Þjóðviljinn - 02.11.1988, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 02.11.1988, Blaðsíða 12
-SPURNINGIN—m Hvaö eiga borgaryfirvöld að gera í framhaldi af niðurstöðum skoðana- könnunar um hunda- hald? SÍMI 681333 Á KVÖLDIN 681348 ÁLAUGARDÖGUM 681663 Karl Stefánsson símsmiður: Framkvæma raunhæfa kosningu um hundahald þegar næst verð- ur kosið til borgarstjórnar til að fá sem flesta á kjörstað. Sjálfur er ég hlutlaus í afstöðunni til hunda- halds í borginni. Kristín Kristjánsdóttir menntaskólanemi: Mér finnst að banna eigi hunda- hald í borginni. Hundar eiga heima í sveitum en ekki í þéttbýli. Þar eru þeir frjálsari en í borg. 13irgir Helgason birgðavörður: Ég er á móti hundahaldi í þéttbýli og vil þessvegna að hundahald verði bannað í borginni. Hundar eiga heima í sveit því þar líður þeim mun betur en í þóttbýli. Stefán Einarsson þýskunemi í H.Í.: Banna hundahald. Þeir eiga heima í sveit en ekki í borg. í þétt- býli ér ávallt hætta á óþrifnaði frá þeim og svo líður þeim mun betur í sveitinni. Magnfríður Sigurðardóttir húsmóðir: Ég er nú frekar meö hundahaldi í borg að uppfylltum ströngum skilyrðum um hreinlæti og snyrti- mennsku og ef fólk hugsar vel um þá. En að öðru leyti finnst mér nú að hundar séu betur komnir í sveit en í borg. Útgáfa Landið úr lofti Landmœlingar íslands og Hörpuútgáfan senda frá sér bók með 50 loftmyndir aflandinu — Við viljum með þessu gefa almenningi kost á að kynnast landinu sínu betur. Loftmyndir eru ómetanlegar heimildir um landið og þær breytingar sem það tekur af völdum manna og nátt- úru, sagði Ágúst Guðmundsson, forstöðumaður Landmælinga ís- land, er hann fylgdi í gær úr hlaði nýrri bók sem ber nafnið Land- mótun og byggð í fimmtíu ár. Bókin hefur að geyma 50 loft- myndum víðs vegar af landinu. Bók þessi er gefin út í sam- vinnu Landmælinga íslands og Hörpuútgáfunnar sem ber allan kostnað af prentun og dreifingu hennar, en Landmælingar leggja til efni. - Á síðasta ári voru liðin 50 ár síðan fyrsta loftmyndin var tek- inn hér á landi til kortagerðar. Það má segja að við séum að minnast þeirra tímamóta með út- gáfu þessarar bókar. í dag eru til á annað hundrað þúsund loft- myndir í loftmyndasafni Land- mælinga íslands, sagði Þorvaldur Bragason, landfræðingur og deildarstjóri hjá Landmælingum, en hann ásamt Magnúsi Guð- mundssyni landfræðingi, sem annast loftmyndatökur fyrir Landmælingarnar, tóku efnið saman og völdu myndir í bókina. - Við hjá Hörpuútgáfunni erum mjög ánægð með þetta samsíarf við Landmælingar ís- lands. Við teljum að svona bók eigi fullt erindi til allra þeirra sem vilja fylgjast með þeim breyting- um sem á landinu verða frá ein- um tíma til annars, sagði Bragi Þórðarson bókaútgefandi. f bókinni má sjá fjölmörg dæmi um hvernig landið hefur tekið miklum breytingum. Þannig má sjá hvernig Breiðamerkurjökull hefur hopað, sjávarrof við Surtsey, nýtt hraun og eyðingu byggðar í Heimaey, þróun byggðar í Breiðholti í Reykjavík og þróun byggðar víða um land. Þessi mynd var tekin klukkan fimm mínútur gengin í þrjú, 18. ágúst 1986 í miðborg Reykjavík- ur, en þann dag flykktust Reykvíkingar eins og ónefnd dýr- ategund í miðbæinn í tilefni 200 ára afmælis borgarinnar. Tertan góða er undir röndótta tjaldinu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.