Þjóðviljinn - 30.08.1988, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 30.08.1988, Blaðsíða 8
Fmmtíðin skiptir öllu Framsöguerindi Svanfríðar Jónasdóttur á fundi Alþýðu- bandalagsins um stöðuna ísjávarútveginum Hafnarfirði á fimmtudagskvöld Þegar efnahags- eða hagstjórn- arvandi okkar íslendinga nær þeirri stærð að stjórnmálamenn og fjölmiðlar taka til að fjaila um hann, þegar hugsanleg „lausn“ efnahagsvandans yfirskyggir alla aðra umræðu í landinu þá er sjáv- arútvegurinn alla jafna í lykilhlu- tverki. Vandinn stóri virðist eiga þar upphaf sitt jafnt sem endi og gildir þá einu hvort um er að ræða vanda vegna verri ytri skilyrða eða vanda vegna hagstjórnar hér innanlands. Skýringin er væntanlega sú að ekki er reynt að grípa í taumana fyrr en taprekstur er orðinn staðreynd og hrun blasir við. Þá er tjaldað til einnar nætur. Umræðan lætur því orðið í eyrum landsmanna eins og biluð plata, ögn hækkuð ef kjarasamn- ingar eru á dagskrá, annars við- varandi og eins. Talsmenn sjáv- arútvegs hafa í augum lands- manna verið í hlutverki drengsins sem hrópaði úlfur, úlfur í sögunni gömlu. Það er því vandmeðfarið að sannfæra fólk um að nú sé úlf- urinn í raun kominn og meira að segja tekinn til við að stanga úr tönnunum. En hver er þá staðan? Við skulum halda okkur við vinnsluna. Við höfum verið það upptekin við að skoða kvótann undanfarin ár og að hafa á honum skoðun, jafnvel skömm, að það sem skiptir meginmáli, þ.e. hvað verður síðan um fiskinn þegar hann er kominn í land, hefur eins og legið milli hluta. Nú vakna menn hinsvegar upp við vondan draum. Saltfisks- vinnslan sem gekk svo glimrandi undanfarin ár, er að sigla í tap, en afkoma hennar er misjöfn eftir landsvæðum. Ósjálfstœði frystihúsanna Frystihúsin um allt land eru hinsvegar farin að tapa og það miklu. Talað er um 12% á þetta fræga meðaihús sem enginn veit hvar er staðsett, en menn geta þá rétt ímyndað sér hver staðan er sumsstaðar. Staða frystihúsanna er að vissu leyti þannig að tæpast er hægt eða sanngjarnt að tala um frystihús sem sjálfstætt fyrirtæki. Skulu ástæður þess nú raktar: 1) Frystihúsin selja vörur sínar í gegnum tvö stór sölusamtök; Sambandið og Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna. Samtökin eiga síð- an og starfrækja verksmiðjur og söluskrifstofur í Bretlandi og Bandaríkjunum. í verksmiðjun- um er hluti afurða frystihúsanna unninn frekar þ.e. hluti afurð- anna er iðnaðarhráefni. Sölusamtökin sjá um markað- inn og semja um verð. Þau sjá jafnframt um vöruþróunarstarf. Frystihúsin fá síðan upplýsingar um birgðastöðu, þar sem hægt er að sjá hverslags pakkninga er helst vant, hvað hreyfist mest og hinsvegar fá þau verðskrá yfir framleiðsluvörurnar. Af þessu fyrirkomulagi leiðir að stjórnendur frystihúsanna hafa ekki yfirsýn yfir markaðinn og þær breytingar sem þar kunna að vera í farvatninu. Framleitt er eftir birgðaskýrsl- um og verðskrám sem kunna að breytast og dæmi eru um núna að framleitt hefur verið í góðri trú eftir verðskrá sem síðan hefur verið breytt og látin virka á þegar framleidda vöru. Slík áföll hafa húsin tekið á sig af fullum þunga og menn horft á birgðir lækka á einni nóttu um miljónir. 2) Flest frystihús kaupa og vinna heila togarafarma af blönd- uðum misgömlum afla. Sérhæf- ing er því nánast útilokuð. Staðan er einnig þannig að þegar mest berst að, t.d. yfir sumartímann er útilokað að framleiða þá vöru sem e.t.v. væri hagstæðast því keyra þarf mikið magn gegnum húsin á stuttum tíma og vinnuafl- ið að stórum hluta unglingar og börn. 3) Tekjur frystihúsanna ráðast ekki einvörðungu af framan- greindum þáttum, þ.e. þeim verðum sem sölusamtökin hafa og hvað framleitt er, heldur einn- ig af skráningu gengis þ.e. hve margar krónur fást fyrir dollara og pund til að mæta innlendum kostnaði. Þannig er afkoma þeirra stór- lega háð því - í bullandi verð- bólgu, þ.e. linnulausum hækkun- um kostnaðarliða - hvernig gengið er skráð. Og vegna þess að genginu var haldið niðri með handafli á sama tíma og tilkostn- aður jókst, tókst húsunum ekki að laga stöðu sína í góðærinu. Háu verðin runnu beint í gegn og í flestum tilfellum í vaxta- greiðslur. Þvf er ekkert borð fyrir báru nú. 4) Eignarhald margra frysti- húsa er með þeim hætti að þau haida áfram rekstri eftir að þau ættu m.v. rekstrarstöðu að vera búin að loka. Jafnframt gegna þau lykilhlutverki í atvinnulífi fjölmargra byggðarlaga. Rekst- urinn er þá auðveldaður með fyr- irgreiðslu af hálfu viðkomandi sveitarfélags og skuldum breytt í hlutafé. Þannig renna þeir pen- ingar sem fara eiga til sameigin- legra þarfa íbúanna í gegnum frystihúsin og áfram inn í kerfið. Slík sveitarfélög þurfa enga til- skipun frá ríkisvaldinu um að draga saman seglin í framkvæmd- um. Stöðnun á tœkniöld Undanfarin ár hefur reglulega mátt sjá um það skrif og vanga- veltur hvort stjórnendur frysti- húsanna ætluðu nú ekki að fara að taka til hjá sér svo afkoman verði betri. í ljósi þess sem að framan er rakið má vera ljóst að svigrúm einstaka húss er harla lítið. Reynt hefur verið eftir hugviti og pen- ingalegri getu að tæknivæða hús- in og auka framleiðni. Síðan ver- ið horft til allmargra efna- hagsráðstafana s.s. fiskverðs, vaxta og gengis. Varðandi tekjurnar virðist fyrst og fremst horft til gengis- skráningar. Það hvernig til tekst með markaðssetningu og sölu virðist hafið yfir gagnrýni, í mesta lagi að frystihúsamenn hvísli um sofandahátt og værð yfir sölu- samtökunum. Þau hafa sitt á þurru. Litlar breytingar eru sjáanlegar, þrátt fyrir gjör- breyttar aðstæður frá því þau voru stofnuð bæði í samgöngum og fjarskiptatækni. Breytingar virðast ekki á döf- inni meðvitað varðandi frystihús- in. Samt sem áður eru breytingar, nánast bylting, í fullum gangi innan sjávarútvegsins. Þeim ráða ýmist örvæntingarfullar tilraunir til að auka tekjurnar eða fram- sýni einstaka manna. Það er a.m.k. ljóst að margt af því sem nú er að gerast, gat vart gerst fyrr vegna m.a. tækni og samgangna. En lítum yfir sviðið. 1) Útflutningur ísaðs afla í gámum gerir það að verkum að skip þurfa ekki að sigla með allan aflann ef menn vilja freista gæf- unnar á erlendum fiskmörkuð- um. 2) Frystingin er að færast út á sjó. 3) Fiskmarkaðir eru orðnir staðreynd og í gegnum þá ættu forsendur til sérhæfingar að vera til staðar og þar með forsenda fyrir skaplegum vinnutíma og • betra skipulagi í framleiðslunni. 4) Flutningur á ferskum sjávar- afurðum með flugi - beint á markað - er vaxandi. En víkjum þá aftur að stöðunni í dag. Staðan er orðin það bág að ef ekki verður gripið til aðgerða strax, munu húsin loka, hvert af öðru og spurning hve mörg geta þá opnað aftur. Ef beðið er eða eitthvert hálfkák sem ekkert endist, verður niðurstaðan, munu önnur öfl en heilbrigð skynsemi ráða því hvort það verða tæknivæddustu og bestu húsin og/eða e.t.v. hús sem eru meginuppistaða atvinnulífs í heilu byggðarlagi sem lifa af. Það þarf því að grípa til að- gerða sem bæði grípa á bráðum vanda og horfa til framtíðar. Hvað er til ráða? En hvað á þá að gera? 1) Lækka vexti. Það stenst eng- inn atvinnurekstur 9-12% raun- vexti. Það á ekki bara við um sjávarútvegsfyrirtæki, þau eru ekki endilega á því sviði fyrir- tækin sem ýmist eru að fá greiðslustöðvun eða lýsa sig gjaldþrota þessar vikurnar. Fors- enda þess að eitthvað gangi upp er auðvitað hagstjórn sem tekur mið af íslenskum aðstæðum í stað æfinga með skólabókakenningar. 2) Hluta af skuldum verði breytt í hlutafé í viðkomandi fyrirtækjum og eiginfjárstaða þeirra þannig styrkt. Bankar og sjóðir taki það á sig og axli þar með sína ábyrgð af því hvernig komið er. Við gætum t.d. hugsað okkur varðandi bankana að sá mismunur sem hefði verið á 3% raunvöxtum og því sem fyrir- tækin hafa greitt undanfarin 2 ár yrði það sem horft yrði til þar. Þar sem bankar mega ekki eiga fyrirtæki í rekstri væri eðlilegast að bæði þeir og viðkomandi sjóð- ir afskrifuðu það fé sem þannig kæmi inn í fyrirtækin og að í fyrir- tækjunum færi félag starfsmanna með þetta nýja hlutafé. Mér finnst það hinsvegar sið- leysi að ætla fólkinu í sjávarpláss- unum að taka enn á sig þær byrð- ar gegnum sveitarsjóði og jafn- ljóst að kaupfélögin víðast eru ekki lengur til stórræða. Hugmynd ráðgjafanefndar ríkisstjórnarinnar um það að gera kaup á hlutabréfum í fyrirtækjum girnilegan sparnaðarvalkost fyrir almenning breytir engu um stöðuna í dag. í dag þýðir ekkert að telja fólki trú um að peningar þess geti ávaxtað sig eða haldið verðgildi í þeim fyrirtækjum sem ganga á lánsfé. í þeim efnum verður að leggja plan til langs tíma, eða þess tíma sem það tekur að endurreisa fjár- hag fyrirtækjanna og að þróa hlutabréfamarkað. 3) Verja verður fjármunum.til þess að hjálpa einstaka fyrirtækj- um að hætta í rekstri. Það væri hluti af þeirri endurskipulagn- ingu sem fram þarf að fara. Víða háttar þannig til að hægt er að sameina rekstur eða leggja af rekstur án þess að atvinnuleysi hljótist af og verða menn því við slfkar aðgerðir að horfa til að- stæðna í viðkomandi byggðar- lögum og möguleikum til rekstr- ar. Það er engum greiði gerður með því að halda öllum ryðkláf- um atvinnulífsins á floti. En eins og ég vék að áðan þá á fólk að taka svona ákvarðanir en ekki markaðurinn eða tölva. Sölusamtökin endurskipulögð 4) Það svigrúm sem skapaðist við þessar þríþættu aðgerðir á síðan að nota til að endurskipu- leggja sölusamtök sjávarútvegs- ins með það að leiðarljósi að nú- tíma tækni og samgöngur verði nýtt til þess að færa þróunar-, markaðs- og sölustarf til fyrir- tækjanna sjálfra eða svæðisbund- ið - færa þau störf út - þannig að brugðist verði við breytingum á markaði strax og í fyrirtækjunum sjálfum. Það fyrirkomulag sem nú er hentaði meðan fjarskipta- tækni og samgöngur voru með öðrum hætti en nú er. í dag er hinsvegar unnt að fylgjast með breytingum á mark- aði frá degi til dags í fyrirtækjun- um sjálfum og flugið gerir þá geymsluaðferð að frysta fiski í mörgum tilfellum óþarfa. Þá er jafnframt ljóst að því „styttra" sem er milli neytanda og fram- leiðanda aukast líkurnar á að hægt sé að verða við óskum varð- andi sérvinnslu ýmiss konar. Og þá er komið að áherslu- punkti nr. 5) sem er í raun hluti af 4) en það er nauðsyn þess að þró- unarstarf í vinnslu sjávarafurða fari fram sem víðast um landið. Ef slík starfsemi með þeirri þekk- ingu sem fylgir, færi fram úti um allt land ætti það að leiða til fjöl- breyttari framleiðslu sem bæði tæki mið af verkþekkingu á við- komandi stað eða svæði og þeirri sérstöðu sem kann að verða fyrir hendi í hinum mismunandi byggðarlögum. Það ætti jafn- framt að efla tiltrú þess fólks sem við greinina vinnur á framtíð greinarinnar. 6) Menntun í sjávarútvegs- greinum þarf að standa til boða sem víðast, þannig að því fólki sem annað hvort vill vinna í greininni eða vinnur þar þegar, gefist kostur á að mennta sig og leita endurmenntunar eftir að- stæðum. Það að ungt fólk fer úr fiskvinnslunni um leið og önnur störf bjóðast stafar m.a. af því áhuga- og virðingarleysi yfirvalda að bjóða ekki upp á leiðir til menntunar og þá aukinnar þekk- ingar og sjálfstrausts sem henni fylgir. Nám í fiskvinnslu gæti sem hægast verið ein af brautum fjöl- brautaskólanna. Áhœtta og hugvit 7) Bankakerfi og sjóðir vérða að laga sig að nýjum aðstæðum, auka þjónustu, ekki bara lána, og taka áhættu varðandi þróun og nýbreytni. Þeir þurfa að horfa til framtíðar en ekki bara skoða hvort veð sé í húseignum miðað við brunamat eins og nú er gert. Hugvit er líka verðmæti. Þetta þýðir að bankar og sjóðir þurfa í ríkari mæli að hafa í sinni þjón- ustu fólk sem þekkir til í þeim atvinnugreinum sem þjónusta viðkomandi stofnunar snýr að. 8) Það þarf að taka upp ger- breytta fjárfestingarstefnu þar sem tekið verði tillit til raunveru- legra rekstrarmöguleika í við- komandi grein. Það að allt of margir séu að fjárfesta í sömu grein getur aldrei þýtt annað en taprekstur hjá öllum þegar hrá- efni til vinnslu er takmarkað. Þótt slíkar fjárfestingar séu gerðar undir merki byggðastefnu er slíkt fyrirtæki vafasamur ávinningur fyrir viðkomandi byggðarlag, að ekki sé minnst á þjóðarbúið í heild sinni. 9) Kerfið þarf að hafa skýrar reglur og mismuna ekki þegar um er að ræða fjárfestingar í atvinnu- lífinu. Það ábyrgðarleysi sem menn komast upp með er óþol- andi og löngu tímabært að kann- að sé og gert opinbert hvernig og af hverju ýmsar veigamiklar á- kvarðanir sem snerta atvinnulífið og fjárfestingar þar eru teknar. Það að hagsmunagæslumenn ým- isskonar beiti áhrifum sínum til að þrýsta á eða liðka fyrir ákvörð- unum varðandi fjárfestingar sem e.t.v. liggur fyrir að eru hæpnar, jafnvel óþarfar, á að vera hluti af liðinni tíð. 10) Ég fjallaði hér áður um erf- iðleika sem af því stafa að frysti- hús kaupa og vinna heila farma af blönduðum afla. Fiskmarkaðir geta vissulega skapað forsendur fyrir betra skipulagi vinnunnar þar sem hægt er að kaupa það hráefni sem menn vilja vinna og það magn sem hentar. Það vandamál sem skapast vegna þess að of mikið berst að í einu eða of lítið verða menn að leysa ef þeir ætla að ná skipulagi á vinnslunni og vinnutímanum, og hvort tveggja er brýnt. Fiskmarkaðir, ýmist gólf- eða fjarskiptamarkaðir og fiskmiðlun þar sem það á við, hlýtur því að verða hluti af þeirri framtíð sem við sjáum fyrir okkur. En til þess að slíkt samstarf geti átt sér stað, sem og annað það samstarf sem nauðsynlegt er fyrir þróun innan sjávarútvegsins, þarf ekki bara nýja hugsun heldur einnig bættar samgöngur og þá líka samgöngur sem auðvelda beinan útflutning. Framtíð okkar allra Aðalatriðið er að við horfum ekki bara til dagsins í dag eða næstu vikna, heldur til framtíðar, hugsum okkur inn í framtíðina óbundin af fyrirkomulagi dagsins í dag. Það þarf að birta fólki framtíðarsýn, ekki síst því fólki sem vinnur í sjávarútvegi, annars munu enn fleiri missa trú á þeim möguleikum sem þar felast. Þá framtíð má ekki hugsa út frá helmingaskiptum flokka eða hagsmunum milliliða. Sú framtíð kemur okkur öllum við. Svanfríður er L rejarfulltrúi á Dal- vík og varaformaður Alþýðu- bandalagsins. Fyrirsagnir og millifyrirsagnir eru Þjóðviljans. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30 ágúst 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.