Þjóðviljinn - 30.08.1988, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 30.08.1988, Blaðsíða 3
_______________FRETTIR___________________ Ólafsfjörður Tug miljóna tjón Almannavarnir Ólafsfjarðar lýstuyfir neyðarástandi. Gríðarleg úr- koma orsakaðifjölda aursknða úr Tindaöxl. 30 cm djúpur vatns- flaumur á götum bæjarins. Hátt í200 manns yfirgáfu hús sín vegna hœttu á skriðuföllum. Tvœr aurskriðurféllu á íbúðahverfi. Engin slys hafa orðið á fólki Fiskeldi 30 miljóna tjón Fimm kvíar með 250 þúsund gönguseiðum í eigu Hafeldis hf. í Straumsvík slitnuðu upp og ráku á land í óveðrinu snemma morg- uns sl. sunnudag með þeim afleið- ingum að seiðin drápust og skemmdir urðu á kvíunum. Tjón fyrirtækisins er metið á um og yfir 30 miljónir króna. Að sögn Álfheiðar Ingadóttur framkvæmdastjóra Hafeldis voru aðstæður í Straumsvík mjög slæmar þegar óhappið átti sér stað; ofsaveður með 10-11 vind- stig í verstu vindhviðunum, stær- sti straumur með allt að 4,30 metra flóðhæð og að vindáttin hefði verið beint inn Straumsvík- ina. Álfheiður bjóst fastlega við að reynt yrði að fá keypt seiði til að taka upp þráðinn að nýju. -grh Astandið í bænum er búið að vera gjörsamlega ólýsanlegt. Hér hefur bóstaflega allt verið á floti í vatni og aur en sem betur fer hefur enginn slasast í þessum ósköpum. Yfir 70 íbúðarhús hafa verið yfirgefin með hátt í 200 íbúa sem hafa fengið inni ma. í Gagn- fræðaskólanum. Vonandi er þetta búið en þó spáir Veðurstof- an stormi á Norðurlandi með rigningu, þannig að hættuástandi verður ekki aflýst strax“, sagði Guðbjörn Arngrímsson á Ólafs- firði við Þjóðviljann. Geysileg úrkoma var á Ólafs- firði sl. sunnudag og er talið að hún hafi verið nálægt 123 mm á sama tíma sem hún mældist að- eins 50 mm á Akureyri og á Siglu- nesi. Tindaöxlin fyrir ofan bæinn varð alveg vatnsósa og féllu sjö aurskriður úr fjallinu í fyrradag og þar af tvær sem féllu í fbúðar- hverfi í bænum. Fór aurinn inn í tvö hús auk þess sem skriðurnar eyðulögðu yfir 15 húsagarða. Að sögn Guðbjörns Arngríms- sonar var allt að 30 cm djúpt vatn á götum bæjarins því öll niðurföll lokuðust og ekki bætti það úr skák að stórstraumsflæði var á sama tíma. Fjölmargar íbúðir og innbú hafa skemmst í flóðinu auk skemmda sem aur og drulla hefur ollið. Skemmdir hafa orðið á Vatnsveitu bæjarins, vegurinn fyrir Ólafsfjarðarmúla er nánast horfinn Ólafsfjarðarmegin, en þó er búið að opna Lágheiðina fyrir umferð. Lítil flugvél lenti á flug- vellinum í gær en önnur umferð um hann hefur ekki verið enda er hann gegnsósa af vatni. „í gær hefur verið unnið for- varnarstarf með því að reyna að ræsa vatni úr fjallinu til að koma í veg fyrir frekari skriðuföll. Það hefur komið okkur til góðs að hafa haft stórvirkar vinnuvélar Kraftverks sf. til aðstoðar því fátt er um stórar ýtur í bænum“, sagði Guðbjörn Arngrímsson. -grh Verðbréfamarkaðurinn Upplausn hjá Ávöxtun ✓ Innlausnarbeiðnirfyrirfjórðungiinnistæðna. HeildarfjármagnsjóðaAvöxtunar 385 milljónir -13 milljónir farnar og 80 milljónir bíða innlausnar. Miklir erfið- leikar í lausafjárstöðu. Vonast til að innlausnartími fari ekki upp íþrjámánuði. Staða Ávöxtunar trygg og holskeflan gengin yfir, segja Pétur og Ármann Forráðmenn Ávöxtunar sf. með þá Ármann Reynisson og Pétur Björnsson í broddi fylking- ar boðuðu til blaðamannafundar í gær, til að skýra frá stöðu fyrir- tækisins í kjölfar þess óróa sem skapast hefur á verðbréfamark- aðnum að undanförnu. Þar kom fram að í síðustu viku hafi Verð- bréfasjóður Ávöxtunar hf og Rekstrarsjóður Ávöxtunar hf. greitt út 13 milljónir króna til við- skiptavina sem vildu leysa út inn- legg sín í sjóðunum og innlausnarbeiðnir fyrir aðrar 80 milljónir hefðu borist.Hér er um að ræða hvorki meira né minna en fjórðung heildarfjármagns sjóðanna, sem saman áttu um 385 milljónir króna „fyrir ÓlaP‘ eins og komist var að orði á fundinum. Ástandið er slíkt að sjóðirnir keyptu engar kröfur í síðustu viku, en hyggjast byrja á því að nýju nú. Þó svo auglýsingabæklingur Ávöxtunar sf. staðhæfi að „inn- lausn geti að jafnaði farið fram samdægurs“, hafa sjóðir Ávöxt- unar sf. ekki getað staðið við það fyrirheit sem þar er látið í veðri vaka. Foráðamenn Ávöxtunar svöruðu ekki beint þegar þeir voru spurðir hver innlausnartími bréfa væri í dag, en sögðu að farið yrði með hverja umsókn um inn- lausn í þeirri tímaröð sem þær hefðu borist. Sagðist Ármann Reynisson vonast til að innlausnartími yrði ekki 90 dag- ar, en það er sá tími sem tiltekinn er á bréfum Ávöxtunar sem há- marksbiðtími eftir innlausn. Reyndar vonast forráðamenn fyrirtækisins til að þær innlausn- arbeiðnir sem borist hafa, komi ekki allar til framkvæmda og sögðu að eitthvað hafi borið á því að fólk hefði dregið þær til baka. Á blaðamannafundinum kom þó fram, að úttektirnar hafi „skapað mikla erfiðleika í lausafjárstöðu“ sjóðanna og ekki er kveðið fastar að orði með innlausnargetu sjóð- anna en að þeir „hafi þó reynt að leysa öll mál viðskiptamanna sjóðanna í samræmi við ákvæði bréfanna." Um stöðu mála í dag, lögðu forráðamenn Ávöxtunar áherslu á að innlausnarholskeflan væri gengin yfir og að ástandið væri að nýju orðið eðlilegt. Allir fjár- munir sem settir hafi verið í sjóð- ina séu tryggðir og allar baktrygg- ingar séu í lagi. Þó viðurkenndi Pétur Björnsson að ástandið „reyndi á þolrifin". Þá kom fram á fundinum að Ávöxtun ætli í framtíðinni að snúa sér eingöngu að verðbréfaviðskiptum og hætta rekstri annarra fyrirtækja. Því sé ætlunin að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð var með sölu Ragnarsbakarís og Veitinga- mannsins og selja önnur fyrirtæki í eigu Ávöxtunar sf og þeirra Pét- urs og Ármanns. Hér er um að ræða fyrirtæki eins og Hjört Nil- sen, Kjötmiðstöðina og Hug- hönnun hf. Þeir Ármann og Pét- ur neituðu því að sala fyrirtækj- anna væri nauðsynleg til að laga slæma lausafjárstöðu og töldu ekki að slæm lausafjárstaða Ávöxtunar leiddi til þess að lágt verð fengist fyrir þau. Þá neituðu þeir Ármann og Pétur sögusögnum þess efnis að samstarfserfiðleikar væru með þeim félögum og að þeir hyggð- ust skipta fyrirtækinu upp. „Við höfum staðið saman í blíðu og stríðu, enda náfrændur og eigurh sama afmælisdag," sagði Ár- mann Reynisson. phh Grandi hf. Þjófnaður í björtu Kaupsamningur um sölu 78,2% afhlutafé Granda hf. fyrir 500 milljónir undirritaður „Ég mun greiða atkvæði gegn þessum kaupsamningi á fundi borgarráðs í dag vegna þess að ég er í grundvallaratriðum á móti því að borgin selji hlutabréf sín í Granda hf. og svo er kaupverðið fáranlega lágt“, sagði Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins við Þjóðviljann. í gær undirritaði Davíð Odds- son borgarstjóri fyrir hönd borg- arsjóðs kaupsamning v.'ð Hval hf., Venus hf., Hampiðjunnar hf. og Sjóvá hf. um sölu á 78,2% af hlutafé Granda hf. sem er í eigu borgarinnar. Söluverðið er 500 milljónir króna. Samkvæmt kaupsamningnum greiðast 50 milljónir króna 5. okt- óber nk. og aðrar 50 milljónir 15. febrúar nk. Afgangurinn 400 milljónir greiðast á 8 árum, verðtryggðar með 3,5% vöxtum. Sigurjón sagði að eftir efna- hagsráðstafanir rfkisstjórnarinn- ar stæðu kaupendur Granda hf. með pálmann í höndunum; vera búnir að kaupa meirihlutann í fyrirtækinu á gjafverði en hreppa í staðinn eitt öflugasta fisk- vjnnslufyrirtæki landsins. -grh ÖKUMENN! Tökum tillit til annarra vegfarenda Bílastæðasjóður Reykjavíkurborgar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.