Þjóðviljinn - 06.08.1988, Síða 9
FRETTIR
Kvennaþingið
Nemum ekki staðar í Osló
Innflytjendakonur minntu ráðamenn á sig. Guðrún Ágústsdóttir: Færeyskar,
grœnlenskar og íslenskar konur vinni saman þegar heim kemur
Við í framkvæmdanefndinni
erum sammála um að kvenna-
þingið gangi samkvæmt vonum
okkar, það rennur allt ijúflega
áfram án þess að það sé of skipu-
lagt og má segja að hér fái öll
blóm að blómstra, sagði Guðrún
Ágústsdóttir fulltrúi íslands f
framkvæmdanefnd kvennaþing-
sins í Osló.
- Það er mjög gaman að því
hvað margar uppákomur hafa
verið óundirbúnar og ýmsir
óvæntir liðir hafa verið teknir á
dagskrá. Til dæmis við opnunar-
athöfn þingsins þar sem fulltrúar í
Norðurlandaráði voru að ræða
framkvæmdaáætlun í jafnréttis-
málum gengu í salinn innflytjend-
akonur með spjöld og merki og
vildu flytja ávarp. Þær voru mjög
reiðar yfir því, að í framkvæmda-
áætluninni er ekki minnst einu
orði á innflytjendakonur en það
er sá hópur kvenna sem hefur það
hvað verst í dag. Það voru allir
sammála um það að leyfa þeim að
flytja ávarpið og var þeim klapp-
að lof í lófa eftir á.
Guðrún sagði að í Osló væru
staddir um 400 blaðamenn og yfir
10 þúsund konur auk þess hún
taldi að umfjöllun fjölmiðla ætti
þátt í því að fleiri norskar konur
væru á leiðinni á þingið.
Aðspurð um hvernig gengið
hefði að útvega öllum þessum
fjölda gistingu sagði Guðrún að
- Ofarlega í mínum huga er að konur frá Færeyjum, Grænlandi og
íslandi vinni saman að sameiginlegum hagsmunamálum þegar heim
verður komið, segir Guðrún Agústsdóttir. Mynd mj.
útlitið hefði ekki verið gott um
tíma en að lokum hefði þó tekist
að koma öllum fyrir.
Guðrún sagðist vera svolítið
vonsvikin yfir fréttaflutningi af
þinginu. í sjónvarpi og blöðum
hefði aðallega verið sagt frá mag-
adansi og norsku konunum sem
teldu það vera mesta jafnrétti að
konur yrðu skyldaðar til að gegna
herþjónustu. Hér er eitthvað nýtt
eða sexý á ferðinni og fær því
NORDISK FORUM
30/7-7/8 1988
OSLO
mikla umfjöllun en aftur á móti
ekkert einkennandi fyrir dag-
skrána, en innan ráðstefnunnar
rúmast allar skoðanir.
Hvernig geta konur haldið
áfram að vinna úr því sem fram
kemur á þessu þingi þegar heim
er komið?
- Það er ofarlega í mínum huga
að færeyskar, íslenskar og grænl-
enskar konur myndi samstarfs-
hóp og hittist eins fljótt og mögu-
legt er, því við eigum mjög margt
sameiginlegt. Auk þess hljóta all-
ar þessar konur sem hér eru að
halda fundi í sínum félögum og
dreifa upplýsingum um það sem
hér hefur verið að gerast og það
hafa myndast tengsl við ýmsa
hópa frá hinum Norðurlöndun-
um sem mikilvægt er að halda
sambandi við. Það má ekki láta
staðar numið þegar heim kemur,
sagði Guðrún.
Það sem snýr sérstaklega að ís-
lensku’ konunum hér þá taldi
Guðrún bagalegt að þær hefðu
ekki túlka því það háði þeim
mörgum að skilja ekki önnur
Norðurlandamál og geta ekki
tjáð sig.
- Við íslenskar konur verðum
að horfast í augu við það að við
þurfum aðstoð við að tjá okkur í
norrænni samvinnu ef við ætlum
að standa jafnfætis öðrum.
Mj/iþ
Bás Kvennalistans á kvennaþinginu í Osló hefur vakið mikla athygli. Sýnt er að mörgum norrænum
stallsystrum íslenskra kvennalistakvenna finnst mikið til koma um frammistöðu listans. Mynd mj.
Kvennaþingið
Hlíf Geirsdóttir frá Húsavík mætti á kvennaþingið í upphlut - heima-
saumuðum. Hlíf hafi í nógu að snúast fyrsta dag þingsins við að sitja
fyrir í þjóðlegri múnderingunni. Mynd mj.
Launajafhrétti ellegar kvemaveifcfall
Jóhanna Sigurðardóttir: Kvennastörfverði endurmetin og konurfái hlutdeild í
fríðindum
Osló - í yfirheyrslu yfír ráð-
herrum jafnréttismála á
Norðurlöndum á kvennaþinginu í
gær áréttaði Jóhanna Sigurðar-
dóttir, félagsmálaráðherra, hug-
myndir sínar um kvennabyltingu
ef ekki næðist launajafnrétti
kynjanna á næstu tveimur árum.
- Þá boðum við verkfall með
tveggja ára fyrirvara og söfnum
digrum verkfallssjóði, sagði Jó-
hanna, sem setið hefur ráðstefnu
Norðurlandaráðs um fram-
kvæmdaáætlun í jafnréttismál-
um.
Jóhanna sagði að fyrst skyldu
menn athuga hvernig áætlun um
fjölgun kvenna í stöðum hjá því
opinbera og launajöfnuð gengi
upp.
Tillaga Jóhönnu hlaut góðar
undirtektir meðal 700 kvenna
sem sóttu fundinn, en
jafnréttisráðherra Dana, Henn-
ing Dyremose, var ekki jafn hrif-
inn. - Yfirlýsingar sem þessar
færa jafnréttisbaráttuna 15 ár aft-
ur í tímann, sagði hann og fékk að
launum óánægjuklið frá áheyr-
endum og var það ekki í eina
skiptið sem ummæli hans vöktu
litla hrifningu.
Jóhanna lagði í máli sínu mesta
áherslu á kröfuna um endurmat á
hefðbundnum kvennastörfum og
konur fengju jafna hlutdeild í
fríðindum á við karla á vinnu-
markaðnum.
Hún sagðist fylgjandi því að
hið opinbera gripi inní til að
tryggja konum launajafnrétti þar
sem það hefði sýnt sig að mark-
aðsöflin ein og sér gerðu það
ekki.
Ein þeirra spurninga sem ráð-
herramir fengu laut að næsta tak-
mörkuðum áhuga fjölmiðla á
jafnréttismálum og hvernig
mættti breyta því. Henning Dyr-
emose sagði að danskir fjölmiðl-
ar töluðu um að kvennaþingið
væri gamaldags ráðstefna og
sagði hann að ef konur vildu fá
umræðu um jafnréttismál, þá
skyldu þær sjá til þess að næsta
ráðstefna yrði opin körlum því
jafnrétti værii jú einnig fyrir
karla.
Jóhanna Sigurðardóttir benti
honum á að karlemenn stjórnuðu
einu sinni fjölmiðlunum. - Ef
konur væm við stjórnvölinn á
fjölmiðlum í fimm ár þá yrði
jafnréttisumræðunni gefið það
vægi sem hún ætti skilið, sagði
Jóhanna, en allmörg erindi á
kvennaþinginu hafa einmitt fjall-
að um næsta takmarkaðan hlut
kvenna í umfjöllun fjölmiðla.
-mj
Laugardagur 6. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Sálfræðingur
- sérkennslufulltrúi
Sálfræðing vantar í fullt starf við Fræðsluskrif-
stofu Suðurlands frá 1. september n.k. Einnig
vantar sérkennslufulltrúa í fullt starf frá sama
tíma. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst. Nánari
upplýsingar á Fræðsluskrifstofu Suðurlands í
símum 98-21962 og 98-21905. Umsóknir sendist
á Fræðsluskrifstofu Suðurlands Austurvegi 38,
800 Selfossi.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við framhaldsskóla
Að VÉLSKÓLA ÍSLANDS vantar kennara í rafmagnsfræðigreinum
og að FRAMHALDSSKÓLA AUSTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
vantar kennara til að kenna dönsku og þýsku.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 16.
ágúst næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið