Þjóðviljinn - 20.04.1988, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 20.04.1988, Blaðsíða 13
ERLENDAR FRETTIR Danmörk Hræðslukosningar í maí Schlúter boðar kosningar eftirþrjár vikur, segirþœr standa um Natóaðild. Kratar: Yfirvarp vegna erfiðleika ístjórninni Flest teikn benda til óvenju snarprar og óvægilegrar kosn- ingabaráttu í Danmörku eftir að Poul Schliiter forsætisráðherra kom undan feldi í gærmorgun og tilkvnnti þingkjör 10. maí. Akvörðun Schliiters kemur í kjölfar þingsályktunar á fimmtudag þarsem stjórnarand- stöðuflokkarnir samþykktu að skipherrar erlendra herskipa í danskri höfn yrðu í hvert sinn spurðir hvort þeir hefðu kjarn- orkuvopn um borð. Radikale Venstre, sem annars styður stjórnina, lagði vinstriflokkunum lið í þessu máli einsog fleiri utan- ríkismálum. Stjórn Schliiters hef- ur á ferli sínum orðið 23 sinnum undir í utanríkismálum á þinginu. Viðbrögð Breta og Banda- ríkjamanna hafa verið mjög hörð eftir þingssamþykktina, og vísaði forsætisráðherrann til þeirra þeg- ar hann fullyrti að þingkosning- arnar stæðu nú um Nató-aðild Danmerkur. Þetta vill stjórnar- andstaðan ekki viðurkenna, að minnsta kosti ekki jafnaðarmenn sem styðja Nató-aðild þráttfyrir gagnrýna afstöðu til ýmissar meg- ■"ÖRFRÉTTTIRi Abbas Ali Hammadi var í gær dæmdur í 13 ára fang- elsi fyrir aðild að mannráni í Beirút í janúar í fyrra. Dómurinn var kveðinn upp í Stuttgart og var nokkru þyngri en vesturþýskur saksóknari hafði krafist. Annar þeirra tveggja Vesturþjóðverja sem rænt var er enn í haldi, en samtök íransinnaðra sjíta í Líban- on, Baráttumenn frelsisins, tóku þá á sínum tíma til að reyna að fá bróður Abbas Ali, Muhammed Ali, lausan úr þýsku fangelsi þar- sem hann bíður enn dóms, sak- aður um flugrán og morð. Sam- tökin hafa hótað hefndum verði dómar þungir yfir bræðrunum. Stærsta farþegaskip heims verður fullbúið í Belfast árið 1992 ef áætlanir standast. Skipið verður 160 þúsund lestir, 354 metrar á lengd og er ætlað 3000 farþegum. Það er byggt fyrirTikko-skipafélagið á Baham- aeyjum. Skipið á að heita Draumurinn Ijúfasti (The ultimate Dream) og verður meira en helm- ingi stærra en stærsta farþega- skipið nú, Noregur, sem er rúmar 70 þúsund lestir. Smíðin í Harland-Wolf í Belfast á að kosta jafnvirði 18 miljarða íslenskra. Jackson og Dukakis voru menn dagsins í forkosning- um demókrata í New York-fylki í Bandaríkjunum í gær. Síðustu skoðanakannanir gerðu ráð fyrir nokkrum sigri Dukakis, og mikil kjörsókn þótti styrkja þær spár, - en þá á þeim forsendum að Jack- son hefði ekkert fylgi hvítra, sem ekki hefur gengið eftir annarstað- ar í kosningabaráttunni. Fyrir gærdaginn hafði Dukakis 887 trygga fulltrúa á flokksþing dem- ókrata, Jackson 756, en 2082 þarf í hreinan meirihluta. ( New York var kosið um 255 fulltrúa. Þriðji frambjóðandinn, Gore, var ekki talinn eiga teljandi mögu- leika þrátt fyrir stuðning borgar- stjóra New York borgar, Koch, í kosningabaráttunni sem hefur verið óvægin mjög og þótt lykta af kynþáttaerjum, einkum milli svartra og gyðinga. instefnu hernaðarbandalagsins, og segir Svend Auken, formaður krata, að samþykktin hafi beinst gegn kjarnorkuvopnum, ekki Nató. Samþykkt danska þingsins minnir mjög á afstöðu Nýsjálend- inga sem leiddi til misklíðar við Bandaríkin fyrir þremur árum. Stjórnarandstæðingar segja að hin raunverulega ástæða kosn- inganna séu erfiðleikar hægri- stjórnarinnar dönsku, en aðeins átta mánuðir eru liðnir síðan síð- ast var kosið, - og vilji Schliiter með nokkrum hætti hræða Nató- hollan meirihluta kjósenda til stuðnings við stjórnarflokka. Kristilegi þjóðarflokkurinn, einn stjórnarflokkanna fjögurra, var ósáttur við ákvörðun Schlut- ers um kosningar, enda viðbúið að hinir smærri borgaraflokkar eigi óhægt uppdráttar ef kosning- abaráttan snýst einkum um ör- yggismál og kjarnorkuvopn. reuter/-m Schliiter treystir á stuðning Re- agans og Thatchers til aukins þingstyrks. Persaflói Irönsk gagnhefnd í Kúvæt? Rólegra á Tiltölulega rólegt var á Persa- flóa í gær eftir snerruna milli írana og Bandaríkjamanna á mánudag, en þá féllu minnst 15 íranar og sennilega tveir Banda- ríkjamenn í herþyrlu. íranar misstu minnst fimm skip í bardögunum. íranar létu sér nægja í gær að ráðast að olíuskipi frá Sameinuðu furstadæmunum og leggja í það eld. Áhöfnin bjargaðist um borð í ómanskt herskip og björgunar- skipum öðrum tókst að slökkva eldana. írönsk stjórnvöld hafa hótað hefndum og tengja árásir Banda- ríkjahers á Flóanum við leifturá- Persaflóa en Iranar hóta gagnárás, talið að Kúvætsé íhœttu. Pravda kallar árás Bandaríkjahers á olíupallana bófaverk rás íraka um helgina þegar íranar Bandaríkjaher. misstu hinn hernaðarlega mikil- væga Faw-skaga. Rafsandjani forseti íransþings sagði í gær að tíminn ynni ekki lengur með íran og óskaði eftir sjálfboðaliðum í styrjöldina sem nú hefur staðið hálft áttunda ár. Þótt íranar hafi hótað banda- rískum hagsmunum um allan heim búast þeir sem gerst þekkja við að íranar muni nú snúa spjót- um sínum að arabískum grannríkjum við Persaflóa, eink- um Kúvæt, jafnvel með beinni eldflaugaskothríð. Þó er talið að franar muni forðast hefndir sem leitt gætu til verulegra átaka við Viðbrögð við hernaði Banda- ríkjastjórnar í Flóanum á mánu- dag eru misjöfn. Vestur- Evrópuríki styðja bandamenn sína, ýmist ákaflega eða dræm- lega, Kínverjar lýsa áhyggjum sínum án þess að taka beina af- stöðu, en helstu fjölmiðlar í Sov- ét hafa fordæmt aðgerðir Banda- ríkjahers, og Pravda segir árásina á írönsku olíupallana bófaverk. Hernaður Bandaríkjahers í Flóanum sé framinn til að við- halda vestrænum hagsmunum á svæðinu og eigi ekkert skylt við frjálsar siglingar, og þaðan af síður sé stefnt að lokum írans- írösku styrjaldarinnar. Pravda gagnrýnir einnig duflalagnir í Flóanum en skammar frana afar vægilega. Vestrænir sendimenn á svæð- inu segja að Sovétmenn vilji síst styggja frana, enda hafi þeir náð við þá nokkurskonar samkomu- lagi fyrir nokkru: franar standa ekki gegn friðartiiraunum í Af- ganistan og Sovétmenn styðja ekki alþjóðlegt vopnasölubann á íran. Perez de Cuellar framkvæmda- stjóri SÞ lýsti í gær yfir áhyggjum sínum af því að atburðir undan- farinna daga gætu magnað átök á svæðinu og breitt þau út. Frakkland Mittenand heldur foiyshmni Áhersla á baráttu gegn atvinnuleysi Mitterrand Frakklandsforseti telur baráttu gegn atvinnu- leysi mikilvægasta verkefni næsta forseta, - sem allar skoðanakann- anir benda til að verði hann sjálf- ur. Ekki má lengur birta kannanir í Frakklandi, en þær síðustu bentu til að Mitterrand fengi 34- 38% í fyrri umferðinni á sunnu- dag, gaullistinn Chirac 22-25%, íhaldsmaðurinn Barre 14-19, og hægriöfgamaðurinn Le Pen upp- undir 12%. Mitterrand virðist munu sigra bæði Chirac og Barre í síðari umferð. Mitterrand skrifar í gær um efnahagsmál í Le Monde, og leggur áherslu á baráttuna gegn atvinnuleysi sem er næstmest í Frans af helstu iðnríkjum, - um tíundi hver vinnufær maður er atvinnulaus í landinu. Forsetinn segir vænlegast að draga meira fé til atvinnulífsins og stórauka samstarf Evrópu- bandalagslandanna, - í Vestur- Þýskalandi sé bundið mikið fé sem engum komi að notum nema eigendum. Hann tekur undir hugmyndir fjármálaráðherrans Balladurs um sameiginlegan að- albanka EB-ríkja og vill sam- þætta enn meira myntkerfi þeirra. Mitterrand leggst gegn hug- myndum helstu hægriframbjóð- enda um frekari sölu ríkisfyrir- tækja, en hyggst ekki endur- þjóðnýta þau sem stjórn Chiracs hefur selt síðustu tvö árin. Það þykir einkenna kosninga- baráttuna nú að í stað hinna skörpu skila milli hægri og vinstri síðustu áratugina höfða helstu frambjóðendur allir til miðju- hópa, - sem aftur styrkir óánægjuframboð Le Pens yst af hægrivæng. Síðari umferð frön- sku forsetakosninganna fer fram 8. maí. Algeirsborg 15. dagur án tíðinda Fimmtándi dagur gíslanna um borð í kúvæsku flugvélinni sem nú er á Algeirsborgarvelli leið án sjáanlegra tíðinda þrátt fyrir að dagblað í Kúvæt segðist hafa eftir áreiðanlegum heimild- um að lausn væri í vændum. Einn gíslanna, kona fjarskyld emírnum í Kúvæt, var látin biðja griða fyrir fangana 17 sem flug- ræningj arnir vilj a að sleppt verði, og hafði bróðir hennar flutt svip- aðan texta á mánudag. Ræningj- arnir báðu um magalyf, en ekki er vitað fyrir hvern. Ónefndur milligöngumaður, sem Alsírmenn segja velþekktan, átti tvo fundi með ræningjunum í gær en án sjáanlegs árangurs. FRÁ MENNTAMÁLARAÐUNEYTINU Lausar stöður við framhaldsskóla. Við Menntaskólann að Laugarvatni eru lausar kennarastöður í eftirtöldum greinum: í stærðfræði og tölvufræði ein staða, eðlis'ræði og stjörnufræði ein staða, í frönsku og dönsku um það bil 1/2 staða í hvorri grein. Einnig vantar þýskukennara og er þar um að ræða ráðningu til eins árs frá 1. ágúst 1988 að telja. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík fyrir 15. maí næstkomandi. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Miðvikudagur 20. apríl 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 FRÁ MENNTAMALARAÐUNEYTINU Lausar stöður við framhaldsskóla Við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu eru lausar kennarastöður í eftirfarandi greinum: Ensku, stærðfræði og við- skiptagreinum ásamt tölvufræði, heilar stöður og hlutastöður í dönsku, þýsku, líffræði, eðlisfræði og efnafræði. Æskilegt er að umsækjendur geti kennt meira en eina grein. Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja eru lausar kennarastöður í ensku, islensku, listgreinum, rafmagnsgreinum, sögu, sérgreinum háriðna, stærðfræði, tölvufræði og vélstjórnargreinum. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist til Menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 16. maí nk. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.