Þjóðviljinn - 02.11.1988, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 02.11.1988, Blaðsíða 3
FRÉTTIR Hvalamál Mótmæli við íhlutun Utanríkisráðherra: Trúnaðarbrestur er alvarlegur ísamskiptum vinríkja. Skýringa að vœntafrá Bandaríkjunum í vikunni. Flokksstjórn Alþýðuflokks lýsir yfir stuðningi viðframgönguJóns Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að trúnaðarbrestur í samskiptum vinríkja sé alvarlegt mál. En á svipuðum tíma og utanríkis- ráðherrann er fullvissaður um það af starfsbróður sínum í Bandaríkjunum að bandarísk stjórnvöld muni standa við samn- ing varðandi hvalveiðar Islend- inga, er embættismaður úr bandaríska viðskiptaráðuneytinu að þrýsta á japönsk stjórnvöld að hætta að kaupa hvalaafurðir af Islendingum. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra hefur sagt að hann búist við skýringum frá banda- rískum stjórnvöldum í þessari viku. Utanríkisráðherra sagði í gær að hann vissi ekki hvenær skýringa væri að vænta og vildi ekki tjá sig meira um málið; hann vissi þó að eitthvað væri að gerast „fyrir vestan", eins og hann orð- aði það. Flokksstjórn Alþýðu- flokksins hefur samþykkt að mót- mæla harðlega íhlutun banda- rískra stjórnvalda í íslenska við- skiptahagsmuni. Flokksstjórnin telur að með þessum hætti hafi stjórnvöld í Bandaríkjunum gengið á gerða samninga og með því hafi orðið trúnaðarbrestur í samskiptum landanna. Lýsir flokksstjórnin yfir fullum stuðningi við málflutning og framgöngu Jóns Baldvins í málinu og segir rann- sóknir á lífríki sjávar við ísland vera á forræði íslendinga sjálfra í samræmi við alþjóðlegar sam- þykktir. Utanríkisráðherra hefur lýst því yfir að þessi tvískinnungur í afstöðu bandarískra stjórnvalda sé alvarlegt brot á samkomulagi íslands og Bandaríkjanna varð- andi vísindaáætlun íslendinga. Hegðun bandaríska embættis- mannsins brjóti einnig í bága við Gatt-samkomulagið sem þver- taki fyrir að ríki beiti þriðja aðila þrýstingi til viðskiptaþvingana á annað ríki. Ráðherrann segir hvað alvarlegast í þessu máli að fulltrúi frá bandaríska utanríkis- ráðuneytinu hafi setið umræddan fund með Japönum. Japanir tóku málaleitan bandarísku embættis- mannanna illa og létu íslensk stjórnvöld vita af háttalagi þeirra. -hmp Loðna Mest til Siglufjarðar Heildaraflinn orðinn 53 þúsundtonn. 17.500 á sama tíma í fyrra Það sem af er loðnuvertíðinni hefur mestum afla verið landað á Siglufirði eða tæpum 13 þúsund lestum. Næstmest hefur borist á land á Eskifírði, 9.400 tonn, 6.900 í Krossanesi, 5.830 í Neskaupstað og 4.900 í Grinda- vík. Að sögn Ástráðs Ingvarssonar hjá Loðnunefnd er heildaraflinn orðinn tæp 53 þúsund tonn á móti 17.500 á sama tíma í fyrra. Um síðustu helgi veiddust tæp 9 þús- und tonn. Það sem einkum hefur gert það að verkum að meiri heildarafli er kominn á land nú en á sama tíma í fyrra er að veiðarnar hófust fyrr í ár og fleiri skip eru á veiðum nú en þá, fremur en mikil uppgrip. Til marks um þetta má nefna að Hólmaborgin frá Eskifirði hóf veiðar um miðjan ágúst sl. en hef- ur aðeins náð að veiða rétt rúm 4 þúsund tonn á tveimur og hálfum mánuði, sem segir sína sögu um aflabrögðin á vertíðinni. -grh Borgarstjóri Refsivöndur á lofti Davíð Oddsson, borgarstjóri í Reykjavík, sendi Asgeiri Hannes Eiríkssyni, alþingismanni og pylsusala, tóninn í þættinum Dag- skrá á Rás 2 í gær. Davíð var þar að tjá sig um ummæli einstakra þingmanna á þingi vegna ráðhússbyggingarinnar. Eftir að hafa tjáð sig um ein- staka þingmenn sagði Davíð að hann hefði tekið eftir því að Ás- geir Hannes hefði tekið þátt í um- ræðunni og þegar menn væru farnir að ræða staðsetningu húsa í Reykjavík mætti ræða staðsetn- ingu pylsuvagna og þá færi málið að snerta Asgeir Hannes per- sónulega. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Kvennalistans, segir í viðtali við tímaritið Veru að meirihlutinn í borgarstjórn, og þó sérstaklega Davíð, launi þeim ríkulega sem makki rétt og refsi þeim sem rísi upp. Nú er bara að sjá hvort Ás- geir Hannes verður að draga pylsuvagninn úr Austurstræti. -hmp „Við stöðvuðum Hvalvíkina sjálfir meðan það er að fást botn á málin," sagði Finnbogi Kjeld. Sagðist Finnbogi vonast til að samningar næðust við erlent kaupleigufyrirtæki í dag, um sölu skipanna úr landi. Sverrir Hermannsson landsbankastjóri segir hins vegar að á uppboði á föstudag verði gengið til lokaleiks í málinu. Mynd Jim Smart. Víkurskip Gengið til lokaleiks Uppboð fyrirhugað áföstudag. Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans: Vonum seinna að gengið er tilþessa lokaleiks. Finnbogi Kjeld: Vonast til að ná samningum í dag, um sölu skipanna úr landi „Það eru lög um það hvenær fyrirtæki skuli biðja um gjaldþrotaskipti og hér stendur þannig á að þetta fyrirtæki getur ekki staðið við skuldbindingar sínar. Þess vegna hafa menn krafíst uppboðs á eignum þess og alveg óhjákvæmilegt að það fari fram og að minni hyggju er það nú vonum scinna að gengið er til lokaleiks í þessu máli,“ sagði Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, í gær, þegar Þjóðviljinn innti hann eftir hlut Landsbankans í uppboðsbeiðni á skipum skipa- félagsins Víkur hf. Hefur bankinn ásamt Lífeyrissjóði sjómanna farið fram á að uppboð verði haldið á skipum félagsins nk. föstudag. Finnbogi Kjeld, forstjóri og aðaleigandi Víkurskipa, sagði hins vegar við Þjóðviljann að hann vonaðist til að ná samningum við erlent kaupleigufyrirtæki í dag um kaupleigu á skipununt þremur, Hvalvík, Eldvík og Keflavík. Ef af því verður verða skipin afskráð úr íslenska kaupskipaflotanum og sigla í framtíðinni undir erlendum fána. Finnbogi vildi ekki gefa upp hvaða kaupleigufyrirtæki væri um að ræða, né hvers lenskt það væri. Það væri ljóst að rekstrar- kostnaður skipafélaga hér á landi, þ.e. þeirra sem ekki eru í föstum línuflutningum eins og Eimskip og SÍS, væri um 20 miljónum króna hærri á ári en í nágrannalöndunum. Dæmið gengi því ekki upp nema skipin væru skráð undir svokölluðum „þægindafána“, en það þýðir að launakostnaður er mun lægri en hér. Sagðist Finnbogi vonast til að lausn fyndist á þessu máli sem væri öllum til hagsbóta. Um það hversu miklar skuldir skipafé- lagsins við Landsbankann eða vegna ógreiddra launa væru miklar, sagði Finnbogi að hann vissi ekki hver sú tala væri. Félagið hefði ekki íhugað að fara fram á greiðslustöðvun né lagt fram beiðni um gjaldþrot. phh Forsœtisráðherra Nýr aðstoðaimaður Jón Sveinsson lögfræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmað- ur Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra. Hann starfaði sem dómarafulltrúi við embætti bæjarfógetans á Akranesi frá 1976 til 1980 en hóf þá rekstur eigin lögfræðistofu. Jón hefur verið héraðsdómslögmaður síðan 1979. Hinn nýi aðstoðarmaður hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn, átt sæti í framkvæmdastjórn og mið- stjórn og var varaþingmaður flokksins á árunum 1979 til 1987. Eiginkona hans er Guðrún Magnúsdóttir kennari og eiga þau 4 börn. -hmp Miðvikudagur 2. nóvember 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Bandaríkjastjórn Svarað með leynd Utanríkisnefnd alþingis fjallar í dag um svar Bandaríkjastjórnar við fyrirspurnum utanríkisráð- herra frá því á laugardaginn, en ekki er enn vitað hvenær skýrt verður frá innihaldi þess. Sendiherra Bandaríkjanna gekk í gær á fund Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráð- herra vegna kröfu hans um skýr- ingar á afskiptum Bandaríkja- manna af hvalkjötssölu Hvals hf. í Japan. Hvorugur vildi skýra frá hvað á milli fór. Bokaklubbur áskrifenda Þjóðviljans Tilboð vikuna 1 .-8. nóv. Að lokum Síðustu Ijóð Ólafs Jóhanns Sig- urðssonar. Myndir eftir Jón Reykdal. Útgefandi Mál og menning. Verð kr. 1.850.- (Verð út úr búð kr. 2.175.-) Þrjár sólir svartar Skáldsaga af Axlar-Birni eftir Úlfar Þormóðsson. Verð kr. 1.900.- (Verð út úr búð kr. 2.632.-) Þjóðviljinn sími: 681333

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.