Þjóðviljinn - 30.08.1988, Qupperneq 16
Sigurður Kristjánsson,
verkamaður:
Ég get ekki séð hvernig á að fara
að því, enda er þetta eins og
hvert annað rugl.
Jóhannes Harðarson,
skrifstofumaður:
Það er alveg út í hött að tala um
að reka einn eða neinn.
Júlíus Helgason,
afgreiðslumaður:
Ég veit það hreinlega ekki og skal
því ekkert um það segja.
Myndir: ARI-
—SPURNINGII^-
Hvaða þúsund ríkis-
starfsmenn á að reka?
Sigríður Jónsdóttir,
vinnur við ræstingar:
Ætli það sé ekki að minnsta kosti
upplagt að byrja á ríkisstjórninni.
Ólafía Thorlacius,
húsmóðir:
Ég er viss um að það er alveg
sægur af fólki sem mætti segja
upp.
þjómnuiNN
SIMI 681333
Á KVÖLDIN
681348
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Þriðjudagur 30. september 192. tölublað 53. örgangur
Skák
Toffi
titilhafinn
Hannes Hlífar Stefánsson tryggði sér alþjóð-
legan meistaratitil á Skákþingi Islands.
- Taflmennskan ætti að verða
afslappaðri hjá mér á næstunni
úr því að titillinn er í höfn, sagði
Hannes Hlífar Stefánsson, alþjóð-
legur meistari í skák, en á Skák-
þingi Isiands sem lauk nú um
helgina náði hann þriðja og síð-
asta áfanganum. Hannes sagði að
óneitanlega hefði fylgt því nokk-
urt stress að undanförnu að vera í
námunda við titilinn, og var því
að vonum feginn að áfanganum
væri náð.
Hannes Hlífar hafnaði í 3. sæt-
inu með 8 vinninga, hálfum vinn-
ingi meira en Karl Þorsteins sem
varð fjórði, en öruggir sigurveg-
arar á Skákþinginu voru stór-
meistararnir Jón L. Árnason og
Margeir Pétursson með 9,5 vinn-
inga hvor.
Samkvæmt lögum Skáksam-
bandsins skal haldið fjögurra
skáka einvígi um íslandsmeist-
aratitilinn ef hrein úrslit fást ekki
á Skákþinginu, en Ásdís Braga-
dóttir, starfsmaður sambandsins,
kvað alls óvíst hvenær af einvíg-
inu gæti orðið vegna anna efstu
manna.
-Það væri skemmtilegra að
tefla um titilinn á réttu ári, sagði
Jón L. Árnason í spjalli við
blaðamann í gær, en sjálfur er
hann á förum til Sovétríkjanna
þar sem hann tekur þátt í sterku,
sextán manna móti ásamt Helga
Ólafssyni. Þá er Margeir Péturs-
son meðal þátttakenda á
Heimsbikarmóti Stöðvar 2 í okt-
óber; báðir tefla fyrir íslands
hönd á Ólympíumótinu í nóvem-
ber, og að auki kvað Margeir
hafa ráðið sig til að aðstoða Jó-
hann Hjartarson fyrir einvígið
við Karpov í ársbyrjun 1989.
Með frammistöðu Hannesar
Hlífars eru íslensku alþjóða-
meistararnir í skák orðnir sex
talsins; auk hans þeir Ingi R. Jó-
hannsson, Haukur Angantýsson,
Sœvar Bjarnason, Þröstur Þór-
hallsson og Karl Þorsteins. Stór-
meistararnir eru einnig sex talsins
eins og kunnugt er, þeir Friðrik,
Guðmundur, Helgi, Jóhann, Jón
L. og Margeir. HS
Hannes Hlífar Stefánsson tryggði sér alþjóðlegan meistaratitil í skák á
nýafstöðnu Skákþingi íslands. Mynd: Ari.
Hornafjörður
Svartur köttur í messu
Um það leyti sem klerkur var
iað leggja útaf guðspjalli dagsins í
Bjarnaneskirkju þarsíðustu helgi
ivarð uppi fótur og fit í kirkjunni,
samkvæmt frásögn Eystra-
Horns, en þar var mættur köttur.
„Varð kirkjugestum ekki um
sel og litur kattarins hleypti þeim
hugrenningum af stað að þarna
væri á ferð skrattinn sjálfur hold-
gaður í ketti kominn til að þagga
niður prestsins kristilega óráðsh-
jal. í þessari lotu bjargaði það
presti að organistinn Þorbjörg
Jóhannsdóttir er jarðbundin vera
úr sveit, sá í kettinum bara kött,
rauk til, tók hann í fangið, skál-
maði með hann út og skellti. En
ekki var allt búið þar með. Þegar
fólkið stóð upp til að meðtaka
hina postullegu blessun tók það
eftir því að kolsvartur kötturinn
var mættur við hlið prestsins og
þótti það mikið augnayndi að sjá
þá þar tvo prestinn og köttinn at-
hafna sig við altarið (prestur flutti
ræðu sína frá altarinu). Klóraði
kolsvartur kötturinn gráturnar af
kappi meðan prestur lauk messu,
naut þess að hinn hugaði organ-
isti var upptekinn við sálmaspil-
erí. Söfnuðurinn skemmti sér
konunglega yfir uppákomu það
sem eftir var messunnar og að
henni lokinni var kettinum fírað
út eins og öðrum kirkjugestum.
Síðar þennan sama dag þegar kir-
kjuvörður kom til þess að ganga
frá var kötturinn kolsvartur enn
mættur og hafði nú með sér gráan
kettling.“
Eystra-Horn segir frá því að
rannsókn standi yfir á því hvaða
leyndarlykil kötturinn hafi að
guðshúsinu, og segir þar að inn-
ansveitarmenn ræði um að
blanda biskup í málið, svona til
að hafa gamlar hefðir í heiðri.
Eystra-Horn er nokkuð vel sett
til frásagnar af messunni í
Bjarnaneskirkju, - ritstjóri
blaðsins er nefnilega Baldur
Kristjánsson, sóknarprestur á
Höfn.
Síbería
Minnisvarði um
Vorkútaborg í Síberíu var að
meginhluta reist af þrælum, fólki
sem fyrir duttlunga Jósefs Stalíns
var lýst fjandsamlegt sósíalisman-
um og sent í útlegð. Fjölmargir
létust úr eymd og vosbúð, hungri
og kulda, strit í brunagaddi batt
enda á líf ófárra, aðrir bundu
sjálfír enda á hið óbærilega. Þeir
sem að endingu sneru heim báru
þess aldrei bætur að hafa tekið
þátt í sköpun Vorkútu.
Ízvestía, dagblað sovétstjórn-
arinnar, skýrði frá því í gær að
stjórn Vorkútu hefði í hyggju að
reisa minnisvarða um fólkið sem
nauðugt viljugt reisti borgina,
sumt með lífi sínu. Gerði stjórnin
ennfremur allt sem í hennar valdi
þræla
stæði til þess að hafa uppi á
nöfnum þrælanna.
Telur Izvestía borgarstjórnina
reisa sér hurðarás um öxl með því
síðarnefnda. Það væri óvinnandi
vegur að rifja upp nöfn alls þess
aragrúa einstaklinga sem að ó-
sekju var sendur í þrælkunarbúð-
ir á fjórða og fimmta áratugnum.
Reuter/-ks.