Þjóðviljinn - 03.07.1988, Qupperneq 16
Guðrún Þórðardóttir, félagi í und-
irbúningshópi um bætta umferð-
armenningu.
- Það verður að koma til
hugarfarsbreyting, sérstak-
lega hjá krðkkum sem eru ný-
komin með bílpróf; við verð-
um að koma þeim í skilning
um að það er ekki vitund
smart að keyra gáleysislega
eðadrukkinn, segirGuðrún
Þórðardóttir, dagskrárfulltrúi
barnaefnis á Stöð tvö, en hún
tilheyrir hópi fólks sem hefur
ákveðið að skera upp herör
gegn umferðarógninni, og
hefur ýmis áform á prjónunum
íþvískyni.
- Við höfum ekki stofnað
neinn formlegan félagsskap enn-
þá. Fyrst viljum við kanna undir-
tektirnar betur, og því verðum
við með símatíma um helgina, en
við höfum komið saman nokkr-
um sinnum til að ræða vænlegar
leiðir í baráttunni fyrir bættri um-
ferð, enda ofbauð okkur eftir
slysahrinuna það sem af er sumri.
Hvernig á líka annað að vera; öll
umferðarlagabrot hafa stóraukist
og tíðni þeirra farið stighækkandi
með hverjum nýjum mánuði,
segir Guðrún. f maímánuði ein-
um var það til dæmis hátt í hundr-
að manns sem voru teknir fyrir
ölvun við akstur í Reykjavík, og
þá má gera sér í hugarlund að
hinn raunverulegi fjöldi drukk-
inna ökumanna hefur verið miklu
hærri. Og í þessu sambandi vil ég
árétta það sem að sjálfum okkur
snýr; við eigum að vera meira
vakandi hvert fyrir öðru en við
erum og ósparari á stuðning. Ef
einhver ætlar til dæmis að keyra
heim úr samkvæmi eftir að hafa
drukkið, þá á það að vera sjálf-
sagt mál að benda þeim hinum
sama á villu síns vegar.
Það er ekki tilviljun að fólk það
sem hér hefur forgöngu tengist
flest leikhúsi, enda var nærri því
höggvið í hörmulegu bílslysi á
Skúlagötunni fyrir skemmstu, er
drukkinn ökumaður á stolnum
bíl var valdur að dauða ungrar
konu. Það má svo skoðast sem
kaldranaleg árétting að sama
daginn og blaðamaður ræddi við
Guðrúnu varð enn eitt dauðaslys-
ið í umferðinni er einhver vesl-
ings bjálfinn í stórsvigi á Miklu-
brautinni keyrði niður gamlan
mann.
Að sögn Guðrúnar eru það
fyrst og fremst konur enn sem
komið er sem að hópnum standa,
án þess þó að hann einskorðist
við þær á nokkurn hátt. Við vilj-
um ná til allra sem hafa áhuga,
segir hún, og þá einkanlega
þeirra sem eru tilbúnir að starfa
að framgangi þessa máls. Undir-
tektirnar hafa verið mjög góðar
hvar sem við höfum borið niður,
s.s. meðal leikara, kvikmynda-
gerðarmanna og á fjölmiðlunum,
og stuðningur úr þessari átt er
alveg snúist við. Það sama hlýtur
að vera hægt að gera í umferð-
armálunum."
2. Breytt og hert refsilöggjöf
sem undirstriki hvers konar
drápstæki fólk hafi í rauninni
undir höndum þegar sest er undir
stýri.
3. Breytingar á auglýsingastarf-
semi í tengslum við umferðina.
Guðrún bendir á að ýmislegt hafi
verið vel gert í þessum efnum, en
annað ekki hrifið, og segir að
hópurinn vilji meðal annars beita
sér fyrir gerð áróðursmynda sem
færu víða.
Stofnfundur hinna væntanlegu
samtaka fyrir bættri umferð er
ekki á dagskrá alveg á næstunni,
en hitt skal áréttað að hópurinn
er með símatíma laugardaginn 2.
júlí milli kl. 1 og 6 e.h. Og síma-
númerið er 26040.
HS
að þér
Guðrún Þórðardóttir:
Umferðarógninni
verður að linna. Sam-
tökfyrirbœttri umferð
stofnuðinnan tíðar.
Símatími hjó undirbúnin
hópnum í dag, laugardag
mjög mikilvægur, þar sem við
höfum fullan hug á að búa til efni
á borð við fræðslumyndir fyrir
skólakerfið, áróðursmyndir og
fleira í þeim dúr.
Það er einkum á þremur svið-
um sem hópurinn fyrir bættri um-
ferð hyggst beita sér á næstunni:
l.Átak í fræðslumálum og því
sem lýtur að ökukennslunni.
Guðrún segir að í þessu sambandi
væri athugandi að hækka „bfl-
prófsaldurinn" upp í 18 eða 19 ár.
Hugarfarsbreyting þurfi að koma
til hjá ungum krökkum sem eru
nýkomin með bílpróf, og þá sér-
staklega strákunum. Þeir verði
að skilja að það sé ekki vitund
smart að aka gáleysislega eða
drukkinn. „Fyrir nokkrum árum
þótti fínt að reykja,“ segir hún,
„en svo er samstilltum áróðri
fyrir að þakka að það dæmi hefur
Sigrún, Vigdís
og Auður
[ forsetakosningunum um síð-
ustu helgi skilaði nokkur hóp-
ur kjósenda auðu, eða á
þriðja þúsund manns. Stund-
um er afstaða af þessu tagi
persónugerð og kennd við
einhverja ótiltekna Auði, og
sé það tekið gott og gilt má
segja að um þrjár konur hafi
verið að velja í embættið en
ekki tvær. En hvað sem þessu
líður hefur sá hvimleiði ósiður
reiknimeistara og fjölmiðla
uppvakist enn á ný að spyrða
saman auð atkvæði og ógild,
svo að úr verður einhvers
konar undirmálsþátttaka í
kosningunum. Þessum
ósóma þarf að linna; það er
fullgild afstaða að mæta á
kjörstað og skila auðu, og á
ekkert skylt við það athæfi að
krota klámvísur á kjörseðilinn
sinn eða éta hann eða
eitthvað enn annað sem verð-
ur til þess að hann telst ekki
með.
Hvað með
Ragnar?
Einsog menn vita neitaði Birg-
ir ísleifur Gunnarsson boði
um að koma á fund foreldra
barna í Ölduselsskóla eftir
hina umdeildu ráðningu.
Ragnar Júlíusson er formaður
fræðsluráðs og stóð í skít-
verkinu fyrir íhaldið þar einsog
venjulega. Sú saga gengur að
honum hafi líka verið boðið á
fundinn, hann hafi ekki getað
mætt. Þaö voru víst einhver
bílavandræði...B
Gott á hvern?
Barnaheimilið Ós dettur upp
fyrir sem dagheimili um
næstu áramót ef borgarstjórn
staðfestir samþykkt sem gerð
var nýskeð í stjórn Dagvistar
barna, en samkvæmt henni
lækkar rekstrarstyrkurinn frá
borginni svo mjög að sjálfhætt
er fyrir þá foreldra sem að
heimilinu standa. í eina tíð var
ekki annað að heyra en að
borgarstjórnarmeirihlutinn
hefði hina mestu velþóknun á
foreldrareknum barnaheimil-
um, og því kemur aðför þessi
nokkuð á óvart, en heita má
að hún bitni eingöngu á þessu
eina heimili. Það skyldi þó
aldrei vera ástæðan að meðal
þeirra sem nú eiga börn á Ósi
eru tveir borgarfulltrúar úr
minnihlutanum, þær Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, Kvenna-
lista, og Kristín Á. Ólafsdóttir,
Alþýðubandalagi. Hálfgert
klámhögg ef rétt er; dóttir
Kristínar er að hætta á Ósi, og
Ingibjörg Sólrún er rétt ófarin
úr borgarstjórn vegna endur-
nýjunarreglna Samtaka um
kvennalista.H
Engin fyrirstaða
Öldungar Sjálfstæðisflokks-
ins eru agndofa yfir skipun
Hannesar Hólmsteins í vik-
unni. Skipunin er alltof
hneyksliskennd gæðinga-
pólitík fyrir þá settlegu arist-
ókrata sem áður voru bak-
beinið íflokknum, sérstaklega
háskólamenn í Sjálfstæðis-
flokknum. Skipan Hannesar
mun hafa verið knúin fram
innan flokksins af fámennu en
harðskeyttu liði frjálshyggju-
manna, og segja öldungarnir
að hún sýni best eymd Sjálf-
stæðisflokksins sem hafi
misst alla fyrirstöðu gagnvart
öfgamönnum.B