Þjóðviljinn - 03.07.1988, Page 2
Dándimaður vikunnan
I rósa-
garðinum
HVAfí SEGIR UPP-
LÝSINGA-
FULLTRÚINN?
Eitt af því sem handritið svarar
aldrei er hvernig fjölskyldan, sem
samanstendur af aldraðri móður,
syni henni og mellunni hans,
tengjast borgarmálum yfirleitt.
Morgunblaðið
IIVAfí ÞÁ í
LEIKNUM
SJÁLFUM
Jónas Hallgrímsson var bestur
Völsunga, en hann hleypti miklu
lífi í framlínuna þegar hann kom
inná í leikhléinu.
Þjóðviljinn
/ KLÓNUM
Á HOLLYWOOD
Áður en maður veit af er allt orðið
fullt af lélegum aukaleikurum og
grátklökkum andartökum á
nærliggjandi sjúkrahúsi og víðar
þegar dóttir hetjunnar og fyrrum
eiginkonunnar liggur nær dauða
en lífi af völdum vondu fjölskyld-
unnar.
Morgunblaðið
HINN
RÉTTI SÓNN
Einkennilegt var að ef sónn
fékkst ekki með nokkru móti var
betra að hringja í eitthvert auð-
munað númer en að bíöa þolin-
móður eftir sóninum. Maður gat
að vísu lent hvar sem var annars
staðar en á númerinu sem valið
var (t.d. austur á Þórshöfn) en
upp úr slíku sambandi kom jafn-
an sónn.
Morgunblaðið
KRÓKURÁ
MÓTI BRAGÐI
Sem betur fer er honum kálað
nokkrum mínútum eftir að hann
kemur fyrst fram í myndinni. En
því miður eru áhorfendur ekki
lausir við hann fyrir fullt og allt, því
að hann er aftur og aftur að koma
fram í draumum - eða mart-
röðum - konu sinnar.
Tíminn
NÆRTÆKT
LITAVAL
Malbikunarstöðin á svörtum lista.
Dagur
MÉR ERU
FORNU MINNIN
KÆR
Fjósið var læst með hengilás og
hafði innbrotsþjófurinn snúið
sundur lásinn og farið inn. Fann
hann þar allstóran mjólkurbrúsa,
gerði sér lítið fyrir og settist undir
fjórar beljur og þurrmjólkaði þær!
Stal hann síðan mjólkurbrúsan-
um og nytinni úr kúnum.
Dagur
KÖLD ERU
KVENNA RÁÐ
Að eiga margar frillur, segir hún,
var ekki fyrirhyggjulaust kynsvall
heldur þaulhugsuð leið til að
treysta pólitísk völd.
DV
SKAÐI SKRIFAR
Hl belra lífs undir
forystu sköllóltra
Ég, Skaöi, hef lengi veriö veikur í hnjánum fyrir mann-
kynssögunni og er flestum öörum fróöari um hana. Því
miður skil ég ekki allt í henni, þótt ég leggi mig allan fram.
Til dæmis hefi ég aldrei skiliö sögu Sovétríkjanna sem
gerist í feiknarlegum stökkum og sveiflum og minnir mig á
ekkert frekar en styggan klár sem afi minn átti.
Þessi saga er svo skrýtin aö þegar sovéskir leiötogar
segja aö allir séu glaðir, pattaralegir og frjáisir í landinu,
þá má ganga út frá því sem vísu aö þar sé allt í eymd og
volæði. Ef þeir aftur á móti segja að landsmenn séu aö
kikna undan feiknarlega stórum vandamálum, þá er eins
víst aö þeir séu allir að hressast.
Þetta er þó ekki óbrigðul vísbending um skilning á sögu
Sovétríkjanna. Aftur á móti hefi ég komið auga á annan
rauðan þráö í þeirri sögu sem ekki er með nokkru móti
hægt aö slíta. Hann er sá, að velsæld og framfarir í
Sovétríkjunum fara alveg eftir því hvort það eru sköllóttir
menn sem stjórna landinu eöa loönir.
Og jjegar sköllóttir stjórna, þá er allt í sómanum eöa á
leiöinni þangað. En hárprúöir menn eru allra meina feöur.
Skoöum þetta nánar.
Fyrst kom Lenín - hann var góöur foringi, enda
nauðasköllóttur: hann kenndi bændum að lesa, blandaöi
hagkerfið og setti upp rafmagnsperur um allt og fleira
gerði hann merkilegt meðan honum entist aldur til.
Næst kom svo Stalín - mikið vel hærður, enda grimmur
mjög og hið versta kúgunartröll viö vini sem vandalausa,
auk þess sem hann snarruglaði í ríminu ýmsa efnilega
menn út um allan heim. Og heimtaöi þar aö auki lof-
söngva af hverjum manni fyrir aö þeir fengju að vera til,
eða eins og í kvæðinu segir:
Voriö kom
í vetrar stað
þökk sé Stalín
fyrir þaö.
Jæja. Þessi loðni drjóli liföi alltof lengi, en þá vildi svo
farsælllega til aö við stjórnartaumum tók einhver alsköll-
óttasti leiötogi sem viö höfum séð, Níkíta Khrúsjov. Hann
var glaður og reifur, ræktaöi maís, opnaöi tukthúsín,
sendi fimm orustuskip í brotajárn og fleira gerði hann gott
og þarflegt sinni þjóð og heiminum. Hefði getaö gert
meira ef hann heföi ekki verið of lengi í skóla hjá Stalín
hárprúða.
Þeir loðnu sáu að ekki mátti við svo búið standa og
steyptu skallanum góða. Settu í staðinn einhvern alloðn-
astaforingjasem menn hafa séð, Brézhnév, ennislausan
mann með augnabrýn miklar, samgrónar svörtum
makka. Enda var eins og við manninn mælt - hann tók
upp alla vonda siði fyrirrennara síns, nema hvað hann
þorði ekki að drepa fólk neitt að ráði; þeim mun meira
lagði hann upp úr sukki og ódugnaði og sjálfshóli. Að
lokum gat karlinn ekki gengið fyrir orðum og medalíum
sem hann hafði hengt á sig fyrir það afrek að leggja
efnahaginn í rúst og glömruðu svo hátt þegar hann bar sig
um að alla aðra setti hljóða.
Nú jæja. Áfram heldur sagan í anda sinna hárrænu
lögmála. Á eftir Brezhnev kom Andropov, sem ætlaði að
gera eitthvað gott- enda maður sköllóttur. En því miður
hafði hann ekki tíma til þess því hann dó. Þá kom Tsjern-
enko með mikinn gráan makka og tók það strax aftur að
Andropov hafi ætlað að gera eitthvað merkilegt: allt skyldi
verða eins og það var á hárprúðri öld. En hann dó líka.
Og nú höfum við hann Gorbatsjov sem hamast eins og
hundrað manns við að bæta böl og efla frelsi og er svo
vinsæll og vel látinn að jafnvel vinir mínir Kanarnir mundu
skipta á honum og Reagan sem allra fyrst. Enda er Reag-
an kafloðinn og búinn að setja land sitt á hausinn þótt
enginn vilji viðurkenna það. Meðan Gorbatsjov er sköll-
óttur eins við vitum öll.
Þetta er nokkuð góð kenning því hún skýrir svo margt í
sögunni sem annars verður ekki skilið. Og ég er að hugsa
um það, hvort ekki mætti draga af henni nokkrar ályktanir
fyrir okkur íslendinga og þá sérstaklega okkur Sjálfstæð-
ismenn. Við höfum varla átt aðra leiðtoga en hárprúða -
Ólaf Thors og Hermann, Bjarna Ben og Jóhann Hafstein
og nú síðast höfum við Davíð sem er greinilega með alltof
mikið hár. Samt hefur okkur gengið furðanlega vel. En ef
við tökum mið af Rússum, þá hljótum við að sjá,að ef við
hefðum haft vit á að velja okkur sköllótta forystumenn, þá
hefði okkur vegnað miklu betur. Þá væri hér hvorki verð-
bólga, kröfubólga, vaxtabólga né stílbólga og allir mundu
una glaðir við sitt.
Ég skýt þessu máli til ykkar, góðir (slendingar. Og þótt
ég sé ekki vanur að flíka einkamálum mínum þá sakar
ekki að láta þess getið að ég er sjálfur sköllóttur...
Sunnudagur 3. júlí 1988