Þjóðviljinn - 30.08.1988, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 30.08.1988, Blaðsíða 13
HEIMURINN Rúmenía/ Ungverjaland Fundað til einskis Félagi Grosz ogfélagi Ceausescuspjölluðu saman um helgina. Ungverski leiðtoginn ótt- ast um hag landa sinna íRúmeníu, ekki að ófyrirsynju ...en hverjir hylla hann? Almáttugur faðir eða réttara sagt: einræðisherrann vitfirrti gerist hallur úr heimi og hyggst taka þjóðina með sér í gröfina. Karoly Grosz og Nikolaí Ce- ausescu hittust að máli um helgina og ræddu ört vaxandi ágreining sinn um rétt og þó eink- um algert réttleysi ungverska minnihlutans í Rúmeníu. Fund- urinn fór fram í rúmenska bæn- um Arad og út um þúfur. Þar eð ríki beggja búa við „sós- íalískt“ þjóðskipulag fóru við- ræðurnar fram í anda opinskás bræðralags og kölluðu allir alla „félaga" oftar en tölu varð á kom- ið. Þótt Ungverjar og Rúmenar séu að nafninu til „góðir grannar“ var þetta fyrsti leiðtogafundur ríkjanna í 11 ár. En þrátt fyrir kurteisisleikni og prýðilegar serimóníur kom brátt á daginn að Grosz og Ceausescu voru ekki sammála um nokkurn skapaðan hlut sem skiptir máli. Oft andaði köldu á milli valds- herranna og bókstaflega fraus þegar umræðan barst að máli málanna eða hlutskipti 2 miljóna Ungverja í Rúmeníu. Hinn geðveiki týrann í Búkar- est hyggst afmá ungverska minni- hlutann af yfirborði jarðar. Jarð- ýtur eiga að jafna þorp þeirra við jörðu, rúmenskir lærimeistarar og flokksklerkar eiga að uppræta menningu þeirra, rödd þeirra á að kæfa uns þeir hafa skipt um tungu. Tvær miljónir Ungverja verða á brott en tvær miljónir Rúmena hafa bæst í hópinn. Ekki svo að skilja að þörf sé rir fleiri Rúmena í Rúmeníu. ðru nær. Hungurvofan situr um þjóðina. Eitt sinn tók Ceausescu lán að upphæð 10 miljarða doli- ara. Því var spanderað í nokkrar stórframkvæmdir, stóriðjur voru reistar, einnig stórhýsi í Búkarest eftir að helmingur elstu og fegur- stu bygginga borgarinnar hafði verið rifinn. Ekkert skilaði arði og þá var ákveðið að endurgreiða lánið á 10 árum! Allt er selt úr landi sem kaupandi fæst að. Alþýða manna líður skort, börn eru vannærð, ungbarnadauði eykst, betlurum fjölgar og verkamenn eru farnir að hugsa sér til hreyfings. En eftir því sem Ceausescu Friðarverðalaun Nóbels Hver hreppir hnossið? Reagan og Gorbatsjov, Gandhi og Brundtland, skátar og Hjálprœðis- her. Margir kallaðir en fáir útvaldir Hljóta þeir Ronald Reagan og Míkhaíl Gorbatsjov Friðar- verðlaun Nóbels í ár? Þann 28. september næstkom- andi leysir úthlutunarnefnd príss- ins frá skjóðunni. Uns að því kemur ríkir mikil leynd yfir störf- um nefndarinnar og segja kunn- ugir að pukrið sé jafnvel meira nú en endranær. „Hið eina sem ég get sagt ykk- ur er að nú er verið að velta vöng- um yfir fjórum möguleikum og að lokaákvörðun verður tekin daginn fyrir úthlutun," hefur Re- uter eftir ónefndum Norsara sem þekkir mann sem þekkir mann sem á hönk uppí bakið á ein- hverjum nefndarmanna. Reuter gat ekki á sér setið að spyrja hvort Reagan og Gorbat- sjov væru einn þessara fjögurra kosta. Svarið var fremur þunnt í roðinu: „Ég get ekki látið í té nein svör við því spursmáli. Þið megið trúa því að það hefur ekki verið neinum vandkvæðum bundið að verða nefndinni úti um verðuga kandídata." Það er alkunna að úthlutun- arnefndin velur sér vinningshafa úr myndarlegum hópi einstak- linga, hópa, félagasamtaka og stofnana. Kandídatar eru „út- nefndir" en ekki er það á færi Jóns Jónssonar að koma þeim á framfæri. Til þess að nefndin virði „útnefningar" viðlits þurfa einhverjir eftirtalinna að „nefna út“: fulltrúi á þjóðþingi, há- skólaprófessor, dómari við Al- þjóðadómstólinn í Haag ellegar friðarverðlaunahafi Nóbels. Að þessu sinni var nöfnum 74 einstaklinga og 23 félaga/ samtaka/stofnana gaukað að út- hlutunarnefndinni. Á nafnalist- anum kennir margra grasa og kann ýmsum að þykja orka tví- mælis að prísa eigi suma er köllun náfa fengið nú fyrir störf í þágu friðar. Gildi einu þótt þeir reyni að friðþægja fyrir syndir sínar með afvopnunarsamningi. En einsog raun ber vitni eiga ólíklegustu menn séns í Friðar- verðlaun Nóbels. Kissinger fékk þau, einnig þeir Sadat og Begín. Lagt er til að Reagan og Gorbat- sjov fái þau fyrir nafntogaðan samning um eyðileggingu „með- aldrægra“ kjarnflauga. Einhver hefur nefnt nafn Ra- jivs Gandhis, forsætisráðherra Indlands, og er það að vonum því það er kunnara en frá þurfi að segja að „friðargæslusveitir“ hans bera hitann og þungann af bardögum við uppreisnarmenn í tamílabyggðum Srí Lanka. Á meðal annarra kandídata eru Nelson Mandela, Mordechai Vanunu (fsraelsmaður er greindi umheiminum frá gífurlegum kjarnorkuvígbúnaði ráðamanna í Jerúsalem og var dæmdur landráðamaður fyrir), Jóhannes Páll II. páfi og Gro Harlem Brundtland, þjóðhöfðingi úthlut- unarnefndarinnar. Allnokkra at- hygli vekur að engum hefur hug- kvæmst að stinga uppá aðalritara Sameinuðu þjóðanna, Javier Perez de Cuellar, en hann hefur reynt að stuðla að friði í Afganist- an og í stríði íraka og írana. En samtökin sem hann stýrir eru í minniskompu nefndarinnar. Einnig Skátahreyfingin, Hjálp- ræðisherinn, Alþjóða heilbrigð- ismálastofnunin og Alþjóða kvennaráðið. En margir spá því að Reagarí og Gorbatsjov skipti dollurunum 382 þúsund á milli sín. Reuter/-ks. eldist (sjötugur og sagður haldinn krabbameini) hengir hann upp fleiri ljósmyndir og málverk af sér. Lausnarorðið fyrir að- þrengda þjóð er: Ungverjar. Þetta er allt helvítis Ungverjun- um að kenna! 7.000 ungverskir flóttamenn hafa flúið Rúmeníu og segja sínar farir ekki sléttar. „Ég hef það á tilfinningunni, þótt ég láti það ekki fara hátt, að við séum leyndir mörgu sem þarna á sér stað,“ sagði Grosz við frétta- mann Reuters í gær. Ceausescu kom af fjöllum ofan þegar imprað var á nauðungar- flutningi sveitafólks (einkum Ungverja) frá gömlum heima- slóðum fjallaþorpanna í „nýtísku landbúnaðarmiðstöðvar." Land- búnaðurinn yrði kerfis- og tækni- væddur í því augnamiði einu að auka hagræðingu og velmegun. Fólk yrði flutt úr grenjum í fíniríis híbýli „landbúnaðar/iðnaðar- kjamanna“. Grosz var þungur á brún þegar hann rakti öll önnur misklíðar- efni þeirra Ceausescus. „Við leg- gjum nokkuð ólíkt mat á nauðsyn prentfrelsis, við höfum ólík við- horf til frjálsrar skoðanamyndun- ar almennings, til dæmis mótmæ- lafunda...“ Reuter/TIME/-ks. Hafnarfjarðarbær - áhaldahús Óskum að ráða trésmið. Góður vinnutími, góð vinnuaðstaða. Mötuneyti á staðnum. Upplýsingum gefnar í síma 652244. Yfirverkstjóri Frá Grunnskóla Þorlákshafnar Óskum eftir að ráða tvo kennara til starfa. Æski- legar kennslugreinar íslenska og íþróttir. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 98- 33621 á daginn og 98-34661 á kvöldin. Skólanefnd íþróttakennari Grenivíkurskóla vantar íþróttakénnara sem einn- ig getur tekið að sér kennslu í öðrum greinum. Frítt húsnæði í boði. Upplýsingar gefur Björn Ing- ólfsson í síma 96-33131 eða 96-33118. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Garðar Júlíusson frá Vestmannaeyjum til heimilis að Reynigrund 13, Kópavogi lést 26. í Borgarspítalanum. Útför hans verður gerð frá Foss- vogskirkju kl. 15.00 föstudaginn 2. september. Sigríður Björnsdóttir Björn Garðarsson Fjóla Ingólfsdóttir Kristinn Garðarsson Sigrún Barkardóttir og sonarsynir Þriðjudagur 30 ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.