Þjóðviljinn - 20.04.1988, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 20.04.1988, Qupperneq 7
Alþingi Framhaldsskóla fyrir alla? Stjórnarfrumvarp umframhaldsskóla verður líkast til að lögumfyrirþingslit. Um 30% nemendafara ekki íframhalds- nám eða detta út úr námi. Deilt um valddreifingu Á fundi í neðri deild alþingis í gær var tekið til annarrar um- ræðu frumvarp menntamálaráð- herra um framhaldsskóla. Haust- ið 1974 var skipuð nefnd til að gera tillögur um skipan fram- haldsskóla og var lagafrumvarp, sem byggði á tillögum hennar, lagt fram á þingi í febrúar 1977. Síðan hafa sjö stjórnarfrumvörp verið lögð fram um málið en ekk- ert þeirra hefur náð fram að ganga. Menntamálanefnd efri deildar þríklofnaöi um það frumvarp sem nú liggur fyrir þinginu. Guð- mundur G. Þórarinsson mælti fyrir álita meirihluta nefndarinn- ar en minnihlutinn klofnaði í tvennt. Þórhildur Þorleifsdóttir ásamt öðrum þingmönnum Kvennalistans, leggur fram ýms- ar breytingartillögur. Ragnar Arnalds leggur til mjög viðamikl- ar breytingar sem byggja á skóla- málastefnu Alþýðubandalagsins. Fyrirliggjandi frumvarp er samið af 7 manna nefnd er Sverrir Hermannsson skipaði í desember 1985. í henni sátu 7 karlmenn og í umræðunum í gær gagnrýndi Þór- hildur Þorleifsdóttir alþingis- maður það að engin kona skyldi hafa verið í nefndinni. Benti hún á að konur væru mun fjölmennari en karlar í skólastarfi. Þórhildur benti á að það væri heldur kaldranalegt að ræða þessi mál á sama tíma og ríkisvaldið stæði í kjarastríði við kennara og óvíst væri hvernig tækist að manna framhaldsskólana næsta haust. Frumvarpið byggði um of á svokölluðum þörfum atvinnu- veganna en það vantaði í það menntastefnu. Hætta væri á að íslendingar yrðu rík þjóð en þó blásnauð að öllu nema efnalegum gæðum. Ragnar Arnalds fyrrverandi menntamálaráðherra lagði fram fjölmargar breytingartillögur við frumvarpið og byggja þær á hug- myndum sem Alþýðubandalagið hefur sett fram um skipulag skólamála. Hann taldi einkum þrjú grundvallaratriði gera það að verkum að frumvarpið þyrfti lagfæringa við. í fyrsta lagi yrði um allt of mikla miðstýringu að ræða í skólakerfinu. Það kemur t.d. fram í því að menntamálaráð- herra á að skipa alla skólanefnd- armenn samkvæmt tilnefningum sem hann á sjálfur að setja reglur um. Ráðherra á að skipa skóla- meistara óháð vilja skólanefndar og ráðherra á að skipa fasta kenn- ara óbundinn af tillögum skólanefndar og skólameistara. í öðru lagi kæmi ekki nógu skýrt fram í frumvarpi ráðherra að framhaldsskólinn ætti að vera fyrir alla en ekki bara þau 70% sem nú stunda þar nám. „í stað þess að þeir, sem heltast úr lest- inni, séu ekki hæfir til framhalds- náms er eðlilegra að líta svo á að framhaldsskólakerfið hæfi ekki öllum nemendum og eigi að gera sig hæft til að bjóða öllum upp á þroskamöguleika sem henta; nám sem þeir ráða við.“ í þriðja lagi komi fram í frum- varpinu skilningsleysi á aðstöðu minni skóla í dreifbýlinu því að það geri ráð fyrir svipuðum kostnaði af hverjum nemanda hvort heldur hann er í litlum eða stórum skóla. Það væri auðsætt að kostnaður í litlum skólum væri meiri á hvern nemanda, þótt ekki væri nema vegna þess að oft væru þar fáir nemendur í grein. „Vandamál af þessu tagi verða ekki leyst með þríliðureikningi. Búist er við að neðri deild greiði atkvæði um breytingartil- lögur í dag og að jafnframt verði frumvarpið tekið til þriðju um- ræðu. Fer þá málið til efri deildar og er almennt við því búist að það verði að lögum áður en þing er úti þar sem þetta er ekki eitt af þeim frumvörpum ríkisstjórnarinnar sem stjórnarflokkarnir eru ekki sammála um. ÓP Framhaldsskólafrumvarpið Dregið úr kennslu á landsbyggðinni Rekstrarframlag miðað við nemendafjölda. Fámennir skólar dýrari í rekstri. Þrengt kosti dreifbýlisskólanna Einn af meginþáttunum í gagnrýninni á framhaldsskóla- frumvarp ríkisstjórnarinnar er að í því komi fram skilningsleysi á starfi skóla utan þéttbýlissvæðis- ins við Faxaflóa. í frumvarpinu er gert ráð fyrir að framlög ríkis- sjóðs til rekstrar framhaldsskóla skuli við það miðuð að sem næst jafnhátt framlag komi á hvern nemanda í fullu námi hvar sem er á landinu. í greinargerð sinni um frum- varpið segir Ragnar Arnalds m.a: „Augljóst er að kostnaður á nemanda er ekki sá sami í litlum skólum og stórum. Oft eru tvöfalt og jafnvel þrefalt fleiri nemendur í kennslustundum á skólasvæðum þar sem nemendur skipta tugum þúsunda en í skóla sem á að fullnægja námsþörf nemenda á tilteknu svæði þar sem aðeins eru 200-300 nemendur í aldursár- gangi, jafnvel færri. Vandamál af þessu tagi verða ekki leyst með þríliðureikningi. Það er ofur- einföldun á veruleikanum og slík dæmi ganga aldrei. Skólameistar- ar í minni framhaldsskólum hafa á það bent að þessi þröngu ákvæði geti haft í för með sér stórminnkað námsframboð í minni skólum.“ . Vitnað var í ummæli eins skólameistara utan af landi um það að yrðu ákvæði frumvarpsins um jafnhátt rekstrarframlag á alla nemendur að lögum yrði dregið úr kennslu í framhalds- skólum úti á landsbyggðinni sem nemur starfi allt að 80 kennara. ÓP Tilkynning frá Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur Verslunar- og skrifstofufólk, sýnum samstöðu í komandi verkfalli, sem hefst á miðnætti aðfaranótt föstudags- ins 22. apríl. Mætið því til verkfallsvörslu á föstu- dagsmorguninn, í Húsi verslunarinnar, 9. hæð. Hringið í síma 687100 og látið skrá ykkur til verkfallsvörslu. Mikilvægt er að algjör samstaða ríki í þessum aðgerðum. Stöndum saman í kjarabaráttunni. Síminn er 687100. VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJA- VÍKUR VERKFALLSSTJÓRN Notaðu endurskinsmerki og komdu heil/l heim. Forval Ætlunin er að bjóða út uppsteypu viðbyggingar við Háskólabíó. Nýbyggingin er kjallari (1.937 m2) og ein hæð (1.896 m2). Heildarrúmmál 15.915 m3. Grafið hefur verið fyrir viðbygging- unni. Auk uppsteypu skal verktaki ganga frá þökum hússins, setja í og ganga frá gluggum o.fl. Áætlaður framkvæmdatími er um 1 ár. Til undirbúnings útboði er ákveðið að fram fari könnun á hæfni þeirra verktaka sem bjóða vildu í verkið, áður en útboð fer fram. Er því þeim, sem áhuga hafa, boðið að taka þátt í forvali og munu 4-5 verktakar fá að taka þátt í lokuðu útboði, ef hæfir þykja. Forvalsgögn verða afhent á Innkaupastofnun ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík, gegn 1.000,-kr. skilatryggingu. Útfylltum gögnum skal skilað á sama stað eigi síðar en þriðjudaginn 26. apríl kl. 15:00. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7, PÓSTHÓLF 1450, 125 REYKJAVÍK. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.