Þjóðviljinn - 02.11.1988, Page 1
Miðvikudagur 2. nóvember 1988 238. tölublað 53. órgangur
Fjárlagafrum varp
Aðhald og hátekjuskattar
Snúiðfráþriggja miljarða halla íeins miljarðs tekjuafgang. Auknar skattaálögur áhátekju- og stóreignafólk.
Engin erlend lán. Dregið úr fjárfestingum hins opinbera
Fjármálaráðherra lagði fram
fjármálafrumvarp fyrir árið 1989
í gær. Ólafur Ragnar Grímsson
segir að frumvarpið flytji engan
gleðiboðskap, það markist af
miklum erfiðíeikum í íslenskum
þjóðarbúskap. Til að greiða nið-
ur fyrri halla og ná eins miljarðs
tekjuafgangi á meðal annars að
hækka ýmsa óbeina skatta og
eignaskatt einstaklinga sem eiga
skuldlausar eignir metnar hærra
en 12 miljónir. Stefnt er að því að
ríkissjóður taki engin erlend lán á
næsta ári en greiði eldri Ián niður.
Ólafur sagði á blaðamanna-
fundi í gær að það hefði ekki ver-
ið létt verk að semja fjárlögin,;
bæði hefði þurft að beita niður-
skurði og taka ákvarðanir um
nýja tekjuöflun. Reynt hefði ver-
ið að gæta ákveðins réttlætis í
þeim efnum og hlífa velferðar-
kerfinu, menningarmálum og
náttúruverndarmálum við niður-
skurði. Hann sagði að það þyrfti
að fara allt aftur til ársins 1980 til
að finna fjárlagafrumvarp með
öðrum eins tekjuafgangi. En
áætlaður tekjuafgangur næsta árs
er 1,2 miljarðar.
Ástæðuna fyrir þessum tekju-
afgangi sagði Ólafur vera að ís-
lenskt þjóðfélag hefði verið rekið
með erlendri skuldasöfnun og
stöðugum halla á ríkissjóði. Þetta
stuðlaði að verðbólgu og græfi
undan efnahagslegu sjálfstæði
þjóðarinnar. Nú þyrfti að greiða
niður skuldirnar og stefnt væri að
því að greiða þær niður um 1,9
miljarða á næsta ári. Til að slá á
verðbólgu og þenslu yrði dregið
saman í fjárfestingum hins opin-
bera um 3% í heild og um 7% hjá
ríkinu einu.
Til að ná þessum markmiðum
sagðist ráðherrann hafa beitt
þeirri almennu reglu að fram-
kværndii sem hefðu átt að klárast
á 12 mánuðum gerðu það á 20
mánuðum og ýmsum öðrum
framkvæmdum yrði frestað. Til
dæmis ætti ekki að fara út í fjár-
frekar innréttingar í SÍS-húsinu
þegar ráðuneyti flyttu þangað inn
eins og áætlað hefði verið og
byggingaframkvæmdum á vegum
stjórnarráðsins yrði frestað.
-hmp
Sjá síðu 3
zua
Síld til Pollands
Síldarútvegsnefnd: Viðrœður hefjast á nœstu
dögum við Pólverja um síldarkaup í skiptum
fyrir nýsmíði áþrem vertíðarbátum
„Fari svo að Sovétmenn stað-
festi kaup á 50 þúsund tunnum til
viðbótar þeim 150 þúsund tunn-
um sem þeir hafa þegar staðfest
er hér um að ræða saltsíldarsölu
uppá 1 miljarð króna. Varðandi
frekari síldarsölusamninga af
hálfu Sfldarútvegsnefndar má
geta þess að á næstu dögum hefj-
ast viðræður við Pólverja um síld-
arkaup upp í greiðslu nýsmíði á
þrem vertíðarbátum sem verið er
að smíða þar í landi," sagði Einar
Benediktsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Sfldarútvegsnefnd-
ar.
Samkvæmt saltsíldarsamning-
unum við Sovétmenn hafa þeir
frest fram til 15. nóvember nk. til
að staðfesta kaupin á þeim 50
þúsund saltsíldartunnum til við-
bótar þeim 150 þúsundum sem
þeir hafa þegar keypt af haussko-
Fjármálaráðherra með fjárlagafrumvarpið sem hann segir engan gleðiboðskap; komið sé að skulda-
dögum. Mynd:Þóm.
Atvinnutryggingasjóður
rinni og slógdreginni Suðurlands-
sfld til afgreiðslu á tímabilinu des-
ember 1988 til mars 1989.
Undanfarin ár hafa Sovétmenn
aðeins fengist til að kaupa
heilsaltaða síld en nú verður sú
veigamikla breyting á söltun fyrir
sovéska markaðinn að öll sfldin
verður hausskorin og slógdregin.
Miðað við hráefni upp úr sjó
svarar þessi sala á 150 þúsund
tunnum til 195 þúsund tunna af
heilsaltaðri sfld. Þessi breyting
hefur í för með sér verulega verð-
mætaaukningu fyrir vinnsluna frá
því sem áður var þegar síldin fyrir
Sovétmenn var aðeins heilsöltuð.
„Með þessum samningi verða
íslendingar áfram stærstu útflytj-
endur á saltaðri síld í heiminum,"
sagði Einar Benediktsson.
-grh
Umsóknir streyma inn
GunnarHilmarsson: Fyrstu umsóknirnar afgreiddar um miðjan
mánuðinn. Hagfrœðingur LÍÚ: Lokun blasirvið 70
fiskvinnslufyrirtœkjum. 3 þúsund störf í hœttu
„Þegar hafa borist um 20 um-
sóknir útflutningsfyrirtækja og
þeim fjölgar dag frá degi. Fyrstu
umsóknirnar verða trúlega af-
greiddar héðan um miðjan mán-
uðinn og þá ekki endilega eftir
röð, heldur metur stjórn
Atvinnutryggingasjóðsins þær
eftir aðstæðum hverju sinni,“
sagði Gunnar Hilmarsson,
stjórnarformaður Atvinnutryg-
gingasjóðs útflutningsgreina.
Hlutverk Atvinnutrygginga-
sjóðsins er að veita lán til endur-
skipulagningar, hagræðingar og
framleiðniaukningar hjá útflutn-
ingsfyrirtækjum, jafnframt því
sem hann hefur forgöngu um að
breyta lausaskuldum fyrirtækja í
útflutningsgreinum í föst lán til
lengri tíma. „Það er ekki á valdi
sjóðsins að breyta rekstrargrund-
velli útflutningsfyrirtækja, held-
ur að lækka kostnað þeirra frá því
sem nú er eftir allt það sem á
undan er gengið,“ sagði Gunnar
Hilmarsson.
Ætla má að beiðnum fyrir-
tækja um aðstoð sjóðsins eigi
eftir að fjölga gífurlega á næst-
unni því samkvæmt niðurstöðum
Sveins H. Hjartarsonar, hag-
fræðings hjá Landssambandi ís-
lenskra útvegsmanna, vofir
rekstrarstöðvun yfir 70
fiskvinnslufyrirtækjum og 3 þús-
und störf eru í hættu, verði ekki
gripið til róttækari efna-
hagsráðstafana en þegar hafa
verið ákveðnar. Þetta kemur
fram í grein Sveins „Fiskvinnsla á
heljarþröm" sem birtist í nýjasta
tölublaði Fiskifrétta.
Sveinn H. Hjartarson byggir
niðurstöðu sína á nýlegri greinar-
gerð Þjóðhagsstofnunar um af-
komu í fiskvinnslunni. Af 65
frystihúsum í úrtaki Þjóðhags-
stofnunar voru 33 rekin með tapi
1987 og af 84 saltfiskverkunum
var21 rekin með tapi. Með því að
framreikna og yfirfæra þessar
tölur á fiskvinnsluna í heild kemst
Sveinn að ofangreindri niður-
stöðu.
-grh