins. - Stjórnarherinn heldursókn upp- reisnarmanna í Aragoníu í skefjum. - Danmörk að einangrast frá Norður- löndunum. ísland verður að athuga betur utanríkismálastefnu sína. - Hvað á að verða um atvinnu í sumar? Engin hitaveita? Engir verkamanna- bústaðir? Engarbyggingar? Engin atvinnubótavinna? Undir svona kringumstæðum fellir Alþingi með köldu blóði atvinnutilögur verkalýðs- insog Kommúnistaflokksins. - mhg UM ÚTVARP & SJÓNVARP 7 Við- eyjar- ferð Sjónvarp kl. 22.15 Sá, sem gengið hefur um Viðey á bjartri og lognkyrri vornótt gleymir því ekki svo auðveldlega. Eyjan sjálf er fallegri og fjölb- reytilegri en maður gæti fyrirfram haldið. Hún geymir mikla og merka sögu og útsýnið er dýrlegt. Eyjan var um skeið eitt mesta höfðingjasetur á íslandi. Síðar var þar stórbrotið athafnalíf á þeirrar tíðar mælikvarða, en síð- ustu áratugina hefur eyjan og mannvirki þar verið í algerri niðurníðslu. Nú stendur þar yfir mikið endurreisnarstarf og er mál til komið. - í kvöld sýnir Sjón- varpið heimildamynd um sögu og náttúrufar Viðeyjar. Myndin var áður á dagskrá fyrir 14 árum. - mhg. Gunnar M. Magnúss Útvarp, rás 1, kl. 16.20 1 dag og á morgun verður Barnaútvarpið helgað Gunnari M. Magnúss, sem nú er nýlátinn, hartnær níræður að aldri. Er vel til fundið að minnast Gunnars með þessum hætti því hann var einn af frumherjum íslenskrar barnabókaritunar. Fyrstur ís- lendinga skrifaði hann skáldsögu handa börnum og nefndi: „Börn- in frá Víðigerði". Kom hún út 1933. Bókin var ákaflega vinsæl meðal ungra lesenda og þar sem ég þekkti best til voru „Börnin frá Víðigerði“ á hverjum bæ. í augum barnanna voru þau hluti af heimilisfólkinu. Grámann í Garðshorni, Hlyni kóngsson og aðrir slíkir voru svo sem ágætir náungar en þeir komu frá löndum ævintýranna og erfitt að tengja þá því umhverfi, sem börnin þekktu. - Einhver þekktasta barnaskáldsaga Gunnars M. Manúss er „Suður heiðar“, sem kom út 1937. Hún var valin bók vikunnar í Barnaútvarpinu fyrr á þessu ári. Lesið verður úr bókum Gunnars, sagt frá barnabókum hans og auk þess heyrum við Gunnar sjálfan lesa úr síðustu barnabók sinni „Tveggja daga ævintýri“. Segir þar frá fimm ungum landvarnarmönnum, sem takast á hendur að verja landið fyrir innrás ískyggilegra Frans- manna. - mhg Gunnar M. Magnúss „Vísindin efla ...“ Sjónvarp miðvikudag, kl. 20.55 Nýjasta tækni og vísindi eru á skjánum í kvöld. Er þátturinn forvitnilegur að venju. Að þessu sinni verður fjallað um banda- ríska flugvél, sem flaug í einum áfanga umhverfis hnöttinn án þess að þurfa að taka nokkurt bensín á þeirri leið. Þá verður sýnd aðferð til þess að geyma sól- arorku, rétt eins og peninga í banka. Ennfremur tækni til þess að kortleggja heilann. Loks verð- ur sýnd mynd um jarðfræðikort- alagningu af íslandi. - Já, mikil eru verkin mannanna. - Umsjón- armaður er Sigurður H. Richter. - mhg. Schumann og Brahms Útvarp, rás 1, kl. 17.03 Það eru þeir Schumann og Brahms, sem ráða ríkjum í tónl- istarþættinum „Tónlist á síðdegi“ að þessu sinni. Fyrst verður flutt- ur ljóðaflokkurinn „Frauenliebe und Leben“ op. 42 eftir Robert Schumann, Birgitte Fassbaender syngur, Irwin Gage leikur á pí- anó. Þá er Sellósónata nr. 2 í F- dúr op. 99 eftir Johannes Brahms. Pierre Foumier leikur á selló og Jean Fonda á píanó. - mhg. GARPURINN o KALLI OG KOBBI Búinn að taka til í het berginu mínu. Og án þess að \ Gott hjá þér Kalli minn. Láttu þér samt ekki detta í hug að þetta verði að einhverjum vana! 1987 Umversal Press Syndicate FOLDA 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. april 1988 \ U >•

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.