Þjóðviljinn - 30.08.1988, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 30.08.1988, Blaðsíða 11
IÞROTTIR y Rall Islandsmeistarar þnoja anð i roð Feðgarnir Jón og Rúnar ósigrandi „Ég varð að jafna met Ómars bróður en hann varð Islands- meístari þrjú ár í röð á sínum tfma,“ sagði Jón Ragnarsson eftir sigurinn í alþjóðlegu rallkeppn- inni um helgina. Jón hefur með sigrinum tryggt sér meistaratitil- inn ásamt Rúnari syni sínum enda þótt ein keppni sé eftir í haust. Jón var einmitt íslandsmeistari aðstoðarökumanna með Ómari á sínum tíma og er Jón því sigursæ- lasti rallari hér á landi frá upp- hafi. Keppnin var þriggja daga löng, England Leikið í gær Fimm leikir voru í 2. deild ensku knattspyrnunnar í gær- kvöld. Úrslit urðu sem hér segir: Barnsley-Swindon...................1-1 Bradford-Stoke.....................0-0 Man. City-Oldham...................1-4 Oxford-Hull........................1-0 Portsmouth-Leicester...............3-0 -þóm 2. deild IR varai IBV ÍR-ingar fóru létt með Vestmannaeyinga á heimavelli sínum í Breiðholtinu í gærkvöld. Sigruðu þeir með fjórum mörk- um gegn engu Eyjamanna en bæði liðin hafa verið heldur brokkgeng að undanförnu. -þóm Fótbolti Annar leikur Úrslitaleikurinn í eldri flokki var háður í gærkvöld og léku Þróttarar gegn Keflvíkingum en liðin höfðu unnið sína riðla í sumar. Leikurinn endaði með jafntefli, hvort lið gerði eitt mark úr vítaspyrnu. Leikurinn var framlengdur en það dugði ekki til svo að annar leikur verður leikinn innan skamms. -þóm frá fimmtudegi til laugardags, og héldu 32 ökumenn af stað en að- eins 12 skiluðu sér á leiðarenda. Bræðurnir Guðmundur og Sæ- mundur Jónssynir höfðu forystu eftir fyrsta dag en segja má að úrslitin hafi ráðist á föstudegin- um en þá lentu þeir bræður í hrakningum, sprengdu tvö dekk á sömu leiðinni en höfðu aðeins eitt varadekk meðferðis. Að tveimur keppnisdögum loknum var forysta feðganna tæpar þrjár mínútur og því erfiðleikum bund- ið að vinna það upp. Guðmundur og Sæmundur höfnuðu í öðru sæti en aðrir bræður, Ólafur og Halldór Sig- urjónssynir, urðu þriðju. Fast á hæla þeirra komu Óskar Ólafs- son og Jóhann Jónsson á óbreyttum Subaru turbo og sigr- uðu þeir „standard-flokkinn". Fáir keppendur lenda jafnan í eins miklum ævintýrum og Jón S. Halldórsson og Guðbergur Guð- bergsson, en þeir yfirkeyrðu sig nánast allan tímann. Strax á fyrsta degi veltu þeir í tvígang og var Porsche bifreið þeirra illa leikin að keppni lokinni. -þóm Urslit 1. Jón Ragnarsson/Rúnar Jónsson, Ford Escord..........................4:06.55 2. Guðmundur Jónsson/Sæmundur Jónsson, Nissan 240 RS.................4:08.53 3. Ólafur Sigurjónsson/Halldór Sigurjónsson, Ford Escord.............4:18.05 4. Óskar Ólafsson/Jóhann Jónsson, Subaru turtxi.......................4:22.22 5. Jón S. Halldórsson/Guðbergur Guðbergsson, Porsche 911..............4:28.06 6. Sig. B. Guðmundsson/Gunnar Siggeirsson, Talbot Lotus...............4:30.06 7. Jón E. Halldórsson/RagnarBjarnason, Ford Escort....................4:33.13 8. Philip Walker/James Roy, ToyotaCorolla............................4:35.43 9. Elías Pétursson/Heimir Björgvinsson, Ford Escort ..................5:03.26 10. Philippe Gobert/Alain Dropsy, Fiat Uno turbo.......................5:05.27 11. Páll Halldórsson/Róbert H. Halldórsson, Subaru 1800................5:06.23 12. LaufeySigurðardóttir/Unnur Reynisdóttir.ToyotaCorolla.............5:41.38 íþróttir fatlaðra Tvö heimsmet í Hollandi Glæsilegur árangur skömmufyrir Ól- ympíuleika Mjög góður árangur náðist hjá íslensku keppendunum sem tóku þátt í Opna hollenska meistara- mótinu í sundi fyrir fatlaða um helgina. 23 Islandsmet litu dags- ins ljós og þá náðu tveir íslensku keppendanna að setja heimsmet á mótinu. Kristín R. Hákonardóttir setti heimsmet í 100 m baksundi í flokki CP 7. Hún synti á 1.40,18 mín. en gamla metið var 1.42,71 mín. Geir Sverrisson setti einnig heimsmet á mótinu en það var í 200 m bringusundi í flokki A8 og synti hann á 3.03,55 mín. Mót þetta í Hollandi er mjög sterkt og á því kepptu um 300 manns frá 11 þjóðum. íslensku þátttakendurnir á mótinu voru auk Kristínar og Geirs þau Jónas Óskarsson, Ólafur Eiríksson, Halldór Guðbergsson, Gunnar V. Gunnarsson, Rut Sverrisdótt- ir, Sóley Axelsdóttir, Sigrún Pét- ursdóttir og Lilja M. Snorradótt- ir. Þau hlutu alls 12 gullverðlaun, 4 silfurverðlaun og 3 bronsverð- laun. Þessir tíu sundmenn fara á Ól- ympíuleikana í Seoul sem haldnir verða 15.-24. október ásamt fjór- um öðrum íþróttamönnum. Það ætti varla að vera ástæða til að örvænta fyrir leikana eftir svona frækna frammistöðu. -þóm (þróttafélag fatlaðra sendir 14 keppendur á Ólympíuleika fatlaðra í Seoul í október. Visa ísland gaf á dögunum 150 þúsund krónur til fararinnar og var þessi mynd tekin við það tilefni. FLÓAMARKAÐURINN Húsnæði óskast Ung og reglusöm snyrtileg og reyk- laus hjón með 2 börn 8 og 11 ára, óska eftir að taka á leigu 4-5 her- bergja íbúð frá 1. okt. n.k. Upplýs- ingar í síma 16249 á kvöldin og 11540 á daginn. Tanzaníukaffi Gerist áskrifendur að Tanzaníu- kaffinu í síma 621309 þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13-22. Áskrif- endur geta sótt kaffið á sama tíma. íbúð óskast 3 Pólverjar á miðjum aldri óska eftir ca. 3ja herbergja ódýrri íbúð. Uppl. í síma 31519 eftir kl. 17. Tek að mér vélritun Vönduð og góð vinna. Hafið sam- band við Guðbjörgu í síma 32929. Flóamarkaður Opið mánudag, þriðjudag og mið- vikudag frá kl. 14-18. Endalaust úr- val af góðum og umfram allt ódýr- um vörum. Gjöfum veitt móttaka á sama stað og tíma. Flóamarkaður SDI, Hafnarstræti 17, kjallara. Ferðafólk - hestaleiga Kiðafell í Kjós Góð og ódýr gisting í íbúð í nágrenni Reykjavíkur. Hestaleiga á staðn- um. Riðið út á góðum hestum í fall- egu umhverfi. Uppl. í síma 666096. Rafmagnsþjónustan og Dyrasimaþjónustan Bjóðum alla almenna raflagna- vinnu, erum sérhæfðir í endurnýjun og breytingum á eldn raflögnum. Veitum ráðgjöf við lýsingu í verslun- um, og heimahúsum. Setjum upp og þjónustum dyrasíma. Kristján Sveinbjörnsson rafvirkjameistari, sími 44430. Okkur vantar lesefni Við erum 3 og 5 ára og erum að flytjast langt út í lönd. Viljum gjarnan hafa með okkur mikið af góðum bamabókum, svo við gleymum ekki islenskunni. Ef þið eigið bækur sem þið viljið selja fyrir lítið hafið þá samband í síma 10633. Dagmamma nálægt Melaskóla Tek 6 ára börn í gæslu fyrir hádegi í vetur. Hef uppeldismenntun. Upp- lýsingar í síma 28257. Við erum námsfólk með eitt lítið barn og leitum að íbúð sem allra fyrst. Eigum bæði að byrja í skóla í haust og viljum helst ekki þurfa að sofa í bílnum. Vinsam- legast hringið í síma 681331 eða í síma 681310 á daginn. Til sölu Ný eldhúsinnrótting, baðsett, þ.e. baðker, w.c. og vaskur í borð, tvær álhurðir í körmum og álprófílar. Upplýsingar í síma 39198. Barnagæsla - vesturbær Vill ekki einhver barngóð kona taka að sér að gæta 2 ára stúlku eftir hádegi í vetur, 3-4 klst. á dag? Upp- lýsingar í síma 16495. Stór íbúð óskast til leigu fyrir rólega og reglu- sama 6 manna fjölskyldu á Reykja- víkursvæðinu. Upplýsingar á auglýsingadeild Þjóðviljans í síma 681333. Philco þvottavél til sölu ódýrt. Þarfnast viðgerðar. Upplýsingar í síma 40873 milli kl. 18 og 20. Strauvél til sölu Upplýsingar i sima 13289. Sjónvarp óskast Skosk stúlka óskar eftir sjónvarpi s/h eða lit, ódýrt eða gefins. Upplýs- ingar í síma 26128 eftir kl. 19. Tómar sultukrukkur fást gefins. Upplýsingar í síma 37947. Óska eftir gömlu ísskáp Má vera ónýtur. Helst Westing- house. Upplýsingar í síma 681333 eða 78548. Listmálari óskar eftir húsnæði fyrir vinnustofu. Upplýsingar í síma 12185 eftir kl. 17.00. Toyota Tercel '82 Til sölu Toyota Tercel árg. ’82 í mjög góðu standi, en smáskemmd- ir á vinstri framhurð. Ekinn 85.000 km. Verð kr. 180.000 (150.000 stgr.). Upplýsingar í síma 54185. Steingrímur. Baðskápur óskast Óska eftir ódýrum baðskáp. Upp- lýsingar í síma 666924. Image writer I prentari, óskast. Upplýsingar í síma 83924. Rúm til sölu Tvíbreitt fururúm með dýnum til sölu. Upplýsingar í síma 39672. Tveggja herbergja íbúð óskast Lítil, ung fjölskylda frá Þórshöfn er á götunni. Vinsamlegast hringið í Gylfa í síma 84957 eða 52365. Ungt par menntaskólakennari og smiður óska eftir 2-3 herbergja íbúð sem fyrst. Getum tekið að okkur viðhald og / eða lagfæringar á húsnæðinu ef með þarf. Upplýsingar í síma 36560 milli kl. 17 og 19, Steinunn Guðjónsdóttir. National geographic magazine Vill einhver hirða 3 síðustu árganga af National geographic magazine? Sími 612092. Óska eftir vinnuaðstöðu - verkstæði með hita og rafmagni t.d. bílskúr. Upplýsingar í síma 36560, Steinunn Guðjónsdóttir. Til leigu íbúð 3 herbergja 87 fm með bílageymslu í Hamraborg, Kópavogi, 2. hæð frá 5. september ’88. Leiga 35.000 á mánuði + hiti og rafmagn. Tilboð skilist blaðinu merkt „VP‘‘ (ath. skil- ist á auglýsingadeild). Þríhjól óskast Ég er 3 ára og mig bráðvantar þrí- hjól. Sími 681748 fyrir hádegi og á kvöldin. Til sölu - fæst gefins Gamalt sófasett fæst gefins. Á sama stað er til sölu Diskman geislaspilari og 2 bílar á 10.000 kr. stk. Upplýsingar í síma 19638. Rifsber Ef einhver á rifsberjarunna með berjum sem ekki verða nýtt þá vil ég mjög gjarnan fá að tína þau. Dagný, sími 14189. Viltu byrja að mála? 10 vikna málaranámskeið fyrir kon- ur mánudags- miðvikudagskvöld í Hlaðvarpanum. Upplýsingar í síma 27064. Barnavagn fæst gefins Hentugur sem svalavagn. Upplýs- ingar í síma 14945. Fóstru vantar Okkur á barnaheimilinu Barnabæ á Blönduósi bráðvantar fóstru til liðs við okkur sem fyrst. Á heimilinu starfa nú þegar þrjár fóstrur og einn þroskaþjálfi. Erum að fara af stað með mjög spennandi starfsemi nú I haust. Húsnæði I boði. Upplýsingar veitir forstöðumaður, Svava Hans- dóttir, í síma 95-4530 og heimasíma 95-4453. Þriðjudagur 30 ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.