Þjóðviljinn - 30.08.1988, Blaðsíða 5
FRETTIR
Leiga
Martröð
leigjandans
Leigjendur neituðu að borga húsaleigu vegna
skemmda sem urðu á eigum þeirra við leka.
Leigusali krefurþau um 240.384 krónur
vegna skemmda á íbúðinni og vangoldinnar
húsaleigu. Sigríður Vilhjálmsdóttir: Gefumst
ekki upp heldur leitum réttar okkar
Við ætlum okkur ekki að gefast
upp í þessu máli heldur leita
réttar okkar. íbúðin sem við
leigðum var ekki íbúðarhæf sam-
kvæmt úttekt heilbrigðiseftirlits-
ins og ekki mönnum bjóðandi.
Hann fékk þriggja mánaða frest
til að koma henni í viðunandi horf
en þá var okkur hent út. Nú kem-
ur leigusalinn hinsvegar með fjár-
kröfu á hendur okkur uppá
240.384 krónur og ætlast til að við
borgum, sagði Sigríður Vil-
hjálmsdóttir við Þjóðviljann.
Þau Sigríður og Baldvin Sig-
urðsson leigðu til skamms tíma 55
fermetra kjallaraíbúð hjá Hall-
dóri Hjálmarssyni að Grenimel 9
hér í borg. í vor urðu þau fyrir
tilfinnanlegu tjóni af völdum leka
í íbúðinni og neituðu af þeim
sökum að borga leigu fyrr en
Halldór hefði bætt þeim
skaðann. En þess í stað fékk hann
samþykkta útburðarkröfu hjá
borgarfógeta vegna vangoldinnar
leigu. Áður en til hennar kom
fluttu þau Sigríður og Baldvin út
úr íbúðinni 2. ágúst sl.
Nú hafa þau hinsvegar fengið
kröfu frá Halldóri um greiðslu á
ógreiddri húsaleigu, hitakostnaði
og bótum vegna skemmda á íbúð-
inni að upphæð 240.384 krónur.
Þar er leiga og hiti uppá 37 þús-
und krónur fyrir júní ásamt drátt-
arvöxtum 1/6, 1/7 og 1/8 samtals
42.075 krónur, fyrir júlí leiga og
í þessu húsi að Grenimel 9 býr Halldór Hjálmarsson leigusali sem leigir út herbergi og íbúðir „dýrt“ eins og
hann segir sjálfur. Hann hefur nú krafið fyrrum leigjendur sína um rúmar 240 þúsund krónur vegna
ógreiddrar húsaleigu ofl. á hæpnum siðferðilegum forsendum. Mynd: Ari.
hiti ásamt dráttarvöxtum 1/7 og
1/8 samtals 42.210 krónur, leiga
og hiti fyrir september aðeins
40.315 krónur, 1300 króna lög-
fræðikostnaðar, úttektarkostn-
aður vegna íbúðarinnar kr. 2 þús-
und og tjóns sem leigusali telur
leigutaka vera valdan að fyrir
68.500. Samtals er krafa leigusal-
ans 240.384 krónur.
Að sögn Sigríðar heldur Hall-
dór greiddri tryggingargreiðslu
upp á 100 þúsund krónur sem
hann telur sig ekki þurfa að
greiða til baka vegna skemmda
sem hann fullyrðir að séu af völd-
um Sigríðar og Baldvins, en því
mótmæla þau og segja að íbúðin
hafi ekki verið mönnum bjóðandi
og ekki verið haldið við, eins og
leigusala ber að gera samkvæmt
lögum.
Halldór hinsvegar heldur fast
við lagabókstafinn samkvæmt
húsaleigusamningum en þar segir
að ef leigumála sé rift skuli leigu-
taki bæta leigusala það tjón sem
leiðir beint af vanefndum hans og
ef leigumáli sé tímabundinn, skal
leigutaki auk þess greiða leigu til
loka leigutímans eða ella til næstu
fardaga. Á þessu byggir Halldór
kröfu sína um áðurnefndan
reikning.
Að sögn Halldórs Hjálmars-
sonar finnst honum leigutakar
hafa brugðist sér og honum sé
ekki annað fært en að setja fram
þessa bótakröfu. Sjálfur viður-
kennir hann að hann leigi dýrt en
tekur fram að hann þurfi að
standa við eigin fjárskuldbind-
ingar og þurfi þessvegna á fénu
að halda. Þrátt fyrir dýra leigu
segir Halldór mikla eftirspurn
vera eftir húsnæði hjá sér, en
hann leigir þrjár íbúðir í kjallara
auk átta leigjenda uppi undir
þakskeggi.
-grh
íslenskir aðalverktakar
Hlutabréf í heimangið?
Utanríkisráðherra: Hrifinn af hugmyndinni um almenningshlutafélag. Tillögur
verktökunefndar: Allarframkvœmdir hersins boðnar út, íslenskum aðalverktökum sf. verði
breyttíhlutafélag, meiri áhersla lögð á undirverktöku og óbreyttskipulag með meira aðhaldi
Satt best að segja er ég dálítið
skotinn í þessari tillögu um að
gera íslenska aðalverktaka sf. að
almenningshlutafélagi. En eins og
er hefur ekkert verið ákveðið í
þessu sambandi, sagði Steingrím-
ur Hermannsson utanríkisráð-
herra á fundi með blaðamönnum
í gær.
Sl. þriðjudag lagði utanríkis-
ráðherra fram skýrslu verktöku-
nefndar á fundi ríkisstjórnarinn-
ar til kynningar. Nefndinni var
falið af utanríkisráðherra að taka
saman skýrslu um starfsemi verk-
taka í þágu bandaríska hersins á
Keflavíkurflugvelli og safna sam-
an tillögum og hugmyndum um
breytingar í samræmi við það sem
segir í starfsáætlun ríkisstjórnar-
innar að verktakastarfsemi fyrir
herinn verði tekin til endurskoð-
unar.
í skýrslu nefndarinnar er að
finna fimm tillögur til breytinga á
núverandi ástandi á verktaka-
starfseminni á Keflavíkurflug-
velli, en íslenskir aðalverktakar
sf. hafa til þessa einokað þá starf-
semi frá 1954.
Að áliti verktökunefndarinnar
eru helstu kostir þess að gera ís-
lenska aðalverktaka að almenn-
ingshlutafélagi þeir að öðrum
verktökum og fleirum gefst kost-
ur á að gerast hluthafar í hinu
nýja félagi, það vegur á móti ein-
okunaraðstöðu og tryggi opnari
umræðu ma. á aðalfundi og
kvörtunum Reyknesinga ma. um
að fjármagn sogist burt af svæð-
inu sinnt með því að veita þeim
eignaraðild og áhrif í félaginu.
Gallarnir á þessu fyrirkomulagi
að mati nefndarinnar séu hins-
vegar að umdeilanlegt sé hvort
eigi að gera heimamönnum hærra
undir höfði hvað aðild snertir en
öðrum landsmönnum, erfitt yrði
að setja hlutabréf fyrirtækisins á
almennan markað og finna þeim
„rétt verð“ og hætta sé á að það
traust sem núverandi verktaki
nýtur hjá hernum í verkefnum
sem snerta öryggisþætti yfirfærist
ekki strax á nýjan aðila.
Aðrar tillögur til breytinga sem
er að finna í verktökuskýrslunni
eru ma. þær að allar framkvæmd-
ir á vegum hersins verði boðnar
út til íslenskra fyrirtækja í opnum
útboðum og útboðum að undan-
gengnu forvali, þegar um stærri
og flóknari verkefni er að ræða.
Þessi tillaga er komin frá Verk-
takasambandi íslands.
Þá er tillaga um stofnun nýs
fyrirtækis; Islenskir aðalverk-
takar hf. Fyrirtækið taki við nú-
verandi mannvirkjum íslenskra
aðalverktaka sf. innan hersvæð-
isins, svo og öllum tækjum,
vinnuvélum, bifreiðum, búnaði
og birgðum. Núverandi eigendur
íslenskra aðalverktaka sf. minnki
eignarhlutdeild sína samanlagt
um 20-30%, sem sameinaður
hópur, nýir verktakar, eignist
með hlutabréfakaupum. Hlutur
ríkissjóðs minnki úr 25% í allt að
5%. Jafnframt verði kannaður
möguleiki á eignaraðild núver-
andi starfsmanna íslenskra aðal-
verktaka sf. í Sameinuðum verk-
tökum.
Einnig er tillaga um að meiri
áhersla verði lögð á undirverk-
töku hjá íslenskum aðalverk-
tökum sf. en litlar breytingar að
öðru leyti. Þessi hugmynd hefur
fylgi meðal ýmissa verktaka á
Suðurnesjum, en sú leið hefur
verið farin ma. við verkefni við
byggingu ratsjárstöðva fyrir
austan og vestan.
Fimmti og síðasti valkosturinn
um breytingar sem verktöku-
nefndin leggur til við utanríkis-
ráðherra er að núverandi skipu-
lag verði óbreytt en meira aðhald
verði sýnt en nú er gert. -grh
Ríkissjóður
Sveitarfélög gefi afslátt
Fjármálaráðuneytið: Öll sveitarfélög beðin um að fylgja ífótspor
ríkissjóðs og veita skuldurum afslátt á vangoldnum sköttum.
Borgarráð: Málið íathugun
Við höfum sent öllum sveitarfé-
lögum bréf þess efnis að þau
gefi sitt einnig eftir af vangold-
num sköttum af launatekjum eins
og ríkið hefur ákveðið að gera.
Með tilkomu staðgreiðslukerfis-
ins heyra vanskilamenn sögunni
til og þetta er gert til að geta jarð-
að gamla skattheimtukerflð og
jafnframt að koma til móts við þá
sem skulda gjöld frá fyrri tíma,
sagði Bjarni Sigtryggsson upplýs-
ingafulltrúi fjármálaráðu-
neytisins við Þjóðviljann.
Á síðasta borgarráðsfundi var
lagt fram bréf frá fjármálaráðu-
neytinu þar sem þess er faríð á
leit við borgarsjóð að hann gefi
sitt eftir af skattskyldum launa-
tekjum frá fyrri tíma sem ekki
heftir náðst að innheimta.
Samkvæmt bréfi ráðuneytisins
er gert ráð fyrir að þeir launþegar
sem skulda borgarsjóði skatta af
launatekjum í gamla skattakerf-
inu, semji um greiðslu skulda
sinna fyrir 25. september nk.
verði skuldin tekin eins og hún
stendur þann 1. september nk.
Viðkomandi verði gefinn kostur
á að greiða sína skuld með útgáfu
skuldabréfs og sé skuldin greidd á
4 mánuðum verður 30% slegið af
henni. Þá er boðið uppá að greiða
skuldina á 10 mánuðum og þá er
boðinn 15% afsláttur. Sé skuldin
hinsvegar greidd upp á 2 árum er
upphæðin miðuð við eins og hún
var 1. september nk., verðtryggð
og með 1,5% vöxtum. Sé hún aft-
ur á móti greidd upp á 4 árum, er
skuldin verðtryggð frá 1. sept-
ember nk., með 3,5% vöxtum.
Borgarráð tók ekki afstöðu til
þessa bréfs fjármálaráðuneytis-
ins á fundi sínum sl. þriðjudag,
heldur var beðið með það á með-
an málið yrði kannað.
-grh
ASI
Stuðningur við Samstöðu
Miðstjórn ASÍá fundi um kauplœkkun: Dáistað
kjarki Pólverja
Miðstjórn ASI samþvkkti á
fundi sínum á flmmtudaginn
ályktun þar sem lýst er yfir stuðn-
ingi við baráttu Samstöðu í Pól-
landi.
„Verkafólk á íslandi dáist að
kjarki pólsks verkafólks og
þrautseigju í baráttu fyrir betri
kjörum og frelsi til að starfrækja
frjáls verkalýðsfélög án íhlutunar
stjórnvalda“ segir meðal annars í
ályktuninni, sem senda á Lech
Walesa formanni Samstöðu, og
þar er einnig lögð áhersla á að
rétturinn til að stofna og starf-
rækja frjáls verkalýðsfélög er
grundvallar mannréttindi og
hverskonar hömlur stjórnvalda á
þeim rétti séu brot á grundvall-
arreglum lýðræðis.
„Ykkar barátta er okkar bar-
átta“ segir í lok ályktunarinnar.
Sem kunnugt er á ASÍ það nú
sammerkt með Samstöðu að vera
án samningsréttar, og á þeim
fundi miðstjórnarinnar sem sam-
þykkti stuðninginn við Samstöðu
var fyrst og fremst rætt um við-
brögð við tillögum íslenskra
stjórnvalda um kjaraskerðingu
launafólks sem þungamiðju efria-
hagsaðgerða, - og urðu mið-
stjórnarmenn ekki á eitt sáttir.
-m
Þriðjudagur 30 ógúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5